Morgunblaðið - 13.07.2008, Síða 31

Morgunblaðið - 13.07.2008, Síða 31
vorum ekki úti við, þá vorum við að teikna og lita. Pabbi var iðinn við að segja okkur til, þegar hann hafði tíma. En honum féll bezt að vinna einn og við urðum að vera ákaflega prúð til að fá að fylgjast með honum uppi í vinnustofunni hans.“ „Þegar við vorum lítil var okkur vinalega snúið við og beint út úr vinnustofunni aftur,“ segir Sigrún. „en þegar við stækkuðum fengum við að sitja inni og fylgjast með honum vinna.“ „Ég man vel þegar ég var að hlaupa til pabba og sýna honum hvað ég væri að gera,“ segir Katr- ín, „og hann var alltaf svo hvetjandi.“ Þær Þór- hildur og Katrín muna eftir samstarfi við föður sinn í sambandi við landbúnaðarsýningarnar, sem Jóndi teiknaði margt fyrir og Sigrún minn- ist þess að hafa hjálpað föður sínum við stærri verk; auglýsingaskilti og þess háttar. „Ég man eftir mér úti í fjárhúsi að mála skiltin,“ segir Þórhildur. „Pabbi teiknaði letrið og gerði skapalón sem ég málaði svo í gegnum.“ Gunnar Rafn segir, að hann hafi alla tíð verið hugfanginn af list. Honum fannst gaman að teikna sem strákur, „en svo dró svolítið úr því, þegar ég var vændur um að draga upp myndir af Andrési Önd og ýmsum dýrum. Fjórtán ára í sveitinni í Bárðardal þótti mér við hæfi að fara að mála eins og alvörumálari. Ég sótti mjóar spýtur upp á háaloft, klippti bút úr 50 kg hveitipoka og strengdi mér einskonar léreft til að mála á.“ Gunnar Rafn nam myndlist á yngri árum á Akureyri og seinna í Bandaríkjunum. Hann hefur haldið þrjár einkasýningar: á Akureyri, Húsavík og í Söderhamn í Svíþjóð og átt verk á samsýningum hérlendis og erlendis. „Ég fitlaði við píanóspil fram eftir aldri og mér fannst gott að geta gripið í hljóðfæri og málað í tómstundum.“ Hann segir engin listræn tengsl hafa verið milli hans og föður hans. „En ég vissi af lífs- kúnst hans: landslagsmyndum, auglýsingum, manna- og dýramyndum. Systkini mín föð- urmegin hafa ekki tengzt mér í listinni heldur.“ Gunnar Rafn er sérfræðingur í skurðlækn- ingum. Hann segist hafa sett sér það markmið 8 ára eða yngri að verða læknir, bóndi og skáld. „En læknisstarfið átti hug minn allan þar sem ég vildi hjálpa sem flestum.“ Guðbjörg segist ekki hafa borið það við að teikna hvað þá mála eftir að hún fór frá Lamb- ey. „Ég hef ekkert verið á þeirri línunni,“ segir hún. En systkini hennar segja listfengi hennar á hannyrðasviðinu viðbrugðið og m.a. saumaði hún bútasaumsteppi með 45 kveðjum frá Lambeyjarættinni, sem þau systkinin gáfu móður sinni áttræðri. Guðbjörg vann um árabil á skrifstofu Leikfélags Reykjavíkur en starfaði síðast sem fjármálastjóri BSRB. „Börnin mín fjögur teiknuðu langtímum sam- an þegar þau voru lítil og það án þess að ég væri að halda því að þeim. Þetta er einhver þörf, sem hljóp yfir mig, en lét þau ekki í friði." Nú stundar eitt barna hennar myndlist- arnám í listaháskólanum. Þórhildur var sextán ára, þegar hún fékk inn- göngu í Myndlista- og handíðaskólann. Hún segir að pabbi hennar hafi haft orð á því að hún væri fullung, en engu að síður hvatt hana ein- dregið til þess að fara í skólann. „Þetta var það eina sem ég alltaf ætlaði mér og það var ekki eftir neinu að bíða fyrst ég komst inn.“ En af hverju valdi hún grafíkina? „Það var eiginlega Herði (Ágústssyni) skólastjóra að kenna eða þakka. Mig langaði í málverkið, en Hörður hef- ur efalaust séð að ég var ekki nógu burðug til þess og að auglýsingateiknun hentaði mér bet- ur. Hún var líka talin öruggara lifibrauð.