Morgunblaðið - 13.07.2008, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 2008 39
MINNINGAR
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
UNNUR HERMANNSDÓTTIR,
andaðist á Droplaugarstöðum miðvikudaginn
9. júlí.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
17. júlí kl. 13.00.
Ásthildur Ólafsdóttir, Guðjón Bjarnason,
Þorbjörg Ólafsdóttir,
Guðfinna Ólafsdóttir, Guðmundur H. Eiríksson,
Erla Ólafsdóttir,
Páll Ólafsson, Þuríður K. Heiðarsdóttir
og ömmubörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
EIRÍKUR ALEXANDERSSON
frá Grindavík,
Prestastíg 11,
Reykjavík,
lést á krabbameinsdeild Landspítala við Hringbraut
föstudaginn 11. júlí.
Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju föstudaginn
18. júlí kl. 14.00.
Hildur Júlíusdóttir,
Almar Eiríksson, Kittý Magnúsdóttir,
Leifur Eiríksson, Þórey G. Guðmundsdóttir,
Margrét B. Eiríksdóttir, Edvard G. Guðnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elsku hjartans mamma okkar, tengdamamma,
systir og amma,
JÓNÍNA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Rjúpufelli 7,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju mánudaginn
14. júlí kl. 13.00.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Karitas
heimahjúkrun og SOS-barnaþorpin.
Guðmundur Þór Sigurgeirsson,
Sigríður Margrét Sigurgeirsdóttir, Jón Arason,
Katrín Jóna Sigurgeirsdóttir, Guðbergur Sigurpálsson,
Hólmfríður Jóna Kramer, Ray Kramer,
Páll Helgason, Silla Runólfsdóttir
og barnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og systir,
KRISTJANA V. GUÐMUNDSDÓTTIR,
Skúlagötu 40,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
föstudaginn 27. júní.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug.
Kristjana Kjartansdóttir, Kári Jónsson,
Bjarni Bragi Kjartansson,
Kjartan Kárason, Berglind Guðmundsdóttir,
Aron Kárason,
Anton Kári Kárason,
Júlía Hrefna Bjarnadóttir,
Guðmundur Atlas Kjartansson,
Ragnheiður Guðmundsdóttir.
✝
Ástkær frænka mín,
HELGA KRISTJÁNSDÓTTIR,
Brekkustíg 14,
Reykjavík,
lést á Droplaugarstöðum að kvöldi fimmtudags
10. júlí.
Jarðarför verður tilkynnt síðar.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Hlíf Thors Arnlaugsdóttir.
✝
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
MARGRÉT PÉTURSDÓTTIR,
Álfheimum 23,
Reykjavík,
lést miðvikudaginn 25. júní á líknardeild
Landakotsspítala.
Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey að hennar ósk.
Þökkum samúð og hlýhug.
Steinvör Edda Einarsdóttir, Rögnvaldur S. Gíslason,
Svanhildur Traustadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku vinkona, nú er
komið að kveðjustund
og söknuðurinn er mik-
ill. Vinátta og um-
hyggja Öldu var gjöf,
meðal bestu gjafa sem
auðnast. Þessi vinátta byrjaði í janúar
1981 er ég fór að vinna í íþróttahúsi
Njarðvíkur undir hennar handleiðslu.
Hún hefur kennt mér margt í þessu
lífi, styrkt mig þegar sorg mín var
mikil. Þá var gott að geta grátið hjá
henni og Bigga, fengið huggun fyrir
mig og börnin mín. Hún sagði þeim að
hún væri Alda Njarðvíkuramma sem
alltaf væri til staðar fyrir þau.
Við áttum svo margar skemmtileg-
ar stundir saman, fórum til útlanda,
hittumst í sumarbústaðnum og fórum
árlega á vortónleika Karlakórs
Reykjavíkur. Þín verður sárt saknað
við hverja þessara athafna sem og
allra þeirra sem hún kom að í lífi
mínu.
Takk elsku vinkona fyrir allt sem
þú varst mér og minni fjölskyldu.
Megi englar guðs vera með þér og
hvíldu í friði.
Elsku Biggi minn ég veit að sorg
þín er mikil en ég vona að ég geti fært
þér hluta af þeirri hugarró sem þið
færðuð mér. Hugur minn er hjá ykk-
ur öllum.
Sveindís Árnadóttir.
