Morgunblaðið - 11.08.2008, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.08.2008, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 1 1. Á G Ú S T 2 0 0 8 STOFNAÐ 1913 217. tölublað 96. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er MENNING FIMMRÉTTAÐ FÍNIRÍ Á BERJADÖGUM FRÉTTIR Frægur göngu- garpur á hálendinu ÍÞRÓTTIR FH sigraði KR fimmta árið í röð á heimavelli Vesturbæjarliðsins í Landsbankadeildinni í knatt- spyrnu, 2:1, og náði með því fjög- urra stiga forystu. Þróttur og Fram skildu jöfn í gærkvöld, 1:1. FH lagði KR að velli og jók forskotið Arnar Sigurðsson varð í gær Ís- landsmeistari karla í tennis tólfta árið í röð og Sandra Dís Kristjáns- dóttir sigraði í kvennaflokki. Arnar tilkynnti eftir mótið að hann væri hættur sem atvinnumaður. Arnar hættur sem at- vinnumaður í tennis Golfklúbburinn Keilir úr Hafn- arfirði varð í gær tvöfaldur sig- urvegari í sveitakeppninni í golfi. Karlasveit GK sigraði á Akranesi og á meðan vann kvennasveit fé- lagsins í Garðabæ. Keilir sigraði tvöfalt í sveitakeppninni BETUR fór en á horfðist þegar franskur ferðamaður á fimmtugs- aldri ók bíl sínum niður í Jökulsá á Dal um sjöleytið í gærkvöldi. Svo virðist sem maðurinn hafi misst stjórn á bifreið sinni í krappri beygju skammt frá brúnni við bæ- inn Brú á Jökuldal með þeim afleið- ingum að hún féll um átta metra niður að vatnsborðinu og sökk síðan í sex til átta metra djúpan hyl. Öku- maður braut sér leið út úr bílnum og náði að synda að klettasyllu und- ir brúnni. Hjón sem áttu leið um svæðið tóku eftir að bakpokar voru á floti í ánni. Þau stöðvuðu för sína og heyrðu þá hjálparkall mannsins undan brúnni. Fólkið færði hann á nálægan bæ, en hann var orðinn nokkuð kaldur eftir volkið. Að sögn heilsast honum nú bærilega. Ljósmynd/Margrét Aðalsteinsdóttir Bakpokaveiðar Veiðimaður var einn þeirra sem hjálpuðu til og fiskaði hann upp farangur með stöng sinni. Synti að klettasyllu Franskur ferðamaður ók bíl sínum út í Jökulsá á Dal Ljósmynd/Margrét Aðalsteinsdóttir Kröpp beygja Ökumaður missti stjórn á bílnum í beygjunni við brúna. Heyrðu hjálparkallið | 2  Hlaup hófst í Skaftá í Skaft- árdal í gær. Hlaupið fór hægt af stað en því óx ásmegin eftir því sem leið á daginn. Soffía Sigurð- ardóttir, skála- vörður í Nýja- dal, segir að þýskur göngumaður á Sprengisandi og tveir liðsmenn Hjálparsveitar skáta í Vonar- skarði hafi heyrt drunur í jökl- inum á föstudagskvöld. „Þeir heyrðu í þrjú kortér drunur í jöklinum. Við vissum ekki hvað þetta gæti verið og datt helst í hug að þetta hefði að- eins verið tröllagangur í fjöll- unum.“ » 6 Skaftárhlaupi óx ásmeg- in er leið á gærdaginn Hlaup í Skaftá.  