Morgunblaðið - 13.07.2008, Page 46
46 SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
dagbók
Í dag er sunnudagur 13. júlí, 195. dag-
ur ársins 2008
Orð dagsins: Ef þér fyrirgefið mönnum
misgjörðir þeirra, þá mun og faðir yðar
himneskur fyrirgefa yður. (Matt. 6, 14.)
Víkverji finnur ekki fyrir krepp-
unni. Víkverji veit að þetta er nokk-
uð sem ekki er rétt að hafa orð á en
samt er það svo að líf hans er í sama
góða gírnum og síðustu ár. Ef eitt-
hvað er þá er staðan örlítið betri.
Víkverji hefur ekki hátt um þetta
hlutskipti sitt. Hann veit að það þyk-
ir ekki við hæfi að vera ánægður
með kjör sín á tímum sem kenndir
eru við kreppu.
Innst inni finnur Víkverji fyrir
votti af skömmustutilfinningu vegna
þess að kreppan leggst ekki af helj-
arþunga á hann. Hann lætur því
stundum eins og hann finni fyrir
kreppunni. Áður henti Víkverji mat
einfaldlega vegna þess að hann lang-
aði í eitthvað annað en hann hafði
keypt. Kjötfarsið sem keypt hafði
verið í Nóatúni lá því í ísskápnum
þar til komið var yfir síðasta söludag
og rataði þá í ruslið. Nú nýtir Vík-
verji matinn sem hann kaupir. Í
þessu felst vissulega nokkur sparn-
aður en matartímarnir eru ekki eins
skemmtilegir og ófyrirsjáanlegir og
áður.
Það er farið að hvarfla að Víkverja
hvort þessar sparnaðartilraunir séu
þess virði. Af hverju að spara þegar
maður þarf þess ekki? hugsar Vík-
verji en veit um leið að slíkar hugs-
anir bera vott taumlausa léttúð þess
sem vill kökur í stað brauðs.
Víkverja er sagt að kreppan muni
skella á af fullum þunga í haust. Vík-
verji er viðbúinn. Stundum hugsar
hann með sér að það sé allt í lagi að
hann finni fyrir kreppunni. Honum
hefur liðið svo vel síðustu ár að hann
er ekki frá því að mótlæti muni ein-
ungis herða hann og þroska. Í stað
þess að borða grillaðar lambakótil-
ettur mun hann nærast á kjötboll-
um. Það hefur hann gert áður án
þess að verða meint af.
Víkverji bíður haustsins því
óhræddur. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 hola, 4 sól, 7
mánaðar, 8 ákveð, 9
ótta, 11 hey, 13 fyrr, 14
þrætu, 15 þunn gras-
torfa, 17 mjög, 20 töf, 22
verðleiki, 23 gjafmild, 24
þátttaka, 25 glymur.
Lóðrétt | 1 steinar, 2
döpur, 3 sleifar, 4 snúra,
5 líffærið, 6 tómur, 10
ómerkileg manneskja,
12 keyra, 13 hæða, 15
verða hljóður, 16 hrópi,
18 stygg, 19 upptök, 20
hjartarkolla, 21 svöl.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 heilræðið, 8 lánið, 9 iðnað, 10 inn, 11 nösin, 13
gunga, 15 stóll, 18 salli, 21 eik, 22 trauð, 23 auðna, 24
haganlegt.
Lóðrétt: 2 efnis, 3 loðin, 4 æfing, 5 innan, 6 slen, 7 eðja,
12 ill, 14 una, 15 satt, 16 óðara, 17 leðja, 18 skafl, 19 lið-
ug, 20 iðan.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Sudoku
Þrautin felst í því að fylla út í
reitina þannig að í hverjum 3x3-
reit birtist tölurnar 1-9. Það verð-
ur að gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei
má tvítaka neina tölu í röðinni.
Lausn síðustu Sudoki.
www.sudoku.com
© Puzzles by Pappocom
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Staðan kom upp á Boðsmóti Taflfélags
Reykjavíkur sem lauk fyrir skömmu.