Alda Jónsdóttir
✝ Alda Jónsdóttirfæddist á Siglu-
firði 28. júní 1937.
Hún lést á Sjúkra-
húsinu í Keflavík
21. júní síðastliðinn
og fór útför hennar
fram frá Njarðvík-
urkirkju 26. júní.
Við kveðjum með
trega og söknuði elsku-
legu Öldu okkar.
Hún var okkur svo
kær, tók ávallt á móti
okkur með opnum
örmum og umvafði
með sinni einstöku
nærveru og væntum-
þykju.
Minning um ein-
staka konu mun búa í
hjörtum okkar um
ókomna tíð.
Takk fyrir allt elsku
Alda.
Við færum Bigga, börnum, barna-
börnum og öðrum aðstandendum
okkar innilegustu samúðakveðjur
Drottinn er minn hirðir, mig mun
ekkert bresta.
Á grænum grundum lætur hann mig
hvílast,
leiðir mig að vötnum,
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu
fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert illt,
því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
Þú býr mér borð
frammi fyrir fjendum mínum,
þú smyr höfuð mitt með olíu,
bikar minn er barmafullur.
Já, gæfa og náð fylgja mér
alla ævidaga mína,
og í húsi Drottins bý ég
langa ævi.
(23. Davíðssálmur).
Ingvi Steinn og Ingunn Þormar.
Elsku besta amma mín er farin frá
mér. Ég veit samt að andi hennar er
hér enn og hún fylgist áfram með
okkur með sinni einstöku alúð og um-
hyggju. Ég kýs því að beina orðum
mínum beint til hennar.
Elsku amma, ég trúi ekki að ég eigi
aldrei eftir að hitta þig aftur, eigi
aldrei eftir að sitja með þér við eld-
húsborðið á Holtsgötunni, eigi aldrei
eftir að heyra röddina þína í síman-
um, eigi aldrei eftir að faðma þig og
kyssa. Ég á eftir að gera svo margt í
lífinu sem ég vildi deila með þér. Ég
gat alltaf leitað til þín, þú hafðir alltaf
tíma til að hlusta og mundir eftir öllu
sem ég sagði þér. Það segir held ég
mest um þig, elsku amma mín, að öll-
um barnabörnunum fannst sem þau
væru í uppáhaldi. Þú veittir okkur,
hverju og einu, alla þá ástúð og at-
hygli sem hægt var að fá frá einni
manneskju.
Þegar ég var lítil flúði ég til þín
þegar ég var ósátt. Hélt þá upp Þóru-
stíginn þar sem þú tókst á móti mér,
varst í viðbragðsstöðu eftir að hafa
fengið símtal þar sem tilkynnt var að
hin skapstóra nafna þín væri á leið-
inni.
Það sem hjálpar mér mest núna
eru allar yndislegu minningarnar um
þig. Þegar ég byrjaði að skrifa þessar
línur rifjuðust upp svo mörg atriði um
þig að ómögulegt er að gera þeim
nægilega góð skil hér. Ég get þó ekki
sleppt því að minnast á hvað þú varst
alltaf vel til höfð, þrættir fyrir að hafa
dottað yfir sjónvarpinu alveg fram á
síðasta dag, öll heilræðin sem þú
bjóst yfir, hvað þú varst orkumikil
þegar þú hljópst óteljandi ferðir upp
og niður stigann á hverju kvöldi,
rauði hringurinn þinn, lottó á laug-
ardögum, jólakökurnar og hakkboll-
urnar. Ég veit að þú varst besta
amma í heimi.
Nú er ég mjög þakklát fyrir sam-
veruna með þér og afa á föstudaginn
þar sem ég eldaði handa þér í fyrsta
og eina skiptið. Það var gott að geta
launað þér að einhverju leyti allar
máltíðirnar sem þú gafst mér. Þegar
ég fór varstu byrjuð að dotta í stóln-
um þínum en þrættir auðvitað fyrir
það þegar afi spurði, vildir sko ekki
viðurkenna að vera þreytt. Ég þakka
einnig sérstaklega fyrir daginn þegar
við systurnar fórum með þig og afa í
bæjarferð í mars, fjölskyldu–kvöldið í
apríl, sveitaferðina um páskana og
verslunarferðina í maí. Þú varst svo
ánægð með þessa hittinga og þakk-
aðir svo vel fyrir þig. Faðmaðir mig
lengi og sagðir hvað þú værir ánægð
með allt saman. Ég mun aldrei
gleyma því samtali.
