Morgunblaðið - 19.08.2008, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 19.08.2008, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ Nú er bara að sjá hvað liðið tollir lengi á baki, gamli framsóknargráni hefur nú átt það til að taka hliðarspor bæði til hægri og vinstri. VEÐUR Það er ekki alltaf auðvelt fyrir fólkað vera samkvæmt sjálfu sér í sumum álitamálum. Jakob Björns- son fyrrverandi orkumálastjóri sýndi fram á það í Morgunblaðinu í gær.     Jakob bendir á að söngkonan Björksé á móti álverum. Samt byggist vinna hennar meðal annars á því að ferðast á milli landa með flug- vélum, sem eru smíðaðar úr áli, og syngja fyrir fólk.     Það eru ekkibara flugvél- arnar sem eru smíðaðar úr áli heldur einnig geisladiskarnir sem Björk setur tón- list sína á og selur í bílförmum um allan heim.     Tölvur, speglar og farsímar eruallt nauðsynleg tæki á nútíma heimilum. Varla komast andstæð- ingar álvera hjá því að nota slíka hluti þrátt fyrir að ál komi við sögu við framleiðslu þeirra.     Ál er líka mikilvægt efni í smíðibíla sem flytja þekkta jafnt sem óþekkta einstaklinga milli staða. Er ekki léttur málmur betri í þá vinnslu til að minnka eldsneytisnotkun? Það er í þágu umhverfisins.     Jafnvel tjaldsúlurnar, pönnurnarog pottarnir sem Saving Iceland fólkið sauð núðlusúpu í í tjaldbúðum uppi á Hellisheiði eru búin til úr áli. Eru allir meðvitaðir um það?     Ál kemur víða við í daglegu lífi.Málmurinn er ódýr og léttur, hefur lækkað vöruverð og gert fólki kleift að ferðast ódýrar en ella.     Eru allir andstæðingar álvera sam-kvæmir sjálfum sér? STAKSTEINAR Björk Guðmundsdóttir Álvershræsnin SIGMUND                      ! " #$    %&'  (  )                        *(!  + ,- .  & / 0    + -                            12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (                     :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).?                                                           *$BC                      ! *! $$ B *! ! " #$ $"$  %  & <2 <! <2 <! <2 !%#$' ( )$*+, DB E           <7  "       #    $                <   %     & #     '             &   # (      ) -. $ $// $  $0  + $' ( Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ FRÉTTIR Mosfellsbær hef- ur tekið í notkun íbúagátt, sem eru rafrænar dyr að stjórnsýslu Mos- fellsbæjar. Með þjónustunni hef- ur Mosfellsbær þar með stigið enn eitt skrefið í að gera stjórn- sýsluna aðgengi- legri og auðveldar um leið íbúum bæjarins að nálgast þjónustu á veg- um sveitarfélagsins. Mikilvægt skref Haft er eftir Haraldi Sverrissyni bæjarstjóra í tilkynningu að með til- komu íbúagáttarinnar hafi Mosfells- bær „stigið mikilvægt skref í átt að markmiðum sínum um skilvirka og ábyrga stjórnsýslu“. Þá segir Har- aldur að með íbúagáttinni séu bæj- arbúar komnir í beint samband við bæinn sinn því nú geta þeir með raf- rænum hætti sótt um þjónustu til sveitarfélagsins, sent inn formleg er- indi, fylgst með framgangi sinna mála, skoðað greiðslustöðu, komið ábendingum á framfæri og ýmislegt fleira. Íbúagátt opnuð í bænum Stjórnsýslan gerð rafræn og aðgengileg Haraldur Sverrisson SVO virðist sem mjög stór klettur hafi fallið úr Ingólfsfjalli fyrir stuttu. Grjóthrunið varð í fjallinu gegnt gatnamótum Suðurlandsvegar og Biskups- tungnabrautar. Ekki er ljóst hvenær kletturinn féll, en þó er öruggt að það var nokkru eftir að jarðskjálftinn varð í maí. Jóhann Þorvaldsson á bænum Rein segist sjá klettinn vel frá heimili sínu. „Þetta er svolítið stór klettur sem hefur dottið niður núna,“ segir Jó- hann, sem útskýrir að auðvelt sé að sjá hvaðan steinar hafi fallið því öðruvísi litur sé í fjallinu þar sem þeir sátu. „Mér finnst þetta vera það stærsta sem ég hef séð,“ segir hann, og kveðst hafa talað við fleiri sem ekki segjast hafa séð annað eins áður. Þeirra á meðal er eiginkona Jóhanns, sem búið hefur á svæðinu á þriðja áratug. Engin byggð er nálægt grjóthruninu þannig að enginn hefur verið í hættu. Í jarðskjálftanum fyrr í sumar féllu nokkur stór björg úr Ingólfsfjalli. Þá reyndist það stærsta 50 rúmmetrar og hafði skoppað 370 metra. Lögreglan á Selfossi hafði ekki upplýsingar um hvenær grjóthrunið átti sér stað, en taldi fáeinar vikur síðan, hið minnsta. Stór klettur hrundi úr Ingólfsfjalli Óljóst hvenær hann féll en öruggt að það var eftir jarðskjálftann í maílok Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Hrun Bjarg sem hrundi úr Ingólfsfjalli í vor. NIÐURSTÖÐUR liggja fyrir í blaðberakapphlaupi júlímánaðar. Að þessu sinni varð Lilja Björk Sigurdórsdóttir hlutskörpust og hlýtur hún stafræna myndavél frá Olympus í viðurkenningarskyni fyrir framúrskarandi blaðburð í júlí. Lilja Björk ber út blöðin í Teigaseli og Ystaseli í Breiðholti. Í júlí- og ágústmánuði hefur dreifingardeild Árvakurs verið í samstarfi við BT með sumarkapp- hlaup hjá blaðberum sínum. Í hverri viku í þessum mán- uðum hljóta sex kvartanalausir og stundvísir blaðberar ýmsa vinninga og einn blaðberi hvorn mánuð fær veglega viðurkenn- ingu fyrir framúrskarandi árang- ur. Morgunblaðið/G.Rúnar Sigurvegari Lilja Björk t.v. og Snjólaug Gunnarsdóttir frá dreifingardeild. Blaðberi í Breiðholti bar sigur úr býtum Í HNOTSKURN »Til að blaðberi eigi mögu-leika á að vinna í kapp- hlaupi Morgunblaðsins þarf hann að vera kvartanalaus og stundvís. »Þá á hann von á ýmsumvinningum og einn slíkur fær vegleg verðlaun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.