Morgunblaðið - 13.07.2008, Side 49
gaurarnir sem voru að gera þetta hérna og um
allan heim höfðu svo litlu við þetta að bæta,
voru bara eins og þeir væru í Bronx árið 1983.“
– En þessi Banksy-stíll, hvað finnst þér um
hann?
„Það er það sem ég kann að meta, þegar
byrjað er að hrista aðeins upp í hlutunum og
fólk er farið að gera sitt,“ svarar Davíð. Hann
sé þó ekkert sérstaklega fær með úðabrúsann,
hafi einfaldlega þróað sinn stíl og noti stensla,
límbönd og annað til að hafa hemil á málning-
unni.
Truflað borð
„Ég er alltaf með nokkrar myndir í gangi, ég
kem mér í gang með ótrúlega grófum vinnu-
brögðum, smá úða, smá málningu,“ útskýrir
Davíð þegar hann er beðinn um að lýsa vinnu-
ferlinu, upphafi vinnudags. Þá hreinsi hann
penslana á pappír eða tré sem oftar en ekki
verður grunnur að verki og á endanum full-
klárað verk. Hann vinnur myndirnar lárétt,
ekki á vegg eða á trönum heldur á gólfi eða
borði.
Talandi um borð. Davíð er einmitt að vinna
verk á borðstofuborð fyrir kunningjafólk sitt.
Hann lætur kunningjana reyndar sjálfa vinna
verkið, stjórnar þeim við listsköpunina. Örlítil
myndlistarkennsla í hjáverkum á vinnustof-
unni.
„Það er orðið ansi truflað þetta borð, ég efast
um að það endist lengur en nokkur jól,“ segir
Davíð og hlær, á þar ekki við endingu efnisins
heldur að eigendurnir verði búnir að fá nóg af
borðinu þá. Það væri þó glapræði að henda
verki eftir Davíð, hann er rísandi stjarna í ís-
lensku myndlistarlífi (ef hægt er að tala um
stjörnur í því sambandi yfirleitt).
Davíð segir verðið á verkum sínum vissulega
hafa hækkað undanfarið, það geri það ósjálfrátt
með sýningum í sölugalleríum. Hann er sáttur
við sitt og minnir á að myndlistin sé lifibrauðið
og verkin kosti því eðlilega sitt. „Þetta eru nátt-
úrulega einstök verk og maður skilur ekki svo
auðveldlega við myndirnar lengur.“ Fyrstu
kaupendurnir að verkum myndlistarmanna eru
iðulega ættingjar og vinir og Davíð segist þar
engin undantekning.
Gaf mynd og tók aftur
– Mamma er alltaf besti kúnninn, er það
ekki?
„Ég er nú alveg búinn að svíkja mömmu
mína,“ svarar Davíð áhyggjufullur á svip. „Ég
gaf henni mynd um daginn og svo var ég til-
nefndur til einhverra verðlauna í London, Haf-
þór Yngvason (safnstjóri Listasafns Reykjavík-
ur) tilnefndi mig til Sovereign European Art
Prize. Ég var nýbúinn að gefa mömmu mynd og
svo þegar ég fór að lesa skilmála keppninnar
betur sá ég að maður varð að leggja til
ákveðnar myndir í keppnina þó að maður væri
ekki kominn áfram.“ Hann hafi því þurft að
hirða myndina aftur af mömmu sinni sem hann
var nýbúinn að gefa henni.
„Ég á nefnilega svo fáar myndir, ég á eig-
inlega ekki neitt,“ segir Davíð skömmustulegur
og afsakandi, greinilegt að hann er mjög leiður
yfir þessu. „Ég er nefnilega búinn að selja ansi
vel,“ bætir hann svo við. Mamma hlýtur að
gleðjast yfir því.
„Núna er ég bara að einbeita mér að því að
vinna, nýta mér þennan tíma sem ég er á lista-
mannalaunum til að stilla upp nýrri sýningu.“
Davíð segir margt í gangi, hann hafi verið að
skila tillögu að veggmynd fyrir SÍM sem fer
vonandi utan á hús sambandsins við Seljaveg,
þ.e. ef fjármagn fæst til þess.
Þá er Davíð að fara að stýra myndlistarhluta
sýningar kvikmyndafélagsins Lorts í Kling-
&Bang galleríi í haust og Birta Guðjónsdóttir,
sem rekur Gallerí Dverg, er hugsanlega að
opna gallerí og Davíð segist spenntur fyrir því
að vinna með henni ef af verður. Ekki má
gleyma sýningu í næsta húsi við vinnustofuna, í
Lost Horse galleríinu, þar sem Davíð á verk.
Síðast en ekki síst ber að nefna hugmynd
Davíðs að bókverki með tillögum að end-
urbótum á íslenska fánanum.
„Þá langar mig að detta inn í grafík aftur, ég
ætla að vinna þessa fána með mismunandi að-
ferðum og tveir fánar verða grafíkeraðir.“ Það
verður spennandi að sjá þá Davíðs-fána..
