24 stundir - 26.06.2008, Síða 15

24 stundir - 26.06.2008, Síða 15
24stundir FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 2008 15 Smakkaðuþennan! NÝTT Andstæðingar fóstureyðinga hafa hvatt kaþólsku kirkjuna til að bannfæra heilbrigð- isráðherra Póllands. Ewa Ko- pacz hjálpaði 14 ára stúlku að gangast undir fóstureyðingu. Stúlkan sagðist hafa orðið þunguð eftir að 15 ára sam- nemandi hennar nauðgaði henni. Þar sem stúlkan er ólögráða var fóstureyðingin heimil samkvæmt pólskum lögum. Enginn læknir fékkst hins veg- ar til að framkvæma aðgerð- ina, þangað til ráðherrann skarst í leikinn og fann sjúkra- hús sem var tilbúið til þess. „Ef hún vísaði á spítala fyrir fóstureyðinguna, þá tók hún beinan þátt í þessum verkn- aði,“ segir Tadeusz Goclowski, erkibiskup emeritus í Gdansk. Segir hann sjálfkrafa bannfær- ingu liggja við því. aij Pólskir biskupar Vilja bannfæra ráðherra Ísraelar reistu í gær aftur vegatálma í kringum Gaza- svæðið eftir að eldflaugaárás á suðurhluta Ísraels rauf vopna- hlé. Sex dagar voru liðnir síð- an vopnahlé á milli Hamas- samtakanna og Ísraels tók gildi. Ehud Olmert, forsætis- ráðherra Ísraels, segir árásina vera „gróft brot gegn vopna- hléinu af hálfu palestínskra hópa á Gaza.“ Árásin var framin af hópnum Íslamska Jihad í hefndarskyni fyrir árás Ísraels á Vesturbakkanum og olli engum mannskaða. Leiðtogar Hamas segja að- gerðir Ísraela rjúfa skilmála vopnahlésins og hvetja alla að- ila til að leggjast á eitt svo það haldi. aij Sex daga hlé Gaza lokað Drápsæði rann á starfsmann plastverksmiðju í Kentucky- fylki Bandaríkjanna í gær. Þegar yfir lauk hafði hann skotið fimm samstarfsmenn sína til bana og sneri loks vopninu að sjálfum sér. „Við vitum ekki með fullri vissu hvað varð til þess að svona fór,“ segir David Piller, lögreglumaður í Henderson. „Við vitum að hinn grunaði kom með skammbyssuna eftir að hafa lent í rifrildi við yf- irmann. Við vitum ekki hvort það hafi valdið þessu. Það er til skoðunar.“ Piller segir að byssumaðurinn hafi áður lent í útistöðum við samstarfsmenn sína. aij Óður byssumaður Sex í valnum Þýska stafrófið hefur verið fullklárað, eftir að staðlafræðingar náðu samkomulagi um stóra útgáfu bókstafarins ß. Stafurinn, sem nefnist Es- zett og táknar tvöfalt s, hefur til þessa aðeins verið til sem lágstafur. Óvíst er hvort þessi breyt- ing muni hafa áhrif á þýskar réttritunarreglur. Alþjóðlegu staðlasamtökin ISO og Þýska staðlastofnunin DIN hafa staðfest að í næstu út- gáfum alþjóðlegra staðlakerfa muni Eszett njóta jafnræðis við aðra bókstafi – og vera skráður bæði sem há- og lágstafur. Stóra útgáfan deilir reyndar útliti algjörlega með þeirri litlu, þannig að breytingin hefur helst staðlafræðilegar afleið- ingar. Rösk öld er síðan Þjóðverjar byrjuðu að ræða möguleikann á því að innleiða hástafinn í rétt- ritun. Af því hefur enn ekkert orðið, og hefur því verið notast við táknunina SS þegar grípa hefði mátt til hins nýja bókstafar. Kerstin Güthert, framkvæmdastjóri þýsku málnefndarinnar, segir ekki von á að nefndin breyti réttritunarreglum. „Til þessa hefur ekki verið talin þörf á hástafnum,“ segir Güthert í samtali við Tagesspiegel. „En fólk getur auðvitað ákveðið sjálft hvort það notar hann.“ Güthert segist þó ekki eiga von á því að vin- sældir hástafsins verði miklar. Í fyrsta lagi byrji ekkert þýskt orð á Eszett, þannig að notkunin myndi einskorðast við setningar þar sem allt er skrifað í hástöfum. Í öðru lagi sé ß-takkinn illa staðsettur á lyklaborðum – og gegnir þar að auki einnig hlutverki spurningarmerkis – sem geti orðið til þess að fólk veigri sér við að nota hann að ráði. andresingi@24stundir.is Eftir áralangar samningaviðræður er fyllt upp í eyður í þýska stafrófinu Stóri bróðir ß fundinn upp Ójafnt Misauðvelt er að slá á hnappa lykla- borðsins.

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.