Danski alþjóðlegi meistarinn Simon
Bekker–Jensen (2392) hafði svart
gegn Daða Ómarssyni (2027). 47…
Bd3! 48. Hc1 hvítur hefði orðið mát
hefði hann tekið biskupinn á d3. Í
framhaldinu kemst svarti kóngurinn
enn lengra inn fyrir víglínur andstæð-
ingsins og við það bresta varnir hvíts.
48…Ke3 49. Rf1+ Kf2 50. Rd2 Be2 51.
Hh1 Rxf3 52. gxf3 Ke3 53. Rb1 Kxf3
54. c3 Kxe4 55. cxb4 Ke3 56. Rc3 Bf3
57. Hh7 Hc7 58. Rb5 Hd7 59. Rxd6
Hxd6 60. Hxf7 Bd5 og hvítur gafst
upp.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Yfirsetuþraut.
Norður
♠--
♥K2
♦5432
♣10975432
Vestur Austur
♠432 ♠765
♥1086 ♥G975
♦10987 ♦KD6
♣DG8 ♣ÁK6
Suður
♠ÁKDG1098
♥ÁD43
♦ÁG
♣--
Suður spilar 6♠.
Sænski spilarinn Per Olov Sundelin
skaut inn í mótsblöð EM þungum
spiladæmum á opnu borði “fyrir pörin
sem sitja hjá,“ sagði hann. Flestir
keppendur nota reyndar yfirsetutím-
ann til hvíldar, en ýmsir aðrir höfðu
gaman af þrautum Sundelins. Hér á
suður að vinna 6♠ með ♣D út.
Lausn: Suður trompar og tekur alla
spaðana. Engin þvingun myndast hins
vegar, því austur getur haldið eftir
fjórlitnum í hjarta og ♦KD. Vestur sér
um laufvaldið. Í svona stöðum þarf að
gefa slag til að ná réttri slagatalningu,
en suður glatar hótunarspili ef hann
hendir tígli eða hjarta í ♣D. Ekki er þó
of seint að leiðrétta talninguna. Sagn-
hafi spilar hjarta á kóng og ♣10 úr
borði. Vestur fær á ♣G, en fyrst þarf
austur að gefa úrslitaslaginn með því
að henda rauðu spili á undan sagnhafa.
Í dag, 13. júlí er
hinn eldhressi
Hjörtur Hafliða-
son, húsasmíða-
meistari, Dalbraut
27 í Reykjavík,
níutíu og fimm
ára. Hann verður
ekki heima í dag,
en heldur upp á
daginn með fjölskyldunni.
95 ára
Hafliði Þ. Jóns-
son, píanóleikari
og fyrrv. gjald-
keri Bún-
aðarbanka Íslands
og FÍH, verður ní-
ræður 16. júlí nk. Í
tilefni þess er ætt-
ingjum og vinum
boðið til kaffi-
samsætis í Safnaðarheimili Fríkirkj-
unnar að Laufásvegi 13, Rvk, á af-
mælisdaginn milli kl. 15 og 18.
90 ára
Sigríður Kristinsdóttir, sjúkraliði og fyrrverandi
formaður Starfsmannafélags ríkisstofnana, fagn-
ar 65 ára afmæli sínu í dag. Hún er búsett í Vest-
urbænum í Reykjavík.
Aðspurð hvernig hún hyggist eyða deginum
segir Sigríður: „Ég er að hugsa um að skreppa út
á land og fara út að borða með mínum nánustu.“
Hún kveðst ekki alveg viss hvert ferðinni sé heitið
en eru þó greinilega Þingvellir ofarlega í huga.
Sigríður segir að fimmtugsafmæli sitt hafi ver-
ið sérlega eftirminnilegt. „Þá hélt ég 170 manna
veislu en svo man ég vel eftir afmælisdögum þeg-
ar ég var barn í sveit. Þá bjó ég á Glúmsstöðum í Fljótsdal og þá var
alltaf sól á afmælinu í minningunni.“
Í sumar ætlar Sigríður að skella sér austur á land og skoða fornar
slóðir og halda svo til kóngsins í Kaupmannahöfn í ágúst.
Innt eftir því hver hennar helstu áhugamál séu segir Sigríður:
„Það eru pólitík og stéttarfélagsbarátta hvers konar. Svo hef ég
einnig mikinn áhuga á kvenréttindamálum og þá á ég við í víðum
skilningi en ekki í þröngum skilningi efri millistéttarkvenna-
femínista.
