Morgunblaðið - 13.07.2008, Side 4
4 SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Sigurð Boga Sævarsson
LEIT að betra lífi og frelsisþrá er það sem ís-
lenskir landnámsmenn og fimmmenningarnir í
rokksveitinni Rolling Stones eiga sammerkt.
Löngunin í kraftmikla tónlist og eitthvað annað
en staðnað tónlistarlíf Bretlands varð hvatinn að
því að hljómsveitin var stofnuð og varð, ásamt
öðru, kyndilberi frelsis í stöðnuðu þjóðfélagi bug-
uðu af afleiðingum loftárása Þjóðverja.
Þetta segir Ólafur Helgi Kjartansson, sýslu-
maður á Selfossi, sem fór fyrir kvöldgöngu á
Þingvöllum sl. fimmtudagskvöld þar sem arkað
var um Almannagjá og þinghelgina.
Sterk líkindi
Fjölmargir tóku þátt í kvöldgöngunni með
sýslumanni Árnesinga sem þekktur er sem gall-
harður aðdáandi Rolling Stones og þekkir sögu
sveitarinnar flestum betur. Á Þingvöllum er stað-
ið fyrir skipulögðum gönguferðum á hverju
fimmtudagskvöldi í allt sumar. Göngurnar leiðir
fólk sem er gagnkunnugt Þingvöllum og þekkir
sögu staðarins, hvert frá sínu sjónarhorni. Eink-
um og helst hafa menn nálgast söguna með til-
vísun til hins íslenska menningararfs. Óvenju-
legra er hins vegar að ræða í sömu andrá um
Þingvelli og rokksveit hinna rúllandi steina. Til-
svörunin er hins vegar býsna sterk þegar nánar
er skoðuð eins og Ólafur Helgi benti á með
traustum rökum.
„Heimspeki félaganna í Rolling Stones fólst
fyrst og fremst í því að njóta sjálfstæðis og bera
ekki ok fyrri kynslóða á herðum sínum. Þar eru
komin afar sterk líkindi með þeim félögum og Ís-
lendingum sem stofnuðu Alþingi í framhaldi þess
að hafa flúið ok Noregskonunga og haldið til Ís-
lands. Til hvers notuðu Íslendingar frelsi sitt? Til
þess að koma hér upp eigin ríki, goðaveldi eða
þjóðveldinu eins og það hefur stundum verið
nefnt og var við lýði frá 930 til 1262.“
Sveigja undir siðferði
Ólafur Helgi gekk með hópinn meðfram
Drekkingarhyl, hvar konum var drekkt fyrr á
öldum ættu þær börn með mönnum sem þær
vildu ekki þýðast. Sagði hann að nútímamenn
ættu sjálfsagt erfitt með að skilja þá grimmd-
arhugsun sem þar hefði að baki búið. Slíkt hefði
þó væntanlega verið sprottið af þörf yfirvalda til
hafa tak á þegnunum og sveigja undir æskilegt
siðferði.
Í þessu sambandi vísaði Ólafur Helgi aftur til
Rolling Stones og lags sveitarinnar frá 1966,
„Under my thumb“ sem þýða mætti Undir þuml-
inum. Þar er sungið um hvernig sögumaður hefur
náð að kúga stúlku undir vilja sinn svo hún klæð-
ist þeim fötum sem söngvarinn vill hverju sinni.
„Það er karlmaðurinn sem valdið hefur. Hvar
hefst kúgun kvenna og hvar lýkur henni? Þeirri
spurningu verður ekki svarað auðveldlega en
ljóst er þó að oft tekur kúgunin sjálf völdin af
kúgaranum og gengur lengra en upphaflega
hugsunin náði til. Einhverra hluta vegna tengdist
þetta annars ágæta lag í vitund minni Drekking-
arhyl og sú hugsun hefur oft vaknað síðan þegar
ég fer hér um.“
Ólafur Helgi tíndi til ýmis fleiri dæmi um frels-
isþrá Rollinganna og Þingvallasögur frá fyrri öld-
um og lagði að jöfnu. Bætti við að hvað sem
mönnum þætti annars um hljómsveitina væru
liðsmenn hennar hæst launaðir skemmtikrafta í
heiminum í dag. Þeirra víkingaferð væri ekki lok-
ið þótt íslenskir víkingar legðu ekki í hernað með
sama hætti og fyrr. Þeir slægju hvert metið af
öðru í tekjuöflun líkt og Íslendingar hafa gert
fram undir þetta.
