Morgunblaðið - 13.07.2008, Qupperneq 23
umhverfinu á Siglufirði í þá daga,“
segir hún.
Móðurfólk Guðrúnar kemur að
vestan.
„Langalangafi minn er Galdra-
Finnur sem margar sagnir eru til af,
þaðan kemur mitt galdrakyn,“
segir hún kankvís á svip.
„Mamma sagði mér að í líkkistu
afa míns hafi verið settar bækur frá
Finni, galdrabækur sem ekki máttu
vera á glámbekk.“
En hvenær skyldi Guðrún hafa
orðið vör við að hún væri sjáandi?
„Bara sem lítil stúlka. Ég sá alltaf
fólk og skynjaði og fann fyrir hlut-
um. Þetta ónáðaði mig stundum sem
barn en svo fór ég að læra að lifa með
þessu. Ég er sú eina af systkinum
mínum sem er sjáandi en næmni er í
fleirum,“ segir hún.
En hvað sögðu foreldrarnir?
„Pabbi sagði ekki margt en
mamma hafði áhuga á svona málum,
hún talaði um drauma, fór á miðils-
fundi og var hrifin af Hafsteini miðli.
Hún keypti mikið af dulrænum bók-
um. Hún tók þessum eiginleika mín-
um því af skilningi.“
En hvað sá Guðrún?
„Ég sá látið fólk. Einnig er ég
næm á þann hátt að finna ýmislegt á
mér, hvað er í aðsigi – hvað muni
gerast. Ég finn líka hvernig fólki líð-
ur og skynja jafnvel sjúkdóma þess.
Sérstaða mín er líklega mest að því
leyti að ég sé stundum fram í tímann.
Með þessu hef ég stundum getað
hjálpað fólki – á minn hátt. Ég hjálpa
því á vissan hátt að takast á við lífið.“
Stjórnmál og verslunarstörf
En hver er bakgrunnur Guðrúnar
auk þess sem fram hefur komið um
æsku hennar?
„Ég gifti mig ung og eignaðist
þrjú börn. Ég ætlaði raunar að verða
hjúkrunarkona og var á leiðinni til
bróður míns sem bjó þá í New York
til að læra þar ensku og undirbúa
mig undir ævistarfið. En ég varð
ófrísk og líf mitt breytt-
ist. Ég lærði ekki það
sem ég hafði ætlað mér
í upphafi, þess í stað
stofnaði ég verslun sem
ég rak í mörg ár á
Siglufirði, seldi blóm og
leikföng. Einnig hóf ég
þátttöku í stjórnmálum
25 ára, var bæjarfulltrúi á Siglufirði í
átta ár. Ég er ein af þeim sem mest
hef lært í skóla lífsins.“
Guðrún og maður hennar slitu
samvistum þegar yngsta barn henn-
ar var þriggja ára.
„Þá flutti ég frá Siglufirði og gerð-
ist deildarstjóri hjá Kaupfélagi Suð-
urnesja og bjó í Keflavík,“ segir hún.
„Ég tók að mér stóra deild og rak
hana. Ég vildi mennta börnin mín og
þess vegna flutti ég suður,“ bætir
hún við. Börn hennar hafa öll gengið
menntaveginn.
„Ég þurfti að vinna mikið til að
þetta gæti gengið og ég hef ekki gift
mig aftur – alltént ekki ennþá,“ segir
hún og hlær. Það er stutt í hláturinn
hjá þessari atorkusömu konu sem
sér og finnur meira en annað fólk.
„Á Suðurnesjum átti ég sæti í
ýmsum nefndum og ráðum fyrir
Framsóknarflokkinn. Síðar flutti ég
til Hafnarfjarðar og tók talsverðan
þátt í bæjarmálum þar. Nú bý ég í
Garðabæ.“
Hún kveðst hafa verið að baka
heima á Siglufirði þegar bankað var
upp á og hún beðin að taka þátt í
stjórnmálum. „Ég veit nú ekki til að
ég hafi mikið vit á þeim málaflokki,“
sagði ég og burstaði af mér hveitið.“
En fyrirspyrjandinn svaraði að
einhvers staðar yrði að byrja og þar
með var þeim teningi í lífi Guðrúnar
kastað.
