Morgunblaðið - 19.02.2008, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2008 33
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofa opin frá
kl. 9-16.30, jóga kl. 10, postulínsmáln-
ing og útskurður kl. 13, lestrarhópur
kl. 13.30.
Árskógar 4 | Bað, handavinna,
smíði/útskurður, leikfimi, botsía.
Uppl. í síma 535-2700.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böð-
un, almenn handavinna, fótaaðgerð,
morgunkaffi/dagblöð, vefnaður, há-
degisverður, línudans, kaffi.
Dalbraut 18-20 | Vinnustofa í hand-
mennt opin kl. 9-16 m/ leiðb. til kl. 12.
Framsögn og félagsvist kl. 14.
Félag eldri borgara í Garðabæ | Línu-
dans kl. 12, málun kl. 13, trésmíði/
tréskurður kl. 13.30, spilað í kirkjunni
kl. 13, vatnsleikfimi kl. 14. Skráning í
bæjarferð 25. febrúar. Uppselt á Ív-
anov.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Skák kl. 13, félagsvist kl. 20, aðal-
fundur Félags eldri borgara í Reykja-
vík og nágrenni verður 23. febrúar kl.
13.30 á Hótel Loftleiðum í sal 1-3.
Munið félagsskírteinin.
Félag kennara á eftirlaunum | Tölvu-
starf í Ármúlaskóla hefst kl. 15.15. Op-
ið öllum félagsmönnum. Hægt er að
byrja hvenær sem er.
Félagsheimilið Gjábakki | Almenn
leikfimi, gler- og postulínsmálun og
jóga fyrir hádegi, handavinnustofan
opin, leiðbeinandi verður við til kl. 17,
róleg leikfimi og tréskurður kl. 13 og
alkort kl. 13.30.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefn-
aður kl. 9, jóga kl. 9.15, myndlist kl.
9.30, ganga kl. 10, leikfimi og hádeg-
isverður kl. 11, bútasaumur kl. 13, Ís-
lendingasögur kl. 16, jóga kl.18.15.
Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9,
hjúkrunarfræðingur kl. 9, botsía kl.
10, leikfimi kl. 11, hádegismatur, bón-
usbíllinn kl. 12.15, kaffi.
Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, mynd-
mennt kl. 10, leikfimi kl. 11.30, brids kl.
13, myndmennt kl. 13.
Hvassaleiti 56-58 | Bútasaumur kl.
9-13 hjá Sigrúnu. Jóga kl. 9, Björg F.
Námskeið í myndlist kl. 13.30 hjá
Ágústu. Helgistund kl. 14 í umsjón
séra Ólafs Jóhannssonar. Böðun fyrir
hádegi. Hádegisverður. Hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Skapandi skrif,
Müllersæfingar, Bör Börson, Bar-
áttuhópur um bætt veðurfar miðviku-
dag kl. 13.30, Páll Bergþórsson mætir.
Þegar amma var ung, hláturklúbbur
o.s.frv. Hvað dettur þér í hug þegar
þú hugsar til Íslendingasagnanna 22.
feb. 3 skipti. Leiðbeinandi Trausti
Ólafsson. Uppl. 568-3132.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun er
félagsvist á Korpúlfsstöðum kl. 13.30.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Morg-
unkaffi-vísnaklúbbur kl. 9, botsía
kvennaklúbbur kl. 10, handverks- og
bókastofa, opið hús og spilað kl. 13.
Kaffiveitingar.
Laugarból, Íþrhús Ármann/Þróttur
Laugardal | Leikfimi fyrir eldri borg-
ara kl. 12, fimmtud. kl. 11.
Norðurbrún 1 | Smíðastofan opin kl.
9-16 m/ leiðb. kl. 9-13. Handmennt-
arstofa opin kl. 9-16 m/ leiðb. kl. 13-
16. Myndlist kl. 9-12, postulín kl. 13-16,
leikfimi kl. 13. Hárgreiðsla s. 588-
1288. Fótaaðgerðarstofa s. 568-
3838.
Sjálfsbjörg | Bingó kl. 19.30, í fé-
lagheimili Sjálfsbjargar á höfuðborg-
arsvæðinu, Hátúni 12.
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fóta-
aðgerðir kl. 9-16. Myndmennt, enska,
hádegisverður, leshópur, spurt og
spjallað /myndbandasýning, búta-
saumur, frjáls spil og kaffiveitingar.
Upplýsingar í síma 535-2740.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.30, handavinnustofan opin með
leiðbeinanda, morgunstund kl.