Fyrir tæpum 20 árum gaf Rolling Stones út
lagið „Continental Drift“ sem þýðir einfaldlega
Landrek. Sá titill á vel við á Þingvöllum því
hvergi hérlendis gætir áhrifa landreksins jafn
greinilega – enda er staðurinn á skilum jarðfleka
tveggja heimsálfa.
Frelsisþrá á flekaskilum
Ólafur Helgi Kjart-
ansson sýslumaður bar
íslenska landnámsmenn
saman við Rolling Ston-
es á kvöldgöngu um
Þingvelli
Ljósmynd/Sigurður Bogi
Eftirtekt Göngufólk áði á Lögbergi og hlustaði af eftirtekt á sögu Þingvalla, helgasta stað Íslendinga,
út frá sérstæðu sjónarhorni.
„VAR tilviljun að forfeður okkar völdu á sínum
tíma til þinghalds þann stað á Íslandi þar sem
náttúran er hin fegursta, þar sem Evrópa og
Ameríka mætast og hverfa hvor í sína áttina.
Hér er landrekið sýnilegt og hefur áhrif á þá
sem með fylgjast þótt hægt fari. Hér á Þing-
völlum skulum við hafa í huga mikilvægi þess
að Íslendingar haldi saman í framtíðinni og
læri af því sem hér hefur gerst um aldir. Hér
hefur íslenska þjóðin risið hæst og náð mest-
um lægðum,“ sagði Ólafur Helgi.
Þingvellir engin tilviljun
Eftir Björn Björnsson
Sauðárkrókur | Jón Hallsson frá
Silfrastöðum í Blönduhlíð, nú vist-
maður á Heilbrigðisstofnun Skaga-
fjarðar, er eitt hundrað ára í dag.
Jón fæddist á Brekkukoti ytra í
Blönduhlíð 1908 en foreldrar hans
þau, Ólína Jónasdóttir skáldkona og
Hallur Jónsson, höfðu þá nýlega
byrjað þar búskap.
Ekki naut Jón föður síns lengi því
Hallur drukknaði í Vesturósi Hér-
aðsvatna ári síðar að vini sínum Jóni
Ósmann ferjumanni ásjáandi, sem
ekki fékk rönd við reist.
Að Halli látnum brá Ólína búi og
var með einkason sinn í vistum og
vinnumennsku á ýmsum bæjum í
Skagafirði, allt þar til Jón varð
vinnufær, en þá varð hann sjálfur að
sjá sér farborða og var ýmist í vega-
vinnu eða vinnumennsku auk þess
að vera tvær vertíðir í Sandgerði
sem landmaður.
Alla tíð hefur Jón átt lögheimili í
Blönduhlíð utan þriggja ára sem
hann var með móður sinni í vist í Vík
í Staðarhreppi, frá 1935 á Silfrastöð-
um en áður sjö ár á Úlfsstöðum í
sömu sveit og enn er hann skráður
til heimilis á Silfrastöðum þótt hann
hafi nú dvalið nokkuð á annan tug
ára á Heilbrigðisstofnuninni á Sauð-
árkróki.
Jón er stálminnugur og hress í tali
og segir gott að geta litið sáttur yfir
ævidaginn, sér hafi alla tíð liðið vel
og gott hafi verið að búa hjá Silfra-
staðafólkinu. Hann var lengstum
fjármaður og gekk til beitarhúsa í
Bessakoti hvern vetur um árabil.
„Jarðsæld er ákaflega mikil á
Silfrastöðum,“ segir Jón, „og sagt
var að það væri grimmur góudagur
ef ekki tæki í fjallinu,“ en nær alltaf
hafi verið næg hey á Silfrastöðum
enda féð létt á fóðrum vegna góðrar
beitar, og segist hann líklega hafa
gefið tæplega bagga á hverja á yfir
veturinn.
