Morgunblaðið - 03.04.2008, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 2008 13
FRÉTTIR
BÚIÐ er að yfirfara greiðslugetu á
umframmjólk frá og með 1. apríl
2008 og helst verðið óbreytt. Það
verður að lágmarki 35 kr. á lítra út
þetta verðlagsár og verður næst
endurskoðað 1. júlí. Á heimasíðu
Auðhumlu segir að mikilvægt sé að
leggja áherslu á að markaðsfæra og
selja sem mest af skyri erlendis.
Töluverðar sviptingar hafi orðið á
verðlagi mjólkurafurða frá því um
áramót þegar gefið var út að verð á
umframmjólk yrði að lágmarki 35
kr. á lítra. Við verðlagningu á um-
frammjólk er gert ráð fyrir að hún
verði fimm milljónir lítra á þessu
verðlagsári.
Mjólkinni er breytt í smjör, und-
anrennuduft og skyr. Smjörið fer
allt á markað í Evrópusambandinu
þar sem Ísland hefur tollfrjálsan
kvóta. Undanrennuduftið er selt um
allan heim og skyrið er flutt til
Bandaríkjanna og Bretlands. Verð á
smjöri og undanrennudufti sveiflast
töluvert og hefur lækkað frá áramót-
um um tæplega þriðjung. Verð á
skyri er hins vegar stöðugt og hátt.
Markmiðið er að auka hlutfall
skyrs á kostnað undanrennudufts. Á
árinu 2007 voru flutt út 138 tonn af
skyri og á þessu ári er gert ráð fyrir
að flytja út á milli 250-300 tonn af
skyri. Raunhæft er að gera ráð fyrir
að útflutningurinn geti tvöfaldast á
skyri á hverju ári á næstu árum að
lágmarki.
Ef unnið væri skyr úr þeim fimm
milljónum lítra af umframmjólk sem
við áætlum að verði framleidd þá
svarar það til um 1.700 tonna. Miðað
við núverandi markaðsverð og gengi
myndi það þýða að hægt væri að
greiða um 50 kr. á hvern lítra um-
frammjólkur. Það er því mikilvægt
að leggja áherslu á að markaðsfæra
og selja sem mest af skyri erlendis,
segir á heimasíðu Auðhumlu.
Gengislækkun og
verðhækkanir
Smjörið, undanrennuduftið og
skyrið eru seld í evrum, sterlings-
pundi og Bandaríkjadal. Gengi þess-
ara gjaldmiðla hefur hækkað veru-
lega frá áramótum og þannig hefur
dalur og pund hækkað um 23% en
evran um 33%. Þrátt fyrir geng-
islækkun krónunnar þá nær hún
ekki að vega upp á móti erlendum
verðlækkunum.
„Þá hafa einnig orðið verulegar
kostnaðarhækkanir á innlendum og
erlendum kostnaðarliðum á borð við
flutningskostnað, umbúðir, íblönd-
unarefni, laun og orku sem eru á
bilinu 10-20% frá síðustu áramótum.
Til gaman má geta þess að ef af-
urðaverð erlendis hefði haldist
óbreytt væri greiðslugeta okkar um
43 kr./lítra,“ segir í frétt Auðhumlu.
Mikil aukning á útflutningi á skyri
Vinsælt Íslenska skyrið hefur á síð-
ustu árum verið selt á nýja markaði.
HEILBRIGÐISRÁÐHERRA hefur
sett reglugerð um greiðsluþátttöku
Tryggingastofnunar ríkisins vegna
þjónustu sjálfstætt starfandi bæklun-
arlækna sem eru án samninga.
Samningar samninganefndar ráð-
herra og sjálfstætt starfandi sérfræð-
inga í bæklunarlækningum um þjón-
ustu utan stofnana runnu út 31. mars
sl. og þar sem ekki hafa náðst nýir
samningar er nú leitast við að tryggja
stöðu sjúkratryggðra með sérstakri
reglugerð. Reglugerðin gildir til og
með 31. maí 2008 og samkvæmt henni
er tilvísun frá öðrum lækni ekki skil-
yrði fyrir endurgreiðslu TR á kostn-
aði vegna þjónustu bæklunarlækna. Í
gildi eru samningar við tilgreinda
bæklunarlækna vegna krossbandaað-
gerða á hnjám.
