Morgunblaðið - 13.07.2008, Page 8
FRÉTTIR
8 SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
VEÐUR
Nú eru Íslandsvinirnir í SavingIceland enn mættir í sumarbúð-
irnar sínar. Í þetta sinn hafa þeir
slegið upp „aðgerðabúðum“ á Hellis-
heiði.
Væntanlega halda þeir uppteknumhætti frá fyrri sumrum; reyna
að mana lögregluna í slag, hlekkja
sig við það sem hendi er næst, vinna
minniháttar
skemmdarverk,
trufla löglega
starfsemi fyr-
irtækja eða al-
menna umferð.
Og sjálfsagtmun sagan
frá fyrri sumrum endurtaka sig; ein-
hverjir úr þeim hópi, sem barizt hef-
ur gegn virkjunum og stóriðju á Ís-
landi með friðsamlegum, lýðræðis-
legum aðgerðum, munu gera þau
mistök að andmæla þegar lögreglan
tekur þessa óknyttastráka og -stelp-
ur úr umferð.
Útlendir atvinnumótmælendurgera nefnilega ekkert annað en
að spilla fyrir málstað raunveru-
legra náttúruverndarsinna, sem nýt-
ur mikils stuðnings á Íslandi.
Þeir spilla fyrir málstaðnum rétteins og róttæku vinstrimennirn-
ir, sem á sínum tíma beittu ofbeldi í
mótmælum gegn varnarsamn-
ingnum og veru Íslands í NATO.
En náttúruverndarsinnar verðalíka að gæta sín á því að falla
ekki í sömu gryfju og róttækling-
arnir, sem urðu óskiljanlegir vegna
innbyrðis deilna um hugmynda-
fræðilegt keisarans skegg.
Hver skilur til dæmis þá ritdeilu,sem nú stendur í Lesbók Morg-
unblaðsins á milli náttúruverndar-
sinna og minnir helzt á hatrammar
deilur trotskíista, maóista, endur-
skoðunarsinna, samfylkingarsinna
og hvað þetta hét nú allt saman?
STAKSTEINAR
Aðgerðahópar og sellur?
!
"
#$
%&'
( )
* (!
+ ,-
. / 0
+ -
12
1
3
4
2-2
* -
5 1
%
6!
(78
9 4 $ (
! ""#
$$%
! ""#
$$%
&%%
!%
!
:
3'45;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@).?
' '
'
' '
' ' '
'
*$BCD
!
"
" $ % & ' (!
#
*!
$$
B *!
( ) *"
")"
+
<2
<! <2
<! <2
( *$# ",
$%
-".#$/
CE2F
87 )
(!
*
#
$ & #
6
2
+
%
" ,(!
$ & & ' (!
B
+
%-
"
*" #
.
" ' % &
' (!
/
" #
0&## ""11
$#""2
",
$%
"3
'"
$"'"'4
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
INNAN um hvalveiðiskip, gúmmí-
báta og ýmsa ryðdalla í Reykjavík-
urhöfn var á dögunum að finna
snekkju Færeyingsins Peters Holm.
Peter dvaldist hér ásamt konu sinni
í tvær vikur en sneri í lok vikunnar
aftur til Færeyja. Í samtali við
blaðamann samþykkti hann með
semingi að hann hefði atvinnu af
bátasölu en sagði báta og siglingar
miklu frekar vera ástríðu en starf.
Peter hefur farið víða á und-
anförnum vikum. Lagt var upp frá
Danmörku í byrjun júní og staldrað
við í Noregi, á Hjaltlandseyjum, Ís-
landi og heima í Færeyjum. Auk
þess að heimsækja Reykjavík kom
hann við í Vestmannaeyjum á leið-
inni frá heimalandi sínu.
Hann sagðist hafa séð töluvert af
hvölum á siglingum sínum und-
anfarið og stórar lóðsfiskstorfur
hafi verið vestan af Hjaltlands-
eyjum. „Við sáum mjög mikið af
þeim, hafið ólgaði af lóðsfiskum.“
Veðurguðirnir hafa verið Peter
hliðhollir en hann er að sögn orðinn
nokkuð lunkinn við að lesa í veðrið
og forðast að sigla þegar illa viðrar.
Siglingin hafi verið tíðindalítil og
það sé sennilega fyrir bestu.
skulias@mbl.is
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ástríða frekar en atvinna
Eftir Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
HIÐ árlega Laugavegarhlaup fór
fram í gær. Hlaupið í ár var það fjöl-
mennasta frá upphafi og alls voru
250 þátttakendur frá 18 löndum
skráðir til leiks.
