24 stundir - 26.06.2008, Blaðsíða 34
Eftir Hauk Johnson
haukurj@24stundir.is
„Við vorum fimm jólasveinar sem
tókum upp á þessu árið 1996. Og
síðan við buðum þetta í tengslum
við Hjólað í vinnuna átakið þá
jókst þátttakan skyndilega úr 30
manns í 170,“ segir Albert Jakobs-
son, formaður Hjólreiðafélags
Reykjavíkur. „Þeir sem taka þátt
eru þó yfirleitt ekki þarna til að
keppa enda er næg áskorun að
komast á leiðar-
enda. Það sama
má segja um flesta
í félaginu. Við
notum hjólreið-
arnar sem trimm,
bara eins og
trimmhóparnir í
Vesturbæjarlaug-
inni. Og við erum
af öllum stærðum
og gerðum. En svo
eru nokkrir sem stunda þetta sem
keppni og vilja ná sem bestum
tíma.
Hættulegt að hjóla á vegunum
„Við hjólum langmest innan-
bæjar, enda varla annað í boði.
Hörðustu karlarnir sem hafa hjól-
að hringinn margoft þora því eig-
inlega ekki lengur. Viðhorfið til
hjólreiðamanna mætti vera betra.
Fólki finnst að við eigum bara að
vera á gangstéttunum, þar sem við
megum einmitt ekki hjóla. Á leið-
inni út úr bænum er svo búið að
setja eins konar rillur í vegakantana
til þess að vekja bílstjóra sem sofna
undir stýri og þar er í raun ekki
hægt að hjóla. Maður þarf því helst
að taka rútu annaðhvort út fyrir
Selfoss eða Borgarnes til þess að
geta hjólað út á land.
Svo fjölgaði auðvitað trukkun-
um þegar strandflutningarnir lögð-
ust af og ef þú mætir trukki á 100
km hraða í mótvindi og hliðarvindi
þá geturðu bara farið undir hann.“
Aðstæðurnar séu betri í Reykja-
vík, en aðskilda hjólastíga vanti til
að koma í veg fyrir slys.
„Ég hef sjálfur lent í þremur
óhöppum. Skiljanlega gleyma sér
margir sem eru á göngu og fara yfir
á hjólastígana. Þess þarf að gera að-
skildar hjólabrautir, enda mun
hjólaumferð líklega stóraukast á
næstunni út af eldsneytisverðinu.
Og það er þegar byrjað. Á mínum
vinnustað voru áður bara tvö hjól
fyrir utan húsið en núna eru hjóla-
grindurnar fullar.
Venjulegt fólk getur hjólað lengra en í bakaríið
Hjólaumferð á
eftir að stóraukast
Hjólreiðafélag Reykjavík-
ur skoraði hinn 8. júní
síðastliðinn á hjólreiða-
garpana úr átakinu Hjól-
að í vinnuna að taka þátt
í svokallaðri Bláa lóns-
þraut þar sem hjólaðir
voru 60 km. Hefur þátt-
takan í þessum árlega
viðburði aukist mikið á
milli ára.
Tóku áskoruninni Eftir
að hafa hjólað í vinnuna í
þrjár vikur treystu margir
sér í Bláa lóns-þrautina.
➤ Fólk á öllum aldri tók þátt íBláa lóns-þrautinni og voru
veitt fjölmörg verðlaun, t.d. í
mismunandi aldursflokkum.
➤ Ferðin tekur um tvær klukku-stundir en eitt árið tók hún
rúma fimm tíma í roki.
BLÁA LÓNS-ÞRAUTIN
Albert
Jakobsson
34 FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 2008 24stundir
Verkefnið Opinn skógur hefur
nú staðið yfir í þó nokkur ár og
hafa alls átta skógræktarsvæði verið
opnuð almenningi með formleg-
um hætti. Er tilgangurinn með
verkefninu að gera sem flest skóg-
ræktarsvæði í eigu og umsjón skóg-
ræktarfélaga aðgengileg almenn-
ingi. Síðastliðinn laugardag bættist
svo Hálsaskógur við Búlandsnes á
Djúpavogi í hópinn.
„Það er búið að leggja þarna
stíga um skóginn og koma upp
góðri aðstöðu með upplýsinga-
skilti, borðum og bekkjum, auk
þess sem búið er að útbúa rjóður,“
segir Ragnhildur Freysteinsdóttir,
umhverfisfræðingur hjá Skógrækt-
arfélagi Íslands. Var mætingin góð,
á annað hundrað manns, og ým-
islegt í boði fyrir alla fjölskylduna.
Til að nefna flutti leikhópurinn Frú
Norma leikritið Soffía mús á tíma-
flakki en yngsta kynslóðin lagði
einnig sitt af mörkum og opnaði
myndlistarsýningu í skóginum,
sem stendur enn.
Skógarnir vinsælir
„Við höfum fundið fyrir miklum
meðbyr með verkefninu en fyrsti
skógurinn var opnaður árið 2002.
Skógarnir eru mismikið sóttir en
þeir staðir sem liggja nær alfaraleið
eru líklega mest notaðir, eins og
t.d. Snæfoksstaðir í Grímsnesi og
Daníelslund við Svignaskarð, enda
er það í miðri sumarhúsabyggð og
hæfilega langt fyrir utan Borgarnes.
Það hefur þó ekki verið gerð nein
formleg talning. Næst opnum við
svo skóg 5. júlí og hann verður í
Akurgerði í Öxnafirði.“
Á vefsíðunni www.skog.is geta
þeir sem vilja nýta sér útivistar-
möguleika skógræktarsvæðanna
kynnt sér þá skóga sem opnaðir
hafa verið með þessum hætti. hj
Skógræktarfélögin vinna að bættu aðgengi í skógum landsins
Opnir skógar um allt land
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is útivist
Það er meira
í Mogganum
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1800
í dag
Fimmtudagur 26. júní 2008
30 ára en hvernig
standa réttindamálin?
» Meira í Morgunblaðinu
Samtökin ’78
Sú fjórða stendur yfir og
er að mörgu leyti sér á báti
» Meira í Morgunblaðinu
Olíukreppurnar
Ekki fyrir lofthrædda að
þrífa glugga í mikilli hæð
» Meira í Morgunblaðinu
Gluggalist
Foreldrar sumra lands-
liðskvenna voru afreksfólk
» Meira í Morgunblaðinu
Eplið og eikin
Auglýsingar verða æ al-
gengari í tölvuleikjum
» Meira í Morgunblaðinu
Nýr vettvangur