Þú áttir svo erfitt með að vera veik
en ég veit að þér líður betur núna. Þú
ert sú sem ég lít mest upp til í lífinu og
ég á þér svo margt að þakka, þú
studdir mig alltaf og samgladdist. Þú
varst svo stolt af mér, alnöfnu þinni
og elsta barnabarninu. Ég þakka fyr-
ir að vita af því. Ég veit líka að þú
veist hvað ég elskaði þig mikið og vildi
allt fyrir þig og afa gera. Ég lofa af
öllu hjarta að við munum hugsa vel
um afa, ekki hafa neinar áhyggjur af
því. Núna ert þú engillinn minn sem
fylgist með mér og verður ávallt til
staðar í hjarta mínu. Elsku amma
mín, ég ætla að halda áfram að gera
þig stolta af nöfnu þinni, „Öldu litlu“.
Hvíl í friði.
Alda Jónsdóttir.
Hvað sjá þau og
heyra sem fæddust
upp úr síðustu alda-
mótum og verða ern
um næstu aldamót? Stundum má
velta fyrir sér hvernig breyting-
arnar á Íslandi frá 1920 til dagsins í
dag verkuðu á huga þess fólks sem
lifði þá byltingarkenndu tíma og
hvernig þeir mótuðu Íslendinginn.
Verða hughrifin jafndjúpstæð og
umfangsmikil eftir þessa 21. öld
okkar og eftir öldina sem leið?
Nokkrum körlum og konum hef
ég kynnst um ævina, fulltrúum
þessarar kynslóðar, sem náði að lifa
dramatískan umsnúning þjóðfélags-
ins, og auðvitað fækkar þeim óðum.
Með einhverjum hætti þykist mað-
ur sjá ákveðna drætti meðal fólks-
ins, án þess að alhæfa; sérstætt
sambland af nægjusemi, hjálpsemi
og sjálfsbjargarviðleitni í einn stað
en áræðni og þrákelkni í annan.
Flest eða allt þetta átti við Sig-
urgest Guðjónsson og svo sem
meira til; manninn sem fæddist inn
í aldagamla samfélagið, lærði því
Sigurgestur Guðjónsson
✝ SigurgesturGuðjónsson
fæddist á Stokks-
eyri 5. júní 1912.
Hann lést á Land-
spítalanum við
Hringbraut 6. júní
síðastliðinn og fór
útför hans fram frá
Fossvogskirkju 16.
júní.
næst að gera við þar
um bil Gamla Ford en
fylgdi síðan áhuga-
samur tæknibylting-
unni, einkum eftir
seinni heimsstyrjöld-
ina, og baráttu fag-
hóps bifvélavirkja
langt fram eftir öld-
inni. Samtímis braust
hann áfram til al-
mennilegra húsa-
kynna og ágæts lífs
við Hrauntungu í
Kópavogi, með góða
konu sér við hlið og
fjögur börn. Sú ferð var lík mörg-
um öðrum meðal þeirrar alþýðu
sem lærði undurfljótt til nýrra
verka og vann þau af mikilli trú-
mennsku og virðingu við fag og við-
skiptavini. Sá tími var líklega býsna
ólíkur því sem við þekkjum núna en
menn gætu engu að síður lært eitt
og annað af honum.
Ég kynntist Sigurgesti af því að
við Ásgeir sonur hans gerðumst
fóstbræður á námsárunum og það
er auðvelt að muna hægðina, föð-
urlegar, viturlegar en fáorðar ráð-
leggingar og laumulegan húmor
sem einkenndi manninn; auðvelt að
kinka kolli, brosa út í annað yfir
minningunum og þakka elskulega
viðkynningu. Um leið er sorg í
hjarta og samúð auðsýnd öllum að-
standendum öldungsins.
Ari Trausti Guðmundsson.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Lengd | Minningargreinar séu
ekki lengri en 3.000 slög (stafir
með bilum - mælt í Tools/Word
Count). Ekki er unnt að senda
lengri grein. Hægt er að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur, og votta
þeim sem kvaddur er virðingu
sína án þess að það sé gert með
langri grein. Ekki er unnt að
tengja viðhengi við síðuna.
Minningargreinar