24 stundir - 26.06.2008, Síða 36
GRILLAÐUR ANANAS
Eftir Hauk Harðarson
haukurh@24stundir.is
„Þetta er mjög einfalt. Heill ananas
dugar fyrir sex til átta manns og
hann er skorinn í tveggja til þriggja
sentímetra skífur. Þá er um það bil
tveimur teskeiðum af hrásykri
stráð yfir hverja sneið og ananasinn
látinn liggja í hrásykrinum á með-
an aðalrétturinn er borðaður, eða í
um það bil klukkustund,“ segir Ás-
geir Sandholt, konditor í Bakaríi
Sandholt á Laugavegi.
„Svo er ananasinn grillaður létt,
eða þangað til hann er orðinn fal-
lega gylltur á hvorri hlið. Það er
mjög sniðugt að skera gat í miðj-
una og setja þar kókossorbet, en
hann fæst hjá mér. Annars má nota
vanilluís eða hvaða ís sem fólki
dettur í hug, en ananas og kókos
eru náttúrlega mjög klassísk og
„exótísk“ samsetning.“
Eldar mat með súkkulaði
Ásgeir segist hafa gaman af því
að grilla en kann þó best að meta
grillmatinn hjá mömmu. „Hún er
góð í flestöllu kjöti og mér finnst
hún fara best með það. Það er nátt-
úrlega allt gott sem maður er alinn
upp við,“ segir Ásgeir.
Það er þó annars konar matar-
gerð sem hefur átt hug hans allan
að undanförnu. „Ég hef verið að
missa mig yfir því að elda fullt af
mat með súkkulaði. Ég hef verið að
þróa leið til að láta ekki allan mat
með súkkulaði enda eins og súkku-
laðismjör. Ég hef til dæmis verið að
þróa lambaskanka með frönsku
súkkulaði pakkaða inn í tortellini-
pasta með grænmetissoði. Þeir eru
alger snilld, þetta er í rauninni eins
og íslensk kjötsúpa krydduð með
súkkulaði. Ég er ekki ennþá farinn
út í það að setja súkkulaði á grillið
en á það örugglega eftir,“ segir
þessi tilraunaglaði bakari.
Má ekki gleyma að fá sér sætt
Ásgeir rekur bakarí í miðbæ
Reykjavíkur og hann er ánægður
með stemninguna í bænum í blíð-
unni sem hefur verið að undan-
förnu.
„Stemningin í bænum er mjög
góð. Sala á ís sem við lögum hérna
hefur fjórfaldast í góða veðrinu,“
segir hann og gefur gott ráð til
grillara:
„Fólk má ekki gleyma að fá sér
smá sætt eftir matinn. Það er svo
gott að fá sér smá þótt það sé ekki
mikið,“ segir Ásgeir og bætir við að
ananasinn fari vel á eftir flestum
mat. „Ég er orðinn svolítið þreyttur
á bananasplittinu og ananasinn er
frábær tilbreyting.“
Ásgeir Sandholt kann best að meta grillmatinn hjá mömmu
Ekki gleyma
eftirréttinum
Grillmatur getur verið
þungur í maga og því er
tilvalið að fá sér eitthvað
létt og sætt í eftirmat. Ás-
geir Sandholt, konditor í
Bakaríi Sandholt, segir
tilvalið að grilla ananas
eftir aðalréttinn og hafa
kókossorbet með. Hann
kann best að meta grill-
matinn hjá mömmu.
Ásgeir Sandholt Þreytt-
ur á bananasplitti.
➤ Heill ananas dugar fyrir 6-8manns og er skorinn í 2-3
sentímetra skífur.
➤ Hann er látinn liggja í hrá-sykri í klukkutíma áður en
hann er grillaður létt.
36 FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 2008 24stundir
Ásgeir Sandholt konditor í bak-
arí Sandholt gerði þennan girnilega
eftirrétt, grillaðan ananas með kók-
os-sorbet í miðjunni. Ásgeir beinir
því til fólks að gleyma því ekki að fá
sér eitthvað sætt á eftir aðalrétt-
inum en ananasinn er látinn liggja í
hrásykri í um það bil klukkustund
þangað til hann er settur beint á
grillið og grillaður þangað til hann
verður fagurlega gylltur á hvorri
hlið. hh
Hressandi og bragðgóður eftirréttur
Grillaður ananas
Grillaður ananas Með
kókos-sorbet.
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is a
Ég er orðinn svolítið þreyttur á bananasplitti
og ananasinn er frábær tilbreyting.
grillið
Komdu og gerðu
góð kaup!
Útsalan
er hafin í Respekt
Mikið úrval af
Skunkfunk
Desigual
Lee og Wrangler
HEILL HEIMUR
AF SKEMMTUN
Opið sunnudaga til fimmtudaga
11.00 -24.00
Opið föstudagaoglaugardaga
11.00 - 02.00
Sérfræðingar
í saltfiski
466 1016
- Útvatnaður saltfiskur án beina til suðu
- Sérútv. saltfiskur án beina til steikingar
- Ýsa, þorskur, gellur, kinnfiskur, rækjur
- Einnig fjölbreytt úrval tilbúinna rétta
www.ektafiskur.is
pöntunarsími:
frumkvöðlafyrirtæki ársins - viðurkenning frá matur úr héraði - localfood