Morgunblaðið - 19.02.2008, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2008 41
Þriðjudagur 12. febrúar
Við flugum frá Bali til Jakartaí gær og í kvöld héldum viðtónleika í einhverri tenn-
ishöll skammt frá hótelinu. Frétt
var um Björk í ensku dagblaði sem
ég fékk óumbeðið á hótelherbergið
mitt. Þar var fólk hvatt til að fara á
tónleikana hennar. Sagt var að
Björk væri vissulega óvanalegur
músíkant og „alls ekki eins og Cel-
ine Dion,“ (?) en samt væri tónlist
hennar vel þess virði að heyra.
Í leiðara blaðsins var fólki hins
vegar ráðlagt að fara EKKI á rokk-
tónleika í Indónesíu. Ástæðan var
sú að nýlega höfðu verið haldnir
tónleikar þar sem ellefu ungmenni
tróðust til bana og greinilegt væri
að öryggisgæsla væri ekki full-
nægjandi í landinu.
Kannski þess vegna var heill her
af lögreglumönnum sem stóðu fyrir
utan hjá okkur, sumir með skildi.
Og kannski þess vegna var
óvanalega fámennt á tónleikunum,
trúlega ekki meira en tvö þúsund
manns. Viðtökurnar voru þó frá-
bærar og það var gaman að spila
fyrir fólkið.
Eftir tónleikana fóru flest okkar
á barinn á hótelinu. Mér var sagt að
flestar konurnar þar væru vændis-
konur. Það er auðvitað alltaf sorg-
legt þegar konur þurfa að selja sig,
en það er ennþá sorglegra að þær
selji sig fyrir tæplega fjögur þús-
und íslenskar krónur. Segir það allt
sem þarf um efnahagsástandið í
landinu.
Fimmtudagur 14. febrúar
Við flugum til Seoul í Kóreu ígær. Ferðin tók um sjö oghálfan tíma og ég var orðinn
býsna lúinn þegar við komum á
leiðarenda. Mér gengur ekki vel að
sofa í flugvélum, sennilega vegna
þess að ég vil ekki sjá svefnpillur.
Sumir taka lyf til að geta sofið á
löngum flugferðum, en ég veit um
mann sem gerði það og pissaði á
sig! Ekki beint skemmtilegt að
lenda í því, allra síst í flugvél.
Seoul er sérkennileg borg. Að
stórum hluta er hún samsett af
þyrpingum blokka sem allar líta ná-
kvæmlega eins út. Það er eitthvað
þráhyggjukennt við það – og kulda-
legt. Ekki bætti úr skák að það var
svo kalt að maður nötraði. Mikil
viðbrigði frá veðursældinni í
Indónesíu.
Enskukunnátta Kóreubúa virðist
af skornum skammti. Við komum á
hótelið um níuleytið um morguninn
og ég lenti strax í miklu basli við að
panta mér morgunmat. Starfsfólkið
á hótelinu var þó viðkunnanlegt,
kannski einum of. Það var eitthvað
gervilegt við endalaust brosið og
hneigingarnar. Eins og að eiga
samskipti við vélmenni. En senni-
lega var ég bara svona ergilegur
eftir langt ferðalagið um nóttina.
Langar ferðir taka vissulega á
taugarnar.
Laugardagur 16. febrúar
Í kvöld voru tónleikarnir okkar íÓlympíuhöllinni í Seoul, enhún var byggð fyrir Ólympíu-
leikana þar árið 1988. Höllin var
full og tókust tónleikarnir verulega
vel. Hljómburðurinn í höllinni er
mjög þurr, þ.e. endurómunin er
nánast engin, sem er gott því þá
hefur Björk og hljóðmennirnir
hennar fulla stjórn á því hvernig
tónlistin hljómar.
Eitt flottasta lagið á nýju plöt-
unni hennar Bjarkar, Volta, heitir
„Vertebrae By Vertebrae“, og
hingað til höfum við aldrei getað
flutt það á tónleikunum vegna of
mikils bergmáls. Eða þá að hljóm-
urinn er of loðinn og ófókuseraður,
eins og gerist oft á útitónleikum.
En núna var hljómburðurinn full-
kominn og lagið fékk að hljóma í
fyrsta sinn í lifandi flutningi.
Eftir tónleikana hittumst nokkur
okkar í lobbíinu í hótelinu. Þar er
stór bar með glæsilegu útsýni yfir
borgina. Enn magnaðra er þó eins
konar tréspegill, þ.e. stór flötur
samsettur úr ótal litlum, hreyf-
anlegum trékubbum. Fyrir ofan
spegilinn er falin myndavél sem
stjórnar hreyfingum kubbanna, og
mynda þeir skuggamyndir af fólk-
inu er stendur fyrir framan eða
gengur framhjá.
