24 stundir - 26.06.2008, Síða 48
24stundir
Das Auto.
Prófaðu Tiguan.
Hann breytir öllu.
Volkswagen Tiguan hefur yfirburði í flokki sportjeppa, einkum þegar
spurt er um kraft, gæði og verð. Hann getur dregið allt að 2.500 kg vagn og
er hlaðinn búnaði sem gerir ferðalögin þín enn þægilegri. Hann fer betur
með eldsneytið og eyðir aðeins frá 6,9 lítrum á 100 km í blönduðum akstri.
Svo kemur verðið líka á óvart því hann kostar aðeins frá 3.990.000 kr.
Komdu og finndu hvernig Tiguan breytir öllu.
Komdu og prófaðu kraftmeiri sportjeppa.
Þú getur fen
gið Tiguan
fyrir aðeins
3.990.000
kr.
Volkswage
n Tiguan Tr
end&Fun TS
I,
beinskiptur
, sex gíra m
. 150 hestaf
la vél.
? Það er af sem áður var þegar þjóðintók hraustlega á dagana langa – hand-þvoði þvott, rak kindur og reri á sjóinn.Tók með öðrum orðum líkamlega á engrillaði ekki í sér heilabúið húkandi fyrirframan tölvuskjái. Vöðvabólga og bak-verkir komast nærri því að vera jafn-vinsælt umræðuefni á kyrrsetu-
vinnustöðum og veðrið. Þess vegna skil
ég ekki af hverju líkamsræktarstöðvar
hafa ekki fyrir löngu kveikt á perunni og
markaðssett skipulega öflugustu lausn-
ina við þessu meini landans: Reglulega
hreyfingu. Vissulega getur verið voða
huggulegt að fara í nudd til að lina
tölvuvöðvabólguna og höfuðverkinn
sem fylgir. Og bryðja íbúfen og staðhæfa
að verkjanna vegna verði maður hrein-
lega að slappa af uppi í sófa í kvöld.
En það vinnur ekki á rót vandans. Hin
varanlega lausn felst auðvitað í að hreyfa
sig og svitna reglulega, styrkja axlir og
bak og liðka sig. Ef einhver veit þetta eru
það líkamsræktargúrú landsins og þess
vegna spyr ég mig hvað tefji „burtu með
bólguna“ markaðssetninguna. Til hvers
að laða Gunnu í ræktina með þeim for-
merkjum að hún verði þá loksins stinn
og grönn og gasalega smart? Leggja
áherslu á að í tækjasalnum bíði Jóns
vöðvamassi og grænir skógar? Þau hafa
mögulega engan áhuga á prótíndrykkj-
um og sólbrúnku en langar einungis að
losna við kyrrsetuslenið og láta sér líða
vel. Stöðvarnar hafa nefnilega líka flask-
að á að markaðssetja hreyfingu sem öfl-
ugasta geðlyfið – áhrifaríkustu leiðina til
að losna við slen og stress.
Vöðvabólguþjóð
Sigríður Víðis
Jónsdóttir
skilur þetta ekki
YFIR STRIKIÐ
Viltu láta
þér
líða vel?
24 LÍFIÐ
Gagnrýnandi gefur frumraun
þjóðlagapoppsveitarinnar Múg-
sefjunar þrjár og hálfa
stjörnu af fimm.
Frumraun Múgsefj-
unar vel heppnuð
»40
Önnur kvikmyndin í þríleiknum
um Narníuævintýrin þykir nokkuð
vel heppnuð og fær
þrjár stjörnur.
Prince Caspian fær
þrjár stjörnur
»42
Bryndís Jakobsdóttir heldur tón-
leika í kvöld á Organ ásamt dönsk-
um félaga sínum að
nafni Mads Mouritz.
Dísa flytur inn
danskan varning
»42
● Gaddakylfan
„Sagan heitir
Svikarinn og er
um stúlku sem fer
með ástmanni
sínum út á land
og vaknar við það
að hann hefur
eitthvað brugðið
sér frá og svo finnur hún hann ekki
aftur,“ segir Lilja Magnúsdóttir
sem hampaði Gaddakylfunni 2008
í gærkvöld í glæpasmásagnakeppni
á vegum Mannlífs og Hins íslenska
glæpafélags. „Ég veit ekki hvað ég
geri við verðlaunagripinn,“ segir
hún og gantast með að auðvitað
rati hann í hillu nema hann reynist
brúklegur til annars.
● Dr. Spock og
Raggi Bjarna
„Við fórum eitt-
hvað í það hvaða
lög við gætum
tekið saman,“ seg-
ir Finni, söngvari
Dr. Spock, en
hljómsveit hans
mun taka lagið með Ragga Bjarna
á Þjóðhátíð í Eyjum. „Við erum
ekki búnir að loka því. Hann vill
taka Rockabilly Rock og við ætlum
að reyna fá hann til þess að syngja
rólega kaflann í Hvar ertu nú?“
Raggi Bjarna óskaði sérstaklega
eftir því að lögin yrðu í Gís-dúr.
„Það eru svörtu nóturnar, strákar.
Svörtu nóturnar,“ sagði Raggi með
lafandi hönd.
● Leiðrétting
„Þarna er verið að
leiðrétta það síð-
ast sem út af ber,“
segir Frosti Jóns-
son, formaður
Samtakanna ’78,
um ný lög sem
heimila trú-
félögum að gifta samkynhneigða.
Lögin taka gildi á morgun, á al-
þjóðlegum baráttudegi hinsegin
fólks. Hann segir að þrátt fyrir
lagalegt jafnrétti sé ekki tímabært
að leggja samtökin niður. „Nei,
langt því frá. Það er með þessa bar-
áttu eins og aðra mannréttinda-
baráttu, hún tekur aldrei enda.“
Ritstjórn
Sími: 510 3700
ritstjorn@24stundir.is
Auglýsingar
Sími: 510 3700
auglysingar@24stundir.is
Hvað ætlar þú að
gera í dag?
- kemur þér við