Morgunblaðið - 13.07.2008, Page 17

Morgunblaðið - 13.07.2008, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 2008 17 í júlí frá kr. 44.990 Heimsferðir bjóða frábært sértilboð til Fuerteventura, sem hefur svosannarlega slegið í gegn hjá Íslendingum. Bjóðum takmarkaðan fjölda íbúða á þremur af okkar vinsælu gististöðum, Maxorata Beach, Oasis Dunas og Oasis Papagayo á hreint ótrúlegum kjörum. Íbúðahótelin eiga það sameiginlegt að vera vel staðsett í Corralejo og nálægt miðbænum. Á hótelunum er góð aðstaða, s.s sundlaugargarðar, sólbaðsaðstaða, barnaleiksvæði, veitingastaðir og fjölbreytt aðstaða til íþróttaiðkunar. Það er því því nóg um að vera við leik og skemmtun. Gríptu tækifærið og njóttu lífsins á þessum vinsæla sumarleyfisstað við góðan aðbúnað. Að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Verð kr. 44.990 Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í íbúð á Maxorata Beach, Oasis Dunas eða Oasis Papagayo í viku. Aukavika kr. 15.000. Verð kr. 49.990 Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í íbúð á Maxorata Beach, Oasis Dunas eða Oasis Papagayo í viku. Aukavika kr. 15.000. Munið Mastercard ferðaávísunina Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. *** Góð gisting ***Fuerteventura Maxorata Beach - Oasis Dunas - Oasis Papagayo Frábær sértilbo ð yfir verslun armann ahelgin a Eftir Sigríði Víðis Jónsdóttur sigridurv@mbl.is Aðfaranótt mánudags hrökkhinn afganski Fahim Kas-hefi upp með andfælum ííbúð sinni í London. Hann hafði dreymt yngri bróður sinn sem býr í heimabæ þeirra bræðra í Afg- anistan. Draumurinn var martröð. Fahim tók upp símann, hringdi í bróðurinn og bað hann að fara eins varlega og hann gæti. Seinna sama dag frétti Fahim af hryllilegustu sjálfsmorðsárásinni sem gerð hefur verið í höfuðborginni síðan talibanastjórninni var steypt fyrir sjö árum. Yfir 40 manns létu líf- ið þegar sprengja sprakk við ind- verska sendiráðið. Árásin var í Kabúl. Bróðirinn var í Herat annars staðar í landinu. Fa- him andaði léttar. Síðan byrjaði hann að hugsa um afleiðingar árásarinnar og alla þá sem létu lífið. Ekki höfðu allir verið jafnheppnir. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Fahim hrekkur upp um miðjar næt- ur og hringir í ættingja sína. Atburð- ir síðastliðinnar viku urðu ekki til að auka með honum ró. Sprengd í biðröð Fahim bjó í Afganistan þangað til haustið 2006 þegar hann fékk styrk til framhaldsnáms í Norwich í Bret- landi. Það var þá sem leiðir okkar lágu saman. Hann fór síðar til Lond- on þar sem hann dvelur í dag. Þegar ég hringdi í hann eftir árásina í Ka- búl var þungt í honum hljóðið. „Manni brá auðvitað mjög mikið við að frétta þetta – að heyra af jafn- mannskæðri árás, sem í þokkabót var gerð á sendiráð Indlands. Skot- markið verður að teljast óvenjulegt, auk þess sem sendiráðið er í hverfi sem áður var talið vera einna örugg- ast. Það sem er samt kannski óhugn- anlegast er að atburðurinn sýnir áþreifanlega hvernig eðli átakanna í Afganistan hefur breyst. Árásum á óbreytta borgara fjölgar stöðugt.“ Fyrir árið 2004 þekktust sjálfs- vígsárásir vart í Afganistan. Margir benda á áhrif frá Írak í þessum efn- um. Eftir innrásina í Írak 2003 urðu sjálfsvígsárásir og bílsprengjur þekkt tæki þar til að skapa skelfingu. Árið 2005 voru sjálfsvígsárásir 17 í Afganistan en árið eftir stórjukust þær og voru 123. Í fyrra voru þær yf- ir 140. Fahim bendir á að þessi þróun veki ugg hjá fólki. Ekki einungis sé árásaraðferðin ný heldur skapi hún óneitanlega ringulreið. „Áður beind- ust árásirnar fyrst og fremst að hernum, Sameinuðu þjóðunum eða ríkisstjórninni. Núna er þetta allt orðið miklu óljósara. Skotmarkið er óljóst og það veldur skelfingu,“ segir hann. Meirihluti þeirra sem létust í árás- inni í Kabúl á mánudag voru óbreytt- ir borgarar sem biðu eftir vegabréfs- áritun í sendiráðinu og fólk að versla á nálægum markaði. „Hvernig á maður að komast hjá því að lenda í svona? Hvað getum við gert til að sleppa við sprengjuárás? Forðast það að fara á markaðinn? Forðast Sameinuðu þjóðirnar – eða einmitt ekki? Fólk veit einfaldlega ekki hvað það á að gera!