24 stundir - 26.06.2008, Page 42
42 FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 2008 24stundir
Kanye West er ekki þekktur fyrir
að liggja á skoðunum sínum en
nú er hann bálreiður yfir Bon-
aronn-tónleikunum sem fóru svo
illilega úrskeiðis. West segir á
bloggsíðu sinni að hann sé kom-
inn með leið á fólki sem reynir sí-
fellt að eyðileggja feril hans.
Skipuleggjendur Bonaroon-
hátíðarinnar eru víst fávitar sem
kunna ekki að setja upp svona
stóra sýningu. Þegar West steig
loksins á svið undir morgunn
höfðu áhorfendur meðal annars
brotið sjónvarpsskjá sem var á
sviðinu og sviðið var á floti. West
segist niðurbrotinn yfir því að
hafa ekki getað komið fram á
réttum tíma og leyft áhorfendum
að njóta sýningarinnar í fullum
gæðum.
iris@24stundir.is
Bandbrjálaður Kanye West
hlutskipti og ákvað að gerast sinn
eigin herra og semja sitt eigið efni.
Undanfarin sex ár hefur hann
harkað í bransanum og er orðinn
afar virtur tónlist-
armaður í
Danmörku í
dag og fær
ávallt frábæra
dóma hjá gagn-
rýnendum.
Einskonar Mug-
ison þeirra Bauna.
„Stefgjöldin eru aðeins
byrjuð að skila sér, en þó
er mjög erfitt að komast í
spilun á útvarpsstöðv-
unum, þar sem tónlist mín
flokkast ekki undir þetta
hefðbundna útvarpspopp sem
heyrist hér nánast eingöngu,“
segir Mads.
Góðar minningar
Mads hefur þó áður komið til Ís-
lands, fyrir um fimm árum, þegar
hann ferðaðist um landið á putt-
anum. „Ég kom með fyrrverandi
kærustunni minni og við fórum
víða, þó ég muni nú ekki öll nöfnin
ennþá. En ég man að við hittum in-
dælis hjón, sem áttu flugfélagið Atl-
anta, og saman fórum við um allt.
Meðal annars heimsóttum við
fangelsi, þar sem við heilsuðum
upp á alþingismann er sat inni.
Það væri gaman að hitta þetta
fólk aftur, kannski þau komi
á tónleikana í kvöld,“ segir
Mads, sem ber þeim Arn-
grími Jóhanssyni, Þóru
Guðmundsdóttur og
Árna Johnsen vel sög-
una.
Ekkert hjól-
hýsapakk!
Mads ásamt
tónlistarkonunni
Lone Hörslev.
Bryndís Jakobsdóttir og Mads Mouritz með tónleika á Organ í kvöld
Dísa Jakobs með
dönsku ívafi
Tónlistarmaðurinn Mads
Mouritz er staddur hér á
landi í boði Dísu Jakobs,
en saman spila þau á
Organ í kvöld. Mads von-
ast til að sjá Arngrím í
Atlanta og Árna Johnsen.
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@24stundir.is
„Ég hlakka mikið til að koma til Ís-
lands. Kannski hitti ég Árna John-
sen og Arngrím í Atlanta aftur,“
segir danski tónlistarmaðurinn
Mads Mouritz, sem spilar í kvöld á
Organ ásamt Dísu klukkan 22.00.
Semja saman
„Við Mads kynntumst í Dan-
mörku, þar sem við sóttum bæði
námskeið í laga-
smíðum. Hann
bauð mér að spila
með sér nokkur
gigg í Köben sem
heppnaðist mjög
vel. Svo bauð ég
honum bara að
koma til Íslands,
til að spila og sýna
honum landið,“
segir Dísa, en þau
Mads munu spila blandað efni
þeirra beggja í kvöld.
Mads er 32 ára gamall og var áð-
ur gítarleikari í óþekktri hljómsveit.
Hann segist hafa orðið leiður á því
Bryndís
Jakobsdóttir
kristninnar, en hún er vart grein-
anleg þeim sem ekki leita eftir
henni.
