Morgunblaðið - 13.07.2008, Page 34
34 SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
ÞAÐ er notalegt að vera boðið upp á
kaffi í heita pottinum í sundlauginni.
Það er heimilislegt að sundkortin séu
geymd undir nafni í afgreiðslunni.
Það er sérstök þjónusta að fá reið-
hjólin að sunnan upp að dyrum og að
þau séu sótt á sama stað á brottfar-
ardegi. Og það er skemmtilega óvænt
að vera spurður að því á golfvellinum
hvort mig vanti ekki tí. Starfsmenn
vallarins höfðu heyrt að ég hefði
spurt um þau í kaupfélaginu deginum
áður og brugðust við með það sama.
Það sem skapar notalegt andrúms-
loft, hvort sem það er á heimili eða í
heilu bæjarfélagi, er fólkið sem þar
býr. Ég átti því láni að fagna að dvelja
á Skagaströnd allan júní, í íbúð sem
er í boði NES-listamiðstöðvar sem
var nýlega sett á laggirnar. Glæsileg
gistiaðstaða er í boði fyrir fjölda lista-
manna og vinnuaðstaðan er ekkert
slor – fallega uppgert frystihús. Bæj-
aryfirvöld á Skagaströnd og menn-
ingarnefndin eiga hrós skilið fyrir
metnaðarfull áform, sérstaka natni
við að gera vel við listamennina og
síðast en ekki síst frábærar viðtökur.
Á Skagaströnd býr yndislegt fólk.
Viðhorf þess til lífsins, gestrisnin,
nægjusemin og hlýleikinn er öðrum
til eftirbreytni.
Ég kynntist fjölda fólks í Kántrí-
bænum og það segir líklega allt um
það hversu vel mér líkaði að ég var
farinn að líta í kringum mig eftir laus-
um íbúðum! Kaffihúsið er með þeim
huggulegri sem ég hef komið á, mat-
urinn í Kántríbæ fyrsta flokks, þjón-
ustan í söluskálanum eftirminnileg,
dömurnar í kaupfélaginu kátar og
vöruúrvalið framúrskarandi.
Ég bjóst svo sem ekki við öðru en
að kunna vel við mig fyrir norðan því
ég ólst upp í Ólafsvík frá tíu ára aldri
og þekki því þorpslífið vel. Fyrir
norðan var yndislegt að upplifa
gleðina og spenninginn í börnum
mínum sem komu hvað eftir annað
hlaupandi frá bryggjunni með mar-
hnút eða þorsk. Og hlusta á þau segja
frá uppgötvun dagsins. Allur bærinn
var þeirra leiksvæði og heimalning-
arnir tóku þeim opnum örmum. Og
fyrir hreina tilviljun var fjölskyldan
stödd á veginum við Hraun þegar ís-
björninn dundaði sér í æðarvarpinu.
Saga fæddist og þriðji ísbjörninn
gengur laus!
Hjartans þakkir fyrir gestrisnina
íbúar Skagastrandar. Dvölin verður
mér og börnum mínum, sem og
frændsystkinum þeirra, lengi í minn-
um höfð.
ÞORGRÍMUR ÞRÁINSSON,
rithöfundur.
Þú yndislega Skagaströnd
Frá Þorgrími Þráinssyni
SÍÐASTLIÐINN
vetur var ég að ræða við
son minn um gildi þess
að mennta sig og
stunda námið sitt vel.
Ég var að reyna að
sannfæra hann um að
það borgaði sig að læra
fyrir próf og leggja svo-
lítið á sig til þess að uppskera svo ár-
angur erfiðisins, gleðina sem fylgir
því að standa sig vel.
Hann spurði mig þá hvernig mér
hefði gengið í skóla, og ég sagði hon-
um sem satt er, að mér hefur alltaf
fundist gaman í skóla og gengið vel.
Þá horfði hann á mig í svolitla
stund og sagði svo: „En mamma,
fyrst að þér gekk svona vel í skóla, af
hverju varðstu þá bara ljósmóðir? Af
hverju valdirðu ekki eitthvert annað
starf sem er betur launað?“
Ég hef mikið hugsað um þetta síð-
an og velt þessu fyrir mér.
