Morgunblaðið - 19.02.2008, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ JóhannesGunnarsson
fæddist á Sauð-
árkróki 16. febrúar
1943. Hann lést á
heimili sínu 8.
febrúar síðastlið-
inn. Foreldrar
hans voru Rann-
veig Ingibjörg Þor-
valdsdóttir trygg-
ingafulltrúi, f. 1.
janúar 1921, d. 6.
júlí 2002, og Gunn-
ar Stefánsson skip-
stjóri, f. 9. maí
1892, d. 31. júlí 1963. Bræður
Jóhannesar samfeðra eru Gunn-
ar Sævar, f. 8. janúar 1934, d.
10. janúar 1970, og Jón Rúnar,
f. 29. nóvember 1940.
Eiginkona Jóhannesar er
Guðrún Jóna Kristjánsdóttir, f.
13. október 1943. Synir þeirra
eru: 1) Kristján, f. 7. nóvember
1964, kvæntur Þóreyju Gísla-
dóttur, f. 3. febrúar 1972, börn
þeirra eru Jóhannes, f. 7. júní
1999, og Inga Rún, f. 27. mars
2004. 2) Helgi, f. 4. nóvember
1967, börn hans eru Heiðar
Örn, f. 21. júní 1994, og Ásrún,
f. 2. júlí 1996. Sambýliskona
Helga er Margrét Ingibergs-
dóttir, f. 26. októ-
ber 1970, dóttir
þeirra er Elísabet
Inga, f. 6. sept-
ember 2006.
Jóhannes ólst
upp og kláraði
skólagöngu sína á
Sauðárkróki, fór í
Samvinnuskólann á
Bifröst og útskrif-
aðist þaðan 1962.
Hann vann við
verslunarstörf
fyrstu árin á Sauð-
árkróki, Skaga-
strönd og á Blönduósi. Jóhannes
var skrifstofumaður í Reykjavík
hjá Járni og gleri, stofnaði
Heildverslunina Hraðberg, var
fjármálastjóri hjá S. Óskarssyni
og síðar framkvæmdastjóri hjá
Sverri Þóroddssyni. Frá árinu
1990 vann hann sem tollend-
urskoðandi hjá Tollstjóranum í
Reykjavík og vann hann þar til
dánardags. Jóhannes var félagi
í Kiwanisklúbbnum Kötlu frá
1978-1981 og frá árinu 2001.
Hann var forseti Kiwanisklúbbs-
ins Kötlu síðastliðið ár.
Útför Jóhannesar verður gerð
frá Fossvogskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.
Elsku pabbi, þegar mér bárust
fregnir af því að þú hefðir fallið frá
var ég staddur úti á sjó. Þetta
hljómaði fyrir mér eins og að það
gæti ekki staðist, vegna þess að
þegar við hittumst síðast þá varstu í
fullu fjöri, kankvís og stríðinn eins
og þú áttir að þér að vera.
En einhvern veginn er nú lífið
samt þannig að við vitum aldrei
hvað næsti dagur ber í skauti sér.
Þín er sárt saknað af okkur öllum
og þú varst alltof fljótt tekinn frá
okkur.
Ég er stoltur af þér og tel það
vera mína stærstu gjöf að hafa
fengið að vera þér samferða, þú
varst alla tíð ráðagóður og þau ráð
sem þú gafst voru gefin af heilum
hug. Heilsteyptur, hagmæltur og
vel lesinn með góðan húmor fyrir
lífinu og ekki síst fyrir þér sjálfum,
það varst þú. Þú áttir alltaf auðvelt
með að gleðjast og að gleðjast með
öðrum.
Maður eins og þú pabbi er ekki á
hverju strái. Ég verð að minnast á
alla þá hjálpsemi sem þú sýndir
okkur. Það er ómetanlegt, aldrei
var spurt af hverju einungis hvort
þú gætir komið því við, ekki man ég
eftir því að þú hafir nokkurn tímann
sagt nei.
Ég bið góðan Guð um að gefa
móður minni styrk til að takst á við
fráfall þitt.
Einnig bið ég góðan Guð um að
styrkja Heiðu frænku.
Hafðu hjartans þakkir fyrir allt.
Þinn sonur,
Kristján.
Ekki átti ég von á að skrifa þess-
ar línur strax enda bar fráfall þitt
brátt að. Við mamma voru sammála
um það að fyrst þetta þurfti að
koma upp þá væri það nú gott að þú
skyldir hafa fengið þá ósk þína upp-
fyllta að fá að fara heima hjá þér.
Það eru margar hugsanir sem
fljúga í gegnum hugann þegar ég
hugsa um þig elsku pabbi minn, all-
ar þær stundir sem við áttum sam-
an, hvort sem það var þegar ég var
lítill strákur og við bræðurnir vorum
á ferð með þér og mömmu eða þá á
seinni árum þegar við vorum á flakki
og Heiðar minn var með okkur. Þó
svo að við værum ekki alltaf sam-
mála þá varstu alltaf til staðar þegar
ég þurfti á að halda, hvort sem það
var að aðstoða mig eða þá að snúast
í kringum krakkana.