Bæjarbragurinn í Hveragerði líkist óðum því sem íbúar þekktu áður en harðir jarðskjálftar gengu yfir bæinn í lok maí. Um 80 hús hafa verið skoðuð með tilliti til skemmda. Eitt þarf að rífa en 10 eru þónokkuð skemmd. Þurfa tvær fjölskyldur að búa fjarri heimilum sínum vegna húsnæðis- skemmda. Þá hefur aðsókn að Heilsustofn- un NLFÍ, sem er til húsa í Hvera- gerði, minnkað um fimmtung sök- um ótta sem greip um sig í kjölfar skjálftanna. » 8 Skjálftarnir líða bæjar- búum seint úr minni  Forsetakosn- ingarnar í Bandaríkjunum í nóvember munu öðrum þræði snúast um per- sónu Baracks Obama, að mati Philips H. Gord- on, fræðimanns við Brook- ings-stofnunina og ráðgjafa Obama í Evrópuför hans. „Almenningur er orðinn þreytt- ur á óvinsældum Bandaríkjanna utan landsins,“ segir Gordon. „Átta af hverjum tíu Bandaríkja- mönnum telja að landið sé á rangri braut, hlutfall sem er for- dæmislaust síðan kannanir hóf- ust.“ » 14 Segir forsetakosning- arnar snúast um Obama Barack Obama HEIMSMARKAÐSVERÐ á hrávöru er tekið að lækka og má búast við því að þær lækkanir skili sér fljót- lega inn í matvælaverð hérlendis. Veigamikill þáttur í því að svo verði er að krónan haldist stöðug en veik- ist hún frekar gæti það gert verð- lækkanirnar að engu. Hrávöruverðslækkun mun ekki eingöngu skila sér í ódýrari mat sem mannskepnan leggur sér til munns heldur einnig í ódýrara kjarnfóðri fyrir nautgripi. Haldist krónan stöðug má búast við að lækkanir á matvælaverði reynist öflugt vopn í baráttunni gegn verðbólgupúkanum sem hefur gildnað töluvert undanfarin misseri m.a. vegna mikilla hækkana á mat- vælaverði. | 2 Lækkar Spáð er lækkunum í haust. Lækkanir á matvælaverði fyrirsjáanlegar í haust Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is SENDIHERRA Bandaríkjanna hjá öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, Zalmay Khalilzad, sakaði í gær Rússa um að vilja hrekja stjórn Mikhails Saakas- hvilis forseta í Georgíu frá völd- um. Sagði Khalil- zad að utanríkis- ráðherra Rússlands, Serg- ei Lavrov, hefði tjáð Condoleezzu Rice, utanríkis- ráðherra Banda- ríkjanna, í gærmorgun að Saak- ashvili yrði „að víkja“. Khalilzad sagði að ummæli af þessu tagi væru algerlega óviðun- andi. Saakashvili, sem er mjög hlynntur vestrænum ríkjum og á bandaríska eiginkonu, væri lýðræð- islega kjörinn leiðtogi. „Er það tak- mark stjórnar ykkar að hrekja frá lýðræðislega ríkisstjórn Georgíu?“ spurði Khalilzad. Sendiherra Rúss- lands, Vítalí Tsjúrkín, svaraði ekki beint en sagði að ráðherrarnir tveir hefðu átt símtal „í trúnaði“. Buðu aftur vopnahlé Lavrov sagði síðar að Rice hefði misskilið sig. Hann hefði minnst á Saakashvili og sagt að Rússar teldu ekki hægt að semja við mann sem hefði „gefið skipanir um stríðs- glæpi“. Færi hann ekki frá væri því útilokað að stöðva átökin í Suður- Ossetíu. Georgíumenn ítrekuðu í gær til- boð sitt frá laugardeginum um skil- yrðislaust vopnahlé og sögðust hafa dregið her sinn frá Suður-Ossetíu. Það virtist þó ekki duga því að Rúss- ar voru sagðir hafa sent landher- menn inn í Georgíu frá Suður-Oss- etíu í átt að borginni Gori sem er um miðbik landsins. Fram til þessa hafa þeir eingöngu beitt flughernum gegn skotmörkum í Georgíu. Her Georgíumanna bjóst til varnar í Gori er síðast fréttist. | 13 Forset- inn víki Kröfum Rússa mótmælt hjá SÞ Mikhail Saakashvili

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.