Annars er aðeins einn mæli-
kvarði sem hægt er að taka trúan-
legan þegar kemur að slíkum æv-
intýramyndum fyrir alla
fjölskylduna; blessuð börnin. Sá
stutti sem fór með undirrituðum
fannst hún „geðveikt góð“ þrátt fyr-
ir að vera örlítið hræddur á tíma-
bili. Og ekki verða þau rök rengd.
Kvikmyndir traustis@24stundir.is
Kaspían Konungssonur er önnur
myndin í framhaldsbálknum um
annála Narníu, ævintýraheimsins
sem C.S. Lewis skapaði.
Hér segir af prins Kaspían, sem
neyðist til að flýja ríki sitt, því
valdasjúkur frændi hans, Miraz,
hefur fæðst sonur og það eina sem
stendur í vegi hins illa frænda til að
verða konungur, er líf Kaspíans. En
prinsinn kallar á hjálp, sem birtist í
formi fjögurra enskra systkina, sem
snúa aftur til Narníu, 1300 árum
eftir síðasta ævintýri þeirra.
Þar leiða þau íbúa Narníu gegn
hinum illa Miraz, í epísku stríði.
Myndin er ögn myrkari en sú
fyrri, sem telst kostur. Ekki þarf þó
að hafa séð fyrri myndina til að
skilja þá seinni, hún stendur sjálf-
stæð ein og sér. Erfitt er að líta
framhjá líkindunum við Hringa-
dróttinssögu, auk þess sem sagan
inniheldur dass af Hamlet.
Leikur ungmennanna verður að
teljast ágætur, þó svo breski hreim-
ur Péturs verði að teljast ansi yf-
irlætisfullur. Talandi um hreima, þá
virðist sem að prins Kaspían sé
kominn af slavneskum ættum, því
hann hljómar líkt og annar hver
James Bond skúrkur, sem verður að
teljast óvenjulegt hjá hetjum á hvíta
tjaldinu.
Annars er hér um skemmtilegt
ævintýri að ræða, þrátt fyrir örlítið
pirrandi skírskotanir C.S. Lewis til
Hin fimm fræknu Pevensie-systkinin koma prins Kaspían til hjálpar á ögurstundu, en
Narnía hefur breyst síðan þau komu þangað síðast.
Skemmtileg ævintýramynd fyrir alla fjölskylduna
Leikstjóri: Andrew Adamson
Aðalhlutverk: Ben Barnes, Georgia
Henley, Skandar Keynes, William
Moseley, Anna Popplewell, Sergio
Castellitto
The Chronicles of Narnina
Reuters hefur greint frá því að
kvikmynd um líf söngvarans Paul
Potts sé í bígerð. Farsíma-
sölumaðurinn Paul sló rækilega í
gegn í hæfileikakeppninni Brita-
ińs got Talent en hann vann
keppnina og varð um leið stjarna
á myndbandavefnum YouTube-
.com. Síðan þá hefur hann ferðast
um heiminn til að syngja og gefið
út vinsæla plötu.
Simon Cowell er framleiðandi
myndarinnar, sem hefur fengið
nafnið One Chance, en Justin
Zackham, sem gerði meðal ann-
ars handritið fyrir myndina The
Bucket List, mun skrifa hand-
ritið. Myndin mun fylgja Potts í
gegnum erfiða ævi hans allt þar
til hann slær í gegn. vij
Syngjandi símasalinn í bíó
FÓLK
24@24stundir.is a
Talandi um hreima, þá virðist sem að prins Kaspían sé kom-
inn af slavneskum ættum, því hann hljómar líkt og annar
hver James Bond skúrkur, sem verður að teljast óvenjulegt hjá
hetjum á hvíta tjaldinu.
Erlendar slúðursíður halda því nú fram að Ben Affleck og Jennifer
Garner séu á leiðinni til skilnaðardómara. Ástæðan er víst leiðindi í
mömmu Affleck. Talskona hjónanna sagði að þessar fréttir væri algjört
bull og ættu ekkert erindi í fjölmiðla. Skilnaðarfréttin hljómar ólíkleg
enda er þetta í fyrsta sinn sem slíkar sögur fara í gang. Ef ástandið væri
svona slæmt værum við eflaust búin að heyra um það fyrr. iav
Ben Affleck að skilja við Garner?
poppmenning