Morgunblaðið - 19.02.2008, Síða 44
ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 50. DAGUR ÁRSINS 2008
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Umdeild aðgerð
Ekki eru allir sammála um ágæti
ákvörðunar breskra stjórnvalda að
þjóðnýta íbúðalánabankann North-
ern Rock. Meðal þeirra eru hlut-
hafar sem margir telja hættu á að
þeir verði hlunnfarnir og ætla að
leita réttar síns. Þjóðnýtingin er sú
fyrsta í Bretlandi síðan 1971. »12
Kanna nýjan orkukost
Bæjaryfirvöld á Seltjarnarnesi
hyggjast láta kanna fýsileika þess að
framleiða raforku úr umframvarma
úr hitaveituvatni í svokölluðu Kal-
ina-orkuveri. Gæti þessi leið annað
helmingnum af raforkuþörf Sel-
tjarnarnesbæjar nú, en umrædd að-
ferð býður upp á leið til að bæta nýt-
ingu hitaveituvatnsins. »2
Lokaði veginum
Þjóðvegur 1 við Svignaskarð í
Borgarfirði lokaðist í miklum vatna-
vöxtum í fyrrinótt. Þegar var hafist
handa við viðgerð en ekki tókst að
ljúka henni í gær. »4
Viðurkenna sjálfstæði
Um áttatíu ríki höfðu ýmist við-
urkennt eða hugðust viðurkenna
sjálfstæði Kosovo í gær, daginn eftir
að þing hins nýstofnaða ríkis lýsti yf-
ir fullveldi. Serbar eru ævareiðir og
hafa kallað sendiherra sinn í Wash-
ington heim í mótmælaskyni við
stuðning Bandaríkjastjórnar við
sjálfstæðisyfirlýsinguna. »13
SKOÐANIR»
Staksteinar: Tekst að eyða óvissunni?
Forystugreinar: Úrelt viðhorf
Rússa | Að láta ekki deigan síga
Ljósvaki: Danir glæpsamlega góðir
UMRÆÐAN»
Er bæjarstjórn Álftaness einnota?
Enn um umræðusiðferði
Biskup Íslands, trúleysi
og kærleikur
4
4 4 4 4
4
4
5 ,6&' /
&+ ,
7 #
!#&&%&" /$& 4
4 4
4
4
4
4 4
. 82 '
4 4
4 4
4 4
4 9:;;<=>
'?@=;>A7'BCA9
8<A<9<9:;;<=>
9DA'8&8=EA<
A:='8&8=EA<
'FA'8&8=EA<
'3>''A%&G=<A8>
H<B<A'8?&H@A
'9=
@3=<
7@A7>'3+'>?<;<
Heitast 7 °C | Kaldast 2 °C
SA 8-13 m/s um aust-
anvert landið og rign-
ing, úrkomulítið norð-
austan til. V 5-10 fyrir
vestan og él. Kólnar. » 10
Ari Allansson stend-
ur fyrir íslenskri
kvikmyndahátíð í
borg ástarinnar, og
sýnir bæði Heima og
Hlemm. »36
KVIKMYNDIR»
Íslenskt bíó
í París
GAGNRÝNI»
Er Amanda Bynes eins
og Goldie Hawn? »38
Verið er að vinna að
nýrri heimildar-
mynd eftir Drauma-
landinu – sjálfs-
hjálparbók handa
hræddri þjóð. »40
KVIKMYNDIR»
Andri Snær
í bíó
TÓNLIST»
Björk hélt magnaða
tónleika í Seoul. »41
FÓLK»
Ekkert sást til Keiru
Knightley. »36
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Ekkert kynlíf í tvö ár
2. „Ökumaðurinn“ í Danmerkurvél
3. Alvarlegt bílslys á Akranesi
4. Eignir FL Group á brunaútsölu…
Íslenska krónan styrktist um 0,24%
TVÍBURABRÆÐURNIR Arnar og
Bjarki Gunnlaugssynir eru hættir
við að hætta í fótboltanum og hafa
ákveðið að leika áfram með FH-
ingum á komandi keppnistímabili.
Bjarki mun hefja æfingar með
Hafnarfjarðarliðinu í vikunni en
Arnar dvelur í Glasgow fram á vor-
ið í viðskiptaerindum og heldur sér
í æfingu með því að æfa með skosku
liði.