Á sviði dulrænna mála
En hvenær fór hún að nýta sér
dulræna hæfileika sína?
„Eftir að ég flutti frá Keflavík 1993
fór ég að vinna á sviði dulrænna
mála,“ svarar hún.
„Ég fór í miðlaskóla í Bretlandi og
var þar á námskeiðum með vissu
millibili í sex ár. Þar lærði ég að
höndla þessa hæfileika mína. Eftir
1997 fór ég að fara til Indlands sömu
erinda. Þar hef ég lært heimspekileg
fræði með meiru af Sri Sathya Sai
Baba.“
En hefur þetta nám styrkt hina
upprunalegu hæfileika?
„Þetta er reynsla af öðrum toga. Í
náminu öðlast maður þekkingu og
skilning. Það sem ég hef lært hefur
hjálpað mér að skilja margt. Eftir að
ég fór að fara til Indlands jókst mjög
áhugi minn á heimspeki og lífinu
sjálfu.“
Hefur þú aldrei óttast sýnir þínar?
„Nei, ég er aldrei hrædd. Ekki
heldur hér, þar sem ég ríki nú um
tíma – „völva í höllinni“ eins og einn
gestur hér orðaði það,“ segir Guðrún
og hlær hjartanlega.
Draumur sem rættist
Við horfum báðar í kringum okkur
í húsinu mikla sem er aðeins þriggja
ára gamalt og var hugsað sem heimili
fyrrnefndra hjóna
sem hugðust reisa
neðar í landi sínu
Lambfelli, spa-
stórhýsi, heilsuhótel,
en þær ráðagerðir eru
ennþá á teikniborð-
inu.
„Þær bíða þess að
fjárfestar komi hugsanlega til sög-
unnar sem hafa áhuga á að taka þátt í
slíkum framkvæmdum,“ segir Guð-
rún og sýnir mér teikningar af þessu
ráðgerða stórhýsi sem líka á að verða
byggt úr kanadískum bjálkum og er
hugsað til að auka lífsgæði fólks.
„Þau Þorsteinn og Ólöf eru í hópi
þeirra sem eiga hugsjónir og láta
drauma sína rætast. Þau vildu reisa
sér stórt og fallegt bjálkahús og það
tókst þeim sannarlega,“ segir Guð-
rún.
Lambafell er miðsvæðis á Rang-
árvöllum og hafa eigendur hússins
hugsað sér að reka í því gistiheimili
sem fyrr kom fram og jafnvel að selja
ef svo bæri undir.
Enn undrast ég að spámiðill sé far-
inn að reka gistiheimili.
„Líf mitt hefur alltaf verið svona.
Dalai Lama sagði einu sinni að ef
vindarnir blésu í átt til manns ætti
maður að fara inn í þá. Það hef ég
gert. Ég lendi alltaf í ævintýrum, lík-
lega vegna þessarar afstöðu minnar,
ég er svo heppin kona,“ segir Guð-
rún.
„Mér finnst gott að vera hér. Ég
er oft undir miklu álagi í minni and-
legu vinnu og finnst gott að fá frí og
geta verið úti í náttúrunni og kyrrð-
inni. Vera með fuglunum sem trítla á
landinu og sjá kýr á beit út um eld-
húsgluggann. Ég hef jafnvel séð ref
bregða fyrir,“ segir hún.
Guðrún kveðst lítið þurfa að sofa í
sveitinni.
„Hér er svo orkumikið umhverfi
að ég á erfitt með að sofa mjög lengi.
Samt er ég full af orku. Ég er stolt af
að vera með í að opna þessa starf-
semi og ég finn fyrir miklum áhuga á
þessu húsi. Útlendingar koma hér
mikið og þeir eru mjög hrifnir að
hitta fyrir dulræna konu sem leggur
fyrir þá tarot-spil. Stundum spyr
þetta fólk um „the hidden people“.
