Morgunblaðið - 03.04.2008, Page 38
38 FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
* Gildir á allar
sýningar merktar
með rauðu
*
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Sími 551 9000 Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Þú færð 5 %
endurgreitt
í SmárabíóSími 564 0000
eee
-24 Stundir
Frá framleiðendum The Devils Wears Prada
SÝND Í REGNBOGANUM
Sími 462 3500
- ÓHT, Rás 2
eee
eeee
- E.E, D.V.
- Empire
eeee
SÝND Í REGNBOGANUM
Í BRUGGE
SÝND Í SMÁRABÍÓI
- S.V., MBL
eeee
SÝND Í SMÁRABÍÓI SÝND Í REGNBOGANUM
- L.I.B.
Topp5.is/FBL
eeee
Frábær
grínmynd
eee
- S.V. MBL
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
SÝND Í BORGARBÍÓI
- V.J.V. Topp5.is/FBL
eee
SÝND Í REGNBOGANUM
eeeee
-H.J., Mbl
J E S S I C A A L B A
- LIB,
Topp5.is/FBL
eee
SÝND Í SMÁRABÍÓI, REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI
eee
-L.I.B.
TOPP5is/FBL.
1
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
Þú færð 5% endurgreitt í Borg Fim 3.apríl
ÞAÐ GETUR VERIÐ SKELFILEGT AÐ SJÁ
Frábær spennutryllir sem svíkur engan!
550
KRÓNUR
Í BÍÓ
Vantage Point kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
Spiderwick Chronicles kl. 6 B.i. 7 ára
Horton m/ísl. tali kl. 6
Lovewrecked kl. 8 - 10 síðustu sýn.
Vantage Point kl. 3:45 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 16 ára
Vantage Point kl. 3:45 - 5:50 - 8 - 10:10 LÚXUS
The other Boleyn girl kl. 8 - 10:30 B.i. 10 ára
Shutter kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
Vantage Point kl. 6 - 8 - 10 B.i. 16 ára
In Bruges kl. 5:45 - 8 - 10:10 B.i. 16 ára
Horton m/ensku tali kl. 6
The Orphanage kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
Be kind rewind kl. 10:30
27 dresses kl. 5:30 - 8
Spiderwick chronicles kl. 3:30 - 5:45 B.i. 7 ára
Horton enskt tal kl. 4 - 6
Horton m/ísl. tali kl. 4 - 6
Semi-Pro kl. 10:30 B.i. 12 ára
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
HIN sívinsæla hljómsveit Sprengjuhöll-
in er á leiðinni til Kanada, en þar mun
sveitin spila á tveimur tónlistarhátíðum
sem báðar verða haldnar í maí. Annars
vegar er um að ræða hátíðina Núna
Now sem verður haldin í Winnipeg, en
á hátíðinni er sérstök áhersla lögð á
tengsl svæðisins við Ísland. Hinir ýmsu
listamenn munu koma fram á þeirri há-
tíð, en á meðal þeirra sem komu fram í
fyrra voru Ólöf Arnalds, Jón Gnarr og
Ragnar Kjartansson. Hins vegar er svo
um að ræða New Music West Festival
sem verður haldin í Vancouver. Bergur
Ebbi Benediktsson, einn meðlima
Sprengjuhallarinnar, segir að þeir fé-
lagar hlakki mikið til ferðarinnar.
„Kanada er eins og Bandaríkin nema
þar skýtur fólk ekki hvað annað úti á
götu og hefur ekki frumkvæði að stríð-
um við ríki í Mið-Austurlöndum að
gamni sínu. Auk þess heitir annar hver
maður Johannsson í Kanada og er ætt-
aður frá Grímsstöðum á Fjöllum,“ segir
Bergur í léttum dúr. „Mann langar
mest að kyssa þetta lið á trantinn um
leið og maður lendir. Það verður líka
æðislegt, enda eru landamælaverðirnir
með varirnar útataðar í hlynsírópi.“
Þá má geta þess að Sprengjuhöllinni
var einnig boðið að spila á tónlistarhá-
tíðinni North by North East sem haldin
verður í Toronto í júní, en sveitin gat
þó ekki þegið það boð. Það er þó deg-
inum ljósara að Kanadamenn eru ekki
síður hrifnir af þeim Sprengjuhallar-
mönnum en Íslendingar. Bergur Ebbi
segir að þeir félagar séu samt sem áður
ekki í neinum sérstökum „meik-
hugleiðingum“, en neitar því þó ekki að
hrifningin á Kanada sé gagnkvæm.
