Morgunblaðið - 13.07.2008, Qupperneq 56
SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 195. DAGUR ÁRSINS 2008
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Nýr samningur í ESB
Nicolas Sarkozy Frakklands-
forseti segir Evrópu ekki hafa getu
til að geta tekið með reisn á móti öll-
um þeim sem álíta hana gósenland.
Nýr Evrópusamningur um málefni
innflytjenda verður líklega undirrit-
aður á leiðtogafundi Evrópusam-
bandsins í haust. » 26
Mótmælabúðir á heiðinni
Samtökin Saving Iceland hafa
komið upp mótmælabúðum á Hellis-
heiði, nálægt Hellisheiðarvirkjun.
Til stendur að mótmæla stóriðju á
Íslandi. » 2
Uppbygging árið 2009
Borgarbúar bíða enn eftir sýni-
legri uppbyggingu á reitnum þar
sem húsin brunnu í Austurstræti 22
og Lækjargötu 2. Borgarráð sam-
þykkti á fundi á fimmtudag að leggja
60 milljónir króna til undirbúnings
framkvæmdanna. Eiginleg upp-
bygging hefst þó ekki fyrr en á nýju
ári. » 2
SKOÐANIR»
Ljósvakinn: Framburðarlatir frétta-
menn
Staksteinar: Aðgerðahópar og sell-
ur?
Forystugrein: Skálkaskjól Mugabes
UMRÆÐAN»
Mamma, af hverju varðstu þá bara
ljósmóðir?
Svona gerir maður ekki
Að hafa atvinnu skiptir alla máli
Tvisvar gripið til hópuppsagna í júní
Nær tvöfalt fleiri gistinætur á
hótelum
Atvinnuleysi mældist 1,1% í júní
ATVINNA»
Heitast 17° C | Kaldast 8° C
Suðvestlæg eða
breytileg átt, yfirleitt
5-10 m/s og rigning
eða skúrir. Bjart aust-
ast fram eftir degi. » 8
Söngkonan Emmy-
lou Harris hefur
haldið virðingu og
vinsældum þrátt
fyrir krappar beygj-
ur í músíkinni. » 50
TÓNLIST»
Krappar
beygjur
FÓLK»
Egill og Sigurveig giftu
sig á grískri eyju. » 53
Mindbluff.com er
fyrir þá sem fá ekki
nóg af því að þjálfa
hugann með alls
kyns þrautum og
gátum. » 52
VEFSÍÐA VIKUNNAR»
Blekkingar
hugans
KVIKMYNDIR»
Wall-E heillar gagnrýn-
endur vestanhafs. » 55
TÍSKA»
Klassískar línur, glans
og skrautsaumur. » 55
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Reyndi að stinga af á 212 km
2. Grunaður um kynferðisbrot
3. IndyMac gjaldþrota
4. Stunginn hnífi í miðbænum
Eftir Unu Sighvatsdóttur
unas@mbl.is
„LANDSLAG væri lítils virði, ef
það héti ekki neitt“ segir í ljóðinu
Fjallganga eftir Tómas Guðmunds-
son og hefur hann eflaust eitthvað
til síns máls. Það þyrfti þó harðasta
náttúruhatara til að draga úr
ágæti þessa gullfallega foss ein-
göngu vegna þess að hann ber
formlega ekkert nafn. Í munn-
mælum hefur hann þó gengið undir
nöfnunum Silfurfoss og Litli-
Gullfoss og vísa báðar nafngiftir til
þess að hann er eins og smækkuð
mynd af frægasta fossi Íslands,
Gullfossi.
Einhverja kann að undra að svo
stór og mikill foss sé ekki á ör-
nefnaskrá en að sögn Páls Ásgeirs
Ásgeirssonar, útivistargarps og
höfundar Hálendishandbókar-
innar, er nafnleysi mjög algengt í
íslenskri náttúru, ekki síst á fá-
farnari slóðum á hálendinu. Foss-
inn er enda vel falinn í Syðri-Ófæru
og hefur því ekki verið kennileiti
sem vísa þurfti til, jafnvel þótt
hann sé á gömlu smalasvæði.