Er ég góð fyrirmynd fyrir börnin
mín?
Þýðir eitthvað fyrir mig að segja
við börnin mín að það borgi sig að
mennta sig?
Ég er búin að verja sex árum í há-
skóla til að læra að verða ljósmóðir.
Fyrst varð ég hjúkrunarfræðingur,
vann við það í nokkur ár, lagði svo á
mig tveggja ára háskólanám í viðbót
og varð ljósmóðir og
lækkaði við það í laun-
um miðað við það sem
ég hafði sem hjúkr-
unarfræðingur, vegna
þess að sem nýút-
skrifuð ljósmóðir var ég
orðin nýgræðingur í
starfi, og reynsla mín
og menntun sem hjúkr-
unarfræðingur var þá
allt í einu einskis metin,
þrátt fyrir að það sé
skilyrði fyrir því að geta
orðið ljósmóðir!!
Finnst einhverjum þetta sann-
gjarnt?
En af hverju varð ég „bara“ ljós-
móðir?
Ég varð ljósmóðir vegna þess að ég
gat ekki og get ekki enn ímyndað mér
skemmtilegra starf. Ég var alltaf
ákveðin í að verða ljósmóðir frá því að
ég var fimm ára gömul, og ég er mjög
stolt af að tilheyra þessari stétt
sterkra kvenna með fallegasta starfs-
heiti í heimi.
Ljósmóðurstarfið er ótrúlega
krefjandi, gefandi, skemmtilegt og
fjölbreytt. Það er líka mjög ábyrgð-
armikið og oft erfitt, engu má skeika.
Vaktirnar eru oft langar og strang-
ar og mannekla viðvarandi vandamál.
Blessuð börnin fæðast á hvaða
tíma sólahringsins sem er og því er
vinnutíminn ekki fjölskylduvænn.
Um síðustu jól var ég t.d. á næt-
urvakt á jólanótt, mætti í vinnuna kl
23 á aðfangadagskvöld, dauðþreytt
eftir yndislegan og fjörugan að-
fangadag á mínu sex manna heimili.
Síðustu tvö árin þar á undan var ég á
næturvakt á nýársnótt.
Við þetta má bæta að það er
margsannað að vaktavinna er ekki
heilsusamleg, vaktavinnufólk lifir að
meðaltali skemur en þeir sem ekki
vinna vaktavinnu og konur sem vinna
næturvaktir eru í aukinni hættu á að
fá brjóstakrabbamein svo eitthvað sé
nefnt.
En það er alveg sama hversu
skemmtilegt mér þykir í vinnunni,
það er alveg jafn-dýrt fyrir mig að
fæða og klæða börnin mín fjögur og
námslánin mín lækka heldur ekki
neitt, þrátt fyrir að ég sé í drauma-
starfinu mínu.
Núna er staðan þannig, að af þeim
starfsstéttum sem starfa hjá ríkinu
eru ljósmæður ein þeirra stétta sem
eru með hvað lengst nám á bak við
sig, en eru jafnframt með hvað
lægstu launin.
Mér finnst það ekki ósanngjörn
krafa að ljósmæður fái sömu laun og
aðrar stéttir sem starfa hjá ríkinu og
eru með sambærilega langt nám að
baki.
Hvað finnst þér?
Mamma, af hverju
varðstu þá bara ljósmóðir?
Karítas
Halldórsdóttir
skrifar um starf og
launakjör
ljósmæðra
Karítas Halldórsdóttir
»Ég varð ljósmóðir
vegna þess að ég gat
ekki og get ekki enn
ímyndað mér skemmti-
legra starf.
Höfundur er ljósmóðir.
Við erum að leita að íbúðarhúsnæði til leigu í allt að þrjú ár frá ca. 1. sept./1. okt.
2008. Húsnæðið þarf að bjóða upp á þann möguleika að hafa séraðstöðu t.d.
aukaíbúð/íbúðarherbergi eða bílskúr sem væri hægt að nota sem íbúð. Við erum
samsett þannig: fimmtug hjón með 9 ára dreng og eldri son okkar, 30 ára, sem
fær til sín 11 ára og 5 ára dætur sínar aðra hverja helgi (hann er í námi). Við erum
algerlega reglusöm, reykjum ekki og engin húsdýr. Stærð húsnæðis er ekki
aðalatriðið, heldur skipulagið. Þannig að margt kemur til greina.
