Morgunblaðið - 31.03.2008, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MARS 2008 11
FRÉTTIR
Nám í kennslufræði er skipulagt annars vegar með tilliti til þeirra sem lokið hafa
bakkalárprófi og hins vegar þeirra sem uppfylla skilyrði laganna en hafa ekki lokið
bakkalárprófi, t.a.m. meistara í iðngrein.
Kennt verður í lotum og hefst sú fyrsta þann 3. september.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð eru á www.unak.is. Einnig er hægt að
hafa samband við Ingólf Ásgeir Jóhannesson brautarstjóra framhaldsbrautar (sími
460 8558, ingo@unak.is) eða skrifstofu kennaradeildar (sími 460 8041/460 8042,
kennaradeild@unak.is).
FYRRI UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 15. APRÍL*
*Seinni umsóknarfrestur er til 5. júní. Athugið að takmarkaður fjöldi fær skólavist og umsækjendur í fyrri
umferð eiga betri möguleika að uppfylltum inntökuskilyrðum. Framboð náms er háð því skilyrði að næg
þátttaka fáist.
KENNSLUFRÆÐI TIL
KENNSLURÉTTINDA
Oddur Sigurðsson rafeindavirkja-
meistari starfar á þjónustuborði
Glitnis í Reykjavík og hefur það að
aðalhlutverki að kenna fólki og
aðstoða, bæði í kennslustofu og í
gegnum síma. „Ég hef starfað við
kennslu í tengslum við tölvur
síðastliðin tólf ár og taldi rétt að
ná mér í réttindi sem kennari. HA
hefur hentað mér mjög vel til að
stíga mín fyrstu skref á háskóla-
stigi, þar eru úrvals kennarar og
persónulegt viðmót. Frábært að
fara norður úr hversdagsleika-
num og helga sig náminu þá daga
sem loturnar eru.“
www.unak.is.
SÝN KENNARADEILDAR HÁSKÓLANS Á AKUREYRI
Að nemendur geti lagt mat á menntamál á gagnrýninn og ígrundaðan
hátt. Metnaður framhaldsbrautar kennaradeildar HA er að mennta
fagfólk sem hefur þekkingu, færni og vilja til að veita forystu og axla
ábyrgð í skólakerfinu og vill efla skóla þar sem allir geta þroskast í
starfi, lært hver af öðrum og hver með öðrum.
GUÐLAUGUR Þór Þórðarson heil-
brigðisráðherra og Auður Guðjóns-
dóttir, stjórnarformaður Mænu-
skaðastofnunar Íslands, hafa
undirritað samning um söfnun og
úrvinnslu upplýsinga um meðferð
við mænuskaða.
Gagnabankinn um mænuskaða
var formlega tekinn í notkun á
árinu 2005 og er ætlað að vera al-
þjóðleg upplýsingabrú um nýjungar
í meðferð við mænuskaða og hefur
hann vaxið umtalsvert frá því hann
tók til starfa. Dr. Laurance Jo-
hnston er yfirmaður gagnabankans
og sér um að sannreyna allar þær
upplýsingar sem verða hluti af hon-
um.
Læknar, vísindamenn og lamaðir
frá 169 löndum hafa aflað sér upp-
lýsinga úr gagnabankanum um
mænuskaða frá því hann var tekinn
í notkun 2005. Liggja þær nú fyrir á
ensku, spænsku, arabísku og kín-
versku. Unnið er að því að þýða
efnið yfir á rússnesku en þýðend-
urnir eru allir læknar eða vísinda-
menn. Þeir eru fimm og eru frá
Kúbu, Mexíkó, Ísrael, Kína og
Rússlandi. Gagnabanki um mænu-
skaða hefur tekið upp samstarf við
Samtök lamaðra, bandaríska her-
manna (Paralized Veterans of Am-
erica, PVA). Samtökin vinna nú að
því að gefa innihald bankans út á
bók.