Þú og mamma hjálpuðuð mér
mikið þegar ég var einn og þá sér-
staklega að kaupa mér fyrstu íbúð-
ina. Mikið vorum við sammála þá um
hvað hún kom vel út fyrir mig og þá
sérstaklega aukaherbergið sem
Heiðar og Ásrún voru í þegar þau
voru hjá mér. Alltaf varstu tilbúinn
að ná í krakkana fyrir mig ef ég var
að snúast í íþróttum og gat ekki náð
í þau tímalega og hafðir þú gaman af
því.
Þú gladdist með mér þegar ég
náði hana Möggu mína og þegar við
fluttum í nýju íbúðina okkar. Ég
minnist ennþá ánægju þinnar þegar
Elísabet litla kom í heiminn og þú
hélst fyrst á henni. Þín er sárt sakn-
að af okkur öllum og þá sérstaklega
af krökkunum. Elísabet litla er alltaf
að leita að þér þegar hún kemur í
heimsókn til ömmu sinnar og hún
kallar hana reyndar alltaf afa þessa
dagana, það er stutt í stríðnina hjá
þeirri litlu. Sú litla skilur ekki hvað
er að gerast en finnur það vel að
eitthvað er öðruvísi. Hann Heiðar
minn tekur það sárt að komst ekki
til að kveðja þig en það er langt
ferðalag fyrir hann að fara frá Nýja-
Sjálandi og hingað. Eins og við vit-
um báðir þá var hann alltaf þinn afa-
strákur, nokkuð sem hann var mjög
ánægður með og eigum við eftir að
halda saman minningarstund svo
hann fái tækifæri til að kveðja þig
eins og hann hefði viljað.
Elsku pabbi minn, nú ertu búinn
að fá hvíldina þína en oft varstu
þreyttur þó svo að þú hafir ekki vilj-
að láta bera á því. Hvíldu í friði
pabbi minn og passaðu vel upp á
krakkana mína.
Þinn sonur,
Helgi.
Afi minn var einstakur maður.
Hann var góður, hlýr og alltaf til
staðar fyrir mig. Þegar ég var að
læra að lesa hjálpaði hann mér, það
gekk aldrei betur að lesa en þegar
afi hlustaði. Það var margt fleira
sem afi kenndi mér. Hann kenndi
mér að spila svartapétur og hann
spiluðum við oft. Ein af bestu stund-
um okkar afa var fyrir jólin þegar
við gerðum jólanammi eftir leyni-
uppskrift hans. Ég mun sakna afa
mjög mikið og er hryggur að geta
ekki verið viðstaddur jarðarförina
þar sem ég bý hinum megin á hnett-
inum. Stundunum sem ég átti með
honum mun ég aldrei gleyma.
Þinn afastrákur
Heiðar Örn.
Fjölskyldan var farin að horfa til
bjartari daga og hlakka til sumars-
ins er símtalið kom eins og þruma úr
heiðskíru lofti: „Hann Jói dó í morg-
un“. Augnablik var eins og allt hefði
stoppað. Hann sem búinn var að
berjast við ótrúlega hluti í gegnum
sitt líf og alltaf haft sigur hafði loks-
ins orðið að lúta í lægra haldi. Lífin
hans voru að minnsta kosti níu en
ekkert okkar grunaði að þau væru
að lokum komin. Í litlum fjölskyld-
um eins og okkar myndast stórt
skarð er einn hverfur á braut. Jóa
var mjög annt um barnabörnin sín
og viljum við senda sérstakar kveðj-
ur til Heiðars Arnar í Nýja-Sjálandi
en hann var mikill afastrákur og við
söknum hans á þessari stundu.
Jóhannes Gunnarsson
✝ Óli SteinþórGuðlaugsson
fæddist í Reykjavík
26. desember 1942.
Hann lést á heimili
sínu í Kópavogi 11.
febrúar síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Guðlaugur Bjarna-
son, f. 31.1. 1908, d.
2.1. 2000, og Mar-
grét Ólafsdóttir, f.
12.2. 1895, d. 7.8.
1969. Bróðir Óla er
Bjarni Garðar Guð-
laugsson, f. 12.9.
1935, kvæntur Önnu Kristínu
Bjarnadóttur, f. 29.9. 1937, d. 5.9.
2001.
Dætur þeirra eru 1) Stefanía, f.
5.1. 1962, gift Lárusi Daníel Stef-
ánssyni, börn þeirra eru Sigfríð,
Guðlaugur Garðar
og Anna Kristín, og
2) Margrét, f. 20.1.
