Morgunblaðið - 13.07.2008, Page 27

Morgunblaðið - 13.07.2008, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 2008 27 Morgunblaðið/RAX T ímabært er að leysa úr læð- ingi krafta einkaframtaks- ins svo að íslensk sérþekk- ing og hugvit fái notið sín til fulls í útrás orkufyr- irtækja,“ segir í stjórn- arsáttmála núverandi rík- isstjórnar. Þetta er að öllu leyti skynsamlegt stefnumið. Orkugeirinn er tvímælalaust næsta útrás- aratvinnugrein. Aðstæður á alþjóðavettvangi gera að verkum að gífurleg eftirspurn er eftir þeirri þekkingu, sem Íslendingar hafa komið sér upp á virkjun endurnýjanlegrar orku, ekki sízt jarðhita. Hækkandi orkuverð, vaxandi um- hverfisvitund og áherzlan á að draga úr losun gróðurhúsaáhrifa hefur í för með sér að öll ríki, sem eiga jarðhita í einhverjum mæli, leitast nú við að nýta hann. Möguleikarnir eru nánast óendanlegir, en um leið blasir við að í mörgum tilfellum er um að ræða verkefni, sem fela í sér umtalsverða áhættu. Úps, opinber orkuútrás Hver hefur þróunin svo verið síðan rík- isstjórnin birti stjórnarsáttmála sinn vorið 2007? Sú orkuútrás, sem mesta athygli hefur vakið, hefur verið á vegum opinberra aðila, en ekki einkaframtaksins. Tvö stærstu orkufyr- irtæki landsins, Landsvirkjun og Orkuveita Reykjavíkur, hafa stofnað „útrásararma“ til að taka þátt í orkuverkefnum erlendis. Annars vegar er um að ræða Landsvirkjun Power, hins vegar hið alræmda Reykjavík Energy Invest, eða REI. Nokkur einkafyrirtæki taka þátt í út- rásinni og þar fer Geysir Green Energy fremst í flokki. Samt getur ekki verið að hægt sé að kalla útrás tveggja stærstu opinberu fyrirtækj- anna í orkugeiranum „að leysa úr læðingi krafta einkaframtaksins“. Hin pólitíska stefna um orkuútrásina er eng- an veginn á hreinu. Fyrsti borgarstjórn- armeirihluti kjörtímabilsins í Reykjavík sprakk vegna deilna um REI. Meirihluti borg- arstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins vildi ekki að opinbert fyrirtæki eins og Orkuveita Reykjavíkur legði fé almennings í áhættusöm útrásarverkefni. Borgarfulltrúar flokksins vildu heldur ekki fallast á sameiningu REI og Geysis Green Energy með tilheyrandi sam- krulli opinbers rekstrar og einkarekstrar. Í fyrstu vildu sjálfstæðismenn selja verkefni REI frá Orkuveitunni. En svo skrifuðu fulltrú- ar þeirra einhverra hluta vegna upp á álit stýri- hóps um að REI ætti að vera áfram í fullri eigu Orkuveitunnar og fyrirtækið heldur útrás- arverkefnum sínum áfram, eins og skýrt hefur komið fram í fréttum Morgunblaðsins und- anfarna daga og vikur. Í Afríkuríkinu Djíbútí og á Filippseyjum er REI á fullri ferð í orkuút- rás. Sjálfstæðisflokkurinn hefur heldur ekki séð neitt að því að Landsvirkjun legðist í vík- ing. Orkuútrás á vegum opinberra aðila er dæmd til að verða hálfkák af því tagi, sem Kjartan Magnússon, stjórnarformaður REI, reynir að lýsa í samtali við Morgunblaðið í dag, laug- ardag. Verið er að leita leiða til að halda útrás- inni áfram án þess að leggja í hana peninga! Þetta er stefna, sem mun ekki ganga upp. Út- rás og áhætturekstur hentar einfaldlega ekki opinberum fyrirtækjum. Í rekstri þeirra gilda allt önnur lögmál en í einkarekstri. Þau eru svifaseinni og geta ekki leyft sér að taka áhættu. Orkuútrás, sem knúin er áfram af fyr- irtækjum í opinberri eigu, verður ómarkviss og fálmkennd og mun aukinheldur valda stöð- ugum pólitískum deilum eins og REI-málið sýnir vel. Þarf ekki að ræða einkavæðingu? Það er orðið tímabært að ræða hvernig hægt er í alvöru að leysa krafta einkaframtaksins úr læðingi í orkuútrásinni með einkavæðingu orkufyrirtækja. Áhrifin af slíku gætu orðið sambærileg og af einkavæðingu ríkisbankanna á sínum tíma. Ekki fer á milli mála að útrás og alþjóðavæðing íslenzks atvinnulífs undir for- ystu bankanna hefur skilað miklum árangri, þótt á móti blási nú um stundir á ýmsum al- þjóðlegum mörkuðum. Sú