Morgunblaðið - 13.07.2008, Side 40

Morgunblaðið - 13.07.2008, Side 40
40 SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Hermann Jónasson Jón G. Bjarnason Steinsmiðja • Viðarhöfða 1 • 110 Reykjavík •  566 7878 • Netfang: rein@rein.is • Vönduð vinna REIN Legsteinar í miklu úrvali ✝ Helgi Þór Más-son fæddist í Reykjavík 3. apríl 1984. Hann lést laugardaginn 28. júní síðastliðinn. Foreldrar eru Guð- rún Pétursdóttir, f. 21.2. 1947, og Már Gunnarsson, f. 4.12. 1944, maki Stein- unn Hreinsdóttir, f. 16.8. 1958. Bróðir Helga Þórs sam- mæðra er James Joseph Devine, f. 28.9. 1976, maki Ingibjörg Björnsdóttir, f. 18.4. 1980, sonur þeirra Björn Helgi, f. 4.6. 2007. Systkini Helga Þórs samfeðra eru: 1) Davíð, f. 28.5. 1968, maki Lilja Ragnhildur Einarsdóttir, f. 10.12. 1973, barn þeirra Styrkár Jökull, f. 11.6.2003. Fyrir á Dav- íð soninn Arnór Kára, f. 8.5. 1989. 2) Gunnar Már, f. 15.3. 1971, maki Lína Rut Wilberg, f. 11.3. 1966, börn þeirra Sigrún, f. 18.5. 1998, d. 21.5. 1998, Már, f. 19.11. 1999 og Nói, f. 19.7. 2004. 3) Harpa, f. 27.11. 1975. 4) Styrmir, f. 20.2. 1992. Helgi Þór er stúdent frá Menntaskólanum við Sund og hafði sótt tveggja ára nám í verkfræði við Háskóla Íslands. Undanfarið starfaði hann hjá Seglagerðinni Ægi. Útför Helga Þórs fór fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 8. þessa mánaðar. Elsku hjartans „blómið“ mitt, sem ég kallaði þig ávallt. Ég ætla ekki að telja upp mörg lýsingarorð en þau eru óendanlega mörg um þig og eru öll falleg. Margt áttum við sameiginlegt en það sem ég met einna mest er að all- ir voru jafnir meðal okkar. Við öf- unduðum engan heldur gáfum við og glöddum ef við gátum. Jesús sagði: „Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig mun lifa þótt hann deyi.“ (Jóh. 11.25) Við áttum þessa sameiginlegu trú. Þau ljós sem skærast lýsa, þau ljós sem skína glaðast þau bera mesta birtu en brenna líka hraðast og fyrr en okkur uggir fer um þau harður bylur er dauðans dómur fellur og dóm þann enginn skilur. En skinið loga skæra sem skamma stund oss gladdi það kveikti ást og yndi með öllum sem það kvaddi. Þótt burt úr heimi hörðum nú hverfi ljósið bjarta þá situr eftir ylur í okkar mædda hjarta. (Friðrik Guðni Þórleifsson.) Ég vil þakka sr. Pálma allan hans mikla styrk og stuðning, einnig „allri“ minni fjölskyldu og föðurfjöl- skyldu, öllum góðum vinum Helga Þórs og þeirra fjölskyldum. Minning um þig er ljós sem mun ávallt lifa með mér. Þú varst alveg „einstakur“ að öllu leyti. Guð veri ávallt með þér. Sjáumst síðar, ástin mín. Þín ávallt elskandi, Mamma. Elsku Helgi Þór, fallegur sumardagur breyttist í einni andrá í martröð – lífið getur verið svo ósanngjarnt og svo óút- reiknanlegt. Mig langar að þakka þér fyrir þær yndislegu stundir sem við áttum saman á undanförnum mánuðum þar sem ég fékk að kynn- ast þér aftur, nú sem fullvaxta myndarlegum karlmanni, manni sem var virkilega gaman að sitja og spjalla við. Þú hikaðir ekki við að setja út á vaxtarlag, hár og skegg- vöxt stóra bróður sem og gera góð- látlegt grín að pabba okkar! Einnig þótti mér mjög vænt um hversu góð- ir vinir þú og Arnór Kári voru og veit ég að hann mat þinn vinskap mikils. Ég er ævinlega þakklátur fyrir þá fjölmörgu hluti sem þú gerð- ir fyrir hann og fyrir þær fjölmörgu góðu stundir sem þið áttuð saman. Við áttum nýlega virkilega góðar samræður þar sem við gerðum upp fortíðina, ræddum framtíðina, vonir og væntingar. Þá virtist gæfan brosa við okkur og ég hlakkaði til að eyða meiri tíma með þér í framtíðinni. Elsku Helgi, ég treysti því og trúi að þú sért á góðum stað þar sem þínu fallega brosi fylgir gleðiglampi í augum. Hjá mér þá lifir minningin um brosmildan