Morgunblaðið - 19.08.2008, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Barnagæsla
Au pair óskast til Hollands
Íslensk fjölskylda óskar eftir au pair
til að gæta tveggja stuð systra; 2ja
og 4ra ára. Verður að vera reykaus.
Upplýsingar veitir Olga í síma
0031648262436 eða olgahrafnsdot-
tir@gmail.com
Bækur
Enska með gátum og skrýtlum
Skemmtilegar verkefnabækur handa
byrjendum í enskunámi.
Pantanir: barnabokautgafan@hive.is
eða í síma 862 2077.
Heilsa
Léttist um 22 kg á aðeins 6
mánuðum. LR- kúrinn er ótrúlega
einfaldur og öflugur. Uppl. hjá Dóru
869-2024 www.dietkur.is
GRUNNNÁMSKEIÐ Í EFT
(Emotional Freedom Techniques)
Námskeið verða: Helgarnar 13.–14.
sept., 4 –5. okt, 1.–2. nóv. í Rvk.,
11.–12. okt. á Ísafirði.
EFT er árangursrík leið til sjálfsstyrk-
ingar. Hentar leikum sem lærðum
sem vilja styrkja og vinna að betri
líðan hjá sér og öðrum.
Viðar Aðalsteinsson
dáleiðslufræðingur,
sérfræðingur í EFT
www.theta.is. sími 694 5494.
Húsnæði í boði
Íbúð til leigu í Grjótaþorpi (101)
Falleg og hlýleg íbúð í hjarta bæjar-
ins til leigu frá 1. september til 1. júní
(húsgögn geta fylgt). Verð 155 þús-
und á mánuði. Upplýsingar í síma:
822 3539.
Íbúð í Lautasmára 97 fm, 3 herb.
íbúð til leigu. Leigutími 1-2 ár. Þvotta-
hús innan íbúðar. Laus frá 1. sept.
Nánari uppl. veitir Garðar í síma 856-
2204 og gardar01@ru.is Leigan er
150.000 á mán.
Íbúðaskipti 1 ár Okkar íbúð er
fullbúin og á besta stað í Albufeira.
Óskum eftir 3-4 herb. íbúð (ekki leigu
íbúð) á stór RVK svæðinu. S:00351-
968569300 og 00354-8687722.
3.herb. í 111, 3. herb. björt og nýlega
tekinn í gegn íbúð í 111 á 3 hæð í
fjölb. með lyftu. Laus strax eða frá og
með 1. sept. 130 þ. á mánuði hiti og
rafmagn innifalið, upplýsingar í s.
690 5812 eftir kl. 16.00.
Sumarhús
Sumarhús - orlofshús.
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratuga reynsla.
Höfum til sýnis á staðnum fullbúin
hús og einnig á hinum ýmsu
byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Glæsilegt sumarhús til leigu
Til leigu 97 fm sumarhús, þar af 25
fm milliloft. Húsið er staðsett í
Brekkuskógi, um 15 mínútna akstur
frá Laugarvatni. Heitur pottur.
Upplýsingar í síma 841 0265.
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Námskeið
Microsoft kerfisstjóranám
MCSA kerfisstjóranámið hefst 1. sep-
tember. Nýr Windows Vista-áfangi.
Einstakir áfangar í boði. Bættu
Microsoft í ferilskrána. Rafiðnaðar-
skólinn, www.raf.is, 863 2186.
Til sölu
Ævintýralega létt stígvél
Aðeins 440 g parið. Stærðir 38-46.
S - XL
Einstaklega þægileg til að hafa í
bílnum, sumarbústaðnum eða í
útileguna. Verð 3.710 kr.
Jón Bergsson ehf.
Kletthálsi 15,
110 Rvk.
Sími. 588 8881.
Skattframtöl
Framtöl - bókhald - uppgjör -
stofnun ehf. o.fl. Fékkstu áætlun?
Gleymdist að telja fram? Framtals-
þjónusta - skjót og örugg þjónusta.
Uppl. í síma 517 3977.
Viðskipti
Skelltu þér á námskeið í
netviðskiptum!
