Morgunblaðið - 13.07.2008, Page 28

Morgunblaðið - 13.07.2008, Page 28
28 SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Köld gusa Á heitum degi getur verið gott að fá yfir sig svala vatnsgusu til að kæla si Morgunblaðið/G. Rúnar Við höfnina Á heitustu dögunum er tilvalið að tylla sér niðri við höfnina, eins og þessi maður. Landmannalaugar Undanfarið hefur verið fallegt veður í Landmannalaugum og óvenjulega hlýtt í veðri. Á dögum sem þess liðna helgi. Laugavegshlaupið, sem fram fór í gær, hófst í Landmannalaugum, en um 250 manns tóku þátt íþessu erfiða hlau Morgunblaðið/Brynjar Gauti Knapar Á sumrin nýta börn tímann í ýmiss konar námskeið. Reiðnámskeið eru yfirleitt vel sótt um og krakkarnir virðast skemmta sér vel. Í sól og sumaryl Ekkert lát virðist ætla að vera á sumarblíðu og sólskini, sem gælt hefur við landsmenn und- anfarna daga. Reynslan hefur samt sem áður kennt okkur að nýta sólskinsdagana til hins ýtr- asta, því ekki eru þeir margir á ári hverju. Margir hverjir neyðast til að húka inni við vinnu meirip- art dags, en er ekki þar með sagt að þeir fari var- hluta af góða veðrinu. Að vinnu lokinni er tilvalið að bruna ekki beinustu leið heim, heldur finna sér góðan stað og slappa af eða leika sér. Það er vel þess virði, þó svo að ekki nema einn eða tveir tímar náist, áður en kólna tekur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.