Morgunblaðið - 13.07.2008, Page 11

Morgunblaðið - 13.07.2008, Page 11
Umsóknum um pláss í Háskólann í Reykjavík fjölgaði mjög. Þar sóttu í fyrsta sinn fleiri en 2000 manns um pláss, og fengu um 40% þeirra sem sóttu inngöngu. Mest fjölgaði umsóknum um nám í tölvunarfræði, lýðheilsu og kennslu- fræði. Eina deildin sem stóð í stað var við- skiptafræðideild. Umsóknum í Listaháskóla Ís- lands fjölgaði einnig nokkuð, mest á fata- og vöruhönnunarbraut. Fátækir listamenn „Því er stundum haldið fram að fólk sæki frekar í menningu og afþreyingu þegar kreppir að og vissulega hefur listsköpun stundum staðið í blóma þegar efnahagsástand hefur verið slæmt,“ segir Gunnar Gunnsteinsson leikstjóri og formaður sjálfstæðu leikhúsanna. „En ég er ekki viss um að það sé rétt að tala um kreppu eins og stendur.“ Hann segist þó finna fyrir vissum beyg hjá leikurum sem starfa sjálfstætt og telur að draga kunni úr framlögum einka- aðila til lista á næstunni. Tinna Gunnlaugsdóttir, þjóðleikhússtjóri, segist bjartsýn á næsta leikár. „Þjóðleikhúsið býr svo vel að vera fjármagnað af hinu opinbera og er þar af leiðandi ekki háð samstarfsaðilum. Auk þess er leikhús tiltölulega ódýr afþreying, þannig að við höfum þá trú að aðsókn verði áfram góð. Sagan segir okkur að samdráttur í efnahagslífinu þarf ekki endilega að hafa í för með sér samdrátt í listum og menningu, stund- um er því þveröfugt farið.“ Magnús Geir Þórðarson, borgarleikhússtjóri, telur líka að leikhúsið standi af sér samdrátt. „Fólk þarf alltaf á menningu að halda, ekki síst þegar illa árar. Ég gæti jafnvel trúað því að leik- húsgestum fjölgaði á næstunni,“ segir hann. Örn Daníel Jónsson, prófessor við við- skiptaskor Háskóla Íslands, hefur rannsakað samspil menningar og markaðs. Hann bendir á að átök og hörmungar séu oft viðfangsefni lista- manna, en telur ofmælt að segja að listir blómstri þegar hart er í ári. Það sem hann telur hafa mest áhrif á listsköpun á Íslandi í dag er breytt umhverfi lista. Hann segir að undanfarin ár hafi einkaaðilar styrkt listamenn í auknum mæli. Þetta sé þróun í átt að bandarískri fyrirmynd og frá norræna ríkisstyrkjakerfinu. Gallinn við þetta fyrir- komulag sé að þegar hallar undan fæti hjá fyrir- tækjum bitnar það beint á listsköpun. Halldór Björn Runólfsson, forstöðumaður Listasafns Íslands, tekur undir þetta viðhorf. „Okkur hefur verið uppálagt að leita styrkja hjá einkaaðilum. Nú er það orðinn þungur róður og ég er hræddur um að þetta bitni hræðilega á listum og menningu.“ Ágúst Guðmundsson, kvikmyndaleikstjóri og forseti Bandalags íslenskra listamanna, er sama sinnis. „Sumir virðast hafa þá trú að listamenn eigi að vera fátækir. Það finnst mér fráleitt og hef enga trú á því að kreppa geti verið menning- unni vítamínsprauta. Íslenskir rithöfundar fá t.d. þegar svo lág laun að þeir eru í hálfgerðri fá- tæktargildru og það er ekki á það bætandi.“ Ljós í myrkri? Þótt samdráttartímabil séu mörgum erfið, má finna í þeim vissa ljósa punkta. T.d. virðist fólk keyra minna en áður. Í staðinn gengur það eða hjólar. Farþegum Strætó hefur enn ekki fjölgað, en fleiri kaupa farartæki sem menga minna en einkabílar. Þá virðist hafa dregið nokkuð úr neyslu og hugsanlega nýtir fólk mat og aðra vöru betur en áður. Umsóknum um skólavist hefur fjölgað talsvert, þótt fullsnemmt sé að tengja það beint við efnahagsástand. Undanfarin ár hafa einkaaðilar styrkt listir í ríkum mæli. Þegar harðnar á dalnum hjá þeim getur það því haft bein áhrif á listsköpun. Lista- menn sem eru upp á styrki frá einkaaðilum komnir virðast því óttast samdrátt, en hinir eru ekki eins áhyggjufullir. Fæstir taka þó undir það viðhorf að samdráttur sé listum hollur. en fótinn á bensíngjöfinni Morgunblaðið/Ómar MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 2008 11 Það sem kemur á óvart erhversu litlu peningar ráða í raun um hamingju fólks. Fólk verður t.d. mun hamingjusam- ara af því að hlúa að þeim sem standa því næst og rækta sam- skipti við maka en við að hækka í tekjum,“ segir Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sál- fræðingur og aðstoðarmaður forstjóra Lýðheilsustöðvar. Dóra, sem er einn af höf- undum geðorðanna tíu, hefur undanfarið rannsakað hvaða þættir hafa helst áhrif á ham- ingju fólks. Rannsóknir hennar beinast að Íslendingum, en eru hluti af stærri evrópskri rann- sókn. Helstu niðurstöður hennar eru að félagsleg tengsl, heilsa og samskipti við maka