umbreyting atvinnu- lífsins hefði ekki átt sér stað ef bankarnir hefðu ekki verið leystir úr fjötrum opinbers eign- arhalds. Það sama á við í orkugeiranum; hið op- inbera eignarhald er honum fjötur um fót. Illu heilli hafa ekki farið fram neinar mark- vissar umræður um hvernig slíkt geti átt sér stað. Nú hafa hins vegar skapazt nýjar for- sendur fyrir slíkum umræðum með samþykkt orkufrumvarps Össurar Skarphéðinssonar iðn- aðarráðherra fyrir þinglok í vor. Frumvarpið var samþykkt á Alþingi með atkvæðum allra flokka nema Vinstri grænna, sem sátu hjá við afgreiðslu þess, og verður því að ætla að það geti verið grundvöllur sæmilegrar pólitískrar samstöðu um næstu skref. Í umræðum um einkarekstur í orkugeir- anum hefur borið á ýmsum misskilningi. Það virðist til að mynda ekki alltaf liggja ljóst fyrir að hægt sé að einkavæða rekstur orkufyr- irtækja án þess að einkavæða sjálfar orkuauð- lindirnar, vatnsföll og jarðhita. Sömuleiðis hef- ur borið á þeirri röksemd að ekki megi einkavæða þau einokunarfyrirtæki sem orku- fyrirtækin séu. Með nýrri löggjöf liggur þetta allt skýrara fyrir. Með Evrópureglum, sem Ísland hafði þegar undirgengizt, hafði starfsemi orkufyr- irtækja verið skipt í fernt; vinnslu, flutning, dreifingu og sölu orku. Í flutningi og dreifingu eru orkufyrirtækin í náttúrulegri einok- unarstöðu og sú starfsemi því háð sérleyfum. Í vinnslu og sölu á orku getur hins vegar verið samkeppni – og fyrir liggur að talsverð sam- keppni er nú í orkuvinnslu; orkufyrirtæki keppa t.d. um vænlega virkjunarkosti. Ný lög, nýjar forsendur Með eldri reglum var orkufyrirtækjum skylt að halda samkeppnisstarfsemi sinni, þ.e. vinnslu og sölu orku, aðskilinni í bókhaldi frá sérleyfisþáttunum, flutningi og dreifingu. Nýju lögin gera kröfu um fyrirtækjaaðskilnað; að sérleyfisþættirnir, flutningur og dreifing, verði reknir í sérstökum fyrirtækjum. Aukinheldur kveða nýju lögin á um að dreifiveiturnar verði að vera í meirihlutaeigu ríkis eða sveitarfélaga. Þar með liggur fyrir að sá hluti orkumarkaðar- ins, sem veitir almenningi þjónustu, verður ekki einkavæddur, nema þá að minnihluta. Ríkið og sveitarfélög munu halda sínum yf- irráðum yfir dreifiveitunum. Mikill meirihluti vatns- og jarðhitaréttinda á Íslandi er í eigu ríkis og sveitarfélaga, en nokk- ur hluti þó í einkaeigu. Samkvæmt nýju lög- gjöfinni verður eignarréttur að vatns- og jarð- hitaréttindum, sem nú eru í eigu opinberra aðila, ekki framseldur beint eða óbeint með varanlegum hætti. Þar með hefur verið tryggt að auðlindirnar, sem nú eru í eigu almennings, verða ekki einkavæddar. Hins vegar er í lögunum heimild fyrir opin- bera aðila að semja um tímabundinn afnotarétt að réttindunum til allt að 65 ára í senn. Að liðn- um helmingi leigutímans getur handhafi tíma- bundna afnotaréttarins farið fram á viðræður um framlengingu á leigu réttindanna. Loks kveða lögin á um að forsætisráðherra skuli semja um endurgjald fyrir afnotarétt réttinda undir yfirráðum ríkisins. Forsætisráð- herra ber að skipa nefnd til að fjalla um leiguna á þessum réttindum. Hún á m.a. að skoða með hvaða hætti verði valið á milli þeirra, sem áhuga hafa á að nýta auðlindirnar. Nefndin á að skila tillögum fyrir 1. júní 2009. Með þessum ákvæðum laganna hefur verið tryggt að orku- fyrirtæki, sem vilja nýta orkulindir í eigu al- mennings, greiði auðlindagjald fyrir afnota- réttinn. Allt þetta þýðir að nú er hægt að fara að ræða í alvöru einkavæðingu í orkugeiranum. Þær umræður munu í ljósi hinnar nýju lög- gjafar takmarkast fyrst og fremst við orku- vinnsluhluta markaðarins. Orkulindir og dreifi- veitur verða ekki einkavæddar. En það er hvort sem er vinnsluþátturinn, sem er í útrás. Þar búa íslenzku orkufyrirtækin yfir verð- mætri og einstakri þekkingu. Aðrar þjóðir kunna alveg að flytja, dreifa og selja orku. En þær hafa ekki sömu þekkingu og íslenzku