Morgunblaðið - 13.07.2008, Page 21

Morgunblaðið - 13.07.2008, Page 21
var að komast á unglingsárin. Þá fór hann í skiptinám til Noregs í þrjár vikur og lenti hjá mjög trúaðri fjöl- skyldu. Honum leiddist dvölin ótta- lega mikið og var iðinn við að hringja heim. Eitt skiptið, þegar hann hringdi, sagði ég honum að setjast niður og skrifa um þetta. Það gæti verið skemmtilegur lestur að nokkr- um árum liðnum. Um svipað leyti tók ég líka eina kvöldstund í að kenna honum fullkomlega rétta fingrasetn- ingu. Upp úr þessu held ég að hann hafi byrjað að skrifa og ég veit að hann vill halda áfram á þeirri braut. Róandi að vera smiður En þegar ég ráðlagði honum að skrifa um dvölina í Noregi, var ég ekki að reyna að ýta honum út í rit- störf, síður en svo. Ég hafði alltaf viljað að hann yrði smiður. Pabbi hans hefur smíðað eitt og annað, til dæmis húsið okkar, og það virkar svo róandi starf. Það þarf ekkert að smíða heilt hús, það gæti allt eins verið stóll eða bara hvað sem er. Hann er líka svo handlaginn. Því kom mér á óvart þegar hann fór að skrifa rapptexta á fullu og fór út í blaðamennsku. En ég er auðvitað mjög stolt af honum, hann er dugleg- ur við það sem hann tekur sér fyrir hendur. Hann komst heldur ekki upp með neitt letilíf á sumrin, heldur vann hann í sumarfríinu frá skóla. Íslensk ungmenni búa svo vel að þau eru tek- in alvarlega úti á vinnumarkaði strax um fermingu. Þau læra fljótt að vinna og það auðveldar þeim að sækja um vinnu síðar meir og að ganga á eftir því sem þau vilja gera. Það gat oft verið erfitt að vera skóla- krakki og alast upp í Mosfells- dalnum. Hann þurfti auðvitað að taka rútu eldsnemma á morgnana að næstu stoppustöð, þar sem hann tók strætó í skólann. Af þeim sökum skammaði hann okkur oft fyrir að búa úti í sveit. Og þó var hann ótrú- lega heppinn með að hann var einn af sjö krökkum í dalnum, sem voru jafn- aldrar. Þessir krakkar hafa alltaf verið vinir og haldið hópinn saman. Enn í dag líður varla sú helgi að þau hittist ekki. Þegar hann var í menntaskóla prófaði hann að búa í miðbænum, en hann entist ekki nema í tvö ár. Núna er hann fluttur næstum alla leið til baka og býr við Álafoss, í gömlu ullarverksmiðjunni. Halldór Ég hélt alltaf aðég myndi langt aftur í tímann. Þegar ég hugsa málið betur, held ég samt að ég muni fyrst eftir mér þegar ég var þriggja ára, sem er samt nokkuð langt. Þá stóðu yfir tökur á Kristnihaldi undir jökli á Snæfellsnesi, sem mamma leikstýrði. Ég fór þangað með Siggu, systur mömmu, á litlum Citroen og varð al- veg brjálaður þegar mamma hafði ekki tíma til að tala við mig. Hún var upptekin við vinnuna og gat ekki hlaupið beint til mín. Þá fannst mér ekki skipta máli hvort það var mikið að gera hjá henni eða ekki, enda skildi ég fátt á þeim tíma. Ég vildi bara fá minn skerf af óskertri athygli og varð frekar fúll. Ég fékk mjög gott uppeldi. Mamma og pabbi voru alls ekki ströng og þau hafa alltaf treyst mér. Þau voru mjög róleg og afslöppuð. Ég lærði snemma að ég lenti í miklu meiri vandræðum ef ég laug, þannig að ég valdi að segja þeim alltaf satt og að vera hreinskilinn við þau. Það var heldur ekkert tiltökumál að ég var með kippu af bjór í ísskápnum sextán ára gamall, á fyrsta ári í menntaskóla. Óttaðist að fara út í eiturlyf Mamma hefur alltaf verið í mjög mikilli snertingu við náttúruna og í stuttu máli sagt reyndi hún að fá mig til að gera allt sveitalegt, sem hún gerði sem barn. Vandamálið var samt að ég er með heymæði og vildi bara vera inni. Ég vildi vera í byssó og leika mér sjálfur, en ekki vera þetta brjálaða náttúrubarn sem hún sá fyrir sér. Hún vildi að litli strák- urinn sinn væri Emil í Kattholti. Ég var sannfærður um, að eftir alla ein- angrunina í sveitinni myndi ég bókað fara beint út eiturlyf og vitleysu þeg- ar ég kæmist þaðan. Núna sé ég hlut- ina hins vegar í öðru ljósi og ég veit að hún var bara að reyna að gera mér gott. Ég taldi mig missa af mjög miklu út af því að við bjuggum uppi í sveit. Mamma og pabbi fengu líka að heyra það stanslaust, hversu öm- urlegt það var að búa þarna. En í raun var það ekkert slæmt. Það var allt morandi í skemmtilegum krökk- um þarna á mínum aldri og nóg að gera. Enn í dag höldum við krakk- arnir hópinn, þótt við höfum ekki öll farið í sama skóla eftir grunnskóla. Ákveðin pressa innan fjölskyldunnar Ég hef lært að meta umhverfið