Morgunblaðið - 13.07.2008, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
H
reinskilni og hugrekki
eru eiginleikar sem
lengi hafa þótt ein-
kenna John McCain
og komu þeir glöggt í
ljós þegar hann ræddi við kjósendur í
Michigan í vikunni. Hefðbundnar
iðngreinar eins og bílaframleiðsla
eru öflugar í ríkinu og eiga mjög í vök
að verjast, ekki síst vegna samkeppni
frá erlendum framleiðendum. Mörg
hefðbundin störf hafa tapast. Ýmsir
kenna NAFTA og öðrum fríversl-
unarsamningum um ástandið,
Bandaríkin eigi að vernda eigin störf
og segja slíkum samningum upp eða
amk. endurskoða þá.
En McCain er sem fyrr staðfastur
fríverslunarsinni, jafnvel þótt at-
kvæði séu í hættu, þar er hann jafn
staðfastur og í málefnum Íraks þar
sem hann vill hvergi hvika. Hann var
spurður á umræddum fundi í Michig-
an hvað honum fyndist um verk-
smiðjueigendur sem nýttu sér frjálsa
heimsverslun og flyttu framleiðsluna
til annarra landa.
„Ég verð að segja ykkur - og ég
veit að það er ekki vinsælt - að ég hef
fulla trú á því að þegar upp sé staðið
hafi frjáls viðskipti jákvæð áhrif,“
svaraði hann.
Bjartsýni og ættjarðarást
McCain hefur lengi reynt að spila
á strengi bjartsýninnar en á erfiðara
með það nú en fyrir nokkrum mán-
uðum, svo mörg óveðursský hafa
hrannast upp. Hann er repúblikani
og því óhjákvæmilegt að hann verji
að einhverju marki stefnu George W.
Bush forseta þótt allir viti að hann er
ósammála forsetanum á mikilvægum
sviðum, t.d. varðandi baráttu gegn
gróðurhúsaáhrifum. En gangi McCa-
in of langt í gagnrýni á forsetann
gæti hann glatað endanlega trúnaði
þeirra sem eru langt til hægri í
flokknum og halda enn tryggð við
Bush. Miðjumaðurinn McCain þarf
einnig atkvæði þeirra fjölmörgu
trúuðu Bandaríkjamanna sem fylktu
sér um Bush en tortryggja mjög
McCain, manninn sem svo oft hefur
staðið uppi á hárinu á flokksforyst-
unni og gengið á hólm við bakhjarla
repúblikana viðskiptalífinu. Sóma-
kærir íhaldsmenn tortryggja ein-
herjann fyndna og skapbráða sem
fjölmiðlar dáðu meira en aðra stjórn-
málamenn þangað til annar, mun
yngri, stökk inn á sviðið: Barack
Obama.
Gamla kempan McCain hefur áður
lent í mótbyr og gefst auðvitað ekki
upp. Hann treystir því að almenn-
ingur sætti sig við að heyra óþægi-
legan sannleika. Og hann bætir smá-
vegis bjartsýni og ættjarðarást út í
beiska kaleikinn.
„Ég ætla að horfast aftur í augu
við ykkur og segja ykkur að sum
störf munu ekki verða endurheimt,“
sagði hann á Michigan-fundinum en
bætti við að í staðinn myndu verða
sköpuð ný við að þróa umhverf-
isvæna tækni og aðrar uppfinningar.
„Ég verð að minna ykkur á að hugvit
og tækni og framtak þessa heims er
enn í Bandaríkjunum. Sérhvert
framfaraspor í tækni á 21. öldinni og
alla 20. öldina hefur verið stigið í
Bandaríkjunum.“ Hvorki meira né
minna.
McCain er stoltur af landi sínu og
þjóð, hikar aldrei við að láta það í ljós
þótt hann gagnrýni ýmislegt í sam-
félaginu. Kannanir síðustu vikur og
mánuði hafa flestar sýnt talsvert
meiri stuðning við demókratann
Obama. En McCain á einnig sína
aðdáendur og margir stjórn-
málaskýrendur segja að barátta hans
sé fjarri því að vera vonlaus, margt
geti gerst á lokasprettinum. Síðustu
fréttir benda einnig til þess að hon-
um gangi nú mun betur en áður að
safna fé í kosningasjóðinn en
kunnáttumenn um bandarísk stjórn-
mál segja að fátt sé betri mælikvarði
Með vindinn í fangið
McCain er þrautreyndur en berst við erfiðan og vinsælan keppinaut og geldur fyrir miklar óvinsældir
Bush forseta og efnahagsvandann sem margir álíta að verði mál málanna í nóvember
AP
Slakað á John McCain í þotunni sem hann notar í baráttunni. Slagorðið Straight Talk Express [Hraðlest hreinskipt-
innar umræðu], vísar til þess að McCain segir oft skoðanir sínar umbúðalaust, þótt þær falli í grýttan jarðveg.
Í HNOTSKURN
»John McCain studdi fráupphafi eindregið innrás-
ina í Írak en gagnrýndi harka-
lega framkvæmdina. Hann
lagði á undan öðrum áhrifa-
mönnum til að fjölgað yrði í
bandaríska liðinu til að efla
öryggi í Írak og nýtur þess nú
að ástandið hefur stórlagast.
»Hann hefur oft verið einná báti meðal repúblikana í
öldungadeildinni en hefur átt
gott samstarf um einstök mál
við þekkta demókrata, m.a. í
baráttu gegn gróðurhúsa-
áhrifunum og við umbætur á
fjármögnun kosningabaráttu.
»McCain hefur á hverju áribeitt sér gegn ósvífnu
kjördæmapoti. Sitja þingmenn
oft og nísta tönnum þegar
hann rekur hvernig þeir hafa
laumað inn alls kyns und-
arlegum framlögum til að slá
sig til riddara í heimahéraði.