Arnar sagði við Morgunblaðið að
þeim bræðrum hefði liðið ákaflega
vel í FH en þeir komu til liðs við fé-
lagið fyrir síðasta tímabil, eftir að
hafa leikið með ÍA árið 2006, og
urðu bikarmeistarar með Hafnfirð-
ingunum. | Íþróttir
Tvíburarnir
halda áfram
LEIKRITIÐ Sólarferð eftir Guðmund Steinsson
var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu síðastliðið föstu-
dagskvöld. Verkið var fyrst sett upp í leikhúsinu
árið 1976 og í tilefni af frumsýningunni komu
upprunalegir aðstandendur sýningarinnar sam-
an og stilltu sér upp fyrir ljósmyndara í hléinu.
Frá vinstri: Brynja Benediktsdóttir leikstjóri,
Sigurður Pálsson leikari, Sigurjón Jóhannsson
leikmyndahönnuður og leikararnir Anna Kristín
Arngrímsdóttir, Flosi Ólafsson, Róbert Arn-
finnsson, Sigríður Þorvaldsdóttir, Þóra Friðriks-
dóttir og Guðrún Þ. Stephensen.
Rúmum þrjátíu árum síðar
Aðstandendur hinnar upprunalegu Sólarferðar komu saman
Árvakur/Árni Sæberg
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞEIR komu til mín og báðu mig um
að þjálfa þá og ég sagði bara „ekkert
mál“,“ segir Halla Vilhjálmsdóttir,
leikkona og leikfimikennari, sem hef-
ur verið beðin um að taka enska
fyrstudeildarliðið Watford í leikfimi-
tíma. Líklegt er að hún muni taka
verkefnið að sér, en frá því verður
endanlega gengið á föstudaginn. „Ég
hef verið að þjálfa í líkamsræktarstöð
hérna í London í frítímanum og hef
tekið að mér nokkra tíma svona hér
og þar,“ útskýrir Halla. „Watford-
liðið var á hóteli rétt hjá stöðinni fyrir
leikinn á móti Charlton á laugardag-
inn og þjálfarinn kom bara að máli við
mig og bað mig um að gera þetta.“
En í hverju munu æfingar Höllu
felast? „Þjálfarinn sagðist vera að
leita að einhverju sem myndi virka
slakandi og svolítið skemmtilegt
þannig að þeir héldu sér í formi án
þess að þeir væru alltaf með hugann
við fótbolta. Þannig að ég hugsa að ég
fari bara með þá í kickbox og svo í
helling af teygjum. Fótboltamenn eru
svo andskoti stífir þannig að ég held
að þeir myndu fá mest út úr því að
vinna með efri hluta líkamans, eitt-
hvað svolítið karlmannlegt. Ég veit
hins vegar ekki hvernig þeir myndu
taka í það ef ég færi að taka þá í ein-
hverja dansrútínu eða eróbikk.“
Sem stendur er Watford í næst-
efsta sæti fyrstu deildarinnar og á því
mikla möguleika á því að komast upp
í úrvalsdeildina á næsta ári. „Ég fékk
einmitt sms frá þjálfaranum á laug-
ardaginn þar sem hann sagði: „Við
gerðum jafntefli við Charlton þannig
að við erum enn þá á toppnum.“ Ég
hugsaði bara með mér „frábært, gott
að okkur gengur svona vel“,“ segir
Halla og hlær, en hún starfar sem
leikkona í London. „Ég er í prufum
og að leika lítil hlutverk hér og þar.
En ég er í ræktinni á hverjum degi
hvort sem er þannig að af hverju ætti
ég ekki að kenna tímann bara sjálf?
Þetta verður örugglega mjög gaman
en er þó ekkert framtíðarstarf, ég
verð ekkert næsti þjálfari Watford,“
segir leikkonan í léttum dúr.
Halla þjálfar Watford
„Ég hugsa að ég fari bara með þá í kickbox og svo í helling
af teygjum,“ segir Halla Vilhjálmsdóttir leikkona í London
Ljósmynd/Kristinn Magnússon
Í fótboltann Halla Vilhjálmsdóttir.