“ Engin skyndilausn Fahim er þróunar- og átakafræð- ingur og rannsakaði í lokaverkefni sínu uppgang andspyrnuhópa í Afg- anistan. „Það er náttúrlega mjög skrýtið að sjá verða að veruleika það sem ég var að spá og spekúlera þegar ég vann verkefnið. Ég óttaðist þá mjög að andspyrnuhópum myndi vaxa fiskur um hrygg. Ég sé ekki al- veg hvar þetta mun enda núna. Of- beldið hefur aukist mjög mikið. Mál- ið er flókið og engin ein skyndilausn á því.“ Sjálfur er hann vonsvikinn yfir því hvernig mál hafa þróast í Afganistan. Hann sá ekki fyrir sér að mörgum árum eftir innrásina myndi hann ótt- ast um öryggi fjölskyldu sinnar sök- um sjálfsvígsárása. Fjölskyldan var flutt til Kabúl en er farin aftur vestur til Herat. Að vera óbreyttur borgari á leið á markað í Kabúl er ekki eft- irsóknarvert þessa mánuðina. Átti þetta ekki að vera auðvelt? Þegar leiðtogar heimsins lofuðu Afgönum að þeir myndu „standa með þeim þangað til málið væri til lykta leitt “ sáu margir þeirra líklega ekki fyrir sér hversu langt og flókið það yrði. Í þetta sinn átti Afganistan að vera auðvelt. Eftir að talibanastjórninni hafði verið steypt varð einungis fámennt friðargæslulið eftir í landinu. Um hóp 5000 hermanna var að ræða, sem allir voru staðsettir í Kabúl. Þetta álítur Fahim ámælisvert. Landsbyggðin hafi verið sett til hlið- ar, hún orðið útundan, hreinlega gleymst. „Öll áherslan var lögð á Ka- búl, á eina borg, og annað látið sitja á hakanum. Auðvitað átti það eftir að verða afdrifaríkt, með tilheyrandi hættu á uppgangi andspyrnuhópa úti á landi.“ Í dag eru um 70.000 hermenn í Afganistan og bandaríska varnar- málaráðuneytið íhugar að senda þangað 7000 til viðbótar. Þrátt fyrir það og jafnvel þótt aldrei hafi verið fleiri hermenn í Afganistan en nú, telja margir að herliðið sé enn of fá- mennt. Til samanburðar eru tæplega 150.000 hermenn í mun fámennara og minna landi: Írak. Stríð háð af vanefnum Fyrrverandi yfirmaður í herliðinu í Afganistan, Dan K. McNeill, kallaði aðgerðirnar þar „stríð sem háð væri af vanefnum“. Hann varaði auk þess við því, sem ótal margir hafa bent á, að pakistönsk yfirvöld gerðu ekki nægilega mikið til að stemma stigu við straumi bardagamanna frá Pak- istan yfir til Afganistan. Þeir komast óáreittir á milli landanna tveggja og eiga að margra mati öruggt skjól í Pakistan. Samband Afganistan og Pakistan er og hefur verið stirt. Afganski inn- anríkisráðherrann fullyrti eftir sprenginguna í seinustu viku að þeir sem stóðu að baki henni hefðu ber- sýnilega hlotið þjálfun sína í þjálfun- arbúðum í Pakistan. Pakistönsk yf- irvöld fordæmdu aftur árásina og neituðu allri aðild að henni. Fahim bendir á að til að skilja and- spyrnuna í Afganistan sé nauðsyn- legt að líta lengra en eingöngu til uppreisnarhópanna sjálfra. Hann tekur sem dæmi að glæpir hafi al- mennt aukist mikið í landinu undan- farin ár. Í lögleysu og refsileysi þríf- ist svo margt – sem aftur grafi undan stjórninni. Nauðsynlegt sé að styrkja stöðu og innviði hennar. Eftir innrásina hafi eiturlyfja- smygl og heróínræktun auk þess vaxið mikið, sem aftur skapi augljós vandamál. Og einhvern veginn verði að finna út úr hinum opnu landamær- um Afganistan og Pakistan. Hverjir eru „talibanarnir“? Það hver er óvinurinn í Afganistan verður æ flóknara. Margvíslegir hóp- ar standa á bak við hinar auknu árás- ir. Þeir eru þó oft settir undir einn hatt og vísað til þeirra sem „tali- bananna“. Fahim bendir á að oft geti verið erfitt að átta sig á því hverjir þetta séu eða hvað vaki fyrir þeim. Þannig er til dæmis enn óljóst hver stóð á bak við sjálfsvígsárásina á mánudag. Sjö árum og milljörðum dollara síðar lofar ástandið í Afganistan því miður langt í frá góðu. Reuters Hvað svo? Drengur drekkur vatn í Kabúl. Árásir hafa aukist mikið í Afgan- istan upp á síðkastið og fylgir því mikið óöryggi og óvissa. „Skotmarkið er óljóst og það veldur skelfingu“  Sjálfsvígsárásir þekktust vart áður í Afganistan  Nú fjölgar þeim og ástandið í landinu verður æ ótryggara  Mannskæðasta sjálfsvígs- árás sem framin hefur verið í borginni gerð á mánudag.  Að minnsta kosti 250 óbreyttir borgarar taldir hafa látist í seinustu viku.  Talið að yfir 2000 manns hafi látist í átökum það sem af er árinu.  Meira mannfall í júní í hópi NATO-hermanna en nokkrum mánuði síðan ráðist var inn 2001. Versnandi ástand                  !  "       !    Hryðjuverk

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.