Notaðu áhugasvið þitt og sérþekk-
ingu til að búa þér til góðar tekjur á
netinu. Við kennum þér nákvæmlega
hvernig! Skoðaðu www.kennsla.com
og kynntu þér málið.
Þjónusta
Hitaveitur/vatnsveitur
Þýskir rennslismælar fyrir heitt og
kalt vatn.
Boltís sf.,
símar 567 1130 og 893 6270.
Byggingavörur
www.vidur.is
Harðviður til húsbygginga. Vatns-
klæðning, panill, pallaefni, parket
o.fl. o.fl. Gæði á góðu verði.
Sjá nánar á vidur.is.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
Málningarvinna
Þaulvanur málari ætlar að bæta við
sig verkefnum í sumar. Inni og úti.
Vönduð og öguð vinnubrögð. Sann-
gjarnt verð. Uppl. í síma 897 2318.
Bílar
VW Golf station ´98 ek. 126 þús.
ssk. Vel með farinn bíll í góðu
ásigkomulagi. Verð 300þús. stgr.
S: 691 1777.
VW Golf 4motion árg ´03
ek.82 þús. bsk. nýskoðaður ´09.
Topplúga, álfelgur, sumar og vetrar-
dekk. Mjög vel með farinn bíll. Verð
1150þús. áhv c.a. 890þús. afb.25þús.
S: 691 1777.
Námsmannabílinn Nissan
Almera,
árg'99. ek.128 þús km. Beinskiptur.
Vetrar-og sumardekk fylgja.
Sparneytinn eðalkaggi í skólann.
Verð 300 þús.
Nánari upplýsingar í síma 696-0915.
Gullmoli til sölu - VW Bora High-
line árg. 2002, ekinn 47þ km.
Sjálfsk., topplúga, álfelgur. Bíll í
toppstandi. Upplýsingar í s: 8929350.
Mótorhjól
Til sölu KXF-450 2008
Flott hjól, ekið ca. 20 tíma.
Fatbar-stýri og fleiri aukahlutir.
Verð 690 þús. Uppl. í s. 866 0532.
Einkamál
Stefnumót.is
Kynntu þér vandaðan stefnumóta- og
samskiptavef fyrir fólk sem gerir
kröfur.
Þjónustuauglýsingar 5691100
Til sölu Hyundai Santa Fe árg ´06.
Ekinn 23.000 þús. Sjálfskiptur, með
leðuráklæði. Dísell. Staðgreiðsluverð
2,8 millj. Upplýsingar í síma:
581 4629, og 846 4666.
106 fm íbúð á Skólavörðustíg
Björt og falleg 4 herb, 106 fm íbúð á
Skólavörðustíg til leigu. 180
þús/mán. Uppl. 899 8433 eða
elindres@gmail.com
✝ Jónína SesseljaSnorradóttir
fæddist á Eskifirði
26. júní 1921. Hún
lést á dvalar- og
hjúkrunarheimilinu
Grund 9. ágúst síð-
astliðinn. Hún var
dóttir Snorra Jóns-
sonar kaupmanns, f.
2.7. 1885, d. 8.1.
1959, og Stefaníu G.
Stefánsdóttur hús-
móður, f. 14.9. 1891,
d. 4.2. 1981. Systk-
ini Jónínu eru: Mar-
grét, f. 1914, d. 1977, Hrafnhild-
ur, f. 1915, d. 1991, Haukur, f.
1917, d. 2004, Stefán, f. 1923, d.
1947, Bergljót, f. 1925, d. 1982, og
Snorri, f. 1928.
Jónína giftist hinn 29. október
1955 Aðalsteini Eggertssyni, f.
22.8. 1925, d. 14.10. 1998. Hann
var sonur hjónanna Eggerts
Kristjánssonar, f. 6.10. 1897, d.
28.9. 1966, og Guðrúnar Þórð-
ardóttur, f. 29.5. 1901, d. 8.4.
1987. Synir Jónínu og Aðalsteins
eru: 1) Snorri, f. 1.11. 1956,
kvæntur Mörthu Sverrisdóttur, f.
