Morgunblaðið - 06.04.2008, Side 2
2 SUNNUDAGUR 6. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
ÞAÐ eru sannarlega geggjaðar kröf-
ur að ætlast til þess að bílstjórar
uppfylli allar kvaðir samgönguráðu-
neytisins án þess að skapa þeim
nokkur skilyrði til þess. „Við erum
bara sektaðir,“ sagði Sturla Jónsson,
talsmaður atvinnubílstjóra, vegna
orða Kristjáns Möller samgönguráð-
herra um að kröfur atvinnubílstjóra
séu „geggjaðar“.
Sturla sagði þær kvaðir vera lagð-
ar á atvinnubílstjóra að þeir mega
ekki vinna meira en níu klukku-
stundir á sólarhring, fimm daga vik-
unnar og ekki lengur en fjóra og
hálfa klukkustund samfleytt. Eftir
4,5 tíma verða þeir að hvíla sig amk. í
45 mínútur. Í bílunum er klukka með
skífu sem skráir vinnutímann og
ýmsar aðrar upplýsingar. Sturla
segir að samkvæmt reglunum eigi
bílstjóri að setja klukkuna í gang um
leið og hann byrjar að vinna við bíl-
inn. Hann segir þessar reglur ekki
vera í neinu samræmi við veru-
leikann og vinnutíma hér á landi og
því ekki hægt annað en að brjóta
þær.
Sturla segir að Vegagerðin hafi
t.d. ekki gert neitt í því að útbúa
hvíldaraðstöðu með snyrtingu fyrir
atvinnubílstjóra við vegi landsins.
Erlendis séu slíkir hvíldarstaðir með
reglulegu millibili við helstu þjóð-
vegi. Hér er bílstjórum vísað á plön
einkaaðila og veitingastaða við þjóð-
veginn, sem þó eru ekki staðsettir
með tilliti til þessara reglna og að-
eins opnir hluta sólarhringsins.
Sturla tók sem dæmi bílstjóra á
vöruflutningabíl sem ekur út á land
frá Reykjavík og byrjar vinnudaginn
kl. 8 að morgni. Þá á hann að gang-
setja klukkuna. Svo vinnur hann í
tvo tíma við að lesta bílinn og leggur
af stað um kl. 10. Eftir tvo og hálfan
tíma er hann kominn upp á Holta-
vörðuheiði og samkvæmt reglunum
á hann að stoppa og hvíla sig í 45
mínútur. Það skipti engu þótt hann
sjái niður í Brú í Hrútafirði og þurfi
bæði að komast á snyrtingu og fá sér
að borða. Ekki heldur að óvíða sé
hægt að stöðva stóran flutningabíl á
heiðinni með góðu móti. Láti bíl-
stjórinn sig hafa það að aka niður í
Brú eða Staðarskála er hann orðinn
brotlegur og má eiga von á hárri sekt
og punktum í ökuskírteinið komist
upp um brotið. Starfsmenn Vegaeft-
irlitsins og lögreglan geta stoppað
bílinn hvar sem er og lesið af skíf-
unni.
„Þeir sekta okkur og ætla að halda
því áfram þótt það sé engin aðstaða
til að fara eftir þessum reglum,“
sagði Sturla. „Vegagerðin hefur sagt
mönnum að stoppa bara á planinu
hjá Jóni Jóns og taka út hvíldina og
gera það sem þeir þurfa þar. Við ætl-
um ekki að gera neitt – bara sekta
ykkur.“
Sturla sagði að ríkið færi sjálft
ekki eftir Evrópureglum, t.d. um
breidd þjóðveganna sem víða séu allt
of mjóir og jafnvel vart ökufærir ut-
an hringvegarins. Eins nefndi hann
að ákvæði um hvíldartíma ættu t.d.
ekki við um strætisvagnastjóra, öku-
menn póstbíla, mjólkurflutningabíla
eða sorpbíla. Þá bætti Sturla því við
að engin ákvæði væru um hvíldar-
tíma alþingismanna. Þeir gætu stað-
ið í pontunni tímunum saman og sett
landinu lög eftir langar vökur.
„Við erum bara sektaðir“
Mjög skortir á að Vegagerðin hafi útbúið fullnægjandi hvíldaraðstöðu við þjóðvegina svo atvinnu-
bílstjórar geti uppfyllt kvaðir um hvíldartíma, að sögn Sturlu Jónssonar talsmanns bílstjóra
Morgunblaðið/Kristinn
Skortur Sturla Jónsson segir
hvíldaraðstöðu vanta við vegina.
NEMENDUR úr Dulwich College í London nutu vetr-
arveðurs við Jökulsárlón á Breiðamerkursandi á dög-
unum. Þeir skoðuðu náttúruna og höfðu gaman af að
handfjalla brot úr ísjökum sem strönduðu á leið til sjáv-
ar. Nemendurnir eru 12-14 ára gamlir og voru þeir hér
í vettvangsferð á sviði náttúrufræði.