dreng sem var allra manna hugljúfi. Ég er ævinlega þakklátur fyrir góðu minningarnar! Helgi, við sjáumst hressir og kátir! Davíð. Á fegursta degi ársins tilkynnti pabbi mér af andláti Helga Þórs bróður míns. Ég á enn bágt með að trúa að það sé satt. Það er svo stutt síðan hann var á sýningu Línu Rut- ar hér í Lúxemborg þar sem við átt- um saman góðar stundir, og allt virtist eðlilegt. Helgi Þór var vinamargur og lét alltaf gott af sér leiða. Jákvæðnin og hjálpsemin fylgdi honum alla tíð. Framtíðarplön voru skýr, þar sem hann stefndi m.a. á háskólanám í haust. Er ég ræddi fráfall Helga Þórs við blindan son minn, sagði hann: „Hann hafði svo fallega rödd.“ Það var yfirbragð hans. Hann var fallegur jafnt að innan sem utan, og hafði sérstaklega góða nærveru. Vanlíðan fólks er ekki alltaf sjáan- leg, og það ristir mig djúpt að hafa ekki getað veitt hjálparhönd. Minn- ing um góðan dreng og bróður mun ávallt lifa í hjarta mínu. Bið ég góð- an Guð að hughreysta elsku pabba, móður, fjölskyldu og vini. Gunnar Már Másson. Þú varst mér svo miklu meira en bara litli bróðir. Á stundum varst mér sem sonur og alltaf varstu minn besti vinur. Það er svo margt sem við höfum gengið í gegnum saman og við eigum svo margar góðar minningar sem ég mun varðveita í hjarta mínu um ókomna tíð. Allt frá unga aldri (11 ára) vildir þú vera álitinn jafningi. Sem dæmi vildir þú fá að greiða fyrir pizzur þegar við pöntuðum og tókst ekki annað í mál en að fá að greiða þinn helming. Góðsemi þín skein alltaf í gegn og þekkja þig allir sem góðan og glaðan dreng með fallegt bros á vör. Þegar ég hugsa til baka rifjast upp fyrir mér stundir þegar mamma var að vinna næturvaktir og ég sá um að hátta þig og láta þig bursta tennur fyrir svefninn. Síðan vökn- uðum við saman, borðuðum morg- unverð og ég kom þér í skólann áður en ég fór sjálfur í skólann. Oft spurði ég þig hvort þú varst búinn að læra. Eftir að ég flutti að heiman fékk ég þig oft heim til mín með skólabækurnar til þess að klára að læra áður en við svo gerðum eitt- hvað skemmtilegt saman eins og að horfa á bíó eða spila tölvuleik. Þeir voru nú nokkrir leikirnir sem við spiluðum í gegnum tíðina og þegar leið á árin átti stóri bróðir erfitt með að halda í við þig. Starcraft var einn af þeim leikjum sem við spiluðum hvað mest í gegnum árin og varð hann einmitt fyrir valinu síðustu kvöldstundina sem við áttum saman. Eftir sigursamlegt kvöld, þar sem við vorum saman í liði, kvöddumst við svo með faðmlagi og kossi með bros á vör. Þessa yndislega minn- ingu mun ég varðveita í hjarta mínu og sækja þegar á reynir. Ég mun ávallt sakna þín, elsku Helgi minn. Þinn „Brói“, James. Einhvern tíma göntuðumst við með það að það væri húmorinn sem veitti okkur styrk til þess að takast á við lífið. Kímnigáfa, húmor og hlátur voru okkar vopn. Það er eins og þú hafir misst sjónar af þeim eitt and- artak, elskulegi bróðir, andartak sem nú hefur breyst í heila eilífð. Hvar var ég þegar þú þurftir á mér að halda til að senda þér koss í hjartað, faðmlag í sálina og pínulít- inn styrk til að halda áfram? Hvar var ég? Hvernig er hægt að sleppa þér? Má svindla og sleppa hluta af þér? Kannski þeim hluta sem þráði annað ævintýri, enga virka daga? Má ég búa til lítið ævintýri þar sem ég get heimsótt þig á kvöldin og haldið í höndina á þér á ný, elskulegi bróðir? Þú sagðist trúa á líf eftir dauðann og ég vona svo sannarlega að þú hafir rétt fyrir þér og ég rangt. En í sorginni og þránni eftir einni stund með þér á ný, sé ég þig fyrir mér með nýja silfraða vængi sem verið er að fægja. Fljótlega þegar sárin eru gróin, verður þér sleppt og þú munt hefja þig til flugs á ný í leit að hinni fullkomnu