24 stundir - 26.06.2008, Qupperneq 6
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@24stundir.is
Sérfræðingahópur um jarðlesta-
samgöngur skilaði í síðasta mán-
uði umsögn vegna þingsályktun-
artillögu um athugun á
hagkvæmni lestarsamgangna á
höfuðborgarsvæðinu. Í umsögn-
inni kemur fram sú skoðun sér-
fræðinganna að svokallað metró-
kerfi sé „það eina sem lítur út
fyrir að vera vit í og því ber að
kanna þann kost til þrautar mið-
að við íslenskar aðstæður og sér-
kenni“. Þeir vilja því að athug-
unin á hagkvæmni
lestasamgangna verði einnig látin
ná til metrókerfisins og að fram-
tíðarlausnir í almenningssam-
göngum verði mótaðar eftir því.
Myndi kosta 40 til
50 milljarða
Björn Kristinsson, fyrrverandi
prófessor við verkfræðideild Há-
skóla Íslands, er einn sérfræðing-
anna í hópnum. Hann segir
helstu kostina við neðanjarðar-
lestir vera þá að ferðatíminn sé
mjög stuttur, þær taki ekki götu-
pláss, trufli ekki umferð og stuðli
ekki að hávaðmengun. „Hver
kílómetri í lagningu kerfisins
myndi líklega kosta um þrjá
milljarða króna auk þess sem
hver lestarstöð ætti að kosta um
einn milljarð.“
Í umsögn hópsins kemur fram
að rekstur bílaflota höfuðborg-
arsvæðisins, sem einstaklingar
eiga og reka, kosti um 150 til 225
milljarða á ári. Þorleifur Gunn-
laugsson, borgarfulltrúi Vinstri
grænna, hélt því fram í 24 stund-
um þann 20. júní að sú upphæð
sem áætluð er í stofnfram-
kvæmdir umferðarmannvirkja á
næstu árum væri nálægt 100
milljörðum króna. Metróhópur-
inn áætlar hins vegar að heild-
arstofnkostnaður grunnmetró-
kerfis yrði á bilinu 40 til 50
milljarðar króna.
Ráðherra hefur boðið viðtal
Utan umsagnarinnar til sam-
göngunefndar segir Björn hópinn
hafa viðrað þessar hugmyndir við
ýmsa kjörna fulltrúa. „Kristján L.
Möller samgönguráðherra er bú-
inn að bjóða okkur viðtal og við
búumst við því á hverjum degi.
Hjá borginni hef ég hitt Hönnu
Birnu, tilvonandi borgarstjóra,
og Kjartan Magnússon, stjórn-
arformann Orkuveitunnar, og ég
sendi þeim greinargerðina. Þau
þekkja því málið.“
Björn bendir á að metrókerfið
myndi einnig leysa vandamál
varðandi þéttingu byggðar því
sérhæfðir miðkjarnar myndu
myndast í kringum hverja stöð.
Þannig yrði til ný kjarnabyggð.
Fáist fjármagn til verkefnisins
ætlar hópurinn að gera grófa
áætlun um staðsetningu slíkra
stöðva ásamt drögum að leið-
arkerfi og rekstraráætlun. Hann
telur jarðlestagerðina gerlega þar
sem berg á höfuðborgarsvæðinu
sé talið þokkalegt til gangagerðar.
Metró í Reykjavík
Sérfræðingahópur skilaði samgöngunefnd umsögn þar sem fjallað er um jarðlesta-
samgöngur á Íslandi Telja jarðlestir vera einu vitrænu lausnina í almenningssamgöngum
Leiðakerfi Rafdrifnar
skutlur yrðu notaðar til
að ferja fólk á stöðv-
arnar. Myndin sýnir hug-
mynd að metró- og
skutlukerfi í Kópavogi.
➤ Í hópnum eru Birgir Jónssondósent, sem kennir m.a. verk-
fræðilega jarðfræði, Björn
Kristinsson, fyrrverandi pró-
fessor í verkfræði, Sigurður
Erlingsson prófessor, sem
kennir m.a. jarðtækni og
jarðgangagerð, og Þorsteinn
Þorsteinsson aðjúnkt, sem
kennir m.a. samgöngufræði
og hönnun samgöngu-
mannvirkja.