Sérgreinalæknar sem hafa falið LR
samningsgerð fyrir sína hönd hafa
þegar samið við samninganefnd heil-
brigðisráðherra og gildir sá samning-
ur til 31. mars 2010. Sérstök reglu-
gerð vegna þjónustu þeirra er því
ekki nauðsynleg. Enn er ósamið við
hjartalækna og barnageðlækna og er
stefnt að niðurstöðu hjá samninga-
nefnd í þessum mánuði.
Reglugerð
um greiðslu
vegna bækl-
unaraðgerða
AÐALFUNDUR BHM verður hald-
inn í dag og á morgun í Rúgbrauðs-
gerðinni við Borgartún undir yfir-
skriftinni „stefnum sterk til fram-
tíðar“. Auk venjulegra aðalfundar-
starfa verða umræður um nýja
launakönnun sem gerð var meðal fé-
lagsmanna og umræður um stefnu-
mörkun samtakanna.
Fyrirlesarar verða Halldór Grön-
vold, aðstoðarframkvæmdastjóri
ASÍ, sem fjallar um möguleika ís-
lenskra samtaka launafólks til
áhrifa, og Margrét Pála Ólafsdóttir,
framkvæmdastjóri Hjallastefnunn-
ar, fjallar um það hvort gömlu kyn-
hlutverkin stjórni enn lífi okkar.
Aðalfundur
BHM
♦♦♦
Ríkulegur staðalbúnaður
• Galvaníseruð grind
• Evrópskar þrýstibremsur
• Radial dekk / 13” álfelgur
• Góð fjöðrun, hentar vel á ísl. vegum
• Útdraganleg trappa við inngang
• Breitt nefhjól (uppblásið gúmmídekk)
• 50 mm kúlutengi
• 220v tengill (blár skv. reglugerð)
• Útvarp með geislaspilara,
hátalarar inni og úti
• Upphitaðar 12 cm springdýnur
• Vatnsh. öndunardúkur í svefnrými
• Dometic kæliskápur XL 2,5 cubic
• SMEV ryðfrí gaseldavél m/rafstarti
• 2 gaskútar
• Gasviðvörunarkerfi
• Öflug Truma combi 4 miðstöð
m/heitu vatni
• Stór loftlúga m/þriggja hraða viftu
• Skyggðir gluggar
• 2 feta geymsluhólf
• Stórt farangurshólf
• Voldugir öryggisarmar fyrir þak
og tjald
• 1 x færanlegt lesljós með viftu
• 110 amp rafgeymir
• Heitt og kalt vatn, tengt
• Rafmagnsvatnsdæla
• 86 lítra vatnstankur
• Klósett með hengi
Útilegumaðurinn er sérverslun með allt sem þú þarft
til ferðalagsins, hjólhýsi, fellihýsi, pallhýsi, húsbíla,
fylgihluti og margt fleira.
Fossháls 5-7 • 110 Reykjavík • Sími 551 5600
Fax 551 5601 • www.utilegumadurinn.is
CD spilari/
útvarp
vatn tengt
heitt/kalt
Fjöðrun f.
ísl. aðstæður
Evrópskar
Þrýstibremsur
Upphitaðar
lúxusdýnur
12 cm
Lau kl. 10.00-17.00
Sun kl. 12.00-16.00
Rockwood Fellihýsin 2008
Við frumsýnum 2008 árgerðina af stórglæsilegum Rockwood fellihýsum
helgina 5.-6. apríl í verslun okkar að Fosshálsi 5-7.
Rockwood fellihýsin eru glæsileg og sérstaklega löguð að íslenskum aðstæðum.
Með evrópskum þrýstibremsum, galvaniseraðri grind og hlaðin staðalbúnaði.
Rockwood fellihýsi
Verð frá 1.398.000 kr.
♦♦♦
AÐALFUNDUR Samtaka ferða-
þjónustunnar (SAF) verður haldinn á
Radison SAS Hótel Sögu í dag,
fimmtudag, og hefst kl. 9 með fundum
faghópa þar sem fjöldi fyrirlesara
mun tala og fjallað verður m.a. um
ímynd Íslands, áhrif af gengi krón-
unnar á ferðaþjónustuna, gæðakröfur
ferðamanna og eldsneytismál.
Að loknum fagnefndafundum setur
Jón Karl Ólafsson, formaður SAF,
fundinn og Össur Skarphéðinsson,
iðnaðar- og ferðamálaráðherra flytur
ávarp. Að lokum fer fram afhending
verðlauna Ferðamálaseturs til loka-
verkefna háskólanema.
Aðalfundur
SAF í dag