“ Nú rekur Þórhildur eigin auglýsingastofu, en hún hefur einnig teiknað og málað í frístundum, einkum portrett, en líka farið með trönur út í náttúruna og málað. „Mér er ekki hægt að feta í fótspor föður míns í málverkinu. En þetta er einhver innri þörf sem verður að fá útrás, hvað sem það kostar.“ Kristjana hafði gaman af því að teikna sem barn. „Ég var alltaf eitthvað að teikna eins og hinir krakkarnir og fékk ágætis einkunnir fyrir teikningu í skóla en svo varð nú ekkert fram- hald á því.“ Kristjana hefur starfað fjármálamegin á vinnumarkaðnum og er nú fjármálastjóri Ferðaskrifstofu Íslands ehf. „Pabbi var mjög glöggur talnamaður og var meðal annars kjörinn endurskoðandi Mjólk- urbús Flóamanna í tugi ára. Ég man ég spurði hann einu sinni á mínum yngri árum, af hverju ég hefði ekki erft listgáfuna frá honum eins og hin systkinin og þá sagði hann og kímdi: Ætli þú hafir þá ekki bara fengið eitthvað annað í staðinn, og hefur þá líklega átt við reiknigáf- una.“ Þó Kristjana sé ekki að teikna, þá segist hún hafa mjög gaman af því að skoða alla myndlist og listaverkabækur. „Og svo er nú ekki ónýtt að hafa alla þessa listamenn í fjölskyldunni. Það er næsti bær við að gera hlutina sjálf.“ Sveinbjörn sver af sér allar tilraunir til teikn- inga, hvað þá með liti. „Ég var alltaf með hug- ann við útiverkin. Þótt þú snúir öllu við hjá mér, þá finnurðu ekki eina einustu mynd eftir mig.“ Hann segist þó hafa fylgzt með listsköpun föður síns af tilhlýðilegri virðingu, en hugur hans hafi verið bundinn við útistörfin. „Það er nóg af list- inni í systkinum mínum. Einhver verður að sinna landinu,“ segir hann og hlær, en hann hef- ur lengst af stundað landbúnað. Kristinn segist hafa teiknað sem barn eins og gengur og gerist, en látið allt slíkt eiga sig eftir það. Búskapurinn hefur átt hug hans allan og hann býr á Staðarbakka, næsta bæ við Lambey. Þegar ég geng á hann segir hann dræmt að hann viti ekki hvort hann eigi að segja frá því, að hann hafi á Hvanneyri teiknað nokkra hest- hausa, en aldrei haft sig í það síðan að bæta skrokknum við. „Ég læt systurnar alveg um þetta. Náttúran og fjallaferðir eru mín áhuga- mál. Við Sveinbjörn löbbum mikið til fjalla og förum þá inn í hvert gil og skoðum listina sem þar er. Hún er náttúrlega bara stórbrotin.“ Katrín lærði grafíska hönnun eins og Þórhildur og starfaði við hana þar til bílslys batt endi á langar setur við teikniborðið. „Ég var búin að vinna með pabba og Þórhildi að ýmsum sýn- ingum svo það lá beint við að leggja þetta fyrir mig.“ Með starfinu teiknaði Katrín; notaði blýant, kol og túss en greip líka í pensilinn. „Þetta hafa mest verið tækifærisgjafir innan fjölskyldunnar, en ég hef nokkrum sinnum sýnt á kaffihúsum og selt þá eitthvað.“ Nú starfar Katrín við fjölskyldufyrirtækið Steinastein, þar sem hún hefur aðstöðu til að teikna og mála. Blundar það í henni að taka skrefið til fulls yfir í málverkið? „Það getur svo sem vel verið. En ég er bara að leika mér. Ég sé á hverjum degi eitthvað í umhverfinu sem mig langar að mála og þegar ég er að tala við fólk grípur mig allt í einu löngun til þess að teikna andlit þess. Það er nú bara lítið brot af þessu sem kemst á pappírinn, en þetta er mín leið til þess að tjá mig.“ Þorsteinn segist ekki kalla það að mála, þótt hann taki upp pensil á tíu ára fresti og máli 3, 4 myndir. En hinsvegar er hann með blýantinn á lofti flesta daga sem garðyrkjuverktaki og teiknar upp lóðir. „Ég hugsa lóðirnar oft á blaði og þá má vel vera að eitt og annað slæðist með.