og það góða við lífið. Mamma og pabbi eru bæði kvikmyndagerðarmenn og í því starfi eru miklar hæðir og lægðir. Stundum er til nóg af peningum til að búa til bíómynd og stundum er ekk- ert til og enginn býr til bíómynd. Það hefur kennt mér að peningar og ham- ingja fara ekki alltaf saman, það er í það minnsta vel hægt að vera ham- ingjusamur án þeirra. Ég var líka duglegur í félagslífi í skólanum og ut- an hans. Ég var bæði í leiklist og handbolta um tíma. Svo sat ég í nem- endaráði skólans þangað til ég var rekinn fyrir að kjafta frá einhverju balli sem við ætluðum að halda. En ég hafði alla vega nóg fyrir stafni. Ég var mjög rólegt og kurteist barn. Kannski frekar stór eftir aldri. Ég var sanngjarn og nægjusamur, myndi ég segja. Samt var ég krakki, ekki vatnsgreiddur herramaður. Ég var líka með frjótt ímyndunarafl. Ég byrjaði að skrifa eftir að ég byrjaði að rappa. Rappið var það sem kom þessu í gang. Og því meira sem ég skrifa, því meira þarf ég að lesa. Það er ákveðin pressa í þessari fjöl- skyldu, hvað varðar hvað maður á að lesa og hversu mikið. Mamma hefur alltaf sagt að ég lesi ekki nógu mikið og þeirri skoðun er erfitt að breyta. Það er ekkert grín þegar foreldr- arnir lesa hvort um sig fimm bækur á viku. Pabbi er sérstaklega hraður í lestri. Hann kaupir að meðaltali þrjár nýjar bækur á viku, en svo les hann alla vega tvær gamlar sem til eru í hillunni. Meðalmaður, hins veg- ar, les aðeins hægar. Það er bara staðreynd. Mér finnst ekkert sérstaklega gaman að það gangi sögur um að ég hafi fallið á Halldórs Laxness-prófi í MH. Í fyrsta tímanum, þegar spurt var út í upphafið á Sjálfstæðu fólki, sneru sér allir að mér og biðu eftir upplýsandi svari frá mér. Þá nennti ég þessu ekki og skrópaði í nokkrar vikur. Svo illa vildi til að ég skrópaði óvart í prófinu líka, sem var frekar óheppilegt. En þegar ég loksins tók prófið, fékk ég níu í Laxness- hlutanum. Svo í raun er þessi saga ekki alveg rétt. Mamma er án efa fyndnasta mann- eskja í heiminum og einstaklega orð- heppin. Það er sérstaklega skemmti- legt að fara með henni til útlanda. Ég ferðaðist mikið með mömmu og pabba þegar ég var lítill, en hætti því þegar ég varð unglingur og það var ekki lengur svalt. Ég sé eftir því núna, því það er alltaf jafngaman. Ég fór með þeim út til að taka upp atriði fyrir Veðramót og það var frábært. Londonferðirnar sem við fórum sam- an eru minnisstæðar, en mamma var í skóla þar. Hún þekkti hvern einasta krók og kima og óð áfram eins og enginn væri morgundagurinn. Það var gaman að fylgjast með henni, hún átti það til dæmis til að rífast og skammast í betlurunum. Þegar mamma og pabbi voru að byrja að hittast, fóru þau í frí til London. Þau fóru á Covent Garden, þar sem mamma hafði verið í námi og hún tók hann á uppáhalds krána sína. Þegar þau gengu inn, heyrist frá barþjón- inum úti í horni; „Oh no, it’s you again!“ Þá hafði hún ekki skapað sér sérstakar vinsældir þar. Marx-lenínískir vestrar Ég man líka eftir ferð sem við fór- um til Írlands að hitta gamlan kenn- ara hennar. Sá maður var í meira lagi undarlegur. Hann var rekinn úr Bandaríkjunum fyrir að gera marx- leníníska vestra og vann á Írlandi við að lesa handrit fyrir hina og þessa. Ferðin var álíka undarleg og kenn- arinn en afskaplega skemmtileg. Mamma á það líka til að hverfa sporlaust. Stundum þegar ég tala við hana, hverfur hún án þess að ég svo mikið sem taki eftir því. Svo, hálftíma síðar eða svo, kemur hún til baka og lætur eins og ekkert hafi í skorist. Hún getur líka verið ótrúlega gam- aldags. Gamlar myndbandsupptöku- vélar þarf að þræða blindandi í myrkri og það er ekki létt verk. Hún getur vel gert það á innan við mínútu, en það er ekki möguleiki að hún geti lært að nota stafræna vél. Það er allt of flókið. Ég stefndi ekki á ritstörf þegar ég var yngri. Það heillaði mig snemma að verða smiður. Þá sérstaklega af því að ég sá að ég gæti jafnvel gert eitthvað annað samhliða því. Ég byrjaði líka snemma að pæla í lista- tengdum störfum, enda meirihluti fjölskyldu minnar ýmist í kvik- myndagerð eða rithöfundar. Núna bý ég hjá Álafossi, en í framtíðinni get ég vel hugsað mér að búa í Mosfells- dalnum. Það er alls ekki svo slæmt.Morgunblaðið/Árni Sæberg attholti MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 2008 21

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.