9.30, leikfimi kl. 10, upplestur
framhaldssögu kl. 12.30, Félagsvist
kl. 14, félagsmiðstöðin opin fyrir
alla aldurshópa. Uppl. í síma 411-
9450
Þórðarsveigur 3 | Hjúkrunarfræð-
ingur kl. 9 ( fyrsta þriðjud í mánuði),
bænastund kl. 10, bónusbíllinn kl. 12,
kl. 16.45 bókabíllinn.
Kirkjustarf
Áskirkja | Opið hús kl. 10, föndur og
spjall. Bænastund í umsjá sókn-
arprests kl. 12, léttur hádegisverður
eftir bænastundina.
Breiðholtskirkja | Bænaguðsþjón-
usta kl. 17.30.
Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl. 11,
kirkjustarf aldraðra kl. 12, léttur
málsverður, helgistund. Hjörtur Páls-
son, sér um dagskrána. 10-12 ára
starf kl. 17-18.15. Æskulýðsstarf
Meme fyrir 9.-10. bekk kl. 19.30-
21.30. digraneskirkja.is
Fríkirkjan Kefas | Almenn bæna-
stund kl. 20.30.
Grafarvogskirkja | Árni Þór Sigurðs-
son les 10. passíusálm kl. 18.
Grafarvogskirkja | Opið hús fyrir
eldri borgara kl. 13.30-16, helgistund,
handavinna, spil og spjall, kaffiveit-
ingar. TTT fyrir börn 10-12 ára í Engja-
skóla kl. 16-17. TTT fyrir börn 10-12
ára í Borgaskóla kl. 17-18.
Grafarvogskirkja | Sr. Sigurður Páls-
son mun flytja fyrirlestur kl. 20, um
börn og sorg. Fyrirlesturinn er hugs-
aður fyrir forsjáraðila barna sem
glíma við missi ástvinar. Í kjölfarið fer
af stað sorgarhópur sem hefst
þriðjud. 26. feb. kl. 20. Nánari uppl. á
www.grafarvogskirkja.is
Grensáskirkja | Kyrrðarstund kl. 12.
Stutt helgistund með altarisgöngu og
bæn fyrir bænarefnum. Að helgi-
stund lokinni gefst kostur á léttum
málsverði á vægu verði.
Hallgrímskirkja | Starf fyrir eldri
borgara kl. 11-14. Leikfimi, súpa, kaffi
og spjall.
Hallgrímskirkja | Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum.
Hjallakirkja | Prédikunarklúbbur
presta kl. 9.15-11 í umsjá sr. Sigurjóns
Árna Eyjólfssonar héraðsprests.
Hjallakirkja | Bæna- og kyrrðarstund
kl. 18.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | For-
eldramorgunn kl. 10-12, opið fyrir alla,
veitingar. Alfa 1 og 2 kl. 19-22. Hjóna-
alfa hefst í vor. Nánari upplýsingar á
www.filadelfia.is
KFUM og KFUK | Fundur í AD KFUK
kl. 20. Aðalfundur sumarstarfsins í
Vindáshlíð. Venjuleg aðalfundarstörf.
Hátíðar og inntökufundur KFUM og
KFUK verður 21. febrúar kl. 19. Skrán-
ing í síma 588-8899 til hádegis á
fimmtudag.
Laugarneskirkja | TTT-hópurinn,
5.-6. bekkur kl. 16. Kvöldsöngur með
Þorvaldi Halldórssyni og Gunnari
Gunnarssyni kl. 20. Sóknarprestur
flytur Guðs orð og bæn. Trúfræðsla
sr. Bjarna kl. 20.30 „Það kostar lífið
að eignast lífið.“ Á sama tíma ganga
12 spora hópar til verka.
Selfosskirkja | Kirkjuskóli í Fé-
lagsmiðstöðinni við Tryggvagötu kl.
14, TTT-starf (ætlað tíu til tólf ára
börnum) í kirkjunni kl. 15.
Vídalínskirkja, Garðasókn | Kyrrð-
astund kl. 12, tónlist og ritning-
artextar lesnir frá kl. 12.10, súpa og
brauð kl. 12.30. Opið hús kl 13-16, vist,
brids og lomber, púttgræjur á staðn-
um. Kaffiveitingar, akstur fyrir þá
sem vilja, uppl. í síma 895-0169.
Þorlákskirkja | Foreldramorgunn í
bókasafni kl. 10-12.
dagbók
Í dag er þriðjudagur 19. febrúar, 50. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Hann stendur mér við hlið til þess að veita mér lið og vernd. (Daníel 11, 1.)