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 2008 49
LISTVINAFÉLAG HALLGRÍMSKIRKJU, 26. STARFSÁR
ALÞJÓÐLEGT ORGELSUMAR, 16. STARFSÁR
KLAISORGELIÐ 15 ÁRA
Alþjóðlegt orgelsumar
í Hallgrímskirkju
MIÐASALA Í HALLGRÍMSKIRKJU S. 510 1000
Norræn orgelhátíð
HINN HEIMSÞEKKTI
BÁSÚNULEIKARI Christian Lindberg
OG Gunnar Idenstam ORGELLEIKARI
Í HALLGRÍMSKIRK JU
SUNNUDAGINN
13. JÚLÍ KL. 20.
Á efnisskránni eru
þeirra eigin verk og
umritanir á þekktum
tónverkum m.a.
BOLERO eftir Ravel.
l ist vinafelag. is
REYKHOLTSHÁTÍÐ 2008
Karlakórinn frá St. Basil dómkirkjunni í
Moskvu, Virtuosi di Praga og Donald
Kaasch verða meðal flytjenda á
hátíðinni 2008,
dagana 23.-27. júlí nk.
Forsala aðgöngumiða á Midi.is.
Nánari upplýsingar á
www.reykholtshatid.is
Skipulögð óreiða á vinnustofunni
Hver er þessi Davíð Örn?
Davíð Örn Halldórsson
fæddist 26. ágúst árið 1976.
Hann hóf listnám í Fjölbrauta-
skólanum í Breiðholti árið
1994, útskrifaðist af listasviði
skólans 1998 og hóf nám ári
síðar við Myndlista- og hand-
íðaskóla Íslands. Hann var
skiptinemi við Academie royale
des beaux-arts de liege í Belgíu
árið 2001 og útskrifaðist úr LHÍ
2002.
Davíð hlaut NIFCA-styrk árið
2004, dvaldi í vinnustofu í
fimm mánuði í Dalsåsen í Nor-
egi. Þá hlaut hann Dungal-styrk
í janúar á þessu ári og lista-
mannalaun í lok sama mán-
aðar.
Hvar hefur hann sýnt?
Fyrstu einkasýninguna hélt
Davíð í Gallerí Geysi árið 1999.
Þá hefur hann m.a. haldið
einkasýningar í Gallerí Borg á
Skagaströnd, Klefanum í
Nonnabúð í Reykjavík, menn-
ingarmiðstöðinni Skaftfelli á
Seyðisfirði, Safni í Reykjavík og
í Slunkaríki á Ísafirði. Af völd-
um samsýningum má nefna
tvær með Homo graficus, hópi
grafíklærðra karlmanna sem
sýna karllæga grafík til verndar
deyjandi tegund, Krútt í Ný-
listasafninu, Pakkhús post-
ulanna í Hafnarhúsi, Hérna í
Hangart-7 í Salzburg í Aust-
urríki og Rozamira í Moskvu.
Önnur afrek?
Davíð hefur auk myndlist-
arstarfa unnið sem leikskóla-
kennari og segist sakna þess
að vinna með börnum. Eitt af
hans mestu afrekum hafi verið
að opna hugi leikskólabarna
fyrir óhlutbundinni list, að fá
þau til að vinna abstrakt-verk
og meðtaka hugmyndina um
óhlutbundna list.
S&S
Absolút gamall kastale Frá
sýningunni í Gallerí Ágúst.
Verk eftir Davíð Hvernig virkar borgarvirki?
Landnámssetrið í Borgarnesi
437 1600 | landnamssetur@landnam.is
BRÁK eftir BrynhildiGuðjónsdóttur (Söguloftið)
Lau 23/8 kl. 15:00
Lau 23/8 kl. 20:00
Sun 24/8 kl. 16:00
Fös 29/8 kl. 20:00
Lau 30/8 kl. 15:00
Lau 30/8 kl. 20:00
Lau 6/9 kl. 15:00
Lau 6/9 kl. 20:00
Sun 7/9 kl. 16:00
Mr. Skallagrímsson eftir Benedikt Erlingsson (Söguloftið)
Sun 13/7 kl. 16:00 U Fim 17/7 kl. 20:00 Fös 18/7 kl. 20:00
Frú Norma
4711166 | norma@frunorma.is
Soffía mús á tímaflakki (Farandleiksýning)
Sun 13/7 kl. 16:00 F
Kómedíuleikhúsið Ísafirði
8917025 | komedia@komedia.is
Gísli Súrsson (Haukadalur Dýrafirði/ferðasýning)
Fös 25/7 kl. 14:00 Lau 26/7 kl. 20:00 U
Pétur & Einar (EinarshúsBolungarvík)
Fim 17/7 kl. 20:00 Fim 24/7 kl. 20:00 Fim 31/7 kl. 20:00
ÁSKRIFTASÍMI 569 1100