METRÓHÓPUR
Friðrik Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunar, segir fyrirtækið
eiga í viðræðum við Rio Tinto
Alcan um orkuöflun vegna fram-
leiðsluaukningar álversins í
Straumsvík og segir hann orkuna
verða sótta á Þjórsársvæðin. „Það
nær bara til nýrra álvera,“ segir
hann aðspurður um það hvort
ekki hafi verið útilokað að sú
orka færi til álvera. „Við höfum
skyldum að gegna við okkar við-
skiptavini til meira en 40 ára. Við
getum ekki útilokað að selja þeim
viðbót ef þess þarf,“ útskýrir
hann.
Virkjunum er ætlað að skila sam-
tals um 350 MW. „Þetta tekur
bara lítinn hluta af því. Svo höf-
um við gert samning við Verne
Holding sem við þurfum auðvit-
að að efna,“ segir Friðrik og bætir
við: „Okkar vandamál er að þess-
ir aðilar þurfa á orku að halda
fyrr en okkur sýnist ætla að geta
orðið vegna tafa á undirbúningi
virkjananna í Þjórsá.“
ejg
Á bara við
ný álver
6 FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 2008 24stundir
Guðmundur Arason,
læknir hjá ART Me-
dica, segir að metið sé
út frá læknisfræðileg-
um rökum hverju
sinni hvort líklegt sé
að tæknifrjóvgun skili
tilætluðum árangri,
áður en ákvörðun um
meðferð er tekin.
„Ef það eru litlar sem
engar líkur á því að
kona geti orðið þunguð förum við ekki út í tæknifrjóvgunarmeðferð,
þótt kona vilji það. Ekki frekar en að hjartalæknir framkvæmir aðgerð
ef það eru engar líkur á að hún skili árangri, þótt sjúklingur vilji það.
Sjúklingur getur ekki neytt lækni til að gera eitthvað sem hann telur að
muni ekki skila árangri.“
Í 24 stundum í gær sagði Matthildur Jóhannsdóttir að henni hafi verið
neitað um tæknifrjóvgun án læknisfræðilegra raka. Hún sagði jafn-
framt að eftir að tæknifrjóvganir voru færðar frá Landspítalanum til
ART Medica sé erfiðara fyrir konur, sem komnar eru yfir ákveðinn ald-
ur, að komast í meðferð vegna tæknifrjóvgunar. Guðmundur segir það
alls ekki vera rétt. „Engin breyting hefur orðið á meðalaldri kvenna
eftir að tæknifrjóvganir voru færðar til ART Medica.“ hos
Sami aldur í tæknifrjóvgun
Blaðamannafélag Íslands harmar
að yfirvöld skyldu hafa takmark-
að aðgang fréttamanna að ís-
bjarnarhræinu við Hraun á Skaga
í síðustu viku. BÍ þykir alvarlegt
að lögreglu skuli hafa verið skip-
að að loka þjóðvegi til að hindra
fréttamenn við vinnu. Sú skýring
umhverfisráðherra að ætlunin
hafi verið að koma í veg fyrir
óheppilegar myndir sem skaðað
gætu ímynd landsins, bætir síst
úr að mati BÍ, sem ítrekar að það
sé ekki í verkahring yfirvalda að
stýra því sem er myndað eða sagt.
Ritstjórnarvaldið og ábyrgðin sé
hjá fjölmiðlunum. „Allir tilburðir
til þess að takmarka aðgang fjöl-
miðla að fréttaviðburðum, til
dæmis með því að hindra mynda-
tökur, fela í sér tilraunir til rit-
skoðunar,“ segir í ályktun stjórn-
ar. bee
Harma ritskoðun
umhverfisráðherraflugfelag.is
Skráðu þig í
netklúbbinn
Fáðu bestu nettilboðin
- ávallt ódýrast á netinu
REYKJAVÍK
AKUREYRI
EGILSSTAÐIR
VESTMANNAEYJAR
ÍSAFJÖRÐUR
VOPNAFJÖRÐUR
ÞÓRSHÖFN
GRÍMSEY
ASKJA · Laugavegi 170 · 105 Reykjavík
Sími 590 2100 · www.askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili
Mercedes-Benz á Íslandi
Eins og hugur manns
Komdu og reynsluaktu Mercedez-Benz C-Class og finndu hvernig
þessi kraftmikli bíll leikur í höndunum á þér. Njóttu sumarsins
á þessum einstaka bíl sem er núna á enn betra verði.
Verð frá 5.290.000 kr. eða 59.620 kr á mánuði.*
Mercedes-Benz C-Class 180 Kompressor, 157 hestöfl - sjálfskiptur með Íslandspakka.
*Miðað við 33,5% innborgun og gengistryggðan bílasamning til 84 mánaða. Árleg hlutfallstala kostnaðar er 11,07%.
Ó
!
·
1
1
6
9
3