Það hefur áhuga á þjóðsögum okkar
um álfa og huldufólk.“
En hefur Guðrún séð huldufólk?
„Ég hef einu sinni séð álfkonu í
kletti í Hafnarfjarðarhrauni. Ég sat
og hvíldi mig og skyndilega sá ég
hana og heyrði hörputónlist leikna
inni í klettinum. Álfkonan var klædd
bláum kyrtli og hafði fallegt gulllitað
hár. Það lék bjarmi í kringum hana –
svo dagaði þetta uppi. Kletturinn
sem um ræðir er eins og kirkja í lag-
inu.“
En látna fólkið – dagar það uppi?
„Já, það leysist upp. Maður sér
svipinn og svo hverfur það. Ég þekki
það stundum og stundum ekki.
Fylgjur sé ég stöku sinnum og liti sé
ég í kringum fólk. Þeir eru mis-
miklir, jafnvel eftir dögum, ég sé
stundum að það vantar í gula eða
græna litinn, þá er sálarástandið
ekki nógu gott. Mér finnst ég fá
skilaboð send og ég, ef svo má segja,
stilli mig inn á þá tíðni, þá skynja ég
betur, það er engu líkara en maður
fari inn í sérstakt rafsegulsvið eða
tíðni. Það þykir kannski einkennilegt
að líkja sér við hund en hundar
skynja meira en flest fólk gerir, mið-
ill hefur skynjun í ætt við þá sem
hundar hafa allajafna. Fjarskyggnin
byggist hins vegar á því að sjá fram í
tímann. Stundum órar mig fyrir því
sem hendir mig og dreymir fyrir því,
ég þekki drauma mína. Þetta eru oft
dýrmætar aðvaranir, fyrir kemur að
ég fer ekki eftir þeim – þá fer verr en
skyldi.“
gudrung@mbl.isHvíld Heitur pottur í garðinum.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 2008 23
Ég sá látið fólk.
Einnig er ég næm á
þann hátt að finna
ýmislegt á mér,
hvað er í aðsigi –
hvað muni gerast.
Kópavogsbær auglýsir byggingarétt til úthlutunar á eftirtöldum lóðum:
1. Austurkór 49- 53 - Raðhús á tveimur hæðum.
Um er að ræða lóð fyrir raðhús á tveimur hæðum með innbyggðri bílageymslu. Heimilaður
hámarksgrunnflötur húss er 132 m² með bílageymslu. Heildarlóðargjöld eru kr. 34.957.848.
Lóðargjöld eru annars vegar yfirtökugjöld og hins vegar gatnagerðargjöld. Gatnagerðargjöld
eru lágmarksgjöld og miðast við 600 m³. Ef byggt er umfram 600 m³ greiðast
viðbótargatnagerðargjöld.
2. Almannakór 2 - Einbýlishús á einni eða tveimur hæðum.
Um er að ræða lóð fyrir einbýlishús á einni eða tveimur hæðum með innbyggðri eða stakri
bílageymslu. Heimilaður hámarksgrunnflötur húss er 250 m² með bílageymslu.
Heildarlóðargjöld eru kr. 14.887.402. Lóðargjöld eru annars vegar yfirtökugjöld og hins vegar
gatnagerðargjöld. Gatnagerðargjöld eru lágmarksgjöld og miðast við 700 m³. Ef byggt er
umfram 700 m³ greiðast viðbótargatnagerðargjöld.
3. Þrúðsalir 13 - Einbýlishús á tveimur hæðum.
Um er að ræða lóð fyrir einbýlishús á tveimur hæðum með innbyggðri eða stakri bílageymslu.
Heimilaður hámarksgrunnflötur húss er 180 m² með bílageymslu. Heildarlóðargjöld eru kr.
14.887.402. Lóðargjöld eru annars vegar yfirtökugjöld og hins vegar gatnagerðargjöld.
Gatnagerðargjöld eru lágmarksgjöld og miðast við 700 m³. Ef byggt er umfram 700 m³
greiðast viðbótargatnagerðargjöld.