veröld sem Helgi er hamingjusamur í. Hlátur þinn og fegurð mun lifa í hugskoti okkar sem elskuðum þig. Hægt og bítandi mun svöðusárið í hjarta okkar vonandi gróa og góðar minningar um þig umlykja sálina og veita styrk til að halda áfram. Þín systir Harpa. Það er sárt að kveðja elskulegan bróður minn sem var mér alla tíð svo kær. Helgi var ákaflega ljúfur strákur, glaðlegur og hlýr. Hann var afskaplega góður við mig, litla bróð- ur. Við ólumst upp að hluta til sam- an en hann kom um skeið í heimsókn til okkar aðra hvora helgi. Ég man hvað ég var spenntur að hitta Helga og alltaf tók hann mig litla guttann brosandi í fangið og knúsaði vel og lengi. Helgi var í miklu uppáhaldi hjá mér – hann var einfaldlega frá- bær. Hann var jafnan að grínast í mér, yngri og óreyndari, og var allt- af tilbúinn að leika við mig þrátt fyr- ir aldursmuninn. Hjálpsemi, glað- værð og smitandi hlátur hans er ofarlega í huga. Við hlógum innilega og áttum okkar litlu leyndarmál og ævintýri saman. Helgi var alltaf svo sniðugur og mér fannst hárið á Helga sérstaklega töff, en hann klippti sig gjarnan sjálfur. Eitt sinn þegar hann var hjá okk- ur á Laugarásveginum, ætli ég hafi ekki verið átta ára, þá bað ég Helga um að klippa mig svo ég yrði alveg eins og hann. Eftir að hafa fengið leyfi hjá mömmu klippti Helgi mig inni í baðherbergi og ég man hvað ég var ánægður og stoltur með ár- angurinn. Minningarnar eru ótal margar, einlægu stundirnar, útileg- urnar, ferðirnar í sveitina okkar í Fljótshlíð þar sem við Helgi kveikt- um mörg bálin saman, frjálsir í kyrrð náttúrunnar. Ferðin okkar til Kaupmannahafnar. Þá var síðasta útilega fjölskyldunnar í Grenivík í lok maí ákaflega skemmtileg þar sem Davíð bróðir okkar hélt upp á fertugsafmæli sitt. Helgi keyrði sendiferðabílinn hlaðinn veislutjöld- um, borðum og bekkjum norður í land á föstudeginum og bauð mér að koma með sér. Við keyrðum af stað fullir tilhlökkunar og töluðum um allt milli himins og jarðar, hlustuð- um á tónlist og sungum með. Ég sakna Helga og hefði viljað hitta hann oftar. Við stoppum öll stutt hér og Helgi dvaldi styttra en ég hefði óskað. Við Helgi vorum nánir og spjölluðum nær daglega saman á msn. Það er sárt að eiga ekki eftir að faðma hann aftur en það gerðum við alltaf þegar við hitt- umst. Ég kveð að sinni elskulegan bróður minn með virðingu og sökn- uði og bið alla engla að varðveita hann og geyma. Ég veit að honum líður vel núna þar sem hann er. Ég veit líka að englarnir taka vel á móti honum því Helgi var sérstaklega góður strákur og hvers manns hug- ljúfi. Ég kveð hann með kæru þakklæti fyrir allt. Missirinn er mikill en ég mun ylja mér við góðu minningarn- ar sem ég á um hann og varðveita þær alla tíð. Hlýleiki hans og gæska mun ávallt fylgja mér – og þannig mun Helgi lifa áfram í hjarta mínu. Styrmir litli bróðir. Elsku Helgi Þór. Þegar ég fékk fréttirnar um að þú værir farinn, fann ég hjarta mitt brotna í þúsund mola. Sem betur fer kenndir þú mér að vera sterk, já, þú sem kenndir mér svo margt. Eftir standa minningarnar mínar um þig, bjartar og fallegar, og við munum öll minnast gullfallegs andlits þíns og glitrandi persónuleikans sem þú varst. Þú varst okkur mörgum stoð og stytta og aldrei var tíminn lengi að líða í kringum þig. Það var aldrei friður fyrir símanum þínum sem hringdi stanslaust á meðan við reyndum að eiga rólega stund sam- an, enda vildu allir hafa þig sér við hlið. Svo sem ekki skrýtið, þú varst langskemmtilegasti félagsskapur- inn. Ég man þegar ég kynntist þér fyrst. Það var á áramótunum 2004 og þú varst súkkulaðistrákurinn sem lýstir upp Broadway með bros- inu þínu. Við urðum strax góðir vinir og áttum góðar stundir