Morgunblaðið - 19.08.2008, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 19.08.2008, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008 25 Atvinnuauglýsingar Af hverju að bíða og bíða eftir stóra vinningnum þegar þú getur unnið fyrir öllu sem þig langar að eignast? Það eina sem þú þarft að gera er að bera út blöð í 1-3 tíma á dag. Besta aukavinna sem þú getur fundið og góð hreyfing í þokkabót! Hringdu núna og sæktu um í síma 569 1440 eða á mbl.is! Sæktu um blaðberastarf – alvörupeningar í boði! Saumastofa ÖBÍ Klæðskerar ofl. Klæðskeri, kjólasveinn, kjólameistari eða starfskraftur með reynslu af sniðagerð og almennum saumaskap óskast til starfa hjá Saumastofu ÖBÍ í Hátúni 10. Áhugi á sölumennsku er einnig góður kostur í þessu starfi. Hjá Saumastofu ÖBÍ starfa saman 12 starfsmenn, fatlaðir og ófatlaðir, við fram- leiðslu á léttum vinnufatnaði, þar sem lögð er áhersla á vandaða vöru og góða þjónustu. Í boði er fjölbreytt starf og góð vinnuaðstaða á þægilegum vinnustað. Áhugasamir sæki um í tölvupósti: vinnustadir@obi.is eða í síma. 552 6800, Harpa eða Þorsteinn. Raðauglýsingar 569 1100 Tilkynningar Fjölbrautaskólinn í Garðabæ við Skólabraut, 210 Garðabæ, sími 520-1600, fax 565-1957 vefslóð: http:www.fg.is, netfang: fg@fg.is Fjarnám: fg.is Öflugt og gott fjarnám í boði. Hagstætt verð. Endurgreiðslur til þeirra sem ljúka prófum! Þarft þú hjálp við að skipuleggja nám þitt til stúdentsprófs? Hefur þú lokið einhverjum áföngum í framhaldsskóla? Átt þú fáa áfanga eftir til að ljúka stúdentsprófi eða öðru réttindanámi? Skoðið heimasíðuna: www.fg.is Umsóknarfrestur er til 29. ágúst nk. Skólameistari. Mat á umhverfisáhrifum - álit Skipulagsstofnunar Breikkun Reykjanesbrautar um Hafnarfjörð Frá Strandgötu að Krýsuvíkurvegi í Hafnarfirði Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt um mat á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. Niðurstaða Skipulagsstofnunar er að ofangreindar framkvæmdir séu ásættan- legar en stofnunin hvetur til þess að framkvæmdaleyfi verði skilyrt aðgerðum til að draga úr rykmengun á framkvæmdatíma. Álitið í heild liggur frammi hjá Skipulags- stofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Álit Skipulagsstofnunar og matsskýrslu Vega- gerðarinnar er einnig að finna á heimasíðu stofnunarinnar: www.skipulag.is. Skipulagsstofnun Ýmislegt Verður ættarsilfri sóað? Víst eru söfn fornmuna og lista og menningar- hús verð opinbers fjárstuðnings til fræðslu, skemmtunar og þjónustu.Til upplyftingar, vitja þó flestir, innlendir sem erlendir, lítt snortinnar náttúru landsins, þótt oft skorti hana upplýsinga- og viðvaranaskilti og sæmandi salerni. Hún hefur þjónað ókeypis,(???), sem orkulind stóriðju, til að ,,bjarga” þjóðarhag og enn á hún að ,,bjarga” þjóðarhag og raunar bönkunum líka? Er ekki ráð opinberir valdhafar létti leynd af þjóðhagslegum hagnaði eða tapi og sóun af opinberri orkusölu til stóriðju síðustu áratuga, áður en frekari náttúrufórnir verða færðar risaálverum? Tómas Gunnarsson, áhugamaður um opinbera stjórnarhætti. Auglýsing um breytingu á Aðalskipulagi Ólafsfjarðar 1990-2010 og tillögu að deiliskipulagi hesthúsahverfis, Ólafsfirði. 1. Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Ólafsfjarðar 1990-2010 – Hesthús og æfingasvæði hesta- manna. Bæjarstjórn Fjallabyggðar samþykkti á fundi sínum 13. ágúst 2008 að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Ólafsfjarðar 1990-2010 og auglýsist hún hér með. skv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum. Bæjarstjórn Fjallabyggðar leggur til að gerð verði breyting á Aðalskipulagi Ólafsfjarðar 1990-2010 á svæði sunnan við þjóðveg um Héðinsfjarðargöng, Ólafsfjarðarmegin. Í gildandi aðalskipulagi er svæðið sem tillagan tekur til skilgreint sem Opið svæði, óbyggt en verði samkvæmt tillögunni skilgreint sem Opið svæði til sérstakra nota og nánar skilgreint sem hesthús og æfingasvæði hestamanna. 2. Tillaga að deiliskipulagi hesthúsahverfis, Ólafsfirði. Samkvæmt 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br., er hér með auglýst tillaga að deiliskipulagi hesthúsahverfis í Ólafsfirði sem bæjarstjórn Fjallabyggðar samþykkti á fundi sínum 08. júlí 2008. Skipulagssvæðið afmarkast við nýjan veg að Héðinsfjarðargöngum í Ólafsfirði í norðri og Ólafsfjarðarvatni í austri og er um 7 ha. að stærð. Í deiliskipulagstillögunni er gert ráð fyrir hesthúsahverfi, reiðskemmu og æfingasvæði hestamanna. Skipulagstillögurnar verða til sýnis á bæjarskrifstofum Fjallabyggðar, Gránugötu 24 á Siglufirði og Ólafsvegi 4 í Ólafsfirði, alla virka daga frá 20. ágúst 2008 til 1. október 2008. Þeir sem vilja gera athugasemd við tillögurnar skulu gera það með skriflegum hætti í síðasta lagi fyrir kl: 16:00 miðvikudaginn 1. október 2008. Hægt er að skoða skipulagstillögurnar á vefsíðunni www.fjallabyggd.is. Hver sá sem ekki gerir athugasemd við tillögur þessar innan tilskilins frests telst samþykkur þeim. Skipulags- og byggingarfulltrúi Fjallabyggðar Tilboð/Útboð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.