6.4. 1955. Börn þeirra Jökull Þor-
leifsson, f. 1981, Dofri, f. 1990, og
Selja Ósk, f. 1992. 2) Eggert, f.
18.1. 1960, kvæntur
Guðrúnu E. Bjarna-
dóttur, f. 14.5. 1962.
Synir þeirra Að-
alsteinn, f. 1988,
Daníel, f. 1994, og
Stefán, f. 1996. 3)
Gunnar, f. 5.3. 1962,
sambýliskona Guð-
björg Guðmunds-
dóttir, f. 28.10.
1962.
Árið 1935 fluttist
Jónína með for-
eldrum sínum og
systkinum til
Reykjavíkur og bjó hún þar síðan.
Jónína lauk gagnfræðaprófi frá
Ágústarskóla í Vonarstræti. Hún
vann um skeið í Félagsprent-
smiðjunni, í herrafataversluninni
Vöruhúsinu og við skrifstofustörf
í kexverksmiðjunni Frón.
Með húsmóðurstörfunum starf-
aði Jónína um áratuga skeið sem
sjálfboðaliði hjá Reykjavíkurdeild
Rauða kross Íslands við bókasafn
Borgarspítalans og var einn af
frumkvöðlum innanhússútvarps
sem um skeið var rekið á spít-
alanum.
Útför Jónínu fer fram frá Foss-
vogskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.
Hinn 9. ágúst sl. lést Jónína Sess-
elja Snorradóttir, eða Didda eins og
hún var alltaf kölluð. Didda var
fædd á Eskifirði og þó svo að hún
hafi flutt þaðan aðeins 14 ára gömul
taldi hún sig alltaf vera Eskfirðing,
bar ríkar tilfinningar til staðarins og
hélt alla tíð sambandi við austfirska
vini sína.
Lengstan hluta ævi sinnar bjó
hún á Bauganesi 14 í Reykjavík, þar
sem hún og Aðalsteinn byggðu sér
og sonunum framtíðarheimili.
Eftir aldarfjórðungs samferð með
konu með jafn fjölbreytt áhugasvið
og sterkan persónuleika rifjast upp
ótal minningar sem óneitanlega hafa
gætt lífið lit og veitt manni aukinn
þroska.
Hún var lipur og létt á fæti og
hreyfing var eitt af því sem hún vissi
að var til heilsubóta, enda leið ekki
sá dagur að hún færi ekki í lengri
eða skemmri göngutúra og varð
Skerjafjörðurinn þá oft fyrir valinu.
Didda og Addi byggðu sér sum-
arbústað í Kjósinni sem þau tóku í
notkun árið 1969 og naut hún þess
að vera þar. Það eru mörg sporin
sem liggja eftir Diddu, um móa og
mela, eftir bökkum Skorár, þar sem
hún leitaði að hreiðrum og beið
blómanna sem sprungu út hvert af
öðru og miðlaði til sona sinna nöfn-
um fugla og plantna. Hún var ekki
að víla fyrir sér að vera ein uppi í
bústað á meðan Aðalsteinn var að
vinna, ef hana vanhagaði um eitt-
hvað bara gekk hún á næstu bæi og
fékk að hringja.
Diddu var margt til lista lagt.
Hún var góður kokkur, frábær
föndrari, vel drátthög og svona
mætti lengi telja, en það sem mér
finnst hvað eftirminnilegast er víð-
tæk þekking hennar á bókmenntum.
Hún var vel lesin, það var í rauninni
sama hvaða höfundur var nefndur,
hvort sem var innlendur eða erlend-
ur að oft á tíðum hafði hún lesið eitt-
hvað eftir viðkomandi og skipti þá
ekki máli hvort það var í lausu máli
eða bundnu. Hún las alla bók-
mennta- og leikhúsgagnrýni sem
birtist í blöðunum, en lét það ekki
hafa áhrif á sig, hún varð að inn-
byrða sjálf verkið áður en hún
dæmdi það.
Það var alltaf fjör í kringum
Diddu, enda hændi hún að sér fólk
með léttleika og glaðværð sinni.
