Morgunblaðið - 19.02.2008, Síða 27

Morgunblaðið - 19.02.2008, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2008 27 ✝ Eggert Ólafs-son fæddist á Þyrnum í Gler- árþorpi 3. sept- ember 1924. Hann lést á heimili sínu Skarðshlíð 23e Ak- ureyri 7. febrúar síðastliðinn. For- eldrar hans voru Jónína Karítas Tryggvadóttir, f. 10.6. 1896, d. 20.11. 1976, og Ólafur Stefánsson, f. 4.11 1899, d. 2.11. 1962. Systur Eggerts eru Þórunn, f. 26.11. 1917, d. 8.6. 1994, og Krist- ín, f. 27.2. 1929. Eggert ólst upp hjá móður sinni og föðurfólki í Glerárþorpi. Aðalstarf Eggerts var matsveinn á sjó og við kjöt- vinnslu hjá KEA. Hinn 26.12. 1948 giftist Eggert Sigríði Stef- ánsdóttur frá Hvammi í Höfð- ahverfi, f. 18.8. 1927, d. 23.10. 2007. Þau eignuðust fjögur börn: 1) Sigurlaug Anna, gift Bergvini Jó- hannssyni, þau eiga fjórar dætur, Sig- ríði Valdísi, Önnu Báru, Berglindi og Ásdísi Hönnu. 2) Steinunn Pálína, gift Jóhanni Jó- hannssyni, þau eiga þrjú börn, Huldu Björk, Eydísi Unni og Eggert Má. 3) Stefán. 4) Elín Val- gerður, gift Hilm- ari Stefánssyni, þau eiga tvær dætur, Hörpu og Agnesi. Fyrir átti Eggert soninn Sigurð Grétar, sambýliskona hans er Rósa Helgadóttir og eru þau búsett í Danmörku. Börn hans eru: Snæbjörn, Ágústa, Hilmir og Eva. Langafabörnin eru 17. Eggert verður jarðsunginn frá Glerárkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Já, nú er tómlegt í Skarðshlíðinni. Mig langar til að minnast ömmu og afa, þessara yndislegu og samheldnu hjóna sem bjuggu síðustu árin í Skarðshlíð en þar var samkomustað- ur fjölskyldunnar. Heimsóknir okk- ar voru svo tíðar að íbúar í blokkinni héldu að það væri alltaf veisla hjá Siggu og Eggerti en þá voru það bara við að kíkja í heimsókn. Eftir vinnu eða skóla var notalegt að koma við og njóta félagsskapar, þar tók á móti manni glaðlyndi og hlýja ásamt ýmsu bragðgóðu bakkelsi. Svo margs er að minnast, gott var að sækja ömmu heim og deila með henni ferðasögum, daglegu lífi eða framtíðardraumum. Við amma ræddum oft um handavinnu og gaf hún mér góð ráð við að útfæra hug- myndir mínar. Í æsku fylgist ég með henni við saumavélina, þar sem ég sat á gólfinu og lék mér, en hún var einkar lagin í höndunum. Amma var einstaklega dugleg og æðrulaus í veikindum sínum og lét aldrei á neinu bera og hugsaði vel um gesti sína. Afi hugsaði svo vel um og hjálpaði ömmu í veikindum hennar og stóð vaktina í Skarðshlíðinni eftir að hún lést 23. október síðastliðinn. Afi var mikið snyrtimenni og einkar vinnusamur, „ekki gera á morgun það sem hægt er að gera í dag“ voru hans einkunnarorð. Gönguferðir og út á klöpp eða í berjamóinn koma sterkt upp í huga minn og sagði hann mér frá á göml- um bæjum og öðrum kennileitum í þorpinu. Afi hafði smekk fyrir fal- legum fötum og fylgdist með tísk- unni, ég fékk alltaf hrós fyrir ef ég kom í pilsi, og ef skórnir voru ekki nógu vel pússaðir þá var búið að bæta úr því þegar ég kvaddi. Að afi skyldi deyja svo stuttu á eftir ömmu sýnir vel hversu óvenjusterkur þráður var á milli þeirra, en kær- leiksríkt samband þeirra og nær- vera er