Morgunblaðið/RAX
Handfjölluðu brot úr ísjökum
Nemendur úr Dulwich College í London í vettvangsferð
EINAR K. Guðfinnsson sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra
sagði á opnum fundi í Valhöll í gær,
að frumvarp um nýja matvælalög-
gjöf sem hann mælti nýverið fyrir á
Alþingi, fæli í sér miklar breytingar
fyrir neytendur. „Þar með erum við
að taka algerlega upp matvælalög-
gjöf Evrópusambandsins. Þetta
breytir heilmiklu fyrir neytendurna
og gerir ráð fyrir heimild til hvers
konar innflutnings á kjöti sem við-
urkennt er af viðurkenndum stofn-
unum. Með öðrum orðum: þetta er
grundvallarbreyting. Í dag er for-
takslaust bann í flestum tilvikum á
innflutningi á ósoðnu kjöti, en hér
eftir mun þetta í sjálfu sér verða op-
ið.“
Einar sagði breytinguna hafa heil-
mikið í för með sér. „Þetta mun leiða
til þess að við fáum meira framboð af
fersku kjöti í búðunum sem mun
stuðla að meiri samkeppni á kjöt-
markaði.“
Einar sagði jafnframt að sam-
keppnisstaða innlends landbúnaðar
gæti breyst til batnaðar á tímum þar
sem hækkandi heimsmarkaðsverð
veldur hækkun á innfluttum mat-
vælum auk gengislækkunar krón-
unnar. Hvort tveggja væri neikvætt
fyrir neytendur. „En þetta hefur
líka þau áhrif að hlutfallsleg sam-
keppnisstaða hins innlenda landbún-
aðar kann að vera að breytast með
jákvæðum hætti. Möguleikar okkar
á að takast á við vaxandi samkeppni
verða betri en áður og það er út af
fyrir sig jákvætt út frá sjónarhóli ís-
lensks landbúnaðar.“
Grundvallarbreyting á matvælalöggjöfinni boðuð með
nýju frumvarpi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
Meira af fersku kjöti
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Kjöt Ráðherra væntir þess að sjá
ósoðið innflutt kjöt í búðunum.
MAÐUR kom á slysadeild á höfuð-
borgarsvæðinu aðfaranótt laugar-
dags með stungusár á hálsi sem
hann hafði hlotið í átökum í heima-
húsi í austurborginni, að því er
fram kom hjá lögreglunni. Skömmu
síðar voru þrír handteknir á vett-
vangi átakanna.
Sá sem grunaður er um að hafa
veitt manningum sárið gisti fanga-
geymslur. Til stóð að yfirheyra
manninn í gær.
Stunginn
í hálsinn
VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson,
þáverandi borgarstjóri Reykjavíkur,
fól borgarlögmanni að svara erindi
umboðsmanns Alþingis til borgar-
ráðs frá 9. október s.l. Eftir að nýr
meirihluti tók við kynnti borgarlög-
maður nýjum borgarstjóra, Degi B.
Eggertssyni, þessa ráðstöfun og
staðfesti Dagur hana. Hann fól einn-
ig borgarlögmanni að kynna drög að
svari til umboðsmanns fyrir stýri-
hópnum sem stofnaður var um mál-
efni Orkuveitu Reykjavíkur. Svar-
drögin voru kynnt í stýrihópnum á
tveimur fundum. Þrátt fyrir að stýri-
hópurinn gerði ýmsar athugasemdir
við drögin rötuðu þær ekki inn í
svardrög borgarlögmanns.
Þetta kemur m.a. fram í svari
borgarráðs við ósk umboðsmanns
frá 22. febrúar sl. um frekari upplýs-
ingar varðandi atburði sem tengjast
áformum um sameiningu Reykjavík
Energy Invest og Geysis Green
Energy. Drög að svari við þeim voru
rædd í borgarráði sl. fimmtudag. Þar
segir m.a.: „Rétt hefði verið að fjalla
um svörin [þau fyrri] í borgarráði áð-
ur en þau voru send og verður þess
gætt framvegis að ganga ekki með
sama hætti fram hjá kjörnum
fulltrúum þegar svo háttar til.“ | 46
Athugasemd-
ir ekki með
STOFNAÐUR hefur verið styrkt-
arsjóður til að standa straum af
mögulegum sektum vegna mót-
mæla bílstjóra. Sturla Jónsson segir
að þurfi ekki að nota sjóðinn renni
féð óskert til góðgerðarmála.
Í dag gefa atvinnubílstjórar gest-
um sýningarinnar Sumarið 2008 í
Fífunni í Kópavogi ís og pylsur í
þakklætisskyni fyrir veittan stuðn-
ing undanfarna daga.
Pylsur og ís
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar var
kölluð út í gær vegna fjórhjólaslyss
í nágrenni Kleifarvatns. Ekki var
talið að um alvarlegt slys væri að
ræða en ökumaðurinn var á hjóli
sínu langt frá vegum. Það gerði erf-
itt um vik fyrir björgunarmenn að
komast að honum nema á fjór-
hjólum auk þess sem ástand hins
slasaða bauð ekki upp á flutning
öðruvísi en með þyrlu. Maðurinn
var með þremur félögum sínum er
hann velti hjóli sínu í hlíð austan
megin Kleifarvatns.
Slasaðist
á fjórhjóli