Morgunblaðið - 19.08.2008, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 19.08.2008, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008 13 ERLENT FRÉTTASKÝRING Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is PERVEZ Musharraf, forseti Pakist- ans, lét undan miklum þrýstingi í gær og sagði af sér til að afstýra málshöfðun á hendur sér fyrir alvar- leg embættisbrot. Líklegt er að Musharraf hafi fallist á að segja af sér eftir að hafa náð samkomulagi við stjórn landsins fyrir milligöngu vestrænna ríkja um að hætta við málshöfðunina gegn því að hann léti af embætti. Musharraf voru allar bjargir bannaðar þar sem nýr yfirhershöfð- ingi landsins hafði gert forsetanum grein fyrir því að hann gæti ekki reitt sig á stuðning hersins ef hann yrði sóttur til saka fyrir embætt- isbrot. Herinn hefur stjórnað land- inu í rúman helming af 61 árs sögu þess sem sjálfstæðs ríkis en nýi yf- irhershöfðinginn virðist staðráðinn í að skipta sér ekki af stjórnmálunum. Helstu bandamenn Musharrafs erlendis – ráðamenn í Bandaríkj- unum, Bretlandi og Sádi-Arabíu – höfðu einnig gefið til kynna að hon- um væri ekki lengur stætt á því að gegna embættinu. Talið er þó að er- lendu bandamennirnir hafi lagt að stjórn Pakistans að semja við Mus- harraf um afsögn hans. Hrossakaup og valdabarátta Mikil óvissa er um framhaldið og þótt afsögn Musharrafs sé álitin skref í rétta átt er ekki víst að lýð- ræðið haldi velli í landinu. Búast má við erfiðum samningaviðræðum, hrossakaupum og harðri valdabar- áttu milli tveggja helstu stjórnar- flokkanna. Gert er ráð fyrir því að forseti öldungadeildar þingsins verði skipaður forseti landsins til bráða- birgða þar til nýr þjóðhöfðingi verð- ur kjörinn á þinginu og fjórum hér- aðsþingum. Líklegt er að þingið breyti stjórnarskránni til að auka völd forsætisráðherrans á kostnað forsetaembættisins, sem hafði bæði tögl og hagldir í stjórnkerfinu eftir valdarán hersins 1999. Viðræðurnar gætu tekið margar vikur, jafnvel mánuði. Talið er að Asif Ali Zardari, leið- togi Þjóðarflokks Pakistans og ekkill Benazir Bhutto, fyrrverandi for- sætisráðherra, vilji verða forseti landsins. Ólíklegt er þó að Nawaz Sharif, leiðtogi annars af stóru stjórnarflokkunum, samþykki það. Hugsanlegt er að þeir komi sér nið- ur á forsetaefni sem báðir flokkarnir geti sætt sig við, t.a.m. Asfandayr Wali Khan, leiðtoga eins af minni stjórnarflokkunum. Andstaðan við Musharraf er eitt af því fáa sem hefur sameinað stjórnarflokkana og nú þegar hann er á förum er hætta á því að stjórnin leysist upp í harðri valdabaráttu. Óvissa er einnig um hvort Mus- harraf verður sóttur til saka og hvort hann fær að vera áfram í Pak- istan. Aðstoðarmenn hans hafa beitt sér fyrir því að hann fái að dvelja þar áfram en ekki er víst að stjórnin samþykki það. AP Fögnuður Pakistanskar konur fagna afsögn Musharrafs með því að gefa vegfarendum sælgæti á götu í Multan. Musharraf allar bjargir bannaðar Gat ekki lengur reitt sig á stuðning hersins og erlendra ríkja Reuters Kveðjuávarp Musharraf ávarpaði þjóðina í sjónvarpi í gær. Á NÍU ára valdatíma sínum eftir valdarán hersins 1999 hamraði Pervez Musharraf á því að hann væri eini maðurinn sem gæti bjargað Pakistan. Stjórnmálaskýrandinn Talat Masood, fyrrverandi hershöfðingi, telur að ofdramb hafi orðið Musharraf að falli. „Allir einræðisherrar telja á endan- um að þeir séu frelsarar, án þeirra hrynji ríkisvaldið og þeim sé skapað að gegna því hlutverki,“ sagði Masood. Vandræði Musharrafs hófust í fyrra þegar hann vék dómurum úr embætti til að greiða fyrir því að hann gæti haldið forsetaembættinu án þess að segja af sér sem yfirhershöfðingi. Sú ákvörðun leiddi til fjölmennra mótmæla sem urðu til þess að Musharraf setti herlög. Hann neyddist að lokum til að segja af sér sem yfirhershöfð- ingi og flokkur hans beið mikinn ósigur í þingkosningum í febrúar. Hefnist fyrir hroka og dramb Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is CONDOLEEZZA Rice, utanrík- isráðherra Bandaríkjanna, sagði á blaðamannafundi í gær að Rússland væri í „hættulegum leik“ við Bandaríkin og bandamenn þeirra. Hún varaði jafnframt við því að NATO myndi ekki leyfa það að Rússar hefðu betur í átökunum í Georgíu, settu Evrópu