Að öðru leyti er það að frétta af
sveitinni að hún hélt nýverið í vinnu-
búðir þar sem hún lagði drög að sinni
annarri plötu. Gert er ráð fyrir því að
platan verði tekin upp í sumar og komi
svo út í október. Að sögn Bergs Ebba
gerir Sprengjuhöllin sér grein fyrir því
að velgengni geti slegið menn alveg
jafn mikið út af laginu og mótlæti. Hún
muni því halda laginu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í víking Sprengjuhöllin tekur við verðlaunum á Íslensku tónlistarverðlaununum.
Keyra yfir Kanada
Sprengjuhöllin heldur tónleika í Winni-
peg og Vancouver Ný plata væntanleg
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
BIGGI Gunn – eða Birgir Bergmann Gunnarsson –
starfrækir sjúkraþjálfunarmiðstöð í bænum Hig-
hland í Kaliforníu, 45.000 manna bæ sem liggur rétt
utan við Palm Springs. Hann og kona hans, Christie,
eru með tuttugu manns í vinnu og yfrið nóg að gera.
Þegar Biggi var ungur drengur á Ólafsvík átti tón-
listargyðjan þó hjarta hans allt og lék hann sem
trommuleikari með hljómsveitum á borð við Falcon
og Lúkas. Bigga hefur aldrei tekist að kæfa þrána til
gyðjunnar góðu með öllu og svo var að fyrir nokkrum
árum gekk hann í að sinna kalli hennar almennilega
og gera sína fyrstu sólóplötu. Platan, sem er nýkom-
in út, kallast I Was Younger Then og inniheldur að
mestu íslensk lög með enskum textum, perlur eins
og „Lítill drengur“, „Bíddu pabbi“ og „Skólaball“.
Einnig eru þarna lög eftir Burt Bacharach og Bítl-
ana (hið sjaldheyrða „I Call Your Name“) og svo
staðallinn „Buona Sera“ sem hann og félagar luku
gjarnan böllunum með í gamla daga.
Algjörar perlur
„Tildrögin að plötunni eru löng,“ segir Biggi, en
hann er staddur hérlendis til að kynna gripinn. „Ég
var búinn að ganga um með þessa hugmynd í mag-
anum lengi vel. Það voru svo vinir mínir, þeir Vil-
hjálmur Guðjónsson og Magnús Kjartansson, sem ég
hef þekkt síðan ég var tveggja ára, sem hjálpuðu mér
að ýta verkefninu úr vör.“
Biggi segir tilganginn með þessu einfaldan: að
koma íslenskri tónlist á framfæri erlendis.
„Þessi lög eru algjörar perlur og manni hefur nán-
ast sviðið undan því að þær hafi ekki borist víðar.
Þeir sem heyrt hafa hér úti hafa enda hrifist af og lög
eru komin í spilun í útvarpsstöðvum í nágrenninu.
Þessi plata er búin að ýta mér í gang og það er meira
á leiðinni í svipuðum fasa. Ég skil í rauninni ekki að
einhver hafi ekki verið löngu búinn að þessu.“
Það var upptökustjórinn Frederick Bettge sem sá
um upptökustjórn en Husky „okkar“ Hoskulds sá
um að hljómjafna.
„Það tók um eitt og hálft ár að vinna þetta enda er
ég í fullri vinnu og rúmlega það. Nú er ég að vinna að
dreifingarmálunum í Ameríku, það er búið að landa
samningi um dreifingu í Kanada og það er verið að
vinna í Bandaríkjamálunum. Það er aldrei of varlega
farið í þessum efnum, enda grátlegt ef platan ratar
svo ekki upp í hillurnar.“
Biggi mun syngja lög af plötunni á morgun á Vín-
barnum en á laugardaginn heldur hann tónleika á
Ásláki, Mosfellsbæ, og verða Furstarnir þá með í för.
Það er Zonet sem dreifir plötunni hérlendis.
Þjóðþrifaverk Bigga
Sjúkraþjálfarinn og hljómlistarmaðurinn Biggi Gunn
gefur út valdar íslenskar perlur á ensku
Morgunblaðið/hag
Perlur „Þessi lög eru algjörar perlur og manni hef-
ur nánast sviðið undan því að þær hafi ekki borist
víðar,“ segir Biggi.