“ Grjótið er hans efni og þess sér víða stað á Hvolsvelli. „Ég hef aðeins verið að vinna í grjót, þegar fólk hefur viljað hafa íslenzka steina í garðinum sínum. Þá prófa ég svona eitt og ann- að. Ég hef alltaf haft ánægju af grjóti. Einn frændi minn og forfaðir var grjóthleðslumaður í Mýrdalnum. Kannski mér kippi eitthvað í kynið til hans. Og svo hef ég átt það til að flísa mósaík- myndir á steina, þegar vel liggur á mér.“ Þegar ég geng á hann um teikningar og myndverk svarar hann: „Svo ég tali nú eins og verktaki, þá eru sumir fæddir vélamenn. Það segir hins vegar ekki að við hin getum ekki lært á vélar. En þær „lista“-systur mínar voru bara búnar að búnka á vörubílinn með sinni vél áður en ég fattaði, hvernig átti að setja mína vél í gang.“ Þorsteinn segist vera ákafur skógræktar- sinni. Og áhugaljósmyndari er hann eins og þau fleiri systkinin. Sigrún segir að myndsköpunin hafi verið fastur partur af tilverunni og segist ekki muna eftir sér öðruvísi en að hún hafi gaman af að teikna og skapa. „Þegar ég var lítil ætlaði ég alltaf að læra listmálun. Áhuginn dofnaði á unglingsár- unum en blossaði svo upp aftur og ég sótti um inngöngu í Myndlista- og handíðaskólann, mest til að sjá hvort ég kæmist inn eða ekki, því ég var á leið í hjúkrunarfræði. En fyrst ég komst inn í MHÍ þá varð ekki aftur snúið. Og þá kom ekkert annað en málverkið til greina, auglýs- ingateiknunin heillaði mig ekki, þótt hún væri kannski praktískari.“ Eitt ár var Sigrún á Granada á Spáni og tók þá málun sem aðalfag og ljósmynda- og skúlp- túráfanga í vali. Hún fetar nú í fótspor föður síns og kennir myndmennt við Hvolsskóla. Og býr á Ásvelli í túnfætinum hjá Lambey. „Ég hef gaman af að vinna með fallega liti og er mikill náttúruunnandi. Mér finnst gaman að skoða listir frá sem flestum sjónarhornum. Ég hef hins vegar ekki verið dugleg að mála, en nú er ég alveg að setja kraft í það, því ég verð með sýningu í Sögusetrinu á Hvolsvelli, sem opnar í ágústlok.“ Ég spyr hvort þau systkinin hafi aldrei hug- leitt að halda samsýningu. „Jú,jú. Við höfum oft spáð í það. Og ég er viss um að við látum verða af því.“ Allt út af honum Jónda Lambeyjargenin eru langlífari en sem nemur einni kynslóð, því listhæfileikar leynast víða með barnabörnunum og í þeim hópi eru nem- endur á listnámsbrautum og í listaháskóla. Einnig hafa sum þeirra lært listir á yngri árum, þótt þau hafi ekki gert þær að ævistarfi. Og áhrif Jónda í Lambey ná út fyrir ættina. Fyrir utan Sögusetrið á Hvolsvelli hitti ég Katrínu J. Óskarsdóttur sem sýnir þar hesta- myndir. Hún lærði grafíska hönnun og hefur unnið á því sviði, en hefur síðustu ár í auknum mæli snúið sér að málun og teikningu. „Hann Jóndi kenndi mér teikningu og hafði mikil áhrif á það hvað við nemendur hans hugs- uðum og gerðum. Það fylgdi honum sérstakt andrúm. Og fyrir hans orð fór ég í Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Ég ætlaði í leiklistina en Jóndi sagði mér að láta það ógert og læra að teikna og mála í staðinn. Og nú er ég hér að sýna myndirnar mínar. Allt út af honum Jónda.“ Lesbók Morgunblaðsins 16. september 1995: Gísli Sig- urðsson: Bóndinn í Lambey – Teiknaði tvö þúsund aug- lýsingar í Rafskinnu. Sunnudagsblað Morgunblaðsins 29. desember 1996: Árni Johnsen: Jóndi er kominn heim. Lambeyjarhjónin Ragnhildur Sveinbjarn- ardóttir og Jón Kristjánsson. Kristinn Stórbrotin list í giljunum Þorsteinn Grjótið er mitt efni. Gunnar Rafn Litglaður læknir Guðbjörg Ekkert á listalínunni Kristjana Erfði reiknigáfuna Sigrún Með sýningu í ágúst Sveinbjörn List að sinna landi Þórhildur Einhver innri þörf Katrín Er bara að leika mér MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 2008 31

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.