Rannsóknastofa í kvenna-og kynjafræðum efnir tilfyrirlestrar á fimmtudagkl. 12.30 í Háskólabíói,
sal 3.
Þar mun dr. Sigríður Guðmars-
dóttir guðfræðingur og lektor við
Háskólann í Winchester á Bret-
landi flytja erindið Undirlíf og
undirdjúp hjá Paul Tillich, Grace
Jantzen og Catherine Keller.
„Í fyrirlestrinum skoða ég hug-
takið sem á ensku er kallað abyss,
en ég gef nafnið undirdjúp,“ segir
Sigríður. „Hugtakið er mjög al-
gengt í mystískri heimspeki og
guðfræði, allt frá Platóni og grísku
þýðingum hebresku Biblíunnar,
gegnum Plótínus og áfram upp eft-
ir þýsku dulhyggjunni til Hegels
og Schellings.“
Sigríður skoðar kenningar guð-
fræðingsins Pauls Tillichs um hug-
takið með aðstoð póststrúktúral-
ískrar heimspeki og telur Tillich
hafa hitt naglann á höfuðið með því
að gera undirdjúpið að meginhug-
taki guðskilningsins: „Abyssan hef-
ur verið skemmtilega margrætt
hugtak í gegnum söguna. Í þrett-
ándualdarguðfræði manna á borð
við Hadewiich og Eckhart er hug-
takið notað til að lýsa guðdóminum
sem engin orð geta náð utan um,
og smýgur út úr og utan um öll
hugtök,“ segir Sigríður. „Seinna
meir, sérstaklega í meðförum
Nietzsche, fer hugtakið að tákna
einhverskonar skelfilegan pytt,
gímald.“
Sigríður leitar í skrif tveggja
femínista: trúarheimspekingsins
Grace Jantzen og guðfræðingsins
Catherine Keller, til að fá nýja sýn
á hugtakið. „Þær vilja halda því
fram að báðar hliðar abyssunnar:
bæði hinn jákvæði óendanleiki, sem
nærir og alltumlykur, og hið dökka
drungalega gímald, séu hvort
tveggja kynjaðar myndir dregnar
af líkömum kvenna,“ útskýrir Sig-
ríður. „Að skoða hugtak Tillichs í
ljósi gamallar sögu og nýrrar að-
ferðafræði veitir nýja innsýn sem
er alls ólík hefðbundum hug-
myndum sem líta á Guð sem eins
konar stóran pabba, manninn með
hvíta skeggið. Að afbyggja fyrri
hugmyndir með þessu móti gefur
okkur áhugaverða sýn inn í móð-
urlegar hliðar guðdómsins.“
Fyrirlesturinn á fimmtudag er
öllum opinn og aðgangur ókeypis.
Finna má nánari upplýsingar um
viðburði á vegum Rannsóknastofu í
kvenna- og kynjafræðum á slóðinni
rikk.hi.is.
Trúfræði | Fyrirlestur á vegum RIKK um kynlegar víddir guðdómsins
Undirlíf og undirdjúp
Sigríður Guð-
marsdóttir fædd-
ist í Reykjavík
1965. Hún lauk
stúdentsprófi frá
MR 1984, cand.
theol. frá Há-
skóla Íslands
1990, m.phil-
gráðu í heim-
speki 2003 frá Drew University og
doktorsgráðu frá sama skóla 2007.
Sigríður var prestur á Ólafsfirði og
Súgandafirði, en hefur frá 2004
verið prestur í Grafarholts-
prestakalli. Eiginmaður Sigríðar er
Rögnvaldur Guðmundsson, starfs-
maður Icebank, og eiga þau þrjá
syni.
Uppákomur
Bókasafn Kópavogs | Erindaröð um ástina.
Næsta erindi verður 21. febr. kl. 17.15, þá
talar Guðfinna Eydal um ástina í sam-
böndum. Næst tala: Þorgrímur Þráinsson,
þá Katrín Jónsdóttir og loks Óttar Guð-
mundsson.
Fyrirlestrar og fundir
Seðlabanki Íslands | Málstofa kl. 15 í fund-
arsal. Málshefjandi er dr. Þórarinn G. Pét-
ursson staðgengill aðalhagfræðings og ber
erindi hans heitið „Er þetta eitthvert mál?