saman, urð- um hreint alveg óaðskiljanleg. Ég man svo vel eftir þeim tímapunkti þegar ég féll fyrir þér, Helgi minn, og sú stund mun aldrei gleymast. Þú varst brosandi stóra fallega brosinu þínu, að syngja Sælan með Skíta- móral þegar ég lak í gólfið af hrifn- ingu. Fljótt breyttist þessi hrifning í ást, og ég hef elskað þig af öllu hjarta síðan. Þú varst alltaf svo fyndinn og skemmtilegur og öllum líkaði svo vel við þig. Svo góðhjart- aður og sama hvað á gekk milli fólks í kringum þig þá varst þú alltaf vin- ur allra og sá sem leystir flækjurnar svo öll dýrin í skóginum gætu verið vinir. Enda tíðkuðust rifrildi ekki í okkar sambandi, sama hvað ég reyndi að tauta var það ekki hægt, eina sem þú þurftir að gera var að brosa til mín og allur pirringur gleymdist. Það var eitt af því sem ég elskaði mest við þig, ástin mín. Ástin skein úr fallegu augunum þínum og gleðin og hamingjan leyndu sér ekki. Þín ást veitti mér styrk á ótrú- lega marga vegu og þessi styrkur og þín ást munu ávallt búa í hjarta mér. Við skemmtum okkur alltaf svo vel saman. Þú eignaðist vini hvert sem þú fórst og varst ávallt hrókur alls fagnaðar. Sást til þess að öllum liði ávallt vel og gast fengið fólk til þess að hlæja tímunum saman, aðeins við tilhugsunina um þig og brandarana þína. Þú varst algjörlega einstakur og það mun aldrei neinn koma í þinn stað. Ég er svo þakklát fyrir það að hafa fengið að kynnast þér svona ná- ið og átt svona góða tíma með þér. Ég var virkilega hamingjusöm með þér. Þessi ár gleymast aldrei, þú gleymist aldrei. Ég vona innilega að þú hafir fundið frið og ró og að þú vitir það að minningin um þig, þenn- an frábæra strák sem þú varst, lifir að eilífu. Vil að þú vitir það að ég elska þig, okkar ást var sönn. Þú átt alltaf, alltaf stað í mínu hjarta. Hvíldu í friði, ástin mín. Þín Anita Brá Ingvadóttir. Elsku Helgi, hver hefði trúað því að við þyrft- um að kveðja þig svona snemma? Ungur, skemmtilegur og indæll strákur sem átti framtíðina fyrir sér. Þú varst alveg einstakur og ég man alltaf eftir þér með bros á vör. Það er rosalega sárt að hugsa til þess að þú sért farinn. Mér þótti svo vænt um þig og á ekkert nema góðar minningar tengdar þér. Með sein- ustu skiptum sem við hittumst var um páskana. Þá komst þú ásamt Anítu í heimsókn til okkar James og Björns Helga í Lúxemborg. Við gerðum margt skemmtilegt og ég er þakklát fyrir að hafa fengið þann tíma með þér. Þú náðir svo vel til Björns Helga og varst alltaf svo góður við hann. Við James eigum eftir að segja honum sögur af þér og leyfa honum að kynnast þér betur í gegnum þær þegar hann verður eldri. Það er svo erfitt að sætta sig við að þurfa að kveðja þig núna en ég veit ég verð að vera sterk. Ekki bara fyrir mig heldur fyrir James líka. Þótt þú sért farinn mun minning þín ávallt lifa og þín verður saknað. Ég vona að þér líði betur á þeim fallega stað sem þú ert núna á. Guð geymi þig. Þín, Inga. Nú ertu farinn frá okkur bros- mildi frændi minn. Það var alltaf svo gaman að hitta þig, maður komst alltaf í gott skap því þú varst alltaf svo brosmildur og ánægður að öllum leið vel með þér. Enda sést það á vinahópnum sem nú kveður þig. Ég fékk þau forréttindi að fá leyfi eftir að hafa suðað mikið í mömmu til að taka rútuna frá Keflavík til Reykja- víkur til að heimsækja þig og fá að gista stundum, það eru tímar sem ég mun aldrei gleyma, þú sýndir mér um Reykjavík og við fórum um allt. Á kvöldin fórum við svo að hrekkja nágranna þína og í leiki með vinum þínum. Þú þekktir bókstaf- lega alla krakkana í nágrenninu. Þér þótti alltaf svo vænt um mömmu þína og það var svo frábært að sjá Helgi Þór Másson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.