Morgunblaðið - 13.07.2008, Page 22

Morgunblaðið - 13.07.2008, Page 22
22 SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ B jálkahús eitt stórbrotið stendur undir Eyja- fjallajökli á jörðinni Lambafelli. Hús þetta mun vera kynjað frá Kanada. Fjölmargir vegfarendur þar eystra hafa verið forvitnir um þetta hús og er ég ein af þeim hópi. Þegar ég komst að því að þarna hefði fyrir skömmu verið farið að leigja út næt- urgistingu með morgunverði ók ég heim að húsinu og kvaddi þar dyra, hverjar eru prýddar fögru járnverki. Í ljós kemur að í húsi þessu ræður nú ríkjum Guðrún Hjörleifsdóttir og kom það nokkuð á óvart. Guðrún er ekki síður forvitnileg en húsið, sjá- andi með meiru, hefur starfað sem slíkur um árabil og þekkt á þeim vettvangi. Ekkert sagði Guðrún sjálfsagðara en að sýna mér umrætt 720 fermetra bjálkahús. Þegar inn var komið og ég sé gríðarlegan stiga upp á loftið hugsaði ég með sjálfri mér að varla væri betur viðað hús til á Íslandi, svo gríðarleg eru burðartré þau sem sjá- anleg eru í stofu og víðar. Ég gekk um húsið og varð undrandi á að sjá þar í stofum og herbergjum húsgögn í stíl Lúðvíks 16. Frakkakeisara. Sér- staka athygli mína vekur há himna- sæng í hjónasvítu hússins. Glæsi- legar hurðir með frönskum gluggum eru í veggjum milli herbergja. Eld- húsið reyndist ekki síður standa und- ir væntingum, allt þar minnir helst á herragarð í útlöndum og út um glugga þar sést í heitan pott sem grá- grýtissteinar standa umhverfis. Guðrún Hjörleifsdóttir reynist góð heima að sækja, en hún gegnir þarna ráðskonuhlutverki í sumar fyrir hjónin sem eiga húsið, þau Þorstein Njálsson lækni og Ólöfu Péturs- dóttur, sem málað hefur fagrar blómamyndir sem prýða marga veggi þessa umfangsmikla húss. Guðrún býður mér sæti við bráð- myndarlegt eldhúsborðið og býður mér kaffisopa – sem ég þigg. Ég spyr hana hvernig á veru hennar þarna standi. Af galdramannakyni „Ég er vinkona hjónanna sem eiga húsið og þegar þau fluttu til Kanada eftir skamma búsetu hér þá báðu þau mig að vera í húsinu um tíma og ég sagði að ekkert væri sjálfsagðara. Þetta er eins og margt í mínu lífi – hreint ævintýri,“ segir Guðrún og hlær. Hún er glæsileg kona, klædd að indverskum hætti en segist fædd á Siglufirði. „Ég er næstyngst átta systkina, fædd 1953. Faðir okkar var kallaður bæjarfógetafulltrúi en móðir okkar var hjúkrunarkona. Hún fór 18 ára til hjúkrunarnáms í Danmörku 1929, það þótt sérstakt í þá daga,“ segir Guðrún. Hún segir það hafa verið skemmti- legt að alast upp á Siglufirði í faðmi stórrar fjölskyldu á menningarheim- ili. „Mér fannst menning ráða ríkjum, – ekki aðeins á heimili okkar heldur í Appelsínurautt Litur orkunnar segir Guðrún Hjörleifsdóttir. Morgublaðið/RAXStofan Þarna er vel viðað Svíta Himinsængin er glæsileg. „Völvan í höllinni,“ kall- aði einn gestur nýs gisti- heimilis að Lambafelli Guðrúnu Hjörleifsdóttur sjáanda. Guðrún Guð- laugsdóttir heimsótti þessa nöfnu sína og ræddi við hana um hæfi- leika hennar og bjálka- húsið stóra, þar sem hún ræður ríkjum í sumar. Völvan í höllinni Guðrún Hjör- leifsdóttir féllst á að leggja tarot- spil til þess að reyna að sjá hvað bíð- ur okkar Ís- lendinga á næstunni. „Ég sagði fyrir tveimur árum að það yrði lægð á þessum tíma, en ég sagði líka að það yrði ekki hrun,“ segir hún meðan hún breiðir úr appelsínurauðum klút á borðið, klút sem hún segir „orkuklút“. „Ef fólk vill fá aukakraft á það að fara í flík með þessum lit, það er líka gott að hafa hjá sér blóm í vatni, það gefur orku,“ segir hún og lætur mig draga tíu spil sem fulltrúa íslensku þjóð- arinnar. Ég vanda mig mjög og hún leggur spilin hæglátlega á sinn stað. Svo tekur hún að tala: „Núna í haust förum við að finna fyrir breytingu upp á við,“ segir hún og stór augu hennar stara fram fyrir sig en ekki á spilin á borðinu. „Þetta er keltneski krossinn sem ég hef lagt,“ segir hún og lítur nú niður á spilin. „Tarotspilin eru nákvæm og leiðbeinandi og þau geyma laun- helgar. Það geta ekki allir lesið þau – þó að þeir kunni á þau. Fólk þarf að hafa tengingu. Það sem er að gerast er að það verður ekki eins mikið hrun og fólk er að tala um. Það ríkir of mikil svartsýni miðað við það sem ég sé. En „rauða spjaldið“ sem við fengum er hins vegar þjóðinni til góðs. Við vorum komin á leið til of mikillar græðgi og vorum hætt að meta það sem við höfðum. Ég tel að lendingin sé stað- reynd og næstu ár verði ekki eins slæm og um hefur verið tal- að, en hins vegar getur árið 2012 orðið okkur erfitt. Þá koma utan að komandi áföll. En undirbúningur okkar núna verður til þess að við munum þola þá kreppu. Fjölskyldurnar í landinu þurfa á því að halda nú að komið sé til móts við þær á markvissari hátt en gert hefur verið hingað til. Þær þola ekki langvarandi þrengingar. Ekki síst er lág- launafólk í hættu. Ég hef hins vegar þá tilfinningu að komið verið til móts við þessar þarfir með haustinu. En gangan liggur upp í móti næstu 15 mánuði. Við þurfum að ganga upp tröpp- urnar. En það gerist eitthvað með haustinu sem gerir hina fjárhagslegu stöðu betri en nú er gert ráð fyrir og hjálpar þjóð- inni. Ég á ekki við lán erlendis eða því um líkt. Ég sé mikla möguleika í vatn- inu, án þess getur manneskjan ekki verið og af því höfum við nóg. Sú auðlind er fyrir kom- andi kynslóðir sem við þurfum að gæta vel að. Í spilunum sé ég blessun yfir landinu og þjóðinni – við verð- um bænheyrð. Við förum ekki neðar, við förum að endurnýj- ast. Sem sagt: Engin sverðganga er framundan og efnahagsleg staða okkar reynist betri en tal- ið hefur verið, það verður vegna óvæntrar uppákomu sem veitir þjóðarbúinu tekjur. Í ríkisstjórninni verður óró- leiki og togstreita – mars og apríl á næsta ári gæti orðið erf- iður tími. En ef samstarfið stendur þetta af sér mun stjórn- in sitja kjörtímabilið á enda. Staða Íslands á erlendum vettvangi mun batna. Við eigum stóra drauma og við munum komast þangað sem við ætlum ef við gætum þess að láta ekki nei- kvæðar hugsanir eyðileggja fyr- ir okkur. Við þurfum að vagga saman skynsemi og áræðni því þær eru systur og þurfa að spila saman.“ Hvað bíður okkar?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.