Morgunblaðið - 13.07.2008, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 13.07.2008, Qupperneq 42
42 SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson Útfararþjónusta Davíðs Ósvaldssonar ehf. Davíð Ósvaldsson Útfararstjóri S. 896 6988 / 553 6699 Óli Pétur Friðþjófsson Útfararstjóri S. 892 8947 / 565 6511 ✝ Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru VALGERÐAR SVEINSDÓTTUR, Sigtúni 57, Patreksfirði. Sigþrúður Sveinsdóttir, Pálmey Gróa Bjarnadóttir, Klara Sveinsdóttir, Ingveldur Gestsdóttir, Haraldur Arason. ✝ Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýju við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐLAUGAR PÁLSDÓTTUR, hjúkrunarheimilinu Eir. Inga Pála Björnsdóttir, Magnús G. Björnsson, Laila Björnsson, Björn Espen Magnússon, Kjartan Tumi Magnússon, Ynja Gry Magnúsdóttir, Sunna Nagri Magnúsdóttir og barnabarnabörnin. ✝ Þökkum af alhug öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar kæru ELÍSABETAR GUÐMUNDSDÓTTUR frá Skiphyl, Ánahlíð 16, Borgarnesi. Guðmundur Þorgilsson, Lilja Jóhannsdóttir. ✝ Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, INDRIÐI INDRIÐASON ættfræðingur og rithöfundur frá Fjalli, sem lést föstudaginn 4. júlí, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 17. júlí kl. 11.00. Minningarathöfn verður í Húsavíkurkirkju mánu- daginn 14. júlí kl. 14.00. Indriði Indriðason, Ljótunn Indriðadóttir, Sólveig Indriðadóttir, Björn Sverrisson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. ✝ Salla Sigmars-dóttir fæddist á Akureyri 1931. Hún var bráðkvödd á heimili sínu 17. júní síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Sigmar Hó- seasson og Hólm- fríður Helgadóttir. Móðir Söllu lést þegar hún var 3 ára, og var hún sett í fóstur til Sæ- bjargar Ísleifs- dóttur, sem átti fyrir þrjá syni, Richard, Björn og Emil. Hún ólst upp á Akur- eyri. Eiginmaður Söllu var Leon Einar Carlsson. Hann lést af slysförum 24. febrúar 1973. Þau kynntust 1954, og hófu búskap í Reykjavík. Börn þeirra eru: 1) Sævar Þór Carlsson, f. 1955, maki Dagmar Jó- hanna Heiðdal. Börn Rebekka Rut, f. 1976 og Þór, f. 1988. 2) Greta Carlsson f. 1958. Börn Leon Einar, f. 1977, Magnús Karl, f. 1979, Baldur Freyr, f. 1986, og Andri Már, f. 1990. 3) Jóhanna Carls- son, f. 1962, maki Þórhallur Kristins- son. Börn Fannar, f. 1988, Karen, f. 1993. Barnabarnabörn Söllu eru fimm. Salla starfaði á Vífilsstöðum í Garðabæ við aðhlynningu í 23 ár, eða þangað til hún lét af störfum sökum aldurs. Útför Söllu fór fram frá Foss- vogskapellu 27. júní, í kyrrþey að ósk hennar. Á einu augnabliki þú hvarfst mér á braut. Ég sakna þín svo mikið, það er svo sár þraut, að halda áfram, án þín, eigi ég skilið fæ, í huga verður hjá mér, til þín ég þannig næ. Elsku mamma mín, nú hefur þú hvatt þennan heim allt of fljótt, ég var viss um að ég hefði þig hjá mér í mörg ár í viðbót. Þú varst yfirleitt alltaf svo hress, kenndir þér sjaldan meins, og kvartaðir aldrei yfir neinu. Þér þótti svo vænt um okkur systkinin og barnabörn, og varst alltaf svo góð við okkur. Þótt þú hafir ekki haft mikið á milli handanna, þá var alltaf eins og þú værir milljónamæringur, ég gat alltaf leitað til þín með allt. Ég elska þig svo mikið, og sakna þín óendanlega. Veit eiginlega ekki hvernig lífið verður án þín, elsku mamma mín. Það eina sem huggar mig núna er að þú hafir hitt pabba og alla sem þú þekktir hinum megin. Megi guð og englarnir passa þig og varðveita. Þín dóttir, Greta. Elskuleg tengdamóðir mín er látin. Þegar ég læt hugann reika þá er eiginlega eitt sem er mér efst í huga varðandi hana Söllu, hún var svo skemmtileg, og fyndin, með al- veg sérstakan húmor, sem er ekki öllum gefin. Ég var rúmlega 17 ára gömul þegar ég læddist inn í líf þessarar konu, sem tók mér strax opnum örmum. Fyrst í stað var ég ósköp feimin við hana, sem skiljanlegt er, ég eig- inlega flutti nú bara inn til hennar í kjallarann í Faxatúninu, en hún var alltaf að boðin og búin til að hjálpa mér í einu og öllu, og sér- staklega þegar Rebekka Rut fædd- ist, þá var nú aldeilis dekrað við mann. Hundurinn á heimilinu var kynntur sérstaklega fyrir barninu þegar frumburðurinn kom heim af fæðingardeildinni, Salla sagði mér að setja burðarrúmið á gólfið og leyfa Jobba að kynnast fyrsta barnabarninu, ég var nú ekkert hrifin af því þar sem ég er alls ekki nein hundakona, en Salla sagði mér að treysta sér, þetta væri það sem þyrfti, að leyfa Jobba að þefa að- eins af barninu. Og hún tengdamóðir mín vissi nú alveg hvað