Morgunblaðið - 13.07.2008, Page 13
hljóðnemann. Vinkona mín benti
mér á þetta og ég breytti því. En ég
naga mig ennþá í handarbökin yfir
breytingunni.
Ég held að ég hafi örugglega ekki
heyrt upprunalegu útgáfuna af lag-
inu Ég veit þú kemur, en mér finnst
ég hafa komið andblænum rétt til
skila og ekki breytt neinu að ráði.“
– Eru þessi tvö lög kannski orðin
þjóðlög?
„Já alveg örugglega. Það kunna
þau allir og þau eru sungin alls stað-
ar. Ef maður reynir að njörva þau
niður glatast eitthvað og þau missa
flugið. Það syngur heldur enginn
þjóðlögin eins.“
Ný jólaplata í haust
Umræðan berst nú út um víðan
völl. Mér leikur hugur á að vita
hvernig Sigurði gangi að lifa á list-
inn.
„Það eru forréttindi að geta haft
aðaltekjur sínar af tónleikahaldi og
upptökum. Þetta gengur yfirleitt
sæmilega ef maður er iðinn. Annars
koma magrir tímar, sérstaklega eft-
ir áramótin.“
Ég spyr hvað sé framundan.
„Ég ætla að halda áfram við það
sem ég geri best og það sem ég geri
verst.“
– Og hvað gerirðu verst?
„Ætli það sé ekki að taka til heima
hjá mér.
Einhver spurði hvort næst yrði
það jólaplata í haust. Ætli maður
fari bara ekki að hugsa fyrir henni.“
Við Sigurður höfum setið yfir
kaffibolla í Norræna húsinu. Nú
fylgjumst við að út í góða veðrið. Þar
bíður hans Harley Davidson.
„Vinur minn lánaði mér þetta, en
sjálfur á ég rússneskt Úral-
mótorhjól með hliðarvagni,“ segir
hann og setur á sig hjálminn.
Við kveðjumst. Handtak hans er
þétt.
Morthens og Ragga Bjarna
Morgunblaðið/G.Rúnar
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 2008 13
Siggi í Hjálmum eða Sigurður Hall-
dór Guðmundsson, eins og hann
heitir fullu nafni, er elstur fimm
systkina. Þau eru 9-18 árum yngri
en hann. Sigurður segist því fyrir
löngu hafa svalað þörf sinni fyrir
smábörn.
Foreldrar hans eru Gróa Hreins-
dóttir, kórstjóri og píanókennari,
og Guðmundur Sigurðsson. Guð-
mundur hefur sungið með ýmsum
kórum og gerir enn. Gróa kennir
um þessar mundir við Hafralækj-
arskóla norður í Aðaldal og stjórn-
ar þar kórum.
Bróðir Sigurðar, Guðmundur
Óskar, gerir það nú gott með
hljómsveitinni Hjaltalín.
Gróa segir að fljótlega hafi kom-
ið í ljós að Sigurði léti betur að spila
eftir eyranu en nótum. Hún hafi því
ekki haldið nótnalestri að honum.
„Hann sér eftir því núna,“ bætir
hún við. „Fyrir nokkrum árum bað
ég hann að leysa mig af við messu.
Þá skammaði hann mig fyrir að
hafa ekki lamið sig áfram við
nótnalesturinn.
Honum hefur samt gengið býsna-
vel og er skapandi listamaður og nú
skammast ég mín fyrir að geta ekki
spilað eftir eyranu eins og hann.“
Spilar eftir eyranu
Kórstjóri Gróa er nú potturinn og pannan í tónlistarlífi Aðaldælinga og víðar.
Síðumúla 3 · 108 Reykjavík · 553 7355
Opið 10-18 virka daga, 11-15 laugard.
Hæðasmára 4 · 201 Kópavogur · 555 7355
Opið 11-18 virka daga, 11-15 laugard.
Tvær verslanir - Frábært úrval
m
bl
10
22
08
7
Tankini - 8.700 Sundbolur - 7.200 Bikini 8.420
Bh - 5.500
Boxer - 3.100
Tankini - 8.460
Náttföt 8.750
Bikini 8.420
Bh - 4.800
Buxur - 2.100
Bh - 5.500
Boxer - 3.100
Glæsilegur
kvenfatnaður frá
30% afsláttur