Morgunblaðið - 13.07.2008, Side 44

Morgunblaðið - 13.07.2008, Side 44
44 SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ AUÐLESIÐ EFNI Á miðvikudags-kvöld tókst samninga-nefndum ríkisins og hjúkrunar-fræðinga að undir-rita samn-inga eftir langar og strangar við-ræður alla vikuna. Að sögn Elsu B. Friðfinnsdóttur, for-manns Félags íslenskra hjúkrunar-fræðinga, náðist fram það megin-markmið að menntun og dag-vinna hjúkrunar-fræðinga verði metin að verð-leikum svo vægi yfir-vinnu minnki. Í samn-ingunum eru 3 megin-breytingar: lækkun yfirvinnu-prósentu, breyt-ingar á vakta-skrá og breyt-ingar á rétt-indum hjúkrunar-fræðinga 55 ára og eldri. „Ég held að við getum verið mjög ánægð með þetta, búin að leggja í þetta vit og strit og nú erum við að upp-skera eins og við sáðum,“ segir Elsa. Nú tekur við kynningar-starf fyrir félags-menn og síðan fer fram raf-ræn atkvæða-greiðsla, sem búist er við að ljúki fyrir 20. júlí. Hjúkrunar-fræðingar semja Morgunblaðið/Frikki Hjúkrunar-fræðingar eru ánægðir með samn-ingana. Surtsey hefur verið sam-þykkt á heimsminja-skrá Menningar-málastofnunar Sam-einuðu þjóðanna (UNESCO). Til-nefning Surts-eyjar var sam-þykkt ein-róma á 32. fundi heimsminja-nefndarinnar í Quebec í Kanada. Í rök-stuðningi segir meðal annars að það sé einna merki-legast að Surts-ey hafi verið vernduð frá því hún mynd-aðist. „Það er mikið gleði-efni að okkur skuli hafa tekist að fá aðra til-nefningu okkar á heimsminja-skrá,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamála-ráðherra, en Þing-vellir voru sam-þykktir sem menningar-minjar árið 2004. Surtsey á heims- minjaskrá Surtseyjar-gos 1963. Alþjóða-viðskipta-stofnunin (WTO), sem 152 ríki eiga að-ild að, ætlar að gera breyt-ingar á styrkjum og tollum í land-búnaði aðildar-ríkja. Það mun hafa mikil áhrif á íslenskan matvöru-markað. Meira verður um er-lenda mat-vöru, það setur þrýsting á verð inn-lendrar mat-vöru. Lagt verður til að heim-ildir til framleiðslu-hvetjandi innanlands-stuðnings til land-búnaðar lækki um 52,5%, og á það við um Ísland, og að toll-bindingar á Íslandi lækki um 66 til 75%. Þýða þessi hlut-föll að íslensk stjórn-völd verði að draga úr beinum stuðn-ingi við land-búnað. Erna Bjarnadóttir, hag-fræðingur hjá Bænda-samtökum Íslands, segir sam-tökin hafa áhyggjur af drögunum, þau geti ekki þýtt annað „en að það þurfi að koma til frekari endur-skoðun á því um-hverfi sem land-búnaðurinn er í“. Áhyggjur af tollum og styrkjum Útlit er fyrir mestu aukningu atvinnu-leysis í þrjá ára-tugi. Horfur á vinnu-markaði eru með þeim hætti að atvinnu-leysi gæti á skömmum tíma farið úr 1% í rúm 3% þegar sumarfríum lýkur í haust. Í dag eru um 2000 manns án at-vinnu, en ef svart-sýnustu spár rætast, upp á 3,8% atvinnu-leysi á næsta ári, þýðir það að um 6.700 manns verði atvinnu-lausir. Atvinnu-lausum gæti því fjölgað um allt að 4000 næsta árið eða svo. Gissur Pétursson, for-stjóri Vinnumála-stofnunar, segir að breyt-ingin verði meiri en margir geri sér í hugar-lund. Atvinnu- leysi eykst Þriggja daga fundi leið-toga G8-ríkjanna lauk í Japan á miðviku-dag með lof-orðum um að reyna að lækka matvæla- og olíuverð, en olíu-verðið hefur fimm-faldast frá árinu 2003. Þeir hvöttu öll ríki heims til að af-nema hömlur á matvæla-útflutningi svo hægt verði að senda mat-væli til landa þar sem skorturinn er mestur. Ekki tókst að jafna djúp-stæðan ágreining iðn-veldanna og þróunar-landa um að-gerðir til að hefta loftslags-breytingar af manna-völdum. Sam-tök sem berjast fyrir aukinni að-stoð við Afríku gagn-rýndu G-8-ríkin fyrir að hafa ekki staðið við lof-orð frá 2005 um aukna að-stoð upp á 2000 milljarða króna. Enn vanti um 770 milljarða króna þar upp á. Leið-togar G8-ríkjanna sögðu í loka-yfirlýsingu fundarins að þótt hag-vöxturinn í heiminum hefði minnkað væru horfurnar bjartar í efnahags-málum. Leiðtoga-fundur G8-ríkjanna Reuters Lög-reglan heldur aftur af mót-mælendum. Íslenska leik-konan Anita Briem leikur eitt af aðal-hlutverkunum í Hollywood- kvik-myndinni Journey to the Center of the Earth 3D, sem var frum-sýnd í vikunni. Anita leikur íslenskan leiðsögu-mann þeirra Brendans Frasers og Josh Hutchersons. Dómarnir sem birst hafa eru frekar já-kvæðir, en myndin þykir fín poppkorns-skemmtun og Anita standa sig með prýði Mark Peikert á New York Press fannst myndin ekki skemmti-leg en er mjög hrifinn af Anitu. „Briem er upp-götvun myndarinnar. Fallegri og kven-legri en nokkur leiðsögu-maður á rétt á að vera, hún ein tekur myndina pass-lega alvar-lega, alltaf ein-læg með blik í augunum fyrir hina full-orðnu í áhorfenda-skaranum.“ Anita Briem fær fínustu dóma í Hollywood Reuters Aníta Briem Ekki til Aston Villa Aston Villa vildi á dögunum fá Eið Smára Guðjohnsen í sínar raðir en hann vísaði enska félaginu strax á bug. West Ham og Portsmouth eru einnig sögð áhuga-söm að fá Íslendinginn. Eiður Smári á tvö ár eftir af samn-ingi sínum við Barcelona, en framtíð hans hjá spænska stór-liðinu skýrist væntan-lega í næstu viku. Stúlkurnar á HM Íslenska kvenna-landsliðið í hand-knattleik skipað leik-mönnum 20 ára og yngri tekur þátt í HM í Makedóníu sem hefst eftir 10 daga. Bæði Úrúgvæ og Chile drógu þátt-töku sína til baka og bauðst þá Íslandi þátt-taka á mótinu. Íþróttir Morgunblaðið/Eyþór Eiður á æfingu. Netfang: auefni@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.