Morgunblaðið - 13.07.2008, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 13.07.2008, Qupperneq 1
S U N N U D A G U R 1 3. J Ú L Í 2 0 0 8 STOFNAÐ 1913 190. tölublað 96. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er REYKJAVÍKREYKJAVÍK LITSKRÚÐ OG EFNIÐ ÚR ÖLLUM ÁTTUM FRÉTTIR Henson heldur minningum til haga Leikhús í sumar >> 49 - munurinn felst í Gaggenau Nóatúni 4 • Sími 520 3000 www.sminor.is Eftir Oddnýju Helgadóttur oddny@mbl.is NEIKVÆÐAR fréttir um efnahagsástandið hafa dunið á Íslendingum undanfarnar vikur og mán- uði. Versnandi efnahagur, verðhækkanir og at- vinnuleysi hanga eins og skuggi yfir fólki. Sumir þykjast þó sjá viss tækifæri í samdrætt- inum. Þannig vonast umhverfisverndarsinnar til þess að fólk keyri nú minna og dragi úr sóun og óhóflegri neyslu. Þá hefur verið bent á að fólk setj- ist oft á skólabekk á meðan efnahagsörðugleikar ganga yfir og sumir segja að listir og menning arnir hafa auglýst sig grimmt undanfarna mánuði og hugsanlega hafa auglýsingar og samkeppni áhrif á aðsókn í háskólanám. Listamenn virðast ekki hafa mikla trú á því að kreppa sé listum holl. Undanfarin ár hefur um- hverfi lista hér á landi breyst talsvert. Fyrirtæki og einkaaðilar hafa í síauknum mæli styrkt menn- ingarstarfsemi og listir. Þegar hallar undir fæti í einkageiranum getur það því haft mikil áhrif á list- sköpun. Það er ekki laust við að sjálfstætt starf- andi listamenn séu áhyggjufullir. Glætan í samdrættinum  Efnahagsörðugleikar geta orðið kveikja að endurskoðun lífshátta og neysluvenja  Samdrátturinn er fólki ofarlega í huga en mun það verða til þess að bensínnotkun og neysla dragist saman?  Með kreppuna | 10 blómstri þegar verst lætur. Eiga þessi sjónarmið rétt á sér eða eru þau barnaleg bjartsýni? Það er ekki sjálfgefið að fólk breyti neysluvenj- um eða spari þegar harðnar á dalnum, sums stað- ar hefur það m.a.s. sýnt sig að umframeyðsla eykst þegar kreppir að. Ýmislegt virðist þó benda til þess að Íslend- ingar séu að temja sér breyttar neysluvenjur. Fólk keyrir minna og neysla hefur almennt dreg- ist nokkuð saman. Umsóknir um háskólanám eru líka fleiri en nokkru sinni fyrr. Enn er nokkuð snemmt að tengja þá þróun beint við efnahagsástand. Háskól- Neyslan Hefur samdráttur áhrif? Bylting í rafbílum gæti verið hand- an við hornið. Komnar eru fram nýjar rafhlöður sem flýtt gætu fyrir því að bensínhákurinn verði leystur af hólmi. Kapphlaup bílaframleið- enda um rafbílinn er hafið. Rafbílabyltingin innan seilingar? Forsetaefni repúblikana, John McCain öldungadeildarþingmaður frá Arizona, stendur höllum fæti í skoðanakönnunum. En hann er reyndur og á ýmis sóknarfæri. Baráttujaxlinn McCain Sjálfsvígsárásir voru fátíðar í Afg- anistan fyrir innrásina í Írak. Nú eru þær óhugnanlega tíðar og fer ástandið líka versnandi í Kabúl þar sem mest hefur verið öryggið. Hrina sjálfsvígs- árása í Afganistan SIGURÐUR Guðmundsson í Hjálmum lætur ekki deigan síga. Hann hefur verið í hljómsveitinni Hjálmum í fjögur ár að undanskildu stuttu tímabili eftir að hljómsveitin hætti. Hjálmar hafa spilað víða inn- anlands og erlendis og leikið með Megasi og fleiri þekktum tónlist- armönnum. Hann er kominn af tónlistarfólki og mikil tónlist var á heimilinu. Sig- urður hefur verið í tónlist frá því hann man eftir sér en kunni ekki við að vera í lúðrasveit. Á plötunni Oft spurði ég mömmu syngur Sigurður á yfirvegaðan hátt dægurperlur sem flestar eru komn- ar til ára sinna. Platan hefur fengið frábærar viðtökur og er leikin á flestum ef ekki öllum útvarps- stöðvum landsins um þessar mundir. Sigurður segist telja að dægurlög sem ná vinsældum verði smám sam- an að þjóðlögum. „Mér finnst ekki skipta máli hvort lag sé sungið beint upp úr bók. Ef dægurlag verður vin- sælt og lifir nógu lengi verður það almenningseign og að lokum þjóð- lag. Það syngur enginn þjóðlögin ná- kvæmlega eins.“ Þegar hann er spurður hvað sé á döfinni segir hann að einhver hafi spurt hvort það verði ekki jólaplata í haust. „Ætli sé bara ekki best að fara að snúa sér að undirbún- ingnum.“ Alvarlegur verður Siggi ekki hann sjálfur og við tekur andlegur dauði Dægurperlur eru þjóðlög framtíðarinnar Morgunblaðið/G.Rúnar Vinsæl víða „Platan hefur heyrst á öllum stöðvum, allt frá FM til Gufunnar. Ég held að það sé algert heimsmet,“ segir Sigurður um nýju plötuna. Í HNOTSKURN »Nýjasta plata Sigurðar,Oft spurði ég mömmu, inniheldur 12 gömul lög og eitt nýtt. »Öll eru lögin tekin upp áeina rás með segulbands- tæki.  Hrærist í tónlist | 44 VIKUSPEGILL

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.