Hún átti marga vini og aldur skipti
ekki máli, því voru vinirnir á öllum
aldri, vinir sonanna urðu hennar
vinir. Hún lagði mikla áherslu á að
halda tengslum við fólkið sitt og
vildi fá fréttir að börnum og barna-
börnum ættingja og vina, hvað þau
væru að gera, hvaða skóla eða vinnu
þau stunduðu. Að rækta samband
við fólk var henni í blóð borið og hún
uppskar eins og hún sáði, því margt
af þessu fólki hefur reynst henni af-
ar vel, bæði skylt og óskylt.
Didda vildi að öll dýrin í skóg-
inum væru vinir og lagði sitt af
mörkum til að svo mætti vera.
Að eiga vinkonu og tengdamóður í
sömu manneskjunni er mikill kost-
ur. Við rökræddum hlutina og skipt-
umst á skoðunum um menn og mál-
efni. Þó svo að við værum ekki alltaf
sammála um leiðina að markinu vor-
um við alltaf sáttar og aldrei bar
skugga á vináttu okkar.
Seinustu árin hafa verið Diddu
erfið vegna veikinda, en oft birtist
bros og stutt var í glettnina.
Laufin brustu ei
grösin dóu ei
sandurinn missti ei purpuralitinn
ljóma slær af laufunum
skuggar flökta á veginum
geislum stafar gegnum runnann
yfir mér er dagur
og fugl eða himinninn
enn logar á sólinni
Með þessu litla ljóði eftir Einar
Braga vil ég kveðja hana Diddu
mína og þakka henni samfylgdina.
Martha Sverrisdóttir.
Elsku amma, takk fyrir öll árin
sem við fengum að njóta með þér.
Þú vildir alltaf aðeins það besta
handa okkur sem og öllum sem
þekktu þig. Minningarnar um þig og
allar góðu stundirnar sem við áttum
með ykkur afa munu aldrei hverfa.
Þín verður sárt saknað.
Í sólhvítu ljósi
hinna síðhærðu daga
býr svipur þinn
eins og tálblátt regn
sé ég tár þín falla
yfir trega minn
og fjarlægð þín sefur
í faðmi mínum
í fyrsta sinn
(Steinn Steinarr.)
Jökull, Dofri og Selja Ósk.
Mig langar með örfáum orðum að
minnast góðrar konu.
Jónína Snorradóttir reyndist mér
vel á þeim tíma sem komur mínar
voru nokkuð tíðar á heimili hennar.
Samband okkar helgaðist af kunn-
ingsskap mínum við son hennar,
Snorra. Snorri er meðal hinna
dyggu vina sem láta böndin ei
trosna þrátt fyrir mismunandi að-
stöðu á hverjum tíma. Jónína átti
fallegt og menningarlegt heimili við
Bauganes í Skerjafirði með sínum
ágæta eiginmanni Aðalsteini Egg-
ertssyni heildsala. Þangað kom ég
oft á þessum árum og þáði velvild og
góðar veitingar, hvort sem var and-
leg næring, matur eða drykkur.
Þessir vinir mínir voru alþýðlegt
fólk sem litu á lífshlaupið sem
spennandi áskorun til handa hverj-
um einstaklingi. Þau hjón voru að
sínu leyti áhugasöm um útivist og
hvers konar ferðalög innan lands
sem utan voru þeim hugleikin. Þau
áttu sumarhús í Kjós sem var góður
griðastaður. Jónína kunni af mörgu
að segja þegar þessi mál voru reif-
uð. Hún hafði góða kímnigáfu og
kannski smávegis stríðni til að bera
sem stundum kom fram þegar næt-
urrölt ungra manna var afhjúpað við
sunnudagssteikina. Þetta var mér
ljúft leiðarljós fyrir komandi tíð.
Hún var orðin nokkuð öldruð þegar
yfir lauk og síðustu árin var næsta
umhverfi henni að lokast hérna
megin, en hún hélt virðingu sem
fyrr.
Benedikt Björnsson Bjarman.
Jónína S. Snorradóttir