hún var að gera, Jobbi var upp frá þessu hin besta barnapía. Það var eitt sem við Salla áttum sameiginlegt, það er að við vorum brjálaðar í súkkulaði! Þannig að það varð að þegjandi samkomulagi okkar á milli, að þegar ég færi út fyrir landsteinana, þá kæmi ég með Lindt súkkulaði með hnetum, og þá meina ég stóra stykkið. Og þegar ég svo mætti til hennar með glaðninginn, þá sagði hún oft og iðulega: Ég er búin að vera að bíða eftir þessu, takk fyrir, og svo skellihló hún. Góðmennsku hennar fæ ég seint þakkað, hún var alveg einstök kona, varð ekkja rúmlega fertug, með þrjú börn á framfæri, og ótrú- lega vinnusöm. Eiginmanni hennar Leoni kynnt- ist ég aldrei, hann var látinn þegar ég kom til sögunnar. Í seinni tíð höfðum við Sævar gert það að sið að kíkja alltaf til Söllu á laugardagskvöldum í smá kaffisopa, en lífið er allt breyting- um háð, þannig að allir kaffibollar sem drukknir verða á laugardags- kvöldum hér eftir eru þér til heið- urs. Ég hefði ekki getað óskað mér betri tengdamömmu, það er eig- inlega bara eins og ég hafi valið hana sjálf, elsku Salla, takk fyrir mig. Þín verður sárt saknað. Dagmar. Salla Sigmarsdóttir Kær vinur og ná- granni er fallinn frá og margs er að minnast eftir um það bil 40 ára samleið. Við höfðum mikið saman að sælda og á tímabili stunduðum við „heilsubótargöng- ur“ um nágrennið með þeim Ásu í öllum veðrum, og því skemmti- legra voru þær sem veðrið var verra. Ennfremur fórum við oft saman á gönguskíðum heiman að og upp að Akrafjalli. Þetta var á meðan enn voru almennilegir snjóavetur og engar girðingar heftu för. Það er erfitt að minnast Gunn- ars án þess að nefna Ásu, svo sam- ofin eru þau í minningunni. Það varð honum, fjölskyldu og vinum því mikið áfall þegar hún féll frá fyrir tíu árum. Þau voru hrókar alls fagnaðar hvar sem þau komu og ákaflega gestrisin og góð heim að sækja enda mikill gestagangur á heimilinu og oft sungið og trallað langt fram á nótt. Þau ferðuðust mikið bæði innanlands og utan og eitt er víst, þau nutu lífsins og lifðu því lifandi. Þau höfðu mjög gaman af veiðiskap, aðallega sil- ungsveiði, og fóru árum saman á Arnarvatnsheiði, og eitt skiptið gengu þau af heiðinni og niður í Miðfjörð, berandi allan útbúnað. Annars get ég lítið tjáð mig um Gunnar Bjarnason ✝ Gunnar Bjarna-son fæddist í Brekkugerði á Búðum í Fáskrúðs- firði hinn 17. sept- ember 1927. Hann lést á dvalarheim- ilinu Höfða á Akra- nesi 24. júní síðast- liðinn og fór útför hans fram frá Akraneskirkju 3. júlí. veiðiskapinn því á þeim vettvangi vor- um við hjónin ekki þátttakendur. Gunnar var mikill náttúrunnandi og áhugasamur um úti- vist og ferðalög og kynnti sér allt ræki- lega áður en lagt var af stað.Við höfum nú um áraraðir nokkur hópur af góðum vin- um ferðast vítt og breitt um byggðir og óbyggðir og var hann með okkur í ferðinni síðastliðið sumar þrátt fyrir að heilsunni væri farið að hraka. Í þeirri ferð sann- aðist eins og svo oft áður hve óhemju fróður og minnugur hann var um ólíklegustu staði. Við vor- um að nálgast náttstað skammt frá Hólmavík og ég fór að dást að litlu gili sem við ókum framhjá. Þá seg- ir hann: „Já, og ef þú gengur spöl- korn þarna inneftir gætirðu fundið steingervinga“. Þá kom í ljós að þau Ása höfðu tjaldað þarna í grenndinni einhvertíma í „fyrnd- inni“. Mér varð að orði hvort til væri þúfa á landinu þar sem þau Ása hefðu ekki annaðhvort tjaldað eða áð. Þessi vinahópur er að stofninum til gamlir félagar úr björgunar- sveitinni „Hjálpinni“ á Akranesi. Fyrir utan sumarferðir og aðrar samvistir höfum við í fjölda ára komið saman á þorranum og etið sviðalappir í bílskúr eins félagans. Þetta var alfarið Gunnars hug- mynd og efa ég að nokkrum öðrum hefði dottið annað eins í hug. Hóp- urinn kallar sig „Lappahópinn“, og Gunnar titlaður „Yfirlappinn“. Ég veit að ég tala fyrir munn alls hópsins þegar ég segi að hans verði sárt saknað í komandi ferð- um og lappaveislum. Þrátt fyrir hrakandi heilsu og þrek var gamansemin aldrei langt undan. Til dæmis kallaði hann göngugrindina „Járnfrúna“ og sömuleiðis var hann mjög ánægður að hafa rekið sig uppundir nýlega því að það kæmi ekki fyrir nema hæstu menn. Nokkur hin síðari ár hefur hann átt góða vinkonu, hana Systu, sem honum þótti mjög vænt um og ferðuðust þau nokkrum sinnum til sólarlanda meðan heilsan leyfði og fær hún bestu þakkir frá okkur öllum. Að lokum flyt ég fjölskyldunni innilegar samúðarkveðjur og bið þeim guðsblessunar. Ingibjörg Ingólfsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.