Hann er beittur og háðskur,
getur verið fljótfær og kímni
hans fer stundum langt yfir
mörk þess sem siðlegt þykir.
Erlent | John McCain er þekktur fyrir hreinskilni og hugrekki, en efnahagsþrengingar og óvinsældir Bush
munu gera honum erfitt fyrir í baráttunni við Barack Obama. Samgöngur | Er rafbílabyltingin handan við
hornið? Hryðjuverk | Sjálfsvígsárásir voru óþekktar í Afganistan fyrir innrásina í Írak, en valda nú ógn og skelfingu.
VIKUSPEGILL»
Erlent
McCain er þrautreyndur stjórnmálamaður sem gæti komið sér vel á
óvissutímum þegar kreppa og jafnvel stríð gætu skollið á.
Hann sannaði hugrekki sitt og staðfestu þegar hann barðist í Víetnam,
einkum í fangavistinni þar sem hann var pyntaður árum saman.
McCain hefur á þingi unnið með demókrötum að ýmsum málum og hefur
verið duglegur við að leita málamiðlana.
McCain er of gamall til að gegna embættinu, nái hann kjöri verður
hann elsti Bandaríkjaforseti frá upphafi.
Hann er of herskár, sagður velta alvarlega fyrir sér árás á Íran.
Hann hefur viðurkennt að efnahagsmál séu ekki hans sterka hlið sem er
óheppilegt, þau gætu reynst helsta viðfangsefni næsta forseta.
Plúsar&mínusar
George W. Bush er einhver óvinsælastiforseti í sögu landsins á seinni tímum,mikil óvissa ríkir efnahagsmálum og
margir Bandaríkjamenn eru annaðhvort bún-
ir að missa húsin sín vegna lánakreppunnar
eða óttast að verða fyrir þeim örlögum. Og
líklega er erfiðast fyrir þjóðina að sætta sig
við að bensínið er orðið svo dýrt að menn
verða jafnvel að ganga eða hjóla nema þeir
geti tekið strætó í borgum sem bjóða upp á
slíkan munað. Bílaþjóðin er í sálarkreppu.
McCain á því á brattann að sækja. En hvað
ætlar hann að gera til að snúa taflinu sér í vil?
Oft er sagt að það séu fastir liðir eins og
venjulega þegar forsetaefni fara að biðla til
miðjufólks og þurfa þá oft að éta ýmislegt of-
an í sig úr prófkjörsslagnum. En ritið The
Economist, sem lengi hefur haft taugar til
McCains, er nú standandi hissa á honum.
Í stað þess að gera það sama og Obama,
færa sig inn á miðjuna, hefur McCain að und-
anförnu gerst ákveðnari hægrimaður en
nokkru sinni en hann hefur lengi verið vin-
sæll meðal hófsamra og óflokksbundinna
landa sinna. Nógu slæmt hafi það verið í
fyrra þegar McCain, sem allir vita að er innst
inni umburðarlyndur í trúmálum, rétt eins og
Ronald heitinn Reagan, skyldi viðra sig upp
við þröngsýna, hægrisinnaða trúmenn þegar
hann var að berjast fyrir tilnefningunni. En
nú komi hver kollsteypan á fætur annarri.
„Hann var einu sinni ákafur andstæðingur
skattalækkana Bush, nú segist hann ekki
bara vilja halda fast í þær heldur lækka skatt-
ana enn meira,“ segir The Economist. „Einu
sinni barðist hann fyrir grænum umbótum,
nú hefur nú ekki bara lagt til dýrt afnám á
bensíngjaldi (tillaga sem Obama var nógu
klókur til að forðast) heldur vill hann hefja
aftur olíuborun við strendur Bandaríkjanna.
Undarlegar stefnubreytingar
Einu sinni vildi hann loka Guantanamo-
búðunum, nýlega gagnrýndi hann hæstarétt
fyrir að dirfast að gefa í skyn að fangarnir
ættu rétt á að koma fyrir dómara.
Hann hefur einnig þokast til hægri á tveim
sviðum þar sem hann uppskar á sínum tíma
hatur íhaldsmanna í flokknum sem töldu
hann vera hættulegt ólikindatól: pyntingum
(hann vill ekki banna með öllu vatnspynt-
ingar) og umbætur á innflytjendalögum
(hann segir að fyrst verði að tryggja landa-
mærin sem mun taka óratíma).“
The Economist er ekki eitt um að furða sig
á þessari stefnu sem sumir segja að stafi af
því að fólk með ólíkar skoðanir takist á í her-
búðum McCains. Og þar endurspeglast m.a.
deila milli tveggja hópa úr röðum hagfræð-
inga og stjórnmálamanna.
Annars vegar þeirra sem vilja leggja ofur-
áherslu á að reka ríkissjóð án halla, tryggja
að útgjöld lækki um leið og skattar lækki og
hins vegar þeirra sem segja að skattalækk-
anir muni hleypa svo miklum krafti í efna-
haginn að hallinn muni fljótlega gufa upp
vegna þess að aukinn hagvöxtur efli heild-
arskatttekjurnar. McCain var lengi talinn til-
heyra fyrri hópnum en nú virðist hann ekki
vita hvað hann vill. Trúverðugleiki hans í
augum almennings gæti dvínað hratt, nú þeg-
ar efnahagsmálin eru efst á baugi.
Er pólitískur áttaviti McCains ekki í lagi?
Stríðshetja Richard Nixon forseti heilsar
McCain eftir að flotaflugmaðurinn var látinn
laus úr fangelsi Norður-Víetnama 1973.