Morgunblaðið - 19.08.2008, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 19.08.2008, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008 35 ÞÓRIR Georg Jónsson sendir frá sér sína þriðju breiðskífu undir merkjum My Summer as a Salvation Soldier en áður hafa komið út I Belive in This og Anarchistsare Hopless Rom- antics. Þórir kom fram á sjónarsviðið ungur að árum en hefur sýnt gríð- arlega mikla færni og iðjusemi því ásamt því að starfa og stýra MSAASS þá er hann í að minnsta kosti fjór- um öðrum hljóm- sveitum. Activism er býsna heilsteypt og góð plata þar sem Þórir semur öll lög og texta líkt og í fyrri verkum. Hann leikur einnig á flest hljóðfærin auk þess að stýra upptökum og útsetningum en nýtur þó aðstoðar Ólafs Arnalds og Þórðar Her- mannssonar í nokkrum laganna. Tón- málið hefur tekið breytingum, er orð- ið ekta dimmt og þjóðlagaskotið tilraunarokk en textagerðin er á svip- uðum slóðum og áður fyrr, kannski dekkri og drungalegri ef eitthvað er og ekki eins rómantísk og það sama má segja um naumhyggjulega fram- setninguna. Þórir ber áhyggjur heimsins á herðum sér, hann er fullur efasemda út í lífið og tilveruna en í gegnum linsu hans má greina þá staðreynd að angist æskuáranna get- ur verið mikil og erfið að eiga við. Það er ekki auðvelt að vera ungur hug- sjónamaður í veröld sem virðist oft svo köld og harðneskjuleg. Hljómagangur og uppbygging lag- anna í þessu verki Þóris er hæg og nánast sparsöm því það er mikið rúm í lögunum – pláss fyrir eitthvað meira sem fær ekki að hljóma. Þetta er stíll sem Þórir hefur ágætis tök á, tilrauna- kenndur og spennandi. Hlustandinn setur sig í stellingar og reynir að heyra eitthvað sem er jafnvel ekki til staðar á meðan hljóðbylgjurnar sem óma teygja anga sína mjúklega utan um hann. Stíllinn getur þó orðið yfir- þyrmandi til lengdar og nánast þreyt- andi, því þó að tónlistin sé ávallt góð þá reynir hún töluvert á – sem er bæði gott og slæmt því staðreyndin er sú að spennan er svo mikil að manni nánast verkjar í axlirnar. Stundum virðast hljómarnir nánast hrasa um hvern annan, í tilviljanakenndri röð, en þó þannig að heildarmyndin nær á undra- verðan hátt að halda sér. Það eru þó helst textarnir sem fá mann til að hugsa, efast og velta fyrir sér þeim erf- iðleikum sem Þórir yrkir um. Sveitir eins og The Cure og Joy Division koma upp í hugann en einnig augljós- ari áhrifavaldar eins og Bonnie ‘Prince’ Billy. Lögin sem skara fram úr eru nokk- ur og þau sem hafa fengið að hljóma hvað oftast af Activism eru hið skemmtilega og súra „Uh-Oh“, hið Cure-lega „Jesus Christ!“, síðustu tvö lögin í lokin og að endingu rokk- gítarsprengjan geggjaða „How are You?“ sem brýtur upp plötuna sem er annars öll á rólegri nótunum. Sem fyrr, eins og sjá má á lagatitlunum, syngur og semur Þórir á ensku en flutningur og framburður er per- sónulegur og hlýr og blessunarlega laus við þá tilgerð og vitleysu sem oft læðist inn í ensku sunginna texta ís- lenskra hljómsveita. Kenningin um hina „erfiðu“ þriðju plötu er enn í gildi og það er enginn vafi á því að Þórir á mikið inni og ógert. Það er engu að síður gaman þegar listamenn taka áhættu og leita nýrra miða í list- sköpun sinni. Þórir miðlar af reynslu- heimi sínum og útkoman er metn- aðarfull plata sem kemur á óvart en á köflum fer að bera á endurtekningu og einhæfni. Þetta er útpælt verk sem verður stundum torskilið og erf- itt yfirferðar en í heildina góður grip- ur. Það eru ekki margar sveitir hér á landi eins og My Summer as a Salvation Soldier, svo mikið er víst. Metnaðar- fullur hug- sjónamaður TÓNLIST Geisladiskur My Summer as a Salvation Soldier – Activismbbbmn Jóhann Ágúst Jóhannsson Heilsa og lífstíll Glæsilegt sérblað um heilsu og lífstíl fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 29. ágúst. Allar nánari uppl. veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105 eða kata@mbl.is. Auglýsendur! Pantið fyrir klukkan 16, mánudaginn 25. ágúst. Ásamt fullt af spennandi efni. Meðal efnis er: • Hreyfing og líkamsrækt. • Heildrænar heilsumeðferðir af ýmsu tagi. • Andleg iðkun. • Slökun og leiðir til þess að slaka á. • Ofnæmi og aðgerðir gegn því. • Heilsusamlegar uppskriftir. • Megrun - hver er skynsamlegasta leiðin. • Grænmetisfæði og annað fæði. • Mataræði barna - hvernig má bæta það. • Skaðsemi reykinga. • Góður svefn. • Fætur og skór. Sími 533 4800 Falleg 55,8 fm 2ja herbergja íbúð á 1.hæð í litlum stigagangi í miðbæ Reykjavíkur. Íbúðin skiptist í miðjuhol, baðherbergi, eldhús, stofu og svefnherbergi. Sérgeymsla og sameiginlegt þvottahús. Íbúðin er laus fljótlega. Verð 19,5 m. Laugavegur 182 • 4. hæð • 105 Rvík Fax 533 4811 • midborg@midborg.is Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali. Njálsgata - kemur þér við Sérblað um mat fylgir blaðinu Hittumst á Hellu! LANDBÚNAÐARSÝNINGIN HELLU 22.–24. ÁGÚST 2008 www.landbunadarsyning.is Landsskipulag siglir í strand í ríkisstjórn Nýtt fangelsi með sjúkradeild Snorri vill fá spari- baukinn sinn aftur Kínverjar í kínakálinu austur í hrepp SvanasöngurVilhjálms Vilhjálmssonar Hvað ætlar þú að lesa í dag? AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.