Upplýsingar gefur Ingibjörg í síma 891 9218
eða á ingibjorgth@simnet.is
ÍBÚÐARHÚSNÆÐI ÓSKAST Á
HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
Opið hús í dag á milli 13-15 að
Þórðarsveig 4
Um er að ræða mjög góða ca. 85
fm 3ja herbergja íbúð á 4.hæð í
góðri vel staðsettri lyftublokk. Íbúð
fylgir gott stæði í lokuðu bílskýli.
Þvottahús í íbúð, suðursvalir.
Parket og flísar á gólfum. Góð vel
skipulögð íbúð á góðum stað. Íbúð
er laus við kaupsamning.
Áhv. Ca 13,7 m. V. 23,9m.
Bjarki og Kolbrún taka í móti þér
og þínum á milli 13 og 15
Opið hús
Þórðarsveigur 4
Óskum eftir einbýlishúsum/par eða
raðhúsum á söluskrá, fagljósmyndari
tekur myndir.
Hafið samband:
Bárður Tryggvason S. 896 5221
Finnbogi Hilmarsson,
Einar Guðmundsson og
Bogi Pétursson
löggiltir fasteignasalar
Opið mán.- fös. frá kl. 9-17
Sími
530 6500
Laugarnesvegur
Góð og mikið endurbætt 85 fm, 3ja
herbergja íbúð á 3. hæð. Nýtt
eldhús og vönduð gólfefni. Góðar
suðvestur svalir og stór skjólgóður
bakgarður.
V. 22,9 m.
Góð 80 fm, 3ja herbergja íbúð í
kjallara á fallegum rólegum stað í
vesturbænum. Sérinngangur, tvö
svefnherbergi, opin stofa og eldhús.
Stór skjólgóður bakgarður í suður í
góðri rækt .
V. 22,9 m – Laus strax.
TIL SÖLU
Tómasarhagi
Nánari upplýsingar veitir
Bogi Molby Pétursson fasteignasali. 699 3444
Mjög falleg 134 fm þakíbúð á frá-
bærum stað við Eiðistorg með glæsi-
legu útsýni. Íbúðin er á tveimur
hæðum og með þremur svölum. Neðri
hæðin skiptist í rúmgott eldhús með
góðri borðaðstöðu og útgengi út á
austur svalir. Baðherbergi með flísum
á gólfi og veggjum. Lagt fyrir þvottavél
og þurrkara. Mjög stórt ca 25 fm
hjónaherbergi með góðum skápur og
útgengi út á vestur svalir. Efri hæðin
skiptist í parketlagða stofu með góðri
lofthæð, parketlagt svefnherbergi og
stórar 16,5 fm þaksvalir með
mynsturhellum og glæsilegu útsýni.
Lagt fyrir heitum potti.
Berg fasteignasala, Bolholt 4
Sími 588 5530 • Netfang: berg@berg.is
Grétar J. Stephensen löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali
Eiðistorg 9 - Bjalla merkt 403 - Seltjarnarnes
Opið hús í dag milli klukkan 16:00 og 18:00
M
b
l1
02
62
59
Gunnar og Hrafnhildur taka á móti
áhugasömum
Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali.
Borgartúni 22 • 105 Reykjavík • Fax 5 900 808
fasteign@fasteign.is • www.fasteign.is
5 900 800
SÖLUSÝNING Í DAG KL: 14–16:00
Eigendur á staðnum
M
b
l1022447
Sýnum glæsilegt og vandað 90,4 fm vel skipulagt heilsárshús við
Lækjarmýri í landi Mýrarkots rétt við Hraunborgir, hús stendur á
eignarlóð. Húsið er byggt á staðnum og er úr fyrsta flokks harð-
við, reist á steyptum sökklum og eru allar hitalagnir í gólfplötu.
Húsið er fullbúið að utan sem innan með innréttingum, lóð gróf-
jöfnuð.
Verð kr: 27.9.- Tilboðsverð út júní 2008 kr: 20.9.-
Upplýsingar: Sveinn Eyland sölumaður fasteign.is gsm: 6-900-820