Morgunblaðið - 13.07.2008, Side 36

Morgunblaðið - 13.07.2008, Side 36
36 SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÝMSIR hafa upp á síðkastið rokið fram á ritvöllinn og úthrópað Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra sem svikara vegna þess að hann fyrir hönd rík- isstjórnarinnar und- irritaði nýverið viljayfirlýsingu ásamt fulltrúum Norðurþings og Al- coa um áframhald þeirra rannsókna sem staðið hafa yfir um hagkvæmni þess að reisa álver á Bakka við Húsavík. Afstaða sumra kemur ekki á óvart, þeir eru á móti öllum áformum um nýtingu þeirra auðlinda sem felast í vatnsafli og jarðvarma í landinu. Af- staða annarra kemur meira á óvart. Fyrir síðustu kosningar lagði Sam- fylkingin fram ákveðnar hugmyndir í umhverfismálum undir slagorðinu Fagra Ísland, en eitt megininntak þeirrar stefnu fólst í að fresta áform- um um frekari uppbyggingu stóriðju á meðan unnið væri að kortlagningu á verðmætustu náttúrusvæðum landsins. Skýrt var tekið fram þá og ítrekað við gerð stjórnarsáttmála ríkistjórnarflokkanna að ekki yrðu stöðvaðar þær framkvæmdir eða rannsóknir sem þegar eru í gangi. Á þeim svæðum sem verið er að rann- saka í Þingeyjarsýslum var þegar búið að gefa grænt ljós á virkjanir svo framarlega sem nægjanleg orka yrði til staðar. Við Íslendingar þurfum á því að halda að nýta náttúru- auðlindir okkar til at- vinnusköpunar. Framhjá því verður heldur ekki horft að það þarf stóra og öfl- uga kjölfestu í atvinnu- líf landsbyggðarinnar til að snúa við þeirri fólksfækkun sem þar hefur átt sér stað undanfarin ár, þetta á ekki hvað síst við á Norðausturlandi þar sem íbúum hefur fækkað verulega á síðasta áratug. Það dugar lítið að benda á að atvinnuleysi nú sé lítið þegar rúmlega 12% íbúanna hafa flust burt, hver væri staða þessara 12% íbúa á norðausturhorni landsins hefðu þeir ekki flúið sína heima- byggð? Hástemmdum yfirlýsingum stjórnmálamanna um eflingu byggð- ar í landinu verða að fylgja athafnir. Það dugar ekki að segja að í stað fiskvinnslu og fiskiðnaðar skuli íbúar landsbyggðarinnar bara taka sér eitthvað annað fyrir hendur og að hvergi megi hrófla við náttúru lands- ins. Fiskiðnaður verður aldrei aftur sú undirstaða byggðar í landinu sem hann var, og skiptir þá ekki máli hvort afli við Íslandsstrendur glæð- ist á ný. Það þarf í dag ekki nema þriðjunginn af þeim mannskap sem þurfti fyrir 10 árum til að vinna þann afla sem á land berst. Ferðaþjónusta er góðra gjalda verð en árstíða- bundin atvinnugrein og landsbyggð- arfólk eins og aðrir þurfa atvinnu og tekjur allt árið. Gríðarlegur flutn- ingskostnaður kemur í veg fyrir eða hamlar mjög allri framleiðslu- starfsemi á landsbyggðinni a.m.k. þeirri sem byggist á vöruútflutningi og skiptir þá engu hvort um er að ræða flutning á stærsta markaðs- svæði landsins eða til útlanda. Þetta eru staðreyndir sem ekki verður svo auðveldlega horft framhjá. Einstrengileg vinnubrögð í at- vinnumálum sem flokka atvinnulífið í landinu í gott og slæmt skila okkur ekki fram á veginn. Hlutverk stjórn- málaflokka er að móta stefnuna og setja atvinnurekstrinum lagaramma sem tryggir að fyrirtæki, hverju nafni sem þau nefnast, vinni innan setts ramma, sem þá um leið tryggir að unnið sé í sátt við umhverfið. Að hafa atvinnu skiptir alla máli Umhverfismál skipta okkur öll máli, en það gera atvinnumálin líka, segir Ásgeir Magnússon Ásgeir Magnússon »Einstrengileg vinnu- brögð í atvinnu- málum sem flokka