mér svo sannarlega góð fyr- irmynd. Þó samverustundirnar verði ekki fleiri þakka ég fyrir og geymi minn- ingarnar um yndislegan afa og ynd- islega ömmu sem höfðu kærleikann að leiðarljósi, voru mér í senn vinir og fjölskylda, og kveð ég þau með djúpri virðingu og þakklæti. Agnes. Ævin líður árin hverfa í aldadjúpið. Öldur falla, öldur rísa yfir hafið stjörnur lýsa. (Maríus Ólafsson.) Það er stutt þungra högga á milli. Sæmdarhjón eru fallin í valinn. Fyr- ir tæplega fjórum mánuðum kvödd- um við ömmu í hinsta sinn og nú sendum við afa okkar hinstu kveðju. Afi og amma voru afar samrýmd hjón og því var söknuður hans mikill þegar amma lést á síðasta ári. Það er huggun harmi gegn að nú eru þau sameinuð á nýjan leik. Afi var ein- stakur maður: hæglátur, þolinmóð- ur, skapgóður og léttur í lund. Hann var frár á fæti og brá sér í berjamó hvert haust. Hann var góður við menn og málleysingja og hugsaði hlýtt til þeirra sem minna máttu sín. Jafnvel fuglarnir í hverfinu munu sakna hans en þegar hart var í ári fór afi á kreik og gaf þeim gott í gogginn. Um árabil stundaði afi sjóinn, virti hann og elskaði. Það kom því engum á óvart þegar hann keypti sér trillu og stundaði veiðarnar sem áhugamál ásamt Stefáni syni sínum eftir að hann hóf störf í landi. Ætt- ingjarnir nutu svo sannarlega góðs af útgerðinni og oft fengu þeir fisk í soðið. Okkur krökkunum þótti alltaf jafnspennandi að fara með afa niður í Bót og skreppa með honum í stutta túra á trillunni út á Pollinn. Þar var nýjum kynslóðum kennt að veiða á færi og gera að fiski. Afi var einstaklega barngóður maður. Hann gaf sér alltaf tíma til að leika við okkur, sparka bolta og fara með okkur í göngutúra þegar við komum í heimsókn. Sérstaklega minnisstæðar voru ferðirnar upp á klappirnar fyrir ofan Lyngholtið, en þar eyddum við mörgum góðum stundum saman. Einnig þótti okkur gaman að fara með afa niður í kjall- ara og fá dýrindis harðfisk sem hann hafði verkað sjálfur. Afi var mikill fjölskyldumaður og bar ávallt hag sinna nánustu fyrir brjósti. Þegar amma átti við erfið veikindi að stríða kom innri maður afa vel í ljós. Hann stóð eins og klettur við hlið ömmu og hugsaði um hana af mikilli alúð. Fyrir umhyggju og dugnað hans virtum við hann og dáðum. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Elsku afi, við þökkum þér fyrir alla þína ást og umhyggju. Guð veri með þér. Þín barnabörn, Hulda Björk, Eydís Unnur og Eggert Már Jóhannsbörn Með djúpri virðingu og kærri þökk kveðjum við þig, elsku afi, en það er stórt skarð sem myndast í lífi okkar allra þegar bæði þú og amma eru farin. Allar vorum við systur vanar að leggja leið okkar í heim- sókn til þín og ömmu, en gestrisni ykkar, ást, umhyggja og kærleikur tók alltaf á móti okkur í dyragætt- inni, enda var mikill gestagangur hjá ykkur og ómetanleg fjölskyldu- tengsl hafa myndast milli afkom- enda ykkar, fólk hafði orð á því hvort alltaf væri afmæli eða veislur hjá ykkur sökum gestagangs. Fyrstu minningar okkar eru þeg- ar við sveitastelpurnar heimsóttum ykkur í Lyngholtið, þú fórst með okkur út