Í dag er aðgengi að fossinum
gott, þangað liggja troðnar slóðir
frá Hólaskjóli og því óhætt að
mæla með gönguferð upp að þess-
um fallega nafnleysingja.
Gullfalleg-
ur foss
Nafnleysi er algengt á fáförnum slóðum í íslenskri náttúru
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eftir Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
EKKI fara allir troðnar slóðir þegar þeir velja sér
starf, eins og Colleen Kinder skrifar um í bók sinni
„Delaying the Real World“ en talað er við hana í
Morgunblaðinu í dag. Í bókinni talaði hún við yfir
hundrað manns sem eltu drauma sína að lokinni
skólagöngu en sóttust ekkert endilega eftir „örugg-
asta“ starfinu eða því sem vænlegast er upp á frek-
ari starfsframa.
Hrafnhildur Sverrisdóttir er ein þeirra Íslend-
inga sem farið hafa ótroðnar slóðir en leiðin lá út
fyrir landsteinana árið 2000 er hún fór í kosninga-
eftirlit til Kosovo og vann í Lipjan-héraði á vegum
Sameinuðu þjóðanna. „Í þessu héraði bjuggu bæði
Serbar og Albanir, sem gerði þetta að mjög áhrifa-
ríkri reynslu, sem reyndi á allan tilfinningaskalann.
Eftir níu mánuði í Kosovo var í raun ekki aftur snú-
ið og í dag er ég í mínu fimmta alþjóðaverkefni.“
Nú starfar hún á vegum íslensku friðargæslunn-
ar í Norður-Afganistan þar sem hún vinnur að þró-
unarverkefnum. Og verkefnin síðustu árin hafa
verið af ólíkum toga. Hún var við störf hjá Alþjóða-
ráði Rauða krossins frá 2005-2008, fyrst á Fíla-
beinsströndinni og svo í Búrúndí, þar sem hún
heimsótti fangelsi og kannaði aðstæður fanga. Þar
var hún einnig í leitarþjónustuverkefnum, þar sem
margar fjölskyldur urðu viðskila vegna stríðs.
– Saknarðu þess ekkert að ganga bara að sama
skrifborðinu á sama stað á hverjum morgni?
„Jú, stundum geri ég það,“ segir hún brosandi.
„En á sama tíma geng ég að skrifborðinu mínu á
hverjum degi þó að ég viti í raun aldrei hvernig
dagurinn muni ganga fyrir sig. Kostirnir við svona
líf eru margir. Ég kynnist ólíkum menningarheim-
um og starfa með fólki hvaðanæva að úr heiminum.
Ég hef eignast marga góða vini, sem ég verð í sam-
bandi við ævilangt … vona ég! En það sem mér
finnst skemmtilegast er að fá tækifæri til að fara
inn í lítil þorp og spjalla við fólk sem býr við að-
stæður sem maður hélt að heyrðu sögunni til.“
En það eru líka ókostir við svona starf. „Ég er
fjarri vinum og fjölskyldu, einkum frændsystkinum
mínum tveimur. Og ég hoppa ekkert á Bæjarins
bestu eða skrepp í bíó eða á kaffihús. Á Fílabeins-
ströndinni varð ég að sætta mig við að fá mér kaffi í
eina bakaríinu í bænum – ef kaffivélin var ekki bil-
uð! Ég fór reyndar í bíó í Búrúndí. Bíóið var eins og
gamla Tónabíó þegar ég var lítil og myndin, sem
byrjaði eftir hálftíma af amerískum tónlistarmynd-
böndum, var svo ekki sú sem var á auglýstri dag-
skrá. Það gerði þetta að skemmtilega gremjulegu
föstudagskvöldi.“
Fólk sem fer ótroðnar slóðir | 24
Skrepp ekki á Bæjarins bestu
Hrafnhildur Sverrisdóttir hefur sinnt fjölbreyttum störfum í Kosovo, Afganistan
og Afríku Ekki allir fara troðnar slóðir þegar kemur að starfsvali
Meðal barna Hrafnhildur heimsækir börn á
munaðarleysingjahæli í Afríkuríkinu Búrúndí.