Morgunblaðið - 19.02.2008, Qupperneq 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„VERKIÐ er í gangi. Þetta tekur
hins vegar lengri tíma en við höfð-
um áætlað, en það vill nú bara
verða með verk eins og þetta. En
þetta gengur ágætlega,“ segir Sig-
urður Gísli Pálmason, einn af
framleiðendum Draumalandsins,
heimildarmyndar sem byggð er á
samnefndri metsölubók Andra
Snæs Magnasonar. Leikstjóri
myndarinnar er Þorfinnur Guðna-
son, en að sögn Sigurðar er mynd-
in langt komin. „Við erum að klára
að viða að okkur efni, og það er
byrjað að klippa hana,“ segir hann,
en vinna við myndina hefur staðið
yfir í rúmt ár.
Fráleit hugmyndafræði
Eins og margir eflaust muna er
bók Andra Snæs hörð ádeila á
virkjanaframkvæmdir á hálendi
landsins, og kom hún út þegar um-
ræðan um Kárahnjúkavirkjun stóð
sem hæst. En telur Sigurður að
mynd sem þessi eigi erindi í dag,
löngu eftir að Hálslón hefur verið
fyllt?
„Við erum að taka fyrir miklu
víðara sjónarhorn, myndin fjallar
sáralítið um Kárahnjúka. Og svo
ég taki nú aðeins upp hanskann
fyrir Andra Snæ vil ég ekki alveg
fallast á að bókin hafi eingöngu
fjallað um Kárahnjúka,“ segir
hann.
„Við erum að hugsa um hvað
gerir það að verkum að við sem
þjóð, ein af ríkustu þjóðum ver-
aldar ár eftir ár, tökum svona
ákvarðanir. Mér finnst þetta svolít-
ið byggt á óttanum, með svip-
uðum hætti og Bandaríkjamenn
sannfærðust um að nauðsynlegt
væri að fara í stríð út af því að
það steðjaði að þeim einhver ógn,
sem er náttúrlega fráleit hug-
myndafræði. Með sama hætti má
segja að hér sé fólk sannfært um
það ár eftir ár að ef ekki verður
virkjað og farið á fjóra fætur fyrir
framan alþjóðlegar málmbræðslur
muni bresta á mikið atvinnuleysi.
Staðreyndin er hins vegar sú að
hér hefur ekki verið atvinnuleysi
lengi og núna hafa verið á bilinu
17 til 18 þúsund erlendir verka-
menn hér á landi til þess að moka
kolunum hraðar inn í efnahagsvél-
ina.“
Spegilmynd
Af orðum Sigurðar að dæma
má gera ráð fyrir að myndin muni
taka fremur afdráttarlausa af-
stöðu gegn stóriðjustefnunni, með
svipuðum hætti og gert var í bók
Andra Snæs. Aðspurður segir
hann það þó ekki aðalatriðið varð-
andi myndina. „Ég lagði meira
upp með að bregða upp spegli
fyrir okkur til að horfa í. Það er
ekki verið að gera umhverf-
isverndarsinnum hærra undir
höfði heldur en hinum sem hafa
mikinn áhuga á þessu málefni og
trúa því í hjarta sínu að þetta sé
nauðsynlegt og gott – að fórna
landi og byggja málmbræðslur.
Helmingur þjóðarinnar trúir því
og heldur að það sé mjög gott. Ég
vil alls ekki gera lítið úr því við-
horfi því öll viðhorf eiga rétt á
sér. Þannig að myndin mun ekki
taka einhverja harkalega afstöðu,
heldur bregða upp þessum spegli.“
Myndin verður byggð upp á við-
tölum og safnaefni, innlendu sem
erlendu. Að sögn Sigurðar verður
einnig eitthvað af leiknu efni í
myndinni, þótt það verði í minni-
hluta.
Sigurður gerir ráð fyrir að
myndin verði frumsýnd síðar á
þessu ári, jafnvel strax í sumar, en
hún verður sýnd í kvikmynda-
húsum hér á landi. „Vonandi munu
útlendingar líka hafa áhuga á að
sjá þessa mynd því ég held að Ís-
land sé að mörgu leyti heimurinn í
hnotskurn,“ segir Sigurður. „Það
væri líka mjög undarlegt ef Rík-
issjónvarpið hefði ekki áhuga á að
kaupa þessa mynd því hún er nú
byggð á einhverri mest seldu bók
Íslandssögunnar.“
Það er fyrirtæki Sigurðar,
Ground Control Productions /
Jarðstöðin, sem framleiðir mynd-
ina ásamt Hrönn Kristinsdóttur og
fyrirtæki hennar, Tröllakirkju.