at- vinnulífið í landinu í gott og slæmt skila okkur ekki fram á veginn. Höfundur er forstöðumaður Skrifstofu atvinnulífsins á Norðurlandi. UNDANFARNA daga hafa margir tjáð sig um mál Ken- ýamannsins Paul Ram- ses sem var fluttur héð- an í varðhald á Ítalíu, burt frá konu sinni og ungu barni. Flestir virðast reiðir yfirvöld- um og telja að þau hafi farið offari. Sumir tala um að reglur um dvalarleyfi hér á landi séu of strangar. Aðrir efast um að yfirvöld hafi farið að lögum. Ég þekki ekki reglurnar sem ráða því hvort útlendingar mega flytja til Íslands og get því ekki gagnrýnt þær af neinu viti. Ég held samt að þær hljóti að vera óþarflega strangar því mjög fáir flóttamenn fá hæli hér á landi og fólk sem vill flytja hingað frá löndum utan Evrópska efnahags- svæðisins fær yfirleitt ekki atvinnu- og dvalarleyfi. Hér hefur mannekla verið vandamál svo ár- um skiptir. Það ætti því að vera öllum til góðs að hleypa fleirum inn í landið. Ég kann heldur ekki nóg í lögum til að geta fullyrt hvort meðferðin á Paul var lögleg. Mér finnst þó undarlegt ef hún stenst meðalhófs- reglu stjórnsýslulaga og mér finnst líka und- arlegt að yfirvöld geti leyft sér að birta úr- skurð um flutning manns úr landi kl. 16 þann 2. júlí og framkvæma hann kl. 6 morguninn eftir eins og gert var. Ætli það sé einber tilviljun að birtingin var þegar embætti, sem hægt var að krefja svara, höfðu lokað skrifstofum sínum og brottflutning- urinn fór fram áður en þau opnuðu daginn eftir? Var þarna eitthvað á ferð sem illa þolir dagsins ljós að sjá? Það er von að fólk spyrji. Það er líka von að fólk bollaleggi um þessi lögfræðilegu atriði þegar fréttist af nöturlegri meðferð á fjölskyldu með nokkurra vikna gamalt barn. En ég held samt að þessar pælingar um reglur og lög nái ekki utan um allt sem hér er í húfi. Við sem erum reið erum, að ég held, fæst reið vegna þess eins að hugsanlega hafi verið vikið frá ein- hverjum lagabókstaf. Við erum reið vegna þess að hvað sem öllum lögum og reglum líður er framkoma yfir- valda við Paul og fjölskyldu hans ómannúðleg. Ég held að hjá mörgum okkar tengist þessi reiði særðu þjóð- arstolti. Það þykir sumum fínt nú um stundir að gera heldur lítið úr þjóð- arstolti. En það er grunnfærnislegt að vísa því algerlega á bug. (Ég hef reynt að útskýra þetta í grein um þjóðernisstefnu sem liggur frammi á http://this.is/atli/.) Stór hluti Íslendinga vill ekki bara trúa því að landið sé fagurt og bók- menntarfur þjóðarinnar merkilegur. Heilbrigt þjóðarstolt margra, von- andi flestra, byggist líka á þeirri trú að hér sé mannúðlegt stjórnarfar, mannréttindi séu virt og alþýða fólks fái um frjálst höfuð strokið. Stolt af þessu tagi ýtir undir sam- stöðu um mikilsverð gildi og ég held að það sé öllum til góðs að menn, sem trúað er fyrir pólitísku valdi og op- inberum embættum, reyni að hlúa að því. Okkur sem mislíkar meðferðin á Paul og hvernig yfirvöld fara að minnsta kosti alveg að mörkum þess sem lög og mannréttindasáttmálar leyfa – okkur mislíkar kannski mest vegna þess að okkur finnst stjórn- völd gera lítið úr gildum sem þjóðin ætti öðru fremur að standa saman um. Landflótta Kenýamaður og sært þjóðarstolt Atli Harðarson skrifar um mál Pauls Ramses Atli Harðarson » Okkur sem mislíkar meðferðin á Paul finnst stjórnvöld gera lítið úr gildum sem þjóð- in ætti öðru fremur að standa saman um. Höfundur er heimspekingur og starfar við Fjölbrautaskóla Vesturlands ... í