Morgunblaðið - 19.08.2008, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2008 23
Við kveðjum nú afa
okkar Eirík Guð-
mundsson sem náði
99 ára aldri.
Afi var hlýr og
skemmtilegur, gerði oft að gamni
sínu enda fáir með jafngott skop-
skyn og hann. Alltaf var notalegt að
koma á Árveginn til þeirra ömmu
Eiríkur Guðmundsson
✝ Eiríkur Guð-mundsson fædd-
ist á Egilsstöðum í
Villingaholtshreppi
17. júlí 1909. Hann
lést á Kumbaravogi
2. ágúst síðastliðinn
og fór útför hans
fram frá Selfoss-
kirkju 9. ágúst.
og ekki breyttist það
eftir að þau fluttu á
Grænumörkina. Dóta-
kassinn með kubbun-
um var dreginn fram
fyrir barnabörn og
barnabarnabörn og
var gott að upplifa ró
og frið heimilisins.
Þegar við hugsum til
baka hlýja ljúfar
minningar okkur um
hjartaræturnar. Það
var í anda afa að
kveðja þetta jarðlíf
með kyrrlátum dauð-
daga. Við búum að þeim góðu
stundum sem við áttum með honum
í áranna rás.
Margrét og Ragnheiður.
Góður vinur og
skólabróðir, Steinn
Hermann, er látinn.
Við kynntumst fyrst
á Skógaskóla árið
1960. Ég minnist hans sem mikils
prakkara sem naut þess að stríða
okkur stelpunum. Það ástand stóð
þó ekki lengi, því fljótlega var
hann orðinn frábær félagi og vinur
og stórskemmtilegur. Steini var
myndarlegur, dökkhærður með
hrokkið hár, með spékoppa og
skemmtilegt prakkarabros. Við
vorum margar sem áttum hann að
trúnaðarvini.
Eftir Skógaskóladvölina fórum
við skólafélagarnir hver í sína átt-
ina og hittumst við því ekki mikið
fyrstu árin. Nokkrum árum síðar
hittumst við Steini aftur þegar
hann var að vinna hjá Guðmundi
Jónassyni, m.a. við að aka flug-
farþegum til Keflavíkur en ég
vann þá í flugafgreiðslu Loftleiða.
Þarna endurnýjuðum við vinskap-
inn. Hann var alltaf hress og kátur
með bros og glens á vör þótt hann
væri að mæta í vinnuna um miðjar
nætur. Það voru skemmtileg ár.
Það hefur komist á sú hefð hjá
okkur Skógaskólanemendum að
hittast nokkuð reglulega. Í þessum
ferðum hefur Steini verið sjálf-
sagður fararstjóri og hrókur alls
fagnaðar. Hann útvegaði rúturnar
og bílstjórana eða ók bara sjálfur.
Hann sagði skemmtilegar sögur af
sveitungum sínum þegar ekið var
austur Eyjafjöllin að Skógum.
Hann hafði gott skopskyn og naut
þess að segja frá. Í einni ferð okk-
ar að austan bauð hann öllum
hópnum heim, þar sem hann og
Guðný kona hans tóku höfðinglega
á móti okkur. Hann bauð Jóni
Hjálmarssyni fyrrverandi skóla-
✝ Steinn HermannSigurðsson
fæddist í Reykjavík
9. september 1946.
Hann lést á líkn-
ardeild Landspít-
alans í Kópavogi 31.
júlí síðastliðinn og
fór útför hans fram
í kyrrþey.
stjóra á Skógum og
konu hans Guðrúnu
að vera með okkur
sem gerði boðið enn
eftirminnilegra.
Þessar ferðir okkar
hafa verið einstak-
lega vel heppnaðar
og átti Steini stóran
þátt í því.
Tilviljanir í lífinu
eru oft skemmtileg-
ar. Ég kenni í grunn-
skóla og var að
kenna 1. bekk er ný
stúlka kom í bekkinn
fyrir nokkrum árum. Það var Auð-
ur Sif og fljótlega komst ég að því
að afi hennar var enginn annar en
Steinn Hermann. Börnunum í
bekknum fannst mjög fyndið þeg-
ar ég bað Auði um að skila kveðju
til afa eða þegar ég fékk kveðju til
baka frá afa! Nú er Pétur Guð-
björn í bekk hjá mér og höfum við
haft sama háttinn á með kveðj-
urnar. Tvö önnur barnabörn hans
hafa verið hjá okkur í skólanum,
Steinn Hermann og Fjóla María.
