Morgunblaðið - 19.08.2008, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 19.08.2008, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FRÉTTASKÝRING Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is EKKI hafa náðst samningar við Grænlendinga, Færeyinga og veiði- þjóðir á alþjóðlegu hafsvæði um stjórnun veiða á djúpkarfa, úthafs- karfa og grálúðu. Viðræður hafa ver- ið milli þjóðanna um karfastofnana án þess að það hafi skilað niðurstöðu en nú verður lögð áhersla á að reyna að semja um grálúðustofninn sem er mikið ofveiddur. Samkomulag er í gildi um aðra íslenska deilistofna, vitaskuld fyrir utan makrílinn sem hefur komið sterkur inn í ár. Íslendingar hafa ekki fengið aðild að ákvörðunum annarra strandþjóða um heildarkvóta á makríl og skipt- ingu hans á milli þjóðanna og hafa mótmælt þeim. Fulltrúar strand- þjóðanna hittast í október til að ræða stjórnun makrílkvótans á næsta ári. Þótt veiðar Íslendinga skipti aug- ljóslega miklu máli hefur fulltrúum héðan ekki verið boðið að samninga- borðinu og engar vísbendingar um að slíkt boð komi. Grálúðan ofveidd Stjórnun fleiri íslenskra deili- stofna er í uppnámi. Grálúðustofninn við Austur-Grænland, Ísland og Færeyjar er mikið ofveiddur og hef- ur minnkað á undanförnum árum. Ekki hefur tekist samkomulag um sameiginlega stjórnun. Um 10 þúsund tonn veiddust á Ís- landsmiðum á síðasta ári, svipað við Grænland, aðallega af fiskiskipum ríkja Evrópusambandsins, og að auki um þúsund tonn við Færeyjar. Hafrannsóknastofnunin lagði til í sumar að veiðar á næsta ári yrðu minnkaðar niður í fjórðung af þessu, eða 5 þúsund tonn samtals á öllu svæðinu. Sjávarútvegsráðherra hélt sig við 15 þúsund tonn fyrir Íslands- mið þótt sá kvóti hafi ekki náðst og ekki útlit fyrir að hann náist á næsta ári. Var það gert til að tryggja rétt- indi Íslendinga á meðan ekki semst. Jafnframt var ákveðið að reyna til þrautar að ná samkomulagi við Grænlendinga og Færeyinga um stjórnun veiðanna. Ekki virðist hafa verið lögð áhersla á þessa samninga á undanförnum misserum heldur hafa karfastofnarn- ir sem eru mun flóknara viðfangsefni og erfiðara verið í forgrunni án þess að nægilegur árangur hafði náðst. Óformlegar viðræður eru hafnar um lúðuna og málið var rætt í op- inberri heimsókn Finn Karlsen, sjáv- arútvegs-, veiðimála- og landbúnað- arráðherra Grænlands hingað til lands í síðustu viku. Við það tækifæri var ákveðið að skipa nefnd embættis- manna frá þjóðunum til að fara ofan í málið. Flóknir samningar um karfa Ekki hefur heldur náðst sam- komulag um stjórnun veiða úr karfastofnun sem halda sig í ís- lensku, grænlensku og færeysku lögsögunni og veiðast einnig á al- þjóðlegu hafsvæði. Djúpkarfinn á landgrunni og landgrunnshlíðum Grænlands, Íslands og Færeyja er talinn af sama stofni en er aðallega veiddur á Íslandsmiðum. Veiðar á úthafskarfa eru hins vegar mest stundaðar á alþjóðlegum hluta Grænlandshafs og í fiskveiðilög- sögum Grænlands og Íslands. Þjóðirnar sem stunda veiðarnar hafa ekki náð samkomulagi og út- hluta aflamarki einhliða svo það er langt umfram ráðleggingar Norð- austur-Atlantshafsfiskveiðinefnd- arinnar. Flókið er að ná samkomulagi um karfastofnana vegna þess að hluti þeirra veiðist á alþjóðlegu haf- svæði, auk þess sem smám saman hefur verið að koma í ljós að um mismunandi stofna er að ræða. Nágrannar deila um deilistofna Ósamið um stjórnun grálúðu og karfastofna                                                !         "  # $    Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is „ÞESSI umræða hefur komið upp áður og Jóhann Geirdal, sem var formaður framkvæmdastjórnar á þessum tíma, gaf út yfirlýsingu um að ekkert aðfinnsluvert væri við fjármál Alþýðubandalagsins,“ segir Einar Karl Haraldsson sem var framkvæmdastjóri Alþýðu- bandalagsins frá 1993 til 1996. Matthías Johannessen, fyrrver- andi ritstjóri Morgunblaðsins, hef- ur birt nýja hluta úr dagbókum sín- um á vef sínum, matthias.is. Þar grípur hann niður í einkasamtal sem hann átti við Svavar Gestsson árið 1998. Svavar talar um að fjár- málaóreiða hafi ríkt í formannstíð Ólafs Ragnars Grímssonar, núver- andi forseta Íslands, sem var for- maður Alþýðubandalagsins. Í dag- bókarfærslu frá 2. apríl 1998 segir m.a. „Hann [Svavar] segir að Ólaf- ur hafi verið slæmur í peninga- málum þegar hann var formaður Alþýðubandalagsins. Þá hafi hann haft Einar Karl Haraldsson að hjálparkokki. Hann hafi komið sér upp Visa-gullkorti í nafni Alþýðu- bandalagsins og notað það óspart. Þegar Margrét Frímannsdóttir tók við flokknum bárust henni reikningar eins og skæðadrífa og hún vissi ekki sitt rjúkandi ráð. Það var viðskilnaður Ólafs Ragnars. Þegar Margrét tók við af honum skuldaði Alþýðubandalagið 53 milljónir króna! segir Svavar. Ólaf- ur Ragnar gerði þá samning við Landsbankann um að Alþýðu- bandalagið fengi 107 milljón króna lán og greiddi það með þeim 20 milljón króna árlegum afborgunum sem það fékk í blaðstyrki frá Al- þingi ár hvert. Þar var tekið fram að Alþýðubandalagið greiddi þetta meðan Þjóðviljinn kæmi út, en hann dó drottni sínum einu og hálfu ári síðar, svo að Landsbankinn varð að afskrifa skuldina sem eftir var!,“ segir m.a. í dagbók Matthíasar. Einar Karl segir bókhald flokks- ins hafa verið afar ófullkomið á þessum tíma, eins algengt hafi verið með félagsmálahreyfingar á síðustu öld. „Ég hef ekki heildar- yfirlit yfir þetta frekar en aðrir og veit ekki hvort Ólafur Ragnar hafði umrætt greiðslukort undir höndum, það sem skipti máli var að fylgiskjöl og reikningar væru í lagi, sem þeir voru. Þetta er bara slúður enda held ég ekki að nokk- ur maður hafi grætt á því fjár- hagslega að vinna fyrir Alþýðu- bandalagið,“ segir Einar Karl. „Þetta er kannski helst merki um hversu slæmt ástandið var orðið í Alþýðubandalaginu og við þekkj- um svona lagað líka úr öðrum flokkum, þegar menn fara að nota bókhald sem bitbein í innanflokks- átökum,“ segir Einar. Varðandi 107 milljóna króna lánið sem Ólafur hafi átt að hafa tekið til að rétta af stöðu flokksins segir Einar greinilegt að verið sé að rugla saman málum. Það lán hafi tengst stöðu Þjóðviljans á þessum tíma. Margrét Frímanns- dóttir, sem tók við formennsku af Ólafi Ragnari, hafi svo samið um lán til greiða upp skuldir flokks- ins. Ekkert fjármálamisferli innan Alþýðubandalagsins Matthías Johannessen Ólafur Ragnar Grímsson HJÓN með þrjú börn reyndust hafa unnið sjöfaldan lottóvinning um síð- ustu helgi, tæpar 66 milljónir. Sam- kvæmt upplýsingum frá Íslenskri getspá eru hjónin frá Taílandi. Þau búa í Fellahverfi í Breiðholti. Konan, sem keypti miðann, er ís- lenskur ríkisborgari sem hefur búið hér í 10 ár og eiginmaður hennar hefur búið hér í 5 ár. Íslensk getspá segir, að hjónin hafi bæði stundað meira en eina vinnu til að ná endum saman. Hjón með þrjú börn fengu stóra vinninginn BÁTURINN Hafdís