Björk og Mark Bell, sem er einn
af félögum mínum í hljómsveitinni,
tóku það að sér að gerast plötu-
snúðar á barnum. Tónlistin sem þau
spiluðu var talsvert framsæknari
en sú sem venjulega er leikin þar,
og ég tók eftir því að sumir gest-
anna settu upp furðusvip. En það
var bara enn skemmtilegra og var
kvöldið hið ánægjulegasta.
Höfundur leikur á píanó, selestu,
orgel og önnur hljómborðs-
hljóðfæri í hljómsveit Bjarkar Guð-
mundsdóttur.
Banvænir rokktónleikar
Í HEIMSREISU MEÐ BJÖRK
Jónas Sen
»Kannski þess vegnavar heill her af lög-
reglumönnum sem
stóðu fyrir utan hjá okk-
ur, sumir með skildi.
Ljósmynd/Jónas Sen
Seoul Þráhyggjukennd blokkaþyrping í höfuðborg Suður-Kóreu.
senjonas@gmail.com
16.02.2008
3 7 14 15 35
6 2 8 1 4
1 5 5 3 0
18
13.02.2008
9 12 15 25 38 43
3614 41
Ánægðustu viðskiptavinir
farsímafyrirtækja
Samkvæmt Íslensku
ánægjuvoginni 2007
/ SELFOSSI/ KEFLAVÍK/ AKUREYRI
JUMPER kl. 8 - 10 B.i.12 ára
MEET THE SPARTANS kl. 8 B.i. 7 ára
SWEENEY TODD kl. 10 B.i. 16 ára
DIANE LANE Í
ÓVÆNTASTA
SÁLFRÆÐITRYLLI
ÁRSINS.
HVERNIG
FINNURÐU
RAÐMORÐINGJA
SEM SKILUR EKKI
EFTIR SIG NEINA
SLÓÐ?
S.V., MBL
eee
„Hressandi hryllingur“
„...besta mynd
Tim Burton
í áraraðir.“
R.E.V. – FBL.
eee
eeee
„Sweeney Todd er
sterkasta mynd þessa
ágæta leikstjóra
í háa herrans tíð...“
H.J. MBL
O S C A R
®
T I L N E F N I N G A R
ÞAR Á MEÐAL3BESTI LEIKARI - JOHNNY DEPP
eeee
„...EIN SKEMMTILEGASTA
GAMANMYND SEM ÉG HEF SÉÐ
Í LANGAN TÍMA...“
„...HENTAR FÓLKI Á ÖLLUM ALDRI
- FRÁBÆR SKEMMTUN!“
HULDA G. GEIRSDÓTTIR – RÚV/RÁS2
"VEL SPUNNINN FARSI"
"...HIN BESTA SKEMMTUN."
HEIÐA JÓHANNSDÓTTIR
eee
VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á
JOHNNY DEPP
BESTI LEIKARISIGURVEGARI
GOLDEN GLOBE®
SÖNGLEIKUR/
GAMANMYND
BESTA MYND
SÝND Á AKUREYRI OG KEFLAVÍK
MR. MAGORIUMS WONDER ... kl. 6 - 8 LEYFÐ
NO COUNTRY FOR OLD MEN kl. 10:30 B.i.16 ára
UNTRACEABLE kl. 10 B.i.16 ára
P.S. I LOVE YOU kl. 8 LEYFÐ
MEET THE SPARTANS kl. 6 LEYFÐ
SÝND Í ÁLFABAKKASÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍKSÝND Í ÁLFABAKKA, AKUREYRI OG SELFOSSISÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
eee
- S.V, MBL
eee
DÓRI DNA, DV
eee
- V.I.J., 24 STUNDIR
EITTHVAÐ SKELFILEGT ER Á SVEIMI!
SÝND Á SELFOSSI
ATH. SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
SÝND Í ÁLFABAKKA
eeee
„ Charlie Wilson’s War
er stórskemmtileg
og vönduð kvikmynd
- V.J.V., TOPP5.IS
„Myndin er meinfyndin“
„Philip Seymour Hoffman fer
á kostum í frábærri mynd“
- T.S.K. 24 STUNDIR
eeee
„Sérlega vel heppnað og
meinfyndið bandarískt
sjálfsháð...“
Ó.H.T., RÚV/Rás 2
SÝND Í ÁLFABAKKA
MR. MAGORIUMS WONDER ... kl. 8 LEYFÐ
UNTRACEABLE kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára
CLOVERFIELD kl. 10:10 B.i. 14 ára
BRÚÐGUMINN Sýnd lau. og sun. B.i. 7 ára