Öll eru þessi börn mjög efnileg og
dugleg eins og þau eiga kyn til og
var Steini mjög stoltur af þeim.
Það hefur verið ánægjulegt að fá
að kynnast börnum hans og barna-
börnum á þennan hátt.
Við Steini ræddum oft saman í
síma og töluðum um gömlu góðu
dagana en núna síðustu árin voru
börnin okkar og barnabörnin oftar
á dagskrá. Steini háði mjög erfiða
baráttu við Bakkus sem rýrði lífs-
gæði hans síðustu árin og ræddi
hann það opinskátt.
Við finnum það vel þegar árin
fara að færast yfir hve mikilvægt
er að rækta gömul kynni. Skóga-
skólahópurinn á eftir að koma oft-
ar saman en það verður ekki eins
þegar Steina vantar. Hann hafði
gott lag á að hrista upp í mann-
skapnum og halda uppi glensi og
gamni. Hans mun verða saknað.
Innilegar samúðarkveðjur til
barna, barnabarna og annarra ást-
vina.
Minningin um góðan dreng lifir.
Hrefna Jónsdóttir.
Steinn Hermann
Sigurðsson
Halldórssyni, undirleikara sínum,
fyrir héraðsmót framsóknarmanna
þá um kvöldið. Þetta er fyrsta hér-
aðsmótið okkar þetta sumar og þarf
að renna aðeins í nokkur lög áður.
Húsfreyjan á bænum, sem borið hef-
ur fram góðar veitingar, hefur læðst
úr eldhúsinu að baðstofudyrunum og
stendur þar sem lömuð með tárin
rennandi niður vangana þegar hinir
ljúfu sænsku tónar flæða um þessi
vinalegu húsakynni og fylla þau un-
aði. Stundum verða svona „litlar“
stundir þær ógleymanlegustu í líf-
inu. Þessi sveitakona lyftist upp úr
hversdagsstritinu í þröngum vest-
firskum fjalladal til að njóta erlendra
menningarstrauma. Á þessum árum
var Árni Jónsson nýkominn úr söng-
námi í Svíþjóð og þótti komast næst
Stefáni Íslandi að raddfegurð á háu
tónunum á þeim tíma sem Íslending-
ar miðuðu allan tenórsöng við Stef-
án. Svo fögur var túlkun Árna á
sænsku lögunum að maður gleymdi
því hvílík dirfska það var hjá honum
að syngja sömu lög og Jussi Björl-
ing, líklegast annar af tveimur bestu
tenórsöngvurum allra tíma. Her-
mann Jónasson sat með mér í bað-
stofunni og við ræddum eftir á um
það að aldrei hefði flutningur þess-
ara tveggja sænsku laga notið sín
betur en undir táraflóði menningar-
þyrstu og hrifnæmu húsfreyjunnar á
Kirkjubóli með þverhnípt fjallið
gnæfandi yfir söngfuglana innan og
utan dyra.
Ég kynntist ljúflingnum Árna
býsna vel á héraðsmótaferðum okk-
ar um landið þessi sumur. Það var
líka gantast með margt og þurfti
ekki mikið til. Hann vann hjá SÍS og
ég man til dæmis hve hann skemmti
sér eitt sinn vel yfir því að hafa
ásamt nokkrum gárungum breytt
nokkrum skiltum á hurðum í Sam-
bandshúsinu. Þar sem staðið hafði
„Gjaldkeri“ á skilti stóð nú „Sjald-
keri“ og á skiltinu með orðinu „Ís-
lendingasagnaútgáfan“ stóð „Sís-
lendingasagnaútgáfan.“ Annað var
eftir þessu. Þetta voru góðar og glað-
ar stundir og að ferðalokum stendur
aðeins eftir tóm hamingja í formi
ógleymanlegra minninga og þakkir
til Árna fyrir þessi kynni okkar. Ég
sé hann og grátandi húsfreyjuna í
baðstofudyrunum enn fyrir mér þeg-
ar lokatónar lagsins hljóma í minn-
ingunni og túlka hinstu kveðju mína
til hans: „Seg mig god natt – farvel,
vi ses igen.“
Ómar Ragnarsson.
Elskulegi vinur,
hér sitjum við Soffía og hlustum á
dásamlegan söng þinn af diskinum
þínum sem þú færðir okkur á sínum
tíma. Tárin renna.
Ég kynntist þér árið 1976 þegar
ég var ráðinn til þess að veita Herra-
húsinu á Snorrabraut forstöðu, sem
þá var í eigu SÍS.