Ég hef einnig farið núna á hverjum degi í sumarfríinu mínu klukk-
an 12 á hádegi niður í Skuggasund út af málefnum Paul Ramses. Ég
vona innilega að það mál fái góða lausn hér á landi.“ haa@mbl.is
Sigríður Kristinsdóttir 65 ára í dag
Pólitík og kvenréttindamál
Ásvaldur
Andrésson bif-
reiðasmiður,
Forsölum 1 í
Kópavogi, er átt-
ræður í dag, 13.
júlí. Ásvaldur var
formaður Félags
bifreiðasmiða til
margra ára og
verkstjóri hjá Agli Vilhjálmssyni
hf. Ásvaldur eyðir deginum í faðmi
fjölskyldunnar.
80 ára
;) Nýbakaðir foreldrar?Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum ásamtupplýsingum um fæðingarstað og stund,þyngd, lengd og nöfn nýbakaðra foreldra,á netfangið barn@mbl.is
13. júlí 1787
Fimm verslunarstaðir fengu
kaupstaðarréttindi en misstu
þau aftur 1807 til 1836. Þessi
staðir voru Grundarfjörður,
Ísafjörður, Akureyri, Eski-
fjörður og Vestmannaeyjar.
Þetta gerðist þá …
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Ef þú gætir átt í persónulegu sam-
bandi við hvaða mentor sem er, hver
myndi það vera? Ímyndaðu þér samtal við
hann eða talaðu við hann í annarri vídd.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Vertu þolinmóður gagnvart sjálfum
þér. Þú gerir breytingar þegar þú ert
tilbúinn, ekki fyrr. Þú þekkir mögu-
leikana og eyðir engum tíma til einskis.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Góður ásetningur sigrar alltaf
þann slæma, auk þess sem ástin sigrar
alltaf að lokum. Trú þín á það mun koma
þér og þínum á hærra plan.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Vinnan er verðlaun velmegunar.
Ef þú trúir því ekki að fyrirhöfnin verði til
þess að þú eignist betra líf, er ekkert sem
hvetur þig til verka. Trúðu á sjálfan þig.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Rifrildi mun eiga sér stað um hver
elskar hvern meira. Ójafnvægi í sam-
böndum veltir þeim um koll að lokum. En
staðan gæti breyst til batnaðar.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Það sem bragðast vel er áreið-
anlega ekki það besta fyrir þig. Freud
hefði sagt að „það“ og „sjálfið“ væru að
slást um yfirráðin. Slakaðu á og reyndu
að hemja hvatvísina.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Sumir trúa því að lífið þitt sé allt ritað
niður af þínum eilífa anda. Ef það skyldi
vera satt, máttu treysta því að undir-
meðvitundin leiðir þig á réttar brautir.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Að lesa og hlusta á hvetjandi
verk verður bráðnauðsynlegt þroska þín-
um í næstu viku. Kraftmiklar hugmyndir
verða eldsneyti fyrir mikilvæg verkefni.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú getur verið ánægður með
hlutina eins og þeir eru, en samt leitað
framfara. Vertu opinn fyrir því sem má
betur fara, breyting getur haft áhrif.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þegar smáatriðin raðast ekki
upp eins og vera skal, missir þú trúna á
alheimsaflið. Það er ástæða fyrir öllu, þó
það taki daginn eða áratug að koma í ljós.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú álítur leyndardóminn gjöf
frá alheiminum – eins og þroskaðan ávöxt
sem bíður þess að vera borðaður. Nú
verður erfitt en gaman að komast að safa-
ríkasta hlutanum.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Varnar- og öryggislausu tilfinning-
arnar eru þær sem tengja þig við aðra.
Þegar þú veist ekki hvers skal vænta,
kemur ástin þér að óvörum.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
María S. Her-
mannsdóttir
Smáratúni 20,
Keflavík, er átta-
tíu og fimm ára í
dag, 13. júlí.
Dagsins ætlar
hún að njóta um-
vafin stór-
fjölskyldu sinni á
heimili dóttur sinnar í Hveragerði.
85 ára