Morgunblaðið - 19.02.2008, Qupperneq 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ er við hæfi að kvikmyndin
Jumper stökkvi beint í annað sætið
yfir tekjuhæstu kvikmyndir helg-
arinnar en myndinni gekk langbest
af þeim fjórum myndum sem frum-
sýndar voru um síðustu helgi. Nýj-
asta kvikmynd Seans Penn Into the
Wild kemst naumlega á topp tíu
listann en hinar helgarfrumsýning-
arnar, Lovewrecke og Before the
Devil Knows You’re Dead, höfnuðu í
16. og 20. sæti þessa vikuna.
En það er hins vegar kvikmynd
Baltasars Kormáks Brúðguminn sem
situr í fyrsta sæti yfir tekjuhæstu
kvikmyndir landsins um þessar
mundir en hvorki meira né minna en
40.321 bíógestur hefur gert sér ferð á
þessa stórgóðu mynd sem skartar
þeim Hilmi Snæ Guðnasyni, Mar-
gréti Vilhjálms og Laufeyju Elías-
dóttur í aðalhlutverkum. Myndin hef-
ur halað inn rúmar 43 milljónir króna
frá því hún fór í sýningar og eins og
staðan er í dag virðist fátt geta ógnað
yfirburðastöðu hennar á íslenskum
bíómarkaði. Síðasta myndin um John
Rambo fellur niður um eitt sæti á
milli vikna en hana hafa nú um sjö
þúsund bíógestir séð. Sömu sögu er
ekki að segja með Ástrík á Ólympíu-
leikunum því sú mynd hífir sig upp
um eitt sæti á milli vikna. Rúmlega
fimm þúsund manns hafa borgað sig
inn á þessa frönsku stórmynd. Verð-
launakvikmynd þeirra Cohen-
bræðra, No Country for Old Men
fellur niður um eitt sæti á milli vikna.
Tæplega 1.700 bíógestir sóttu mynd-
ina um helgina sem þýðir að heildar-
tekjur myndarinnar til þessa eru
orðnar um 4,2 milljónir króna. Þá má
einnig benda á stórmyndina Atone-
ment sem stendur í stað. Heildar-
aðsókn er komin yfir 6.000 manns og
tekjur um 4,1 milljón króna.
Tekjuhæstu kvikmyndir landsins
Fátt ógnar yfirburða-
stöðu Brúðgumans
>6E
!"!#$% $
&!'
%!(
!)$*!+
+!,!-
.-!/!01!2
3
4
5$
/ !6,!7 $*
Stökkvarinn Hayden Christensen í hlutverki sínu sem ofurhetjan í Jump-
er. Myndin fór beint í 2. sætið eftir sýningar helgarinnar.
KLEISER er maðurinn sem leik-
stýrði The Blue Lagoon og Grease,
sem heldur nafni hans á lofti um
ókomin ár. Síðan eru liðnir þrír ára-
tugir í einskismannslandi og gamli
frægðarljóminn löngu slokknaður.
Lovewrecked er rómantísk gam-
anmynd fyrir unglinga, um vinina
Jenny (Baynes) og Ryan (Bennett).
Þau fá bæði sumarvinnu í ferða-
mannaparadís á eyju í Karíbahafinu
áður en æðra nám hefst með haust-
inu. Á milli þeirra, vel að merkja,
ríkir platónskt samband, því Jenny
er hrifin upp fyrir haus af popp-
stjörnunni Jason (Carmack), og
kætist mjög þegar goðið birtist á
eyjunni. Jenny á harðan keppinaut í
truntunni Alexis (Di Scala), en
Jenny er ósköp ljúf og fín stelpa.
Nema hvað, Jenny og Jason fara
saman í skemmtisiglingu, falla fyrir
borð í ofviðri sem skellur á. Áður en
Jenny lendir í sjónum hefur hún vit
á að henda út björgunarbátnum.
Saman rekur þau að landi á eyðiey,
að þau halda og er Jenny litla komin
vel á veg með að góma bráðina þegar
Alexis og Ryan birtast og rústa
plönin.
Það er ein ástæða til að sjá Love-
wrecked, sem er Amanda Bynes,
þetta er önnur B-myndin sem ég hef
séð (hin er She’s the Man), sem
bjargast fyrir horn sakir skörulegs
einkaframtaks leikkonunnar. Hún
minnir á Goldie Hawn í gamla daga,
full af fjöri og ósviknum gamanleiks-
hæfileikum, og þá er mikið sagt. Að
flestu öðru leyti er myndin fáfengi-
leg della, Carmack er ekki alls varn-
að og tekst að gera góðlátlegt grín
að rokkstjörnuímyndinni og Di
Scala á örlitla von, en Bynes er
ósvikið stjörnuefni.
Rómantísk Amanda Bynes minnir á Goldie Hawn í gamla daga.
Poppguðinn og gell-
urnar á ströndinni
KVIKMYND
Laugarásbíó, Borgarbíó Akureyri
Leikstjóri: Randal Kleiser. Aðalleikarar:
Amanda Bynes, Chris Carmack, Jonath-
an Bennett, Jamie-Lynn DiScala. 85 mín.
Bandaríkin 2005.
Lovewrecked
bbnnn
Sæbjörn Valdimarsson
* Gildir á allar
sýningar merktar
með rauðu
450
KRÓNUR
Í BÍÓ*
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Þú færð 5 %
endurgreitt
í SmárabíóSími 462 3500 Sími 564 0000
Sími 551 9000
SÝND Í REGNBOGANUM
eee
- V.I.J., 24 STUNDIR
eee
- S.V, MBL
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG REGNBOGANUM SÝND Í REGNBOGANUM
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
- S.V. MBL
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
ÞAÐ ÁTTI
ENGINN AÐ
MEIÐAST
SÝND Í REGNBOGANUM
NJÓTTU MEÐAN Á NEFINU STENDUR
LEIKSTÝRT AF
SIDNEY LUMET
LEIKSTJÓRA SERPICO
OG DOG DAY AFTERNOON
STÓRKOSTLEG MYND
Í LEIKSTJÓRN SEAN PENN.
BYGGÐ Á SANNSÖGULEGUM
ATBURÐUM.
HAMINGJAN FELST EKKI
Í EFNISLEGUM GÆÐUM.
Jumper kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára
Before the devil knows you’re dead kl. 5:30 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára
Meet the Spartans kl. 6 - 8 - 10
Walk hard kl. 6 - 8 B.i. 14 ára
Aliens vs. Predator kl. 10:10 B.i. 16 ára
SÝND Í REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
SÝND Í SMÁRABÍÓI
eee
DÓRI DNA, DV
Cloverfield kl. 8 - 10 B.i.14 ára
Ástríkur á Ól... ísl. tal kl. 3:30 - 5:40
Nú mætast þau aftur!
- Kauptu bíómiðann á netinu -
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
Jumper kl. 5:50 - 8 - 10 B.i. 12 ára
Rambo kl. 10 B.i. 16 ára
Ástríkur á Ól... kl. 5:50
Brúðguminn kl. 8 B.i. 12 ára
Jumper kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i.12 ára
Jumper kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 LÚXUS
Meet the Spartans kl. 4 - 6 - 10:20
Brúðguminn kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára
eeee
„Into the Wild skilur við áhorfandann snortinn
af andstæðum, fegurðinni og vægðarleysinu
sem hún lýsir svo skýrt og fallega.“
-S.V., Mbl
TILNEFND TIL 2 ÓSKARSVERÐLAUNA
M.A. FYRIR BESTA AUKALEIKARA