1964, fyrri sam-
býlismaður Gunnar
Gunnarsson, börn
þeirra Bjarni Garð-
ar og Hansína Rut,
seinni sambýlis-
maður Sigurður Óli
Sigurðsson og dótt-
ir þeirra Ólöf Stein-
unn. Seinni kona
Bjarna er Hjördís
Hjaltadóttir, f. 19.9.
1945.
Óli Steinþór bjó mestan hluta
ævi sinnar á Kópavogshæli, sem
nú er Landspítalinn í Kópavogi.
Útför Óla fer fram frá Foss-
vogskapellu í dag og hefst athöfn-
in klukkan 13.
Elsku Óli, nú ertu kominn til
pabba og mömmu, og nú líður þér
vel.
Vér biðjum þig, Drottinn, að blessa þá
hrjáðu,
þú birtir oss syndugum mátt þinn á jörð.
Lát náðarsól rísa, veg þeim öllum vísa
er villir fóru leið, hafa týnt sinni hjörð.
Þú leiðir oss, Drottinn, að lindunum hreinu,
þú ljósið þitt kveikir við himnanna stól.
Um tíma þó syrti, þá brátt aftur birtir,
þú breiðir út þinn faðm og veitir oss skjól.
Vér flytjum þér lofgjörð, þú líknar og græðir
og léttir oss göngu í stormanna klið.
Frá ánauð og helsi gef hjörð þinni frelsi,
þín hjálp er jafnan nær. Ó, Guð, veit oss frið.
Veit oss þinn frið.
(Óskar Ingimarsson)
Með þessum sálmi kveðjum við
þig, kæri frændi. Hvíl þú í friði.
Stefanía og Margrét.
Óli Steinþór
Guðlaugsson
HINSTA KVEÐJA
Elsku afi, þú hefur alltaf ver-
ið okkur svo vænn og góður,
við elskum þig mikið.
Vertu, Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
(Hallgrímur Pétursson.)
Þín afabörn,
Jóhannes og Inga Rún.
✝
Eiginmaður minn ,faðir okkar, tengdafaðir og afi,
HÖRÐUR GUÐMUNDSSON ,
hárskerameistari,
Funalind 13,
Kópavogi,
áður til heimilis í Keflavík.
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju föstudaginn
22. febrúar kl 15.00.
Rósa Helgadóttir,
Helga Harðardóttir,
Halla Harðardóttir,
Þóra Harðardóttir, Sigurgeir Þorleifsson,
Inga Sigríður Harðardóttir, Gunnar Guðjónsson,
og barnabörn.
✝
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug vegna
andláts og útfarar elskulegs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður og afa,
GEIRS PÉTURSSONAR
Jóhanna Hjörleifsdóttir,
Ella Kristín Geirsdóttir, Davíð Áskelsson,
Guðrún Björk Geirsdóttir, Hallgrímur Óli Björgvinsson,
Hjörleifur Víðir Geirsson, Jenny Örnberg,
og barnabörn.
✝
Alúðarþakkir til ykkar allra sem sýndu okkur samúð
og minntust
VALBORGAR GUÐJÓNSDÓTTUR
sem andaðist á Grund 26. janúar.
Sérstakar þakkir til starfsfólks og stjórnenda
Grundar og starfsfólks á Skólabraut 3 - 5 á
Seltjarnarnesi fyrir einstakt viðmót og aðstoð.
Edda V. Sigurðardóttir,
Guðjón Sigurðsson, Ingibjörg Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir vináttu, hlýhug og sýnda
samúð við andlát og útför ástkærs eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
GUNNARS HANSSONAR STEPHENSEN.
Sérstakar þakkir til séra Þóris Stephensens og
Karlakórs Reykjavíkur.
Hadda Benediktsdóttir,
Stefán Hans Stephensen, Kristín Jóhanna Kjartansdóttir,
Lára G. Stephensen, Jakob Bjarnason,
Eiríkur G. Stephensen, María Gunnarsdóttir
og barnabörn.
✝
Okkar ástkæra frænka og vinkona,
ÁSTA KRISTÍN EIRÍKSDÓTTIR
frá Borgarfirði eystra,
Háaleitisbraut 111,
verður jarðsungin fimmtudaginn 21. febrúar frá
Fossvogskirkju kl. 15.00.
Ásdís Runólfsdóttir,
Móeiður Þorláksdóttir,
Ragna Þorsteins,
og aðrir ættingjar og vinir.
✝
Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður
og afa,
JÓNS BJARNASONAR
hæstaréttarlögmanns,
Bergstaðastræti 44,
sem lést sunnudaginn 10. febrúar, fer fram frá
Dómkirkjunni þriðjudaginn 19. febrúar kl. 13.00.
Kristín Haraldsdóttir,
Bjarni Jónsson, Ásthildur Helga Jónsson,
Haraldur Örn Jónsson, Agla Ástbjörnsdóttir,
Ásgeir Pálsson
og barnabörn.