Baráttan við verðbólgu víða um heim.“
Vináttufélag Íslands og Kanada | Friðþór
Eydal, fyrrum upplýsingafulltrúi varnarliðs-
ins, mun fjalla um bók sína, Frá heimsstyrj-
öld til hververndar; Keflavíkurstöðin 1942-
1951. Erindið verður flutt á morgun, 20.
febrúar kl. 20, í Lögbergi, Háskóla Íslands,
stofu 201 og er á vegum Vináttufélags Ís-
lands og Kanada.
Fréttir og tilkynningar
Blóðbankinn | Blóðbankabíllinn verður við
KFC 20. febrúar.
Það má með sanni segja að loka-
staðan í sveitakeppninni á
Bridshátíð hafi verið óvænt. Sveit
Simonar Gillis stóð uppi sem sig-
urvegari og hafði sveitin aldrei náð
að verma topppinn fyrr en í móts-
lok. Simon Gillis, sem er Skoti en
býr í London, hefir komið til
keppni á Bridshátíð árum saman
og oftar en ekki með fjölskyldu
sína með, kom að þessu sinni einn-
ig með þremur ungmennum frá
Noregi. Hann spilaði við Boye Bro-
geland og hinn vængurinn var
Marianne Harding og Odin Svend-
sen sem spiluðu feiknavel.
Sveit Málningar hélt uppi heiðri
landans og náði öðru sætinu. Þá
kom sterk sveit Norðmanna með
Tor Hellness og Erik Sælendsm-
inde í fararbroddi. Í fjórða sæti
urðu Þjóðverjar og Austurríkis-
menn fimmtu.
Sveit Magnúsar E. Magnússonar
varð sjötta og sveit Breka jarð-
verka ehf. sjöunda.
Okkar sterkustu sveitir gegnum
árin náðu ekki að sýna sitt besta.
Sveit Karls Sigurhjartarsonar varð
í áttunda sæti, sveit Grants Thorn-
ton tíunda og sveit Eyktar 14.
67 sveitir spiluðu í mótinu og var
sjötta hver sveitanna erlend.
Skipulag mótsins var til mikillar
fyrirmyndar og hrósa erlendu
keppendurnir okkar fólki ætíð í há-
stert.
Björgvin Már Kristinsson hefir
yfirumsjón með keppnisstjórninni
en Ólöf Þorsteinsdóttir frkvstj.
Bridssambandsins var mótsstjóri.
Reykjanesmót í tvímenningi
Reykjanesmótið í tvímenningi
verður að þessu sinni haldið á Suð-
urnesjum laugardaginn 8. mars nk.
Spilað er í húsi Bridsfélaganna á
Suðurnesjum á Mánagrund og
hefst spilamennskan kl. 11.
Skráning í mótið er hjá Erlu, s.
659 3013, Lofti, s. 897 0881. og
Garðari í síma 421 3632.
Bridsfélag Kópavogs
Minnt er á þriggja kvölda hrað-
sveitakeppni sem hefst nk.
fimmtudag.
Morgunblaðið/Arnór
Sigursveitin Sveit Simon Gillis sigraði í sveitakeppninni á Bridshátíð. Frá
vinstri: Boye Brogeland, Marianne Harding, Odin Sveindsen og Simon Gillis.
Óvænt endalok
BRIDS
Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Kyrrðardagar í Skálholti
FRAMUNDAN eru tvennir kyrrð-
ardagar í Skálholti.
Helgina 22.-24. febrúar nk. leiðir
séra Karl Matthíasson alþingis-
maður kyrrðardaga í Skálholti sem
einkum eru ætlaðir fólki sem sækir
æðruleysismessur og vinnur eftir
12-spora kerfinu. Þar að auki eru
allir hjartanlega velkomnir sem
asta sem við eigum“. Þessir eru
nýjung og hafa allmargir skráð sig
en nokkur pláss eru laus. Dag-
skráin hefst á föstudag kl. 18 og
lýkur upp úr hádegi á sunnudag.
Skráning og frekari upplýsingar
á heimasíðu Skálholts og í síma
486–8870 eða með netfanginu
rektor@skalholt.is.
hafa áhuga á þeim lífsstíl sem boð-
aður er í 12-sporakerfinu. Dag-
skráin hefst á föstudag kl. 18 og
lýkur upp úr hádegi á sunnudag.
Enn eru laus pláss.
Helgina 29. febrúar til 2. mars
leiðir sr. Solveig Lára Guðmunds-
dóttir kyrrðardaga undir yfirskrift-
inni „Lífsreynslan – það dýrmæt-
Það er
Engin sorgleg sambandsslit