Þú varst gjaldkeri Iðnaðardeildar
og því vorum við nánast í daglegu
sambandi. „Hver var salan í gær,
elsku vinur?“ Var oftar en ekki byrj-
un á samtali okkar.
Sem betur fer gekk verslunar-
reksturinn vel og samtölin okkar eft-
ir því ánægjuleg.
Við urðum góðir vinir í gegnum
störf okkar ásamt Ormari Skeggja-
syni, sem veitti verslun Torgsins í
Austurstræti forstöðu. Þessi vinátta
hefur haldist í gegnum tíðina og við
höfum oft hist undanfarin ár.
Ekki skemmdi það fyrir þegar þú
kynntist konunni minni henni Soffíu
söngfugli af Guðs náð eins og þú.
Ófáar ánægjustundir höfum við átt
saman við gítarspil og söng. Ég ætla
ekki að reyna að lýsa því þegar þið
Soffía hittust fyrst. Þið „sungust á“
að þvílíkum krafti að það gleymist
aldrei.
Elsku Árni minn,
ræktunarsemi þín var aðdáunar-
verð í okkar garð og ég skammast
mín fyrir að hafa verið eftirbátur
þinn á því sviði.
Mörg yndisleg símtöl sitja eftir í
minninu og lýsa upp minningu þína.
Elsku Eyja mín og fjölskylda,
við Soffía og dætur sendum ykkur
innilegar samúðarkveðjur og biðjum
Guð að gefa ykkur styrk á erfiðum
tímamótum.
Sverrir Bergmann og
Soffía Guðmundsdóttir.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
AÐALBJÖRN BENEDIKTSSON
frá Grundarási,
sem lést 13. ágúst á Landspítalanum verður
jarðsunginn fimmtudaginn 21. ágúst frá Fossvogs-
kirkju kl. 13.00.
Guðrún Benediktsdóttir,
Sigrún Aðalbjarnardóttir, Þórólfur Ólafsson,
Inga Hjördís Aðalbjarnardóttir, Helgi Jón Jónsson,
Aldís Aðalbjarnardóttir, Páll Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
JÓRUNN HADDA EGILSDÓTTIR,
Linnetsstíg 2,
Hafnarfirði,
sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
þriðjudaginn 12. ágúst,verður jarðsungin frá
Hafnarfjarðarkirkju, föstudaginn 22. ágúst kl.13:00.
Ingiberg Þ. Halldórsson,
Katrín Ingibergsdóttir, Jóhann A. Guðmundsson,
Bergþór Ingibergsson, Sirivan Khongjamroen,
Egill Ingibergsson, Anna María Sveinbjörnsdóttir,
Guðbjörg Ingibergsdóttir, Ólafur Haukdal Bergsson,
Halldór Ingibergsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Lokað
Vegna jarðarfarar JÓNÍNU S. SNORRADÓTTUR verður lokað eftir
hádegi í dag, þriðjudaginn 19. ágúst.
Heildverslun Eggerts
Kristjánssonar hf.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru móður,
tengdamóður, ömmu, langömmu og langalang-
ömmu,
GUÐFINNU BJARNADÓTTUR
frá Gerðisstekk við Norðfjörð
Hraunbúðum,
áður Hrauntúni 11,
er andaðist föstudaginnn 1. ágúst.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hraunbúða
og Sjúkrahúss Vestmannaeyja.
Gísli Einarsson, Ellý Gísladóttir,
Kristbjörg Einarsdóttir, Tryggvi Sigurðsson,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkar
samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu,
móður, tengdamóður okkar og ömmu,
ALBÍNU ELÍSU ÓSKARSDÓTTUR,
Efstahjalla 1A,
Huginn Sveinbjörnsson,
Oddný Huginsdóttir, Óskar Sigmundsson,
Viðar Huginsson, Ester Kjartansdóttir,
Elísa Birkisdóttir
og barnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, afi og langafi,
KARL ADOLFSSON
húsgagnabólstrari og tónlistamaður,
lést á Landspítalanum í Fossvogi aðfaranótt
mánudagsins 18. ágúst.
Útförin auglýst síðar.
Ásdís Árnadóttir,
Árni H. Karlsson,
Sigurður G. Karlsson, Guðrún Svava Svavarsdóttir,
Davíð K. Karlsson, Kolbrún Júlínusardóttir,
Gauja S. Karlsdóttir, Björgvin Högnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
SENDUM
MYNDALISTA