úr jafnvægi eða drægju á ný járntjald í gegnum álfuna. Neyðarfundur NATO Rice var á leið til neyðarfundar leiðtoga NATO-ríkjanna í Brüssel og sagði hún að þar yrði ástandið í Georgíu rætt. NATO myndi refsa Rússum fyrir innrásina í Georgíu og koma í veg fyrir áætlanir þeirra í landinu með því að styðja við lýð- ræði og enduruppbyggingu í Georgíu og öðrum austur- evrópskum lýðræðislöndum. „Það er greinilega ætlun Rússa að grafa undan lýðræði í Georgíu, nýta hernaðarstyrk sinn til að valda skemmdum á innviðum landsins og veikja ríkið,“ sagði Rice. Hún gat ekki sagt fyrir í hverju refsiaðgerð- ir NATO-ríkjanna á hendur Rúss- um myndu felast. Auk hugsanlegra refsiaðgerða verður á NATO-fundinum í dag rætt um stuðning við alþjóðlega eft- irlitsstarfsemi í Georgíu. Deildar meiningar eru um hvort Rússar séu að draga her sinn út úr Georgíu, en þeir höfðu heitið því að hefja brottflutninga í gær. Fréttum frá Moskvu og Tíblisi ber ekki sam- an. Samkvæmt rússneskum fjöl- miðlum hófust flutningar herliðs frá Georgíu í gær. Háttsettur georgískur embættismaður sagði hinsvegar engin merki vera um brottflutning rússnesks herliðs frá landinu. Samkvæmt upplýsingum BBC voru rússneskir skriðdrekar og annar vopnabúnaður enn sýni- legur aðeins um 35 km frá höf- uðborginni Tíblisi í gær. „Rússland í hættulegum leik“ Rússneskt herlið enn sýnilegt í Georgíu Herlið Rússneskir hermenn í nánd við georgísku borgina Gori í gær. Í HNOTSKURN »Átök blossuðu upp íGeorgíu fyrir tæpum tveimur vikum vegna deilna um yfirráð í Suður-Ossetíu- héraði. »Vesturlönd hafa krafistþess að Rússar dragi her- lið sitt til baka og Frakkar vilja kalla til sérstaks Evrópu- sambandsfundar verði Rússar ekki við kröfunum. Reuters anskra kvenna verið beittar of- beldi, þar af 50% kynferðisofbeldi. 60% voru þvingaðar í hjónaband. Blaðamaður breska blaðsins The Independent heimsótti nýlega fang- elsi í borginni Lashkar Gah í Helm- and-héraði, þar sem meirihluti kvenna situr inni fyrir að hafa verið nauðgað. Hún talaði meðal annars við Ghulam Ali ofursta, öryggisfull- trúa á svæðinu. Hann sagði ekkert rangt við lög sem gera brotaþolann brotlegan. „Það er glæpur, því ísl- ömsk lög segja að það sé glæpur.“ Ráðgjafarnefnd, svokallað shura, sem ætlað er að takast á við vand- ann var sett á laggirnir í Helmand- héraði í síðustu viku. Meðlimir ráð- gjafarnefndarinnar vilja miðla mál- um með því að útvega sérhúsnæði fyrir konur sem hafa flúið að heim- an, í staðinn fyrir að þær fari í fangelsi. Önnur vonarglæta fyrir afganskar konur er ráðuneyti mál- efna kvenna sem stofnað var árið 2001. Réttindi milljóna kvenna eru þó enn fótum troðin og baráttan er rétta að byrja. sigrunhlin@mbl.is Nauðgunarfórnarlömb í fangelsi AFGÖNSK lög um ólögleg kynferð- issambönd gera engan greinarmun á konum sem hefur verið nauðgað og konum sem stunda kynlíf utan hjónabands af fúsum og frjálsum vilja. Konur sem dæmdar eru fyrir slíkt eru, ásamt konum sem hafa flúið frá heimilum sínum, stærstu hópar kvenna sem sitja í afgönsk- um fangelsum. Viðurlögin við því fyrrnefnda er 20 ára fangelsi, en 10 ára fangelsi við því síðarnefnda. Samkvæmt rannsókn samtak- anna Womankind hafa 87% afg- Útimálning Viðarvörn Lakkmálning Þakmálning Gólfmálning Gluggamálning Allar Teknos vörur eru framleiddar skv. ISO 9001 gæðastaðli. Afsláttur af málningarvörum 20% Sætúni 4 Sími 517 1500 Sérhönnuð málning fyrir íslenskar aðstæður. Skútuvogi 13 S. 517 1500 www.teknos.com Pallaolía 3l. Kr. 1290,- ÞÝSKA lögreglan hefur gert upp- tækan skrifstofustól sem líklega er sá hraðskreiðasti í heimi. Stóllinn var þróaður af tveimur sautján ára drengjum í bænum Gross-Zimmern. Þeir höfðu fest sláttuvélarmótor við stólinn auk hjólreiðabremsna og málmramma og á þann hátt breytt honum í lítið farartæki. Lögreglan segir drengina aðeins hafa ekið farartækinu nokkra metra en vitni segjast þó hafa séð til þess víða um bæinn. Uppátæki drengjanna er nú í til meðferðar hjá lögreglunni og gætu þeir fundist sekir um akstur án leyf- is auk þess að aka óskráðu og óvið- urkenndu ökutæki. Lögreglan gat þess ekki hversu hratt væri hægt að þenja stólinn. jmv@mbl.is Skrifstofustóll ógnar öryggi bæjarbúa

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.