öruggum höndum Fjarðargötu 19 • Fax 565 5572 Opið: mán-fim 9-18 og fös 9-17 Traust og góð þjónusta + Örugg skjalagerð = Vel heppnuð fasteignaviðskipti Gunnar Sv. Friðriksson hdl. löggiltur fasteigna- og skipasali www.fasteignastofan.is • Allar eignir á mbl.is 565 5522 Álfaskeið - Hafnarfirði Í einkasölu 163,7 fm. einlyft raðhús með bílskúr á þessum vinsæla stað, miðsvæðis í Hf. Skjólgóður garður í suður, þrjú svefnher- bergi, sólhýsi og parket á gólfum. Stutt í skóla og alla þjónustu. Verð 41,2 millj. FASTEIGNA- MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. - OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/. Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. - Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali. ÆGISÍÐA - GLÆSILEG EFRI SÉRHÆÐ Glæsileg og mikið endurnýjuð 169 fm efri sérhæð með fernum svölum auk 32,8 fm sérstæðs bílskúrs við opna svæðið á Ægisíðunni. Eldhús með nýjum sérsmíðuðum innrétt- ingum, stórar samliggjandi stofur, þrjú herbergi og endurnýjað bað- herbergi með vönduðum tækjum. Ris yfir íbúðinni nýtt sem þvottaherbergi og geymsla auk sér geymslu í kjallara. Útsýnis nýtur úr stofum og af svölum út á sjóinn að Reykjanesi og víðar. Teikn. liggja fyrir að nýrri rishæð ofan á húsið. Verð 85,0 millj. TJARNARGATA Mjög fallegt og mikið upprunalegt 232,1 fm einbýlishús á þessum fal- lega stað við Reykjavíkurtjörn. Hús- ið sem er kjallari, tvær hæðir og geymsluris er í dag innréttað sem tvær íbúðir. Eignin skiptist m.a. í samliggjandi skiptanlegar stofur með skála útaf og útgangi á lóð, 4 herbergi, eldhús og baðherbergi auk þvottaherbergis og sér 2ja herb. íbúðar í kjallara. SÓLEYJARGATA Virðulegt og glæsilegt einbýlishús á þessum eftirsótta stað í miðborg- inni. Eignin er 3 hæðir og kjallari um 365 fm auk 24 fm bílskúrs. Fjórar stórar stofur, tvö eldhús og fjöldi herbergja. Aukin lofthæð á aðal- hæð um 2,75 metrar. Stórar svalir úr stofum aðalhæðar, svalir út af tveimur herbergjum 2. hæðar og útgangur á þrennar svalir úr stofum 3. hæðar. Lóðin er eignarlóð 826 fm að stærð. SUMARBÚSTAÐUR VIÐ MEÐALFELLSVATN Bústaðurinn er 46,2 fm að stærð auk geymsluskúrs sem stendur á skjólsælum stað undir hlíð með út- sýni yfir vatnið og fjallahringinn. Verönd umlykur bústaðinn á þrjá vegu. Lóðin er 2.500 fm eignarland við vatnið og er í góðri rækt um- hverfis húsið. Verð 18,5 millj. MELABRAUT - SELTJARNARN. ENDURNÝJAÐ EINBÝLI MEÐ BÍLSKÚR Einbýli á 3 hæðum sem er 236,6 fm auk 26,8 fm bílskúrs á 802fm eign- arlóð. Samþykktar teikningar fyrir 120fm stækkun á húsinu. Aukaíbúð er í kjallara hússins sem er í útleigu. Nánari upplýsingar á skrifstofu. KIRKJUSANDUR - LÚXUSÍBÚÐ Á EFSTU HÆÐ Glæsileg 195 fm íbúð á efstu hæð auk 37,2 fm geymslu og vínkjallara og tveggja sér bílastæða í bílakjall- ara. Íbúðin er innréttuð á afar vand- aðan og smekklegan hátt. Glæsi- legar, rúmgóðar stofur, arinstofa og borðstofa, sjónvarpshol, vel útbúið eldhús, 2 herbergi og baðherbergi auk gesta w.c. Tvennar flísalagðar svalir. Útsýni yfir borgina, sundin og víðar. Húsvörður.Eign sem vert er að skoða. Verðtilboð. LINDARGATA ELDRI BORGARAR Góð 52 fm íbúð á 4. hæð í nýlegu lyftuhúsi fyrir 67 ára og eldri. Stofa með opnu eldhúsi, 1 herb. og bað- herb. með sturtu og þvottaað- stöðu. Svalir í vestur. Sérgeymsla á neðstu hæð. Öll þjónusta og fé- lagsþjónusta í húsinu. Húsvörður. Laus strax. Verð 20,5 millj.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.