á lóð, í göngutúr á klapp- irnar eða niður í „bót“. Þú unnir náttúrunni vel bæði til sjós og lands og stóðst oft lengi og horfðir yfir fjörðinn og bátahöfnina enda sjóari mikill og alltaf hátíð á sjómannadag- inn, þú fínn og flottur með slaufu og amma með kaffi og pönnukökur. Einnig varstu sannur dýravinur og allt fram á síðasta dag gafstu fugl- unum mat á lóðinni hjá þér. Þegar þú komst í Áshól þá stukku hund- arnir til um leið og þeir sáu bílinn þinn, þeir vissu að nú ættu þeir von á góðgæti úr vasa þínum. Það var alltaf mikil tilhlökkun hjá okkur þegar von var á þér því að þú gafst þér alltaf tíma í spjall og fróðleik og útiveru. Í kartöfluupptektinni á Ás- hóli sást þú til þess að senda okkur reglulega „bolsíur“ í garðinn sem okkur fannst svo gott og skemmti- legast var þegar þú komst á upp- tökuvélina með okkur sem var mjög oft. Berjamórinn átti hug þinn allan, svo sannarlega, og á haustin voru alltaf ber og rjómi á boðstólum í Skarðshlíðinni. Þú varst mikill barnavinur og öll börn hændust að notalegri nærveru þinni. Nú seinni árin þegar börnin okkar komu til þín var alltaf það fyrsta sem þau sögðu: „afi, komdu að leika.“ Á hverjum öskudegi kom- um við til ykkar ömmu, þú uppá- klæddur og sperrtur; glöddum við ykkur með söng og fengum að laun- um góðgæti. Alla tíð hefur þú verið rómaður fyrir snyrtimennsku, alltaf vel til hafður og snyrtilegt í kringum þig; þú spurðir okkur iðulega eftir að amma dó: „Er ekki bara fínt hjá mér?“ og horfðir rogginn um húsið, ánægður með frammistöðu þína. Þú hafðir gott auga fyrir klæðnaði og hældir okkur ef þér fannst við vel klæddar, það fannst okkur gaman. Allt þitt líf varstu einstaklega heilsuhraustur og gast þar af leið- andi á einstakan hátt hlúð að ömmu okkar í veikindum hennar. Þú varst atorkusamur og gast aldrei setið auðum höndum og geymdir engin verkefni til næsta dags. En nú er komið að lokum okkar samveru í þessu lífi, ykkur er greinilega ætlað að vera saman, þér og ömmu. Hver minning um þig, elsku afi okkar, er ljós í lífi okkar, þín ljúfu og góðu kynni af alhuga þökkum við þér. Guð geymi þig og varðveiti. Megi hið eilífa ljós lýsa þér og ömmu, ykkar er sárt saknað. Fjöl- skyldur okkar þakka ómetanlegar stundir, ást, kærleika og umhyggju. Mamma og pabbi blessa þín spor. Megi englar vernda þig. Með þökk fyrir allt og allt. Kveðja, systurnar frá Áshóli, Sigríður Valdís, Anna Bára, Berglind og Ásdís Hanna Bergvinsdætur. Elsku hjartans langiafi okkar, eða afi „rétt hjá“ eins og við sögðum allt- af. Lífið finnst okkur dálítið skrýtið, það er svo rosalega stutt síðan amma fór frá okkur og nú ert þú far- inn. Mamma segir að okkur megi ekki líða allt of illa út af því, því þú sért kominn til elsku ömmu okkar þar sem ykkur líður vel saman, en við erum samt rosalega sorgmædd- ir. Það er víst í lagi að vera sorg- mæddur en við erum líka rosalega glaðir yfir að hafa átt ykkur að í lífi okkar. Við erum heppnir að hafa átt langömmu og langafa í næsta húsi, að hafa alltaf á hvaða stundu sem er getað leitað til ykkar. Þegar mamma og pabbi voru að vinna