Morgunblaðið - 19.08.2008, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 19.08.2008, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008 11 FRÉTTIR TVEIR suður-afrískir ráðherrar eru nú í heimsókn á Íslandi, þau Mart- inus van Schalkwyk, umhverfisráð- herra, og Buyelwa Patience Sonjica, orku- og námumálaráðherra. Þau funduðu í gær með Þórunni Svein- bjarnardóttur, umhverfisráðherra. Þau ræddu samskipti Suður-Afr- íkumanna og Íslendinga og mögu- legt samstarf á sviði umhverfismála. Þau ræddu einnig um tilraunir þró- unarlanda og þróaðri landa til að ná samkomulagi um loftslagsmál og los- un gróðurhúsalofttegunda. Sonjica sagði brýnt að stuðla að góðu sambandi milli þjóðanna. Hún sagði að Suður-Afríkumenn hefðu margt að læra af Íslendingum, og að þeim væri mikið kappsmál að koma á notkun endurnýjanlegrar orku, þar sem 90% raforku sem notuð er í Suð- ur-Afríku eru framleidd með kolum, og losun koltvísýrings því mikil. Ábyrgðin líka þróunarlanda Schalkwyk sagði að Suður-Afríku- menn þyrftu að beisla sólar- og vind- orku og jafnvel jarðvarma. Þar gætu Íslendingar meðal annars leiðbeint þeim. Íslendingar hefðu einnig tekið mikilvæga afstöðu í loftslagssamn- ingum sem milligöngumenn þróun- arlanda og þróaðra landa. Hann sagði mikilvægt að þróun- arlöndin legðu sitt af mörkum til um- hverfisverndar, einnig þótt þróuðu löndin gerðu allt sem í þeirra valdi stæði. Hann lagði mikla áherslu á að Bandaríkjamenn þyrftu að leggja meira á sig, og að samkomulag um loftslagsmál væri ómögulegt án þeirra, þeir væru 4% íbúa heims en losuðu 25% gróðurhúsalofttegunda. Schalkwyk sagði að Balí-vegvísirinn, sem samþykktur var í desember, ætti að tryggja skuldbindingu bæði þróunarlanda og þróaðra landa til að beita aðgerðum sem væri hægt að mæla, gera grein fyrir og staðfesta. Aðspurður sagðist Schalkwyk bjartsýnn á að samkomulag næðist um stjórn í Simbabve. Hins vegar sagði hann reynslu Suður-Afríku- manna sýna að deiluaðilarnir þyrftu að finna sína eigin lausn. Lausn sem þröngvað væri upp á þá myndi ekki endast lengi. sigrunhlin@mbl.is Ráðherrar frá Suður- Afríku í heimsókn Ráðherrar Buyelwa Patience Sonjica, orku- og námumálaráðherra, Þórunn Sveinbjarnardóttir og Marthinus van Schalkwyk, bæði umhverfisráðherrar. Í HNOTSKURN »Umhverfisráðherra ogorku- og námumálaráð- herra Suður-Afríku eru í heimsókn á Íslandi. »Þau funduðu í gær meðÞórunni Sveinbjarnar- dóttur, umhverfisráðherra. »UmhverfisráðherrannSchalkwyk sagði þróun- arlönd líka ábyrg í loftslags- málum en var harðorður í garð Bandaríkjamanna. Íslendingar geti leiðbeint um notkun endurnýjanlegrar orku Eftir Birki Fanndal Haraldsson Mývatnssveit | Ástand ferða- mannavega þeirra sem ekki eru með bundnu slitlagi hefur aldrei verið verra segja þeir frændur Gísli Rafn Jónsson og Gísli Árna- son en þeir fara daglega um sum- artímann í Öskju á vegum fyr- irtækis Jóns Árna og Gísla Rafns. Karl Viðar sem rekur vöruflutn- inga undir eigin nafni og sækir gjarnan bilaða bíla inn á fjallvegi hefur svipaða sögu að segja. Hann fór af stað áleiðis í Herðubreiðar- lindar í gær til að sækja bilaðan bíl en sneri við eftir hálftíma akst- ur þar sem hann taldi hvorki sér né bíl sínum bjóðandi að fara þessa leið. Vegurinn er nú eitt þvottabretti enda verið mikil um- ferð á sólríku sumri. Sömu sögu er að segja af Grjótagjárvegi og Hverfellsvegi, þeir eru orðnir þannig að engum er bjóðandi, hvorki fólki né far- artækjum vegna þvottabretta og ryks. Ekki verða hér orð höfð um Dettifossveg í þjóðgarðinum stóra. Það er til mikils vansa fyrir samgönguyfirvöld að bjóða slíka óvegi ár eftir ár, þrátt fyrir marg- falda aukningu á umferð. Löngu er orðin knýjandi nauðsyn að leggja þessar fjölförnu leiðir með bundnu slitlagi. Annað er ekki boðlegt. Nútímaumferð kallar á slíkt. Morgunblaðið/Birkir Fanndal Haraldsson Torfærur Gísli Árnason var nýkominn úr Öskjuferð með fjölda útlendinga og hreinsar hér framrúðuna fyrir næsta dag. Fyrirtækið hefur verið með skipulagðar Öskjuferðir frá árinu 1979 og alla tíð verið farsælt. Fjölfarnar ferðamanna- leiðir eru nánast ófærar ÍS LE N S ÍS LE ÍS LE ÍS LE K A SI AA. IS M S ISI A 40 989 4 8 05 /0 8 05 /0 8 05 /0 8 05 / 8

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.