Heilbrigðisráðuneytið greiðir
rekstrarkostnað gagnabankans en
ráðuneytið og Minningarsjóður
Margrétar Björgólfsdóttur hafa í
sameiningu greitt kostnað við að
þýða upplýsingarnar.
Samningurinn er til eins árs. Í
árslok 2008 skal skila skýrslu um
rekstur gagnabankans og önnur at-
riði sem snúa að þróun verkefnisins.
Upplýsingar þýdd-
ar á fimm tungumál
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Auður
Guðjónsdóttir
Egilsstaðir | Fimleikadeild Hattar
hefur undanfarin misseri verið með
heldur óvenjulega fjáröflunarleið.
Felst hún í að deildin safnar tómum
mjólkurfernum og pappa frá heim-
ilum í þéttbýli á Fljótsdalshéraði og
kemur í endurvinnslu.
Iðkendur og foreldrar þeirra
taka götur í fóstur yfir ákveðið
tímabil, ganga í hús 1. og 3. fimmtu-
dag í mánuði og safna. Svo er af-
rakstrinum komið í endur-
vinnslustöðina, þar sem hann er
pressaður og sendur áfram til Ak-
ureyrar til endurvinnslu.
Árið 2007 söfnuðust á Fljótsdals-
héraði tæp 9 tonn af fernum og
sléttum pappa, sem gaf deildinni
um 400 þúsund krónur í tekjur.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Kvöldgestir Þær systur Ingibjörg Ásta og Elva Dögg Ingvarsdætur bönk-
uðu upp á og báðu um mjólkurfernur fyrir fimleikadeild Hattar. Heima-
sætan Ragnheiður blandaði sér í málið.
Áttu tóm-
ar mjólk-
urfernur?
ÞORGERÐUR Katrín Gunnars-
dóttir menntamálaráðherra hefur
skipað Hallgrím Jónasson, fram-
kvæmdastjóra
hjá Nýsköpunar-
miðstöð Íslands,
forstöðumann
Rannsóknamið-
stöðvar Íslands.
Hallgrímur er
fæddur árið
1952. Hann lauk
B.Sc.-prófi í
jarðfræði frá
Háskóla Íslands
árið 1977,
B.Sc.hon.-gráðu í jarðefnafræði ár-
ið 1978 og M.Sc.-prófi í jarðverk-
fræði frá Durham University árið
1981.
Hallgrímur hóf störf hjá Iðn-
tæknistofnun árið 1980 og var for-
stjóri hennar frá árinu 1992 til
2007. Frá 1. ágúst árið 2007 hefur
Hallgrímur starfað sem fram-
kvæmdastjóri fyrir erlend sam-
skipti og viðskiptaþróun hjá Ný-
sköpunarmiðstöð Íslands.
Stjórnar
Rannsókna-
miðstöð
Hallgrímur
Jónasson.
ENN er verið að vinna úr gögnum sem
aflað var í húsleitum Samkeppniseft-
irlitsins í nóvember sl. hjá Bónus,
Krónunni og nokkrum birgjum þeirra.
Að sögn Páls Gunnars Pálssonar, for-
stjóra Samkeppniseftirlitsins, er rann-
sókninni hraðað eftir því sem kostur er.
Hann sagði ekki hægt að segja nú hve-
nær henni lyki.
Sem kunnugt er gerði Samkeppn-
iseftirlitið húsleit hjá Högum, sem m.a.
reka Bónus, Kaupási, sem m.a. rekur
Krónuna, og heildverslununum Inn-
nesi, Íslensk-ameríska og O. Johnson
& Kaaber hinn 15. nóvember 2007.
Nokkru síðar var gerð sambærileg
húsleit hjá Danól.
Í haust kom fram hjá Samkeppnis-
eftirlitinu að rannsóknin beindist bæði
að hugsanlegu ólögmætu samráði smá-
söluaðila og birgja og einnig ólögmætu
samráði milli smásöluverslana.
Rannsókn á
samráði
heldur áfram