var svo nota- legt að koma og leika við þig afi, fá sér mjólkurglas og kleinur, líta eftir fuglunum, skoða trén og gróðurinn, spila við ömmu, lita og teikna og spjalla um lífið og tilveruna. Það voru líka ómetanlegar stundir þegar við vorum lasnir, þá passaðir þú okkur rosalega oft meðan mamma var að vinna, það var svo stutt fyrir þig að koma úr næsta húsi. Það er mikill fróðleikur sem við förum með með okkur út í lífið frá ykkur ömmu, sem mamma segir að við eigum eftir að búa að alla ævi. Elsku afi, það verður erfitt að geta ekki komið við hjá þér eftir fót- boltaæfingu, yljað sér á köldum dög- um og fengið sér mjólkursopa. Við biðjum nú kærlega að heilsa ömmu okkar, þú mátt kyssa hana á kinnina frá okkur elsku drengjunum ykkar. Bergvin og Svanur Berg Jóhannssynir. Eggert Ólafsson ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, bróðir og mágur, MAGNÚS SIGURÐUR HELGASON, Múla, Kollafirði, Reykhólahreppi, lést á Landspítalanum við Hringbraut, deild 11E, þriðjudaginn 5. febrúar. Útför hans fer fram frá Laugarneskirkju föstudaginn 22. febrúar kl. 13:00. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Heimaaðhlynninguna Karitas. Ingrid Ísafold Oddsdóttir, Oddur Hannes Magnússon, Guðrún Þ. Hallgrímsdóttir, Páll Sigurður Magnússon, Dagbjört Brynjarsdóttir, Ísleifur Helgi Magnússon, Hulda Líney Magnúsdóttir, Eggert Björgvinsson, Kristján Ingi Magnússon, Lilja Björk Andrésdóttir, Sesselja Guðný Helgadóttir, Stefán Jónsson og barnabörn. REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is ✝ Elskulegi sonur, bróðir, frændi og vinur, FINNUR FREYR GUÐBJÖRNSSON, Kirkjuvegi 5, Keflavík, lést á sjúkrahúsi í Tælandi 7. febrúar. Útför hans verður gerð frá Ytri-Njarðvíkurkirkju, miðvikudaginn 20. febrúar kl. 14.00. Guðbjörn Ragnarsson, Stefanía Finnsdóttir, Kam Senglee, Sigurður Hólm Guðbjörnsson, Kristjana Eyvindsdóttir, Guðmundur Kristján Guðbjörnsson, Sigurlaug Finnsdóttir, Guðbjörn Þór Sigurðsson, Margrét Sigurðardóttir, Bjarni Ágústsson, Tinna María Sigurðardóttir, Rúnar Þór Ólason, Davíð Freyr Guðmundsson, Þórdís Jakobsdóttir, Stefán Berg Guðmundsson, Eva Helgadóttir, Þórunn Þorbjörg Guðmundsdóttir og aðrir ættingjar og vinir. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SNORRI ÞÓR RÖGNVALDSSON, húsgagnasmíðameistari, Goðabyggð 12, Akureyri, andaðist á FSA miðvikudaginn 13. febrúar. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtu- daginn 21. febrúar kl. 13.30. Margrét Hrefna Ögmundsdóttir, Ögmundur Snorrason, Deslijati Zjarif, Oddný Stella Snorradóttir, Níels Einarsson, Rögnvaldur Örn Snorrason, Kristjana Jóhannsdóttir, Ingibjörg Halla Snorradóttir, Hreinn F. Arndal, Kolfinna Hrönn Snorradóttir, Raymond Sweeney, Hanna Margrét Snorradóttir, Thomas Tue Jensen og barnabörn. ✝ Elskulegur sonur okkar og bróðir, HRAFNKELL HELGASON, Holtabyggð 2, Hafnarfirði, varð bráðkvaddur á heimili sínu sunnudaginn 17. febrúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Helgi Kristjánsson, Edda Guðmundsdóttir, Steinar Helgason,

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.