hafi mest áhrif á hamingju Íslendinga. Peningar og fjárráð skipta mun minna máli, svo lengi sem fólk er í vinnu og hefur í sig og á. Atvinnuleysi hefur mjög neikvæð áhrif á líðan fólks. Aðrir þættir, á borð við kyn, aldur og menntun, hafa lítil áhrif á hamingju Íslend- inga. „Það er áhugavert hversu lítil áhrif menntun hefur á Íslendinga. Hún ræður meiru um hamingju fólks í öðrum löndum,“ segir Dóra. „Ég held að hún hafi minna að segja hér á landi vegna þess að fólk hefur nokkuð jöfn tækifæri og hefur á tilfinningunni að það ráði eigin örlögum. Þetta er einn helsti kostur nor- ræna velferðakerfisins, sem vekur áhuga þeirra sem rannsaka hamingju um allan heim.“ Hún bendir á að jöfnuður hafi almennt mikil áhrif á ham- ingju. „Það er margsannað að samanburður við aðra ræður miklu um líðan fólks. Fólk vill frekar hafa minna milli hand- anna og standa jafnfætis öðr- um, en hafa meira og vera eft- irbátur annarra.“ Dóra segir að Ísland sé sér- staklega hugleikið sérfræð- ingum í hamingju. „Íslendingar koma alltaf mjög vel út úr mæl- ingum á hamingju, mun betur en aðrir Evrópubúar, og eru þess vegna athyglisvert rann- sóknarefni. Auk þess telja sum- ir að enska orðið „happiness“ sé dregið af íslenska orðinu happ. Það er nú ekki amalegt, að vera uppspretta hamingj- unnar!“ Spurð um áhrif samdráttar á hamingju seg- ir Dóra að hún telji að aðstæður fólks hafi ekki breyst svo mjög að þær ættu, út af fyrir sig, að hafa mikil áhrif á líðan þess. Hins vegar geti áhyggjur af því sem koma skal dregið úr ham- ingju. „Umræðan í samfélaginu getur valdið kvíða, jafnvel þótt fólk finni enn ekki fyrir miklum breytingum á eigin skinni. Við þær að- stæður er mikilvægt að reyna að átta sig á því hverju maður hefur stjórn á og hverju ekki. Fæstir eru í þeirri stöðu að geta haft áhrif á gang efnahagsmála. Allir geta hins vegar gert ráðstafanir til að draga úr áhyggjum af eigin fjármálum. Íslendingar þurfa að læra að sníða sér stakk eftir vexti. Við eigum alveg örugg- lega ekki heimsmet í því,“ segir Dóra og hlær. Hamingjan fæst ekki keypt Lífsgleði Dóra Guðrún Guðmundsdóttir veit hvað gerir fólk hamingjusamt. Morgunblaðið/Valdís Thor Vefsíður með hollráðum fyrir þá semvilja spara skjóta nú upp kollinum hver á fætur annarri. Sumt af því sem þar kemur fram er ekki líklegt til að vekja lukku hjá meðal- manninum. T.d. má gera ráð fyrir því að fæstir fullorðnir vilji eða geti keypt föt í barnadeildum verslanna, þótt þau séu ódýrari þar. Eins má ætla að fæstir katta- eigendur vilji venja kettina sína á að nota klósett til að spara kattasand. Og vonandi eru þeir ekki margir sem ljúga því til að þeir séu í útlöndum um jólin, til þess eins að geta keypt jólagjafir á janúarútsölum. Þá mæla tannlæknar varla með því, sem sagt er frá á einni síðunni, að hengja tannþráð til þerris eftir notkun og nota hann svo aftur. Eins þykir ekki snyrtilegt að sturta bara niður einu sinni á dag. Á einni síðu er mælt með því að fólk forðist að skilja; það sé svo óskaplega kostn- aðarsamt. Þótt þessar ráðleggingar séu á mörk- unum eru mörg góð ráð á þessum síðum. T.d. er bent á að fólk getur sparað fúlgur fjár á því að koma með kaffi að heiman, í staðinn fyrir að kaupa það dýrum dóm- um, oft í einnota umbúðum, á kaffihúsum. Einnig er mælt með því að fólk smyrji sér nesti og taki strætó eða hjóli í vinnuna. Víðast er fólki einnig bent á hefð- bundnar aðferðir til að tryggja aðhald í fjármálum: Halda bókhald, endurskoða samninga við trygginga- og símafyrir- tæki, forðast að eyða á krít og þar fram eftir götunum. Þá eru praktísk húsráð áberandi: Edik, vatn og matarsódi eru gagnleg við þrif; og auk þess bæði ódýrari og umhverfis- vænni en mörg af þeim hreinsiefnum sem hægt er að kaupa úti í búð. Þá er víst hægt að nota bananahýði og vaselín til að pússa skó. Sjampó, næringu, upp- þvottalög og fljótandi sápu má drýgja með því að blanda vatni. Einnig er sýnt fram á að hægt sé að gera ýmislegt skemmtilegt án þess að kosta miklu til. Víðast er t.d. annað hvort ódýrt eða ókeypis að taka bækur og bíó- myndir á bókasafni. Það kostar heldur ekkert að fara í heimsókn til vina og fjöl- skyldu. Þeim sem eiga börn er bent á að föndra úr afgangsblöðum og sneplum, búa til trölladeig, útbúa ratleiki og fara í úti- leiki. Þá má skiptast á leikföngum við aðrar barnafjölskyldur og kaupa notaðar barnabækur. Góð ráð og vond

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.