Myndin fékk 12 milljónir úr Kvik-
myndasjóði, en Sigurður telur að
heildarkostnaður við myndina
muni nema í kringum 60 milljónum
króna.
Draumalandið í bíó
Heimildarmynd byggð á metsölubók
Andra Snæs Magnasonar verður
frumsýnd hér á landi síðar á þessu ári
Árvakur/Ómar
Vinsæll Andri Snær hefur haldið fjölda fyrirlestra í kjölfarið á útgáfu Draumalandsins – sjálfshjálparbókar handa
hræddri þjóð. Hér má sjá hann flytja einn slíkan fyrir fullu húsi í Borgarleikhúsinu.
Sigurður Gísli
Pálmason
Andri Snær
Magnason
Þorfinnur
Guðnason
HLJÓMSVEITIN Nýdönsk heldur
upp á tvítugsafmæli sitt um þessar
mundir. Fyrir jól kom út hjá Senu
glæsilegur afmælispakki sem inni-
hélt allar plötur sveitarinnar í einni
öskju ásamt því að safnplata með
helstu lögum sveitarinnar og tveim-
ur nýjum lögum kom út. Annað
nýja lagið heitir „Verðbólgin augu“
og hefur mikið verið spilað í út-
varpinu undanfarið.
Nýdanskir létu sér þetta ekki
nægja til að fagna afmælinu heldur
stormuðu í Borgarleikhúsið með
tvenna tónleika í lok október sem
voru smekkuppseldir og viku síðar
endurtóku þeir leikinn í Samkomu-
húsi Leikfélags Akureyrar með
tvennum smekkuppseldum tón-
leikum einnig.
Nýdönsk heldur áfram að fagna
afmælinu og fer sveitin nú til Ísa-
fjarðar og verður með afmælistón-
leika í Edinborgarhúsinu laug-
ardagskvöldið 15. mars. Rúmlega
10 ár eru síðan hljómsveitin spilaði
síðast á Ísafirði og er mikill spenn-
ingur í herbúðum sveitarinnar.
Daníel Ágúst gekk nýverið aftur
til liðs við Nýdanska eftir 12 ára
fjarveru og verður að sjálfsögðu
með á tónleikunum á Ísafirði og
mun flagga Nýdanska fánanum af
kappi með félögum sínum.
Forsala á afmælistónleika Ný-
danskrar í Edinborgarhúsinu á Ísa-
firði er hafin á midi.is og af-
greiðslustöðum mida.is og verða
300 sæti í boði.
Árvakur/Eggert
Sameinaðir Afmælisbörnin verða eflaust í góðum gír fyrir vestan.
Afmælisveisla á Ísafirði
Nýdönsk í Edinborgarhúsinu laugardagskvöldið 15. mars
/ ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI
O S C A R
®
T I L N E F N I N G A R
ÞAR Á MEÐAL
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG SELFOSSISÝND Í KRINGLUNNI OG KEFLAVÍKSÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
JUMPER kl. 6 - 8 - 10 B.i.12 ára
MR. MAGORIUMS WONDER ... kl. 6 - 8 LEYFÐ
NO COUNTRY FOR OLD MEN kl. 10 B.i.16 ára
P.S. I LOVE YOU kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ
NO COUNTRY FOR OLD MEN kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.16 ára
NO COUNTRY FOR OLD MEN kl. 8 - 10:30 B.i.16 ára LÚXUS VIP
MR. MAGORIUMS WONDER .... kl. 6 LEYFÐ
P.S. I LOVE YOU kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ
UNTRACEABLE kl. 8 - 10:30 B.i.16 ára
UNTRACEABLE kl. 5:30 B.i.16 ára LÚXUS VIP
SWEENEY TODD kl. 8 - 10:30 B.i.16 ára
CHARLIE WILSON'S WAR kl. 10:30 B.i.12 ára
DEATH AT A FUNERAL kl. 6 - 8 B.i.7 ára