orku- fyrirtækin á nýtingu hinna vistvænu, end- urnýjanlegu orkulinda, jarðhitans og vatnsafls- ins. Breyting á eignarhaldi fyrirtækja í orku- vinnslu er flókið mál. Fyrst þarf sá aðskilnaður samkeppnis- og sérleyfisstarfsemi, sem ný lög kveða á um, að eiga sér stað. Nefnd forsætis- ráðherra þarf að móta stefnu um auðlinda- gjaldið og útfærslu þess. Ótal atriði varðandi útfærslu og framkvæmd eru órædd, til dæmis hvaða kröfur ætti að setja um dreift eignarhald við einkavæðingu og hvaða reglur þarf að setja til að orkuframleiðsla í landinu safnist ekki á fáar hendur. Þetta mun taka langan tíma. Stóra myndin er hins vegar þessi: Nýja lög- gjöfin býr til ramma um orkumarkað, þar sem einkarekin orkuvinnslufyrirtæki myndu semja við ríki og sveitarfélög um afnot af orkulindum í eigu almennings. Þessi fyrirtæki myndu borga auðlindagjald fyrir þau afnot. Þau myndu selja orku til dreifiveitna, sem væru að meirihluta í almannaeigu. Og þau væru frjáls að því að nýta þekkingu sína, reynslu og fjár- muni í útrásarverkefnum. Hvað finnst stjórnarflokkunum? Er líklegt að þessi mynd verði að veruleika? Annar núverandi ríkisstjórnarflokka er að minnsta kosti í orði klárlega hlynntur einka- væðingu í orkugeiranum. Í ályktunum síðasta landsfundar Sjálfstæðisflokksins sagði þannig: „Landsfundur fagnar aðkomu einkaaðila að út- rás orkufyrirtækjanna. Tímabært er að leysa úr læðingi krafta einkaframtaksins svo að ís- lensk sérþekking og hugvit fái notið sín til fulls í þeirri útrás. Landsfundur leggur til að skoð- aðir verði kostir þess að færa eignarhald rík- isins á orkufyrirtækjum yfir til einkaaðila, sér- staklega með tilliti til samkeppnis- og jafnræðissjónarmiða.“ Geir H. Haarde vakti oftar en einu sinni, sem fjármálaráðherra og utanríkisráðherra, máls á einkavæðingu í orkugeiranum og nefndi þá sér- staklega að lífeyrissjóðir gætu gerzt langtíma- fjárfestar í Landsvirkjun. Það minnir á að einkavæðing fyrirtækja í opinberri eigu stuðlar ekki aðeins að meiri samkeppni og betri nýt- ingu fjármuna, heldur býr hún einnig til mik- ilvæga fjárfestingarkosti fyrir fjárfesta á borð við lífeyrissjóðina. Undanfarið hefur forsætisráðherra hins veg- ar sagt að einkavæðing Landsvirkjunar sé ekki á dagskrá ríkisstjórnarinnar. Staðreyndin er sú að REI-klúðrið ógurlega hefur gert sjálf- stæðismenn ósköp feimna við að halda fram grundvallarstefnu sinni um einkavæðingu í orkugeiranum. Hvað um Samfylkinguna? Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra sagði hér í blaðinu í febrúar síðastliðnum að flokkurinn vildi greiða fyrir samkeppni og útrás á orku- sviðinu. Orkufyrirtæki, sem framleiddu fyrst og fremst fyrir hinn almenna markað ættu að vera í opinberri eigu, en tímabært væri að ein- stakar virkjanir, sem tengdust stóriðju, yrðu byggðar og reknar á markaðslegum forsendum og lytu þannig eðlilegum arðsemiskröfum. Ekki má heldur gleyma þessum kafla í greinargerð með frumvarpi Össurar Skarphéð- inssonar: „Aðskilnaður samkeppnis- og sér- leyfisþátta, áframhaldandi opinbert eignarhald auðlinda sem nú eru í eigu opinberra aðila og meirihlutaeignarhald opinberra aðila yfir fyr- irtækjum sem stunda sérleyfisstarfsemi eru grundvallarforsendur þess að unnt sé að halda áfram markaðsvæðingu raforkugeirans.“ Er ekki tímabært að ríkisstjórnin marki sér sameiginlega stefnu um hvernig á að markaðs- væða raforkugeirann í því skyni að greiða fyrir hinum gríðarlegu möguleikum sem felast í orkuútrásinni? Það er langtímaverkefni en ein- hvers staðar verður að byrja. Ramminn utan um einkavæðingu í orkugeiranum er kominn og hægt að byrja að smíða inn í hann – ef menn þora. Kraftar einkaframtaksins leystir úr læðingi? Jarðhiti á Íslandi 46% í þjóðlendum 42% í annarri opinberri eign 12% í einkaeign Heimild: Orkustofnun. Gróflega áætlað. Reykjavíkurbréf 120708

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.