Jón var þaulkunnugur á öllum af-
réttum, fór í göngur hvert ár frá
unglingsárum og allt fram undir átt-
rætt og sótti skilaréttir norður í
Hörgárdal.
Jón Hallsson kvæntist aldrei en á
einn son, Ólaf Íshólm, sem búsettur
er á Selfossi. Vinir og ættingjar Jóns
munu halda honum kaffisamsæti á
Heilbrigðisstofnun Skagfirðinga í
dag.
100 ára í dag og segir gott að geta
litið sáttur yfir ævidaginn
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Í nefið Jóni Hallssyni þykir gott að fá sér í nefið sér til hressingar.
ÖLVAÐUR ökumaður slapp með
skrekkinn þegar hann ók út af veg-
inum á vegamótum Biskupstungna-
brautar og Suðurlandsvegar í gær-
morgun. Að sögn lögreglunnar á
Selfossi sakaði manninn ekki en bif-
reiðin er mikið skemmd. Maðurinn
má þakka bílbeltum að ekki fór
verr. Hann var sviptur ökurétt-
indum til bráðabirgða.
Lögreglan stöðvaði akstur
tveggja annarra ökumanna aðfara-
nótt laugardags vegna gruns um
ölvun. Auk sektar mega þeir búast
við ökuleyfissviptingu.
Á föstudagskvöld stöðvaði lög-
regla ökumann bifhjóls en sá ók
hjóli sínu á 161 km hraða.
Ók ölvaður út
af veginum
STUTT
MIKILL munur er á kostnaði í
tengslum við fótboltaiðkun barna
fæddra 1994 og 1995 milli sveitarfé-
laga. Ódýrast er að æfa fótbolta í
Grindavík og Hafnarfirði. Þetta
kemur fram á heimasíðu neytenda-
samtaka Íslands.
Í Grindavík greiða börn á grunn-
skólaaldri engin æfingagjöld stundi
þau íþróttir þar í bæ og sveitarfélag-
ið greiðir íþróttafélögunum fyrir
hvern iðkanda. Í Hafnarfirði er árs-
gjaldið 40.000 krónur og íþrótta-
styrkur sveitarfélagsins hljóðar upp
á 36.000 krónur. Greiðsla iðkanda er
því 4.000 krónur á ári.
Dýrust er knattleiksiðkunin í Ár-
borg. Þar er ársgjaldið 46.800 krón-
ur og enginn styrkur fæst frá sveit-
arfélaginu. 11 af 24 sveitarfélögum
veita enga íþrótta- og tóm-
stundastyrki en rétt er að taka fram
að flest þeirra styrkja íþróttafélög
fjárhagslega að einhverju leyti.
haa@mbl.is
Fótbolti mis-
jafnlega dýr
SKRÁÐ atvinnuleysi var 1,1% í júní
og það er örlitlu hærra hlutfall en í
maí. Að meðaltali voru 1.842 at-
vinnulausir á mánuðinum eða 103
fleiri en í maí, að því er segir á vef
ASÍ.
Líkt og að undanförnu er ástand-
ið verst á Suðurnesjum og Norður-
landi eystra.
Mjög gott ástand hefur verið á at-
vinnumarkaði hér á landi síðustu ár
en nú eru blikur á lofti. Búast má
við að atvinnuleysi aukist hratt með
haustinu. Dregið hefur úr fjölgun
starfa og víða tilkynnt um upp-
sagnir.
Atvinnuleysi eykst
TÖLUVERÐUR viðbúnaður var á
Reykjavíkurflugvelli á tíunda tím-
anum í gærmorgun, í kjölfar þess
að flugmaður lítillar Cessnu til-
kynnti flugstjórn um bilun í öðrum
hreyfli flugvélarinnar.
Flugmanninum, sem var einn í
vélinni, tókst að lenda heilu og
höldnu á einum hreyfli.
Lenti Cessnu á
einum hreyfli
Sögustund sýslumanns Ólafur Helgi Kjart-
ansson á Hakinu. Í frásögn sinni lagði hann frels-
isþrá félaganna í Rolling Stones og íslenskra
landnámsmanna að jöfnu.