Morgunblaðið - 13.07.2008, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 2008 55
ÍS
L
E
N
S
K
A
/
S
IA
.I
S
/
L
B
I
43
01
7
07
/2
00
8
Landsbankinn býður 16 ára og yngri á völlinn.
Sækja þarf boðsmiðann í næsta útibú Landsbankans.
sun. 13. júlí
sun. 13. júlí
mán. 14. júlí
mán. 14. júlí
mán. 14. júlí
11. umferð
ÍA19:15
FH Fylkir20:00
Grindavík Þróttur R.19:15
Fram 19:15
Breiðablik HK20:00
Keflavík
Landsbankadeild karla
Þór/KAþri. 15. júlí
þri. 15. júlí
þri. 15. júlí
þri. 15. júlí
þri. 15. júlí
10. umferð
Valur
Stjarnan HK/Víkingur19:15
19:15
Fylkir Fjölnir19:15
Breiðablik Afturelding19:15
KR 19:15 Keflavík
Landsbankadeild kvenna
Fjölnir
EIN vinsælasta kvikmynd ársins í
Bandaríkjunum það sem af er ári er
teiknimynd, Wall-E. Myndin hefur
hlotið einróma lof kvikmyndagagn-
rýnenda, fær nánast fullt hús stiga á
vefnum Rotten Tomatoes eða 97%
sem er hæsta einkunn sem nokkur
mynd hefur fengið þar það sem af er
ári. Nú velta kvikmyndaspekúlantar
því fyrir sér víða um netheima hvort
myndin eigi möguleika á því að
hljóta Óskarsverðlaun á næsta ári
sem besta myndin, þ.e. ekki besta
teiknimyndin, og verði þar með
fyrsta teiknimyndin til að hljóta
þann heiður. Eina teiknimyndin sem
tilnefnd hefur verið í kvikmynda-
flokknum er Disney-teiknimyndin
Fríða og dýrið, árið 1991.
Myndin segir af sorphreins-
unarvélmenninu Wall-E sem eig-
endur gleymdu að slökkva á þegar
þeir yfirgáfu jörðina með mannkyni
öllu. Vélmennið heldur áfram störf-
um sínum í hundruð ára þrátt fyrir
að jörðin sé mannlaus enda forritað
til þess að hreinsa upp rusl og
flokka. Dag einn hittir Wall-E (sem
er karlkyns vélmenni) kvenvélmenn-
ið EVE og ástin kviknar. EVE áttar
sig fljótt á því að Wall-E veit hver
lykillinn er að framtíð jarðarinnar
og heldur út í geim að tilkynna
mönnum það, húsbændum sínum.
Wall-E eltir hana ástsjúkur um vetr-
arbrautina. Teiknimyndin er sögð
ævintýra-gamanmynd.
Wall-E Virðir fyrir sér Rubik-kubb.
Teiknimynd
besta kvik-
myndin?
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
EÐALFATNAÐUR var til
sýnis í Róm, Hong Kong og
Taipei í vikunni sem leið.
Klassískar línur voru
áberandi, glansandi efni og
alls kyns vandaður skraut-
saumur fyrirferðarmikill.
Auðvitað voru framtíð-
arkenndar útfærslur inn Blómarós Léttur og sum-
arlegur kjóll frá G. thread á
sýningu í Hong Kong.
Tætlur Manni yrði seint of
heitt í þessari framúrstefnu-
legu flík sem Hong Kong
Apparel Society sýndi.
Glæsileg Það yrði eftir hon-
um tekið, þessum kjól frá
Curiel, í fínum matarboðum
uppi á Fróni.
Fjólublá Þessi huggulegi
kjóll frá Taipei á líklega vel
við fatasmekk fjölda kvenna
á Íslandi.
Róm, Hong Kong, Taipei
Létt, sumarlegt og ofboðslega
spari er það sem koma skal
Reuters
Svífandi gyðja Ljós og líðandi fatnaður var áberandi hjá
Gucci sem hélt sýningu til að fagna 70 ára afmæli verslunar
sinnar á Via Condotti í Rómarborg.
Gyðjuklæði Þessi kvöldkjóll
frá líbanska hönnuðinum
Abed Mahfouz er dæmigerður
fyrir glæsileikann sem ríkti á
tískuvikunni í Rómarborg.
á milli en leikandi létt og
loftkennt virðist vera það
sem konur eiga að klæðast
næsta ár. Áhugavert er sjá
hversu kvennatískan milli
ólíkra heimshluta er keimlík.
Þó að finna megi mismun í
áherslum og útfærslum eru
línurnar í grófum dráttum á
svipuðu róli.
Annars tala myndirnar
sínu máli.