Hlaupaleiðin er frá Landmanna-
laugum til Þórsmerkur og er um 55
kílómetrar. Stígur liggur alla leiðina
og undirlag á honum er ákaflega
fjölbreytilegt, allt frá sandi að snjó.
Fjórir áfangar
Fyrsti áfangi leiðarinnar er frá
Landmannalaugum yfir í Hrafn-
tinnusker. Loftlína yfir það svæði er
um 10 km.
Annar hluti leiðarinnar nær frá
Hrafntinnuskeri að Álftavatni. Loft-
lína þar yfir er um 11 km. Á þeim
kafla má iðulega búast við ís og snjó.
Þriðji áfangi leiðarinnar er svo frá
Álftavatni í Emstrur. Loftlína yfir
svæðið er um 16 km
Að lokum nær fjórði áfanginn frá
Emstrum yfir í Þórsmörk og er um
13,5 km í loftlínu.
Endað í Húsadal
Endamark hlaupsins í ár var í
Húsadal og þar var fagnað með
heitu baði, grillveislu og veglegum
verðlaunum. Að sögn Svövu Odd-
nýju Ásgeirsdóttur gekk hlaupið vel.
Vel hafi viðrað við rásmarkið en tek-
ið hafi að rigna á keppendur við
Álftavatn.
250 þátttakendur í 55 km hlaupi úti í íslenskri náttúru
Ljósmynd/Brynja Guðjónsdóttir
Hreystimenni Leiðinni er skipt í fjóra áfanga og þurftu þátttakendur að vera búnir undir hvers kyns veðurskilyrði.
Árlegt langhlaup eftir
Laugaveginum var í gær
Í HNOTSKURN
»Á heimasíðunni www.mar-athon.is segir að Lauga-
vegarhlaupið sé „hin endalega
þol- og þrekraun langhlaup-
arans í stórkostlegu umhverfi
Laugavegarins“.
»Leiðinni er skipt í fjóra,misjafnlega erfiða áfanga
og er í heildina um 55 kíló-
metrar.
»Meðalhiti í júlí á Lauga-veginum er um 7-8°C og
því máttu keppendur vera
búnir undir hvers kyns að-
stæður.
ALLT AÐ 180 milljónum króna verð-
ur veitt til menntaverkefna á lands-
byggðinni. Um er að ræða mótvæg-
isaðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna
tímabundins aflasamdráttar. Styrkir
verða veittir til 59 verkefna og var
áhersla lögð á að styrkja menntunar-
verkefni sem eru til þess fallin að
mæta afleiðingum samdráttar í fisk-
veiðum og fiskvinnslu.
„Við reyndum að líta til þess að
styrkja verkefni sem mundu líka nýt-
ast til lengri tíma,“ segir Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir menntamála-
ráðherra. Áhersla hafi verið á að auka
og styrkja samstarfið milli símennt-
unarmiðstöðva og framhaldsskóla.
Þorgerður Katrín segir að fara eigi
í verkefni sem feli í sér að styrkja fólk
með hvað minnstu menntunina sem
hefur orðið fyrir áföllum vegna kvóta-
skerðingar. „Við ætlum að auka raun-
færnina enn frekar þannig að þetta
eru að mínu mati verkefni sem munu
skila sér og styrkja samfélagið til
lengri tíma“ ylfa@mbl.is
180 millj.
kr. mótvæg-
isaðgerðir
GLITNIR greiðir mismikið mót-
framlag til umhverfismála vegna
nýju sparnaðarleiðarinnar Save-
&Save, þar sem bankinn greiðir
ákveðið hlutfall af innstæðu reikn-
inga í umhverfissjóð. Fyrir íslensku
reikningana greiðir bankinn 0,1%
mótframlag, en 0,15% sé um norska
viðskiptavini að ræða.
Már Másson, forstöðumaður sam-
skiptasviðs Glitnis, segir það stefnu
fyrirtækisins að hafa innlánsreikn-
ingana eins milli landa, en segir að í
vissum tilfellum þurfi að laga vöruna
að mismunandi markaðsaðstæðum,
sérstaklega þegar verið sé að kynna
vöruna. Hann segir hið aukna mót-
framlag í Noregi vera tímabundið, til
standi að hafa framlagið 0,1% í báð-
um löndunum. Ekki hafi verið skoð-
að að bjóða upp á hærra mótfram-
lagið á Íslandi. andresth@mbl.is
Greitt mót-
framlag er
hærra í Noregi