NK-50, 17 brúttótonna stálbátur, sem lá við flotbryggju í smábátahöfninni í Nes- kaupstað, sökk aðfaranótt sunnu- dags og tók flotbryggjuna með sér. Gísli S. Gíslason, hafnarstjóri á Neskaupstað, segir að reynt verði að ná bátnum upp. Ekki er vitað hvers vegna bát- urinn sökk. „Það kemur ekki í ljós fyrr en hann verður tekinn upp, væntanlega vitum við meira á morg- un,“ segir Gísli en báturinn verður sennilega hífður upp með krana eða dreginn upp á bryggju. Sökk í Norðfjarðarhöfn ÍSLENSKIR út- gerðarmenn og sjómenn eru með stuðningi stjórn- valda að reyna að búa sér til veiðireynslu og þar með kvóta í makríl, með veiðum sem eru í óþökk annarra þjóða. Finna má ýmsar hliðstæður í sögunni. Nefna má þorskinn í Barentshafi, kolmunnann og norsk-íslensku síldina. Ekkert þessara mála er þó bein fyrirmynd makrílmálsins þar sem Íslendingar fá ekki aðild að ákvörðunum um heildarafla og skiptingu hans, þótt fiskurinn gangi inn í fiskveiðilögsögu lands- ins og veiðist þar. Stjórnun ýmissa deilistofna sem veiðast í íslenskri fiskveiðilögsögu er í betri farvegi en grálúðu og karfa. Þar má nefna kolmunna og norsk-íslenska vorgotssíld þar sem samningar eru í gildi. Þannig náðist samkomulag um stjórnun kolmunnaveiða fyrir þremur árum. Úthlutaður kvóti er að vísu enn töluvert yfir ráðlegg- ingum vísindamanna en málið er í formlegum farvegi. Sömu sögu er að segja um norsk-íslensku vorgotssíldina. Samkomulag hefur verið um stjórnun veiða á henni í tæp tvö ár, eftir óvissuár vegna uppsagnar Norðmanna á eldri samningi. Íslendingar hafa þorskkvóta í Barentshafi sem fékkst með samn- ingum við Norðmenn og Rússa eft- ir umdeildar veiðar íslenskra skipa í Smugunni svokölluðu. Íslend- ingar eiga víðar hagsmuna að gæta á úthafinu, meðal annars í Barentshafi. Íslensk stjórnvöld mótmæltu breytingum sem gerðar voru á fyrirkomulagi stjórnunar úthafsrækjuveiðanna á Flæmingja- grunni. Afla sér veiðireynslu og kvóta Hvað er deilistofn? Fiskistofnar sem ekki veiðast eingöngu í fiskveiðilögsögu eins ríkis. Dæmi um íslenska deili- stofna er norsk-íslenska vorgots- síldin, kolmunni, makríll, úthafs- og djúpkarfi. Hvað er flökkustofn? Fiskur sem syndir hafa í milli, t.d. bláuggatúnfiskur sem er í Mið- jarðarhafi og Atlantshafi allt til Íslands. S&S Í dagbókum Matthíasar Johannessen er einnig að finna umfjöllun um ræðu Ólafs Ragn- ars Grímssonar forseta sem hann hélt á Hólahátíð í ágúst árið 1998. Þar ræddi forset- inn um miðlægan erfðagagnagrunn og erfðavísindi og hvatti til þess að varlega yrði farið hér á landi, hvorki mætti láta þröngsýni né hagn- aðarvonir blinda sýn. Matthías Jo- hannessen ræddi við Kára Stef- ánsson, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, daginn eftir að for- setinn flutti ræðuna. „Hann segir að ræða forsetans sé þegar farin að hafa neikvæð áhrif í útlöndum, hún sé skaðvænleg. Hann á ekki orð yfir þá framkomu að flytja ræðu á kirkjuhátíð til að skaða íslensk raun- vísindi; gera unga íslenzka vís- indamenn, sem hafa hlotið al- þjóðlega menntun, að einhvers konar viðundrum. Það geti vart verið hlutverk forsetaembættisins. Lagafrumvarp um miðlægan gagnagrunn lá fyrir Alþingi á þessum tíma og voru skiptar skoðanir meðal stjórnmála- og fræðimanna um hvort forsetinn hefði farið út fyrir valdsvið sitt með efni ræðunnar. Forseti ræddi erfða- vísindi á Hólahátíð Kári Stefánsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.