4. Arakór 5 - Einbýlishús á einni hæð með kjallara.
Um er að ræða lóð fyrir einbýlishús á einni hæð með kjallara með innbyggðri eða stakri
bílageymslu. Heimilaður hámarksgrunnflötur húss er 235 m² með bílageymslu.
Heildarlóðargjöld eru kr. 14.887.402. Lóðargjöld eru annars vegar yfirtökugjöld og hins vegar
gatnagerðargjöld. Gatnagerðargjöld eru lágmarksgjöld og miðast við 700 m³. Ef byggt er
umfram 700 m³ greiðast viðbótargatnagerðargjöld.
5. Austurkór 8 - Einbýlishús á tveimur hæðum.
Um er að ræða lóð fyrir einbýlishús á tveimur hæðum með innbyggðri eða stakri bílageymslu.
Heimilaður hámarksgrunnflötur húss er 250 m² með bílageymslu. Heildarlóðargjöld eru kr.
14.887.402. Lóðargjöld eru annars vegar yfirtökugjöld og hins vegar gatnagerðargjöld.
Gatnagerðargjöld eru lágmarksgjöld og miðast við 700 m³. Ef byggt er umfram 700 m³
greiðast viðbótargatnagerðargjöld.
6. Austurkór 107 - Einbýlishús á einni hæð auk kjallara.
Um er að ræða lóð fyrir einbýlishús á einni hæð auk kjallara. Heimilaður hámarksgrunnflötur
húss er 400 fm. Heildarlóðargjöld eru kr. 14.887.402. Lóðargjöld eru annars vegar yfirtökugjöld
og hins vegar gatnagerðargjöld. Gatnagerðargjöld eru lágmarksgjöld og miðast við 700 m³. Ef
byggt er umfram 700 m³ greiðast viðbótargatnagerðargjöld.
7. Austurkór 113 - Einbýlishús á tveimur hæðum.
Um er að ræða lóð fyrir einbýlishús á tveimur hæðum. Heimilaður hámarksgrunnflötur húss er
400 fm. Heildarlóðargjöld eru kr. 14.887.402. Lóðargjöld eru annars vegar yfirtökugjöld og hins
vegar gatnagerðargjöld. Gatnagerðargjöld eru lágmarksgjöld og miðast við 700 m³. Ef byggt er
umfram 700 m³ greiðast viðbótargatnagerðargjöld.
Ofangreindar lóðir eru byggingarhæfar. Nánar verður kveðið á um afhendingu í úthlutunarbréfi. Lóðargjöld
eru bundin byggingarvísitölu og breytast með henni.
Úthlutunargögn ásamt umsóknareyðublöðum og úthlutunarreglum, fást afhent frá miðvikudeginum 4. júní hjá
þjónustuborði Kópavogs, Fannborg 2, 1. hæð, alla virka daga
frá kl. 8-16. Úthlutunargögn fást afhent fyrir kr. 1.000 en einnig er hægt að nálgast gögnin
á vefsíðu Kópavogs www.kopavogur.is.
Umsóknum skal skilað á sama stað fyrir kl. 16 þriðjudaginn 18. júní nk. Vakin er athygli á reglum
Kópavogsbæjar um úthlutun á byggingarétti fyrir íbúðarhúsnæði. Þá er jafnframt vakin sérstök athygli á því að
umsóknum einstaklinga um byggingarétt þarf að fylgja staðfesting banka eða lánastofnunar á greiðsluhæfi.
Fyrir umsækjendur einbýlishúsalóða kr. 35 milljónir. Fyrirtækjum ber að skila ársreikningi sínum fyrir árið 2007.
Yfirlýsing frá banka og lánastofnunar um greiðsluhæfi og lánamöguleika umsækjenda skal vera án fyrirvara.
Æskilegt er að umsækjendur leggi inn skattframtal.
Bæjarstjórinn í Kópavogi.
Kópavogsbær
Úthlutun á byggingarétti