Morgunblaðið - 05.04.2008, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2008 13
FRÉTTIR
HINN 9. apríl verður haldið upp á
afmæli áfangastaðarins Dyngj-
unnar, en hann tók til starfa þenn-
an dag fyrir tuttugu árum. Mark-
mið og tilgangur Dyngjunnar er að
taka á móti konum sem eru að
koma úr áfengis- og eiturefna-
meðferð, hjálpa þeim að fóta sig í
lífinu aftur ásamt því að styðja þær
í hvívetna. Á þessu tuttugu árum
hafa 860 konur innritast eftir með-
ferð. Forstöðukona undanfarin ár
hefur verið Edda V. Guðmunds-
dóttir. Í tilefni dagsins verður opið
hús í Snekkjuvogi 21 kl. 17-19 og er
öllum vinum og velunnurum boðið.
20 ára afmæli
Dyngjunnar
UPPSELT er á sýninguna Verk og
vit sem verður haldin dagana 17.-
20. apríl nk. í íþrótta- og sýning-
arhöllinni í Laugardal. Verk og vit
er tileinkuð byggingariðnaði,
skipulagsmálum og mann-
virkjagerð en þetta verður í annað
skipti sem sýningin er haldin. Um
100 sýnendur taka þátt í Verki og
viti 2008 og nú stefnir í að sýningin
verði sú veglegasta sem haldin hef-
ur verið á þessu sviði hér á landi,
segir í tilkynningu.
Sýningin verður afar fjölbreytt
og koma sýnendur af fjölmörgum
sviðum atvinnulífsins. Sem dæmi
um þátttakendur má nefna bygg-
ingarverktaka, verkfræðistofur,
tæknifyrirtæki, tækjaleigur, fjár-
málafyrirtæki, orkufyrirtæki,
skóla, ráðagjafarfyrirtæki og sveit-
arfélög. Þá fjölgar jafnframt er-
lendum sýnendum frá Verki og viti
2006.
Uppselt á Verk
og vit í Höllinni
Morgunblaðið/Kristinn
GISTINÆTUR á hótelum í febrúar
voru 77.00 en voru 65.600 í sama
mánuði í fyrra. Gistinóttum fjölgaði
því um 17% milli ára. Hlutfallslega
fjölgaði gistinóttum mest á höf-
uðborgarsvæðinu, úr 47.600 í
61.000 eða um 28%. Gistinóttum á
Norðurlandi fjölgaði um 6%, úr
3.300 í 3.500.
Á Suðurlandi fækkaði gistinótt-
um um 22%, úr 7.000 í 5.700. Á
Austurlandi fækkaði gistinóttum
um 21%, úr 1.900 í 1.500. Á sam-
anlögðum Suðurnesjum, Vest-
urlandi og Vestfjörðum fækkaði um
5%, úr 5.400 í 5.200. Gistinóttum Ís-
lendinga fjölgaði í heildina um 25%
en gistinóttum útlendinga um 14%.
Gistinóttum
fjölgaði um 17%
Á SUNNUDAG
verður stofn-
fundur félagsins
Vina Tíbets hald-
inn á Kaffi
Hljómalind,
Laugavegi 23 kl.
13 og er öllum
frjálst að mæta
sem vilja styðja
við þetta málefni. Í dag, laugardag,
klukkan 13 er boðað til vikulegrar
mótmælastöðu fyrir utan kín-
verska sendiráðið. Mótmælastaðan
er til að sýna kínverskum stjórn-
völdum að mannréttindabrot
þeirra í Tíbet gleymast ekki, sem
og að taka þátt í hinni alþjóðlegu
bylgju stuðnings til handa Tíbetum
og þeirra baráttu fyrir frelsi og
mannréttindum, segir í tilkynn-
ingu.
Stofnfundur
Vina Tíbets
STUTT
ÓSKAR Bergsson borgarfulltrúi
Framsóknarflokks segir Ólaf F.
Magnússon borgarstjóra ekki hafa
svarað spurningum sem lagðar
voru fram á fundi borgarstjórnar 1.
apríl s.l. um ásakanir hans í garð
Framsóknarflokksins.
Í viðtali við Ríkissjónvarpið 31.
mars sagði Ólafur Framsóknar-
flokkinn hafa „gengið lengst flokka
í þjónustu við verktaka og auð-
magn“ og að sjást muni í skipu-
lagsmálum og uppbyggingu í borg-
inni að núverandi borgarstjórn
ætlaði að „gæta hagsmuna borg-
arbúa en ekki einhverra tiltekinna
sérhagsmuna-
hópa eða flokks-
manna eða verk-
taka.“
Lagði Óskar
fram spurningar
á fundi borgar-
stjórnar 1. apríl,
þar sem hann
bað Ólaf að
skýra fullyrðing-
ar sínar nánar,
hvernig Framsóknarflokkurinn
hafi þjónustað verktaka og auð-
menn og hvernig það tengdist að
mati borgarstjóra niðurlægingu
miðborgarinnar.
Í tilkynningu sem Óskar sendir
frá sér gagnrýnir hann Ólaf fyrir
að hafa ekki svarað spurningum
sínum: „Ég krefst rökstuðnings
borgarstjóra og sannana fyrir
þessum ummælum eða að hann
dragi ummæli sín til baka og biðjist
afsökunar,“ segir Óskar í tilkynn-
ingunni.
Borgarfulltrúi mótmælir
ummælum borgarstjóra
Óskar Bergsson
BROT 45 ökumanna voru mynduð
á Bæjarbraut í Garðabæ í gær.
Fylgst var með ökutækjum sem
var ekið Bæjarbraut í austurátt,
milli Hofsstaðabrautar og Karla-
brautar.
Á einni klukkustund, fyrir há-
degi, fóru 112 ökutæki þessa akst-
ursleið og því ók stór hluti öku-
manna, eða 40%, of hratt eða yfir
afskiptahraða.
Meðalhraði hinna brotlegu var
liðlega 67 km/klst en þarna er 50
km hámarkshraði. Tólf óku á 70
km hraða eða meira en sá sem
hraðast ók mældist á 91, sam